Fréttir
Úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna fíkniefna Héraðsdómur úrskurðaði í gærkvöldi mann á þrítugsaldri í gæsluvarðhald eftir að lögregla handtók hann í fyrrinótt þegar eitt kíló af marijúana og talsvert af reiðufé fundust á heimili hans. Þar með eru þrír menn í gæsluvarðhaldi á Akureyri, allir grunaðir um sölu á fíkniefnum og hefur lögregla lagt hald á hálft annað kíló af ýmsum fíkniefnum á aðeins þremur dögum. Innlent 5.12.2005 07:52
Komu í veg fyrir árás á dómhús Saddams Minnstu munaði að írakskir uppreisnarmenn hefðu skotið úr sprengjuvörpum á dómhúsið þar sem réttað var yfir Saddam Hussein í síðustu viku. Írökskum öryggissveitum tókst að koma í veg fyrir árásina á síðustu stundu. Erlent 5.12.2005 07:54
Dregur úr fasteignasölu 167 íbúðir gengu kaupum og sölum í Reykjavík í síðustu viku, tuttugu færri en að meðaltali síðustu tólf vikurnar og var kaupverðið að meðaltali tveimur milljónum króna undir meðallagi, 24 milljónir en er alla jafna 26 milljónir. Innlent 5.12.2005 06:37
Slasaðist alvarlega í árekstri nærri Akranesi Farþegi í fólksbíl, sem lenti í hörðum árekstri við jeppa á mótum Akrafjallsvegar og Akranesvegar í gærkvöldi, slasaðist alvarlega og lilggur nú í öndunarvél á gjörgæsludeild Landsspítalans, en er þó ekki talinn í lífshættu. Ökumaður bílsins meiddist líka en ekki eins alvarlega, en ökumaður jeppans slapp ómeiddur. Innlent 5.12.2005 07:49
Gerðu aðsúg að Allawi í mosku í gær Iyad Allawi, fyrrverandi forsætisráðherra Íraks átti fótum sínum fjör að launa þegar um sextíu menn gerðu aðsúg að honum og fylgdarliði hans við Mosku í borginni Najaf í gær. Á myndum sem náðust af atburðunum sjást Allawi og fleiri hlaupa undan árásarmönnunum fyrir utan Imam Ali moskuna, þar sem þeir sóttu bænastund sjíta. Erlent 5.12.2005 07:46
Hálka eða hálkublettir í öllum landshlutum Hálka eða hálkublettir eru í öllum landshlutum samkvæmt upplýsingum Vegagerðarinnar. Þoka er á Holtavörðuheiði og Vatnsskarði. Flughált er á Tjörnesi, Melrakkasléttu og frá Egilsstöðum upp Jökuldal. Töluverð þoka er við ströndina á Norðausturlandi. Innlent 5.12.2005 08:08
Talið að Impregilo fari fram á milljarða til viðbótar Talið er að viðbótargreiðslur, sem ítalska verktakafyrirtækið Impregilo ætlar að fara fram á vegna óvæntra aðstæðna við jarðgangagerð við Kárahnjúka, geti numið milljörðum króna. Sigurður Arnarlds hjá Landsvirkjun segir í viðtali við Fréttablaðið að viðræður um málið séu á byrjunarstigi. Innlent 5.12.2005 07:43
Farþegar í vél sem nauðlenti héldu heim í nótt Hátt í 300 farþegar Air Bus vélarinnar, sem lenti á Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær, eftir að annar hreyfill hennar bilaði, héldu áfram för sinni til Kanada klukkan eitt í nótt. Þá kom önnur vél frá Air Canada og sótti þá, en fólkið var að koma frá Frankfurt. Væntanlega verður gert við vélina hér á landi en ekki liggur fyrir hvort skipta þar um hreyfilinn sem bilaði. Innlent 5.12.2005 07:39
Flugvélar CIA lentu 437 sinnum í Þýskalandi Flugvélar á vegum bandarísku leyniþjónustunnar CIA lentu 437 sinnum á þýskum flugvöllum á árunum 2002 og 2003. Þetta kemur fram í tímaritinu Der Spiegel, sem hefur undir höndum gögn sem þýsk flugmálayfirvöld hafa afhent að beiðni vinstri flokksins á þýska þinginu. Erlent 5.12.2005 07:34
Geir H. Haarde og aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna ræddu meinta ólöglega fangaflutninga á fundi í dag Geir H. Haarde utanríkisráðherra og Nicholas Burns, aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddu meinta ólöglega fangaflutninga á vegum bandarískra stjórnvalda um íslenska lofthelgi á fundi í dag. Innlent 5.12.2005 19:29
Fyrsta tap Njarðvíkinga Njarðvíkingar töpuðu fyrsta leik sínum í úrvalsdeild karla í vetur þegar liðið lá á heimavelli fyrir grönnum sínum úr Grindavík 105-106. Keflvíkingar unnu góðan sigur á Fjölni í Grafarvogi 97-93, ÍR lagði Hauka 77-75, Hamar/Selfoss lagði Þór 89-88, KR sigraði Snæfell 74-70 og Skallagrímur burstaði Hött 110-77. Sport 4.12.2005 21:28
Luxemburgo rekinn frá Real Brasilíski knattspyrnustjórinn Wanderley Luxemburgo hefur verið rekinn úr starfi sínu hjá spænska stórliðinu Real Madrid. Þetta var ákveðið á fundi stjórnar félagsins nú undir kvöldið. Gengi liðsins hefur verið langt frá væntingum undanfarið og því fékk Luxemburgo að taka pokann sinn eftir aðeins ellefu mánuði í starfi. Sport 4.12.2005 21:11
Málamiðlanir nauðsynlegar Guðmundur Magnússon höfundur bókarinnar um Thorsættina fæst ekki til að svara því játandi eða neitandi hvort ástæða þess að fyrstu útgáfu bókar hans var fargað hafi verið kafli um fyrrverandi hjónaband Þóru Hallgrímsson. Framkvæmdastjóri Hagþenkis segir félagið ekkert muni gera í málinu þar sem höfundur hafi ekki leitað til þess. Innlent 5.12.2005 02:37
Haukar á toppinn með sigri í Grindavík Haukastúlkur unnu góðan sigur á Grindavík í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í dag 83-72. Mikill hasar var í leiknum og var þjálfara Hauka vísað úr húsi eftir að hafa hnakkrifist við dómara leiksins. Sport 4.12.2005 18:41
Manchester City valtaði yfir Charlton Einn leikur var á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í dag. Manchester City valtaði yfir lánlaust lið Charlton á útivelli 5-2. Jay Bothroyd og Darren Bent skoruðu mörk Charlton, en Andy Cole skoraði tvö fyrir City og lagði annað upp, og þeir Trevor Sinclair, Darius Vassell og Joey Barton skoruðu eitt mark hver fyrir City, sem hafði mikla yfirburði í leiknum og varnarleikur Charlton var skelfilegur. Sport 4.12.2005 17:59
Magdeburg lá fyrir Barcelona Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Magdeburg biðu lægri hlut fyrir spænska stórliðinu Barcelona á heimavelli í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag. Lokatölur urðu 26-24 fyrir spænska liðið, sem er með pálmann í höndunum fyrir síðari leikinn. Sigfús Sigurðsson og Arnór Atlason skoruðu báðir þrjú mörk fyrir Magdeburg. Sport 4.12.2005 17:54
Keflavík og Breiðablik meistarar Keflvíkingar tryggðu sér í dag Íslandsmeistaratitilinn í innanhússknattspyrnu með sigri á KR í úrslitaleik 1-0. Breiðablik varð meistari í kvennaflokki eftir æsispennandi framlengingu og vítakeppni, þar sem staðan var 1-1 að lokinni framlengingu. Sport 4.12.2005 17:11
Arsenal hefur titilvörnina gegn Cardiff Nú er búið að draga í þriðju umferð enska bikarsins, FA Cup. Bikarmeistarar Arsenal mæta Cardiff á heimavelli, Chelsea mætir Huddersfield og Manchester United mætir annað hvort Burton eða Burscough, sem eru utandeildarlið. Sport 4.12.2005 16:34
Elber látinn fara frá Gladbach? Brasilíski framherjinn Giovane Elber verður látinn fara frá þýska úrvalsdeildarliðinu Borussia Mönchengladbach um helgina ef marka má fréttir úr þýskum fjölmiðlum, en hann ku hafa verið til eintómra vandræða síðan hann kom á frjálsri sölu frá franska liðinu Lyon í janúar. Elber hefur lítið fengið að spreyta sig hjá Gladbach í vetur, en hann er markahæsti útlendingur í sögu úrvalsdeildarinnar með 133 mörk. Sport 4.12.2005 15:17
Einar skoraði 10 fyrir Grosswallstadt Þrír leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gærkvöldi. Einar Hólmgeirsson fór á kostum í liði Grosswallstadt og skoraði 10 mörk í sigri liðsins á Wetzlar 30-25, en Róbert Sighvatsson skoraði eitt mark fyrir Wetzlar. Þá var Snorri Steinn Guðjónsson ekki síðri hjá Minden þegar hann skoraði 9 mörk í tapi fyrir Wilhelmshaven 29-25, en Gylfi Gylfason skoraði 5 mörk fyrir Wilhelmshaven. Sport 4.12.2005 15:09
Enn sá Beckham rautt David Beckham fékk að líta rauða spjaldið í gær þegar lið hans Real Madrid vann nauman sigur á spútnikliði Getafe 1-0. Beckham var rekinn af velli fyrir fólskulegt brot á einum leikmanna Getafe, en gæti átt yfir höfði sér frekari refsingu fyrir hegðun sína eftir að honum var vikið af velli. Sport 4.12.2005 14:52
Toronto vann annan leikinn í röð Heillum horfið lið Toronto Raptors virðist vera að finna taktinn og vann annan leik sinn í röð í deildinni í nótt þegar liðið skellti New Jersey á útivelli. Þá áttust við leikmenn mánaðarins í NBA deildinni þegar Cleveland sótti LA Clippers heim. Sport 4.12.2005 14:35
Jermaine Taylor er konungur millivigtarinnar Jermaine Taylor varði titil sinn sem óumdeildur meistari í millivigt hnefaleika í nótt þegar hann sigraði Bernard Hopkins öðru sinni síðan í júlí. Allir þrír dómararnir skoruðu bardagann 115-113 Taylor í vil og þó Hopkins hafi ekki verið sáttur við niðurstöðuna, var hún ótvíræð í þetta sinn eftir að úrslitin í fyrri bardaganum höfðu verið nokkuð loðin. Sport 4.12.2005 14:29
Hopkins ætlar að ganga frá Taylor "Böðullinn" Bernard Hopkins ætlar að setja á svið sýningu í kvöld þegar hann mætir Jermain Taylor öðru sinni í bardaga þar sem krýndur verður óumdeilanlegur konungur millivigtarinnar í hnefaleikum. Hopkins, sem hafði ekki tapað á ferlinum fyrr en hann tapaði fyrir Taylor, sagði að sigur mótherja síns hafi verið rán um hábjartan dag og ætlar að sýna það og sanna í kvöld að hann sé sá besti. Sport 3.12.2005 19:44
Manchester United í annað sætið Manchester United skellti sér í annað sæti úrvalsdeildarinnar í kvöld þegar liðið lagði Portsmouth 3-0 á Old Trafford. Paul Scholes, Wayne Rooney og Ruud Van Nistelrooy skoruðu mörk United. Sport 3.12.2005 19:12
Manchester United leiðir í hálfleik Manchester United er yfir í hálfleik gegn Portsmouth í lokaleik dagsins í enska boltanum. Það var Paul Scholes sem skoraði mark United eftir 19 mínútna leik, en áður en flautað var til leiks var George Best heiðraður í síðasta sinn á Old Trafford þar sem áhorfendur risu úr sætum og klöppuðu honum til heiðurs. Best var jarðsettur í heimalandi sínu í dag. Sport 3.12.2005 18:24
Fram lagði HK Fram sigraði HK 28-27 í Safamýrinni í dag, eftir að hafa yfir 15-13 í hálfleik. Jón Björgvin Pétursson skoraði mest í liði Framara, 10 mörk en hjá HK var það Valdimar Þórsson sem var lang atkvæðamestur og skoraði 12 mörk, þar af 3 úr vítaköstum. Sport 3.12.2005 18:14
Naumur sigur hjá KA KA-menn sigruðu Steua Bukarest 24-23 í Evrópukeppninni í handknattleik í dag, en leikið var á Akureyri. Í hálfleik var staðan 13-11 fyrir KA. Jónatan Magnússon var markahæstur KA-manna með 7 mörk og skoraði einnig sigurmark KA í lokin. Sport 3.12.2005 17:59
Ívar og félagar enn á toppnum Reading, lið Ívars Ingimarssonar í ensku 1. deildinni, vann góðan sigur á Luton Town í dag 3-0 og hefur því fjögurra stiga forskot í deildinni. Ívar spilaði allan leikinn fyrir Reading. Þá skoraði Jóhannes Karl Guðjónsson mark úr vítaspyrnu fyrir Leicester sem tapaði fyrir Leeds 2-1. Sport 3.12.2005 17:41
Auðvelt hjá Lemgo Íslendingaliðið Lemgo í Þýskalandi átti ekki í teljandi vandræðum með andstæðinga sína Cakovac frá Króatíu í EHF-keppninni í dag og sigraði 41-25. Logi Geirsson skoraði 7 mörk í leiknum og Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 6, en gera má ráð fyrir að eftirleikurinn verði Lemgo auðveldur með svo gott forskot í síðari leikinn. Sport 3.12.2005 17:53