Fréttir
Lagt til að öryggi borgarbúa verði eflt Miðborgargæsla um helgar og efling öryggis í hverfum borgarinnar er meðal þess sem viðræðurhópur um löggæslumálefni í Reykjavík hefur lagt til. Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, skipaði hópinn í ágúst árið 2003 sem hefur síðan þá verið samstarfsvettvangur dóms og krikjumálaráðuneytis, lögreglu og borgaryfirvalda um löggæslumál í Reykjavík. Innlent 5.4.2006 11:20
Aðeins níu karlmenn skráðir atvinnulausir á Vestfjörðum Aðeins níu karlmenn eru skráðir atvinnulausir á Vestfjörðum en hvergi á landinu eru eins fáir karlmenn skráðir atvinnulausir. Fréttavefurinn Bæjarins besta greinir frá því að í byrjun árs hafi 20 karlmenn verið skráðir en þeim hafi fækkað jafnt og þétt. Innlent 5.4.2006 10:43
Milosevic lést af náttúrulegum orsökum Slobodan Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, lést af náttúrulegum orsökum. Þetta er niðurstaða þýsks saksóknara sem rannsakaði lát Milosevic sem segir ekkert benda til þess að dauða hans hafi borið að með saknæmum hætti. Erlent 5.4.2006 10:27
Skógræktarfélagið ekki markaðshindrandi Samkeppniseftirlitið hefur úrskurðað að þrátt fyrir að viss mismunum felist í starfi Skógræktarfélags Íslands þá sé það ekki markaðshindrun þegar nýir aðilar vilja starfa við grisjun sumarhúsalóða og skipulagsvinnu fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Starfi félagið ekki á samkeppnismarkaði og vinni það eingöngu að grisjun eða ráðgjöf vegna skógarreita aðildarfélaga Skógræktarfélagsins. Viðskipti innlent 5.4.2006 10:14
Gistinóttum á hótelum fjölgar um 5,5% í febrúar Gistinóttum á hótelum í febrúar fjölgaði um 5,5% milli ára samkvæmt nýjustu tölum Hagstofunnar yfir gistinætur á hótelum sem opin eru allt árið. Gistinóttum fjölgaði hlutfallslega mest á Suðurnesjum, Vesturlandi og Vestfjörðum þar sem gistinætur fóru úr 3.300 í 5.600 milli ára eða um 68%. Innlent 5.4.2006 10:11
Gagnrýnd fyrir of háan reikning Lene Espersen, dómsmálaráðherra Danmerkur, sætir nú gagnrýni fyrir að hafa boðið nánustu samstarfsmönnum á jólahlaðborð á kostnað ríkisins stuttu eftir að hún var skipuð í embætti árið 2001. Politiken greinir frá því að danska ríkisendurskoðunin hafi gert athugasemdir við reikninginn en Espersen bauð samstarfsmönnum sínum á veitingastaðinn Ero Oro og hljóðaði reikningurinn upp á rúm 19.000 danskra króna eða sem samsvarar tæpum 230.000 íslenskra króna. Erlent 5.4.2006 09:56
Hálka og hálkublettir eru víða á þjóðvegum landsins. Hálka og hálkublettir eru víða á þjóðvegum landsins. Á Hellisheiði eru hálkublettir og éljagangur. Hálkublettir eru í uppsveitum Árnessýslu og á stöku stað á Vesturlandi. Þá er hálka og hálkublettir á Vestfjörðum. Á Norður,- Norðaustur- og Austurlandi er víðast hvar hálka, hálkublettir, éljagangur eða skafrenningur. Innlent 5.4.2006 09:32
Leki kom að bát í Ólafsvíkurhöfn Slökkvilið Snæfellsbæjar var kallað út að höfninni í Ólafsvík á áttunda tímaum í morgun en leki hafði komið að bát í höfninni. Báturinn var kominn því sem næst á hliðina þegar hafnarstarfsmenn tóku eftir honum við eftirlit og kölluðu á slökkvilið. Innlent 5.4.2006 09:13
Saddam aftur fyrir rétt Saddam Hussein, fyrrverandi forseti Íraks, mætti aftur fyrir rétt í morgun. Hann sakaði innanríkisráðuneyti Íraks um að hafa myrt og pyntað þúsundir manna. Verið er að yfirheyra Saddam um morð á sjía-múslinum á níunda áratug síðustu aldar. Erlent 5.4.2006 08:41
Icelandair styrkir Listahátíð Reykjavíkur Forsvarsmenn Listahátíðar og Icelandair fögnuðu í gær 25 ára starfsafmæli með undirritun nýs samstarfssamnings. Stjórnandi Listahátíðar fullyrðir að hátíðin hefði ekki komist á laggirnar ef ekki væri fyrir samstarfið. Innlent 5.4.2006 07:26
Hiti yfir meðallagi fimmta mánuðinn í röð Meðalhiti í Reykjavík í mars mánuði var tæplega eitt stig, sem er tæpu hálfu stigi yfir meðallagi, samkvæmt samantekt Veðurstofunnar og var mars fimmti mánuðurinn í röð, sem hitinn var yfir meðallagi. Óvenju skörp veðraskil voru í mánuðinum, þar skiptust á kuldakaflar og óvenju hlýr hlákukafli, Í heild var mánuðurinn þurrviðrasamur. Innlent 5.4.2006 07:24
Efnt til hönnunarsamkeppni á þjónustumiðstöð Snæfellsbær og Umhverfisstofnun hafa ákveðið að efna til samkeppni um hönnun þjónustumiðstöðvar Þjóðgarðsins Snæfellsjökuls á Hellissandi og fer samkeppnin fram samkvæmt reglum Arkitektafélags Íslands. Innlent 5.4.2006 07:16
Hörð átök milli mótmælenda og lögreglu í Frakklandi Til harðra átaka kom milli óeirðarlögreglu og mótmælenda í Frakklandi í gær. Lögreglan telur að um ein milljón manna hafi tekið þátt í mótmælunum en verkalýðsforystan telur að sú tala sé nær þremur milljónum. Lögreglan handtók um fjögurhundruð manns. Erlent 5.4.2006 07:14
Kvóti nýttur til sjóstangaveiða Nýtt útgerðarmynstur leit dagsins ljós á Tálknafirði í gær þegar níu Þjóðverjar réru til fiskjar á nokkrum hraðfiskibátum og veiddu af kvótum þeirra, en útgerðarmennirnir sátu heima í stofu og horðu á. Innlent 5.4.2006 07:11
Fl Group selur hlut sinn í easyJet FL Group er að selja tæplega 17% hlut sinn i lággjaldaflugfélaginu easyJet fyrir um það bil þrjátíu milljarða króna og hagnast félagið um 12 milljarða miðað við kaupverð bréfanna á sínum tíma. Innlent 5.4.2006 07:07
Ekkert lát er á flóðunum í Mið-Evrópu Ekkert lát er á flóðum í Mið-Evrópu. Íbúar í Austurríki og Tékklandi hafa unnið myrkranna á milli til að reyna að koma í veg fyrir að flóðin valdi meira tjóni. Flóðin hófust í síðustu viku eftir miklar rigningar undanfarið. Erlent 5.4.2006 07:04
Páll talinn hæfastur umsækjenda Meirihluti Hæstaréttar telur að Páll Hreinsson prófessor sé hæfastur þeirra fjögurra, sem sóttu um stöðu Hæstaréttardómara. Allir umsækjendurnir séu hæfir en næst komi Hjördís Hákonaróttir dómstjóri og sigríður Ingvarsdóttir og loks Þorgeir Ingi Njálsson. Innlent 5.4.2006 07:02
97 tillögur bárust um nafn á nýju sveitafélagi Alls bárust 97 tillögur um nafn á hið nýja sameinaða sveitafélag á Ólafsfirði og Siglufirði. Fréttavefurinn Dagur greinir frá því að nokkrar tillögur hafi verið að sama nafni svo það eru rúmlega 70 nöfn sem nafnanefndin þarf að taka afstöðu til. Nafnanefndin mun funda í dag og að þeim fundi loknum verða nafnatillögurnar upplýstar. Innlent 5.4.2006 06:39
Enn rætt um RÚV-frumvarp á þingi Önnur umræða um frumvarp til nýrra laga um Ríkisútvarpið stendur enn á Alþingi en hún hófst um klukkan eitt í dag. Fimm manns hafa tekið til máls frá því að umræðan hófst en skömmu fyrir klukkan tíu voru tólf á mælendaskrá og því líklegt að þingfundur standi að minnsta kosti til miðnættis. Umræðunni lýkur þó varla í kvöld. Innlent 4.4.2006 22:25
Hlutfall vinnuslysa á Austurlandi eykst umtalsvert Um þriðjungur vinnuslysa hér á landi hefur verið á Austurlandi undanfarin tvö ár samkvæmt tölum Vinnueftirlitsins. Hefur hlutfall þeirra af öllum vinnuslysum í landinu aukist umtalsvert frá aldamótum. Þá leiða tölur Vinnueftirlitsins í ljós að byggingariðnaðurinn er hættulegasta starfsgreinin. Innlent 4.4.2006 22:21
Mótmælaaðgerðir ófaglærðra geti breiðst út um landið Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins segja að vel geti farið svo að ófaglært starfsfólk á heilbrigðisstofnunum úti á landi grípi til mótmælaaðgerða eins og setuverkfalls til að knýja á um bætt kjör. Fundað verður með heilbrigðisráðherra í fyrramálið vegna stöðunnar. Innlent 4.4.2006 22:35
Ákærður fyrir fjöldamorð á Kúrdum Saddam Hussein hefur verið ákærður fyrir þjóðarmorð á íröskum Kúrdum á níunda áratugnum. Allt að hundrað og áttatíu þúsund manns eru taldir hafa týnt lífi í fjöldamorðunum. Erlent 4.4.2006 16:56
Þýska safnið komið til Hafnarfjarðar Bókasafn Hafnarfjarðar mun framveigis hýsa þýska bóksafnið fyrir Goethe-Zentrum á Íslandi. Um er að ræða bækur, geisladiska, hljóðsnældur og myndbönd á þýskri tungu, alls 6500 titla. Innlent 4.4.2006 16:16
Fundað með heilbrigðisráðherra vegna umönnunarstarfa Forsvarsmenn Starfsgreinasambandsins funda á morgun með heilbrigðisráðherra meðal annars vegna þeirrar stöðu sem upp er komin í kjarabaráttu ófaglærðra starfsmanna á elliheimilum á suðvesturhorninu. Starfsmennirnir hafa boðað setuverkfall í lok þessarar viku vegna óánægju með kjör sín, en þeir vilja sömu laun og fólk í sambærilegum störfum hjá sveitarfélögunum. Innlent 4.4.2006 16:58
Fyrsta sérhæfða geðdeildin fyrir aldraða Geðdeild fyrir aldraða verður sett á laggirnar á Landakotsspítala, sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi. Þetta er meðal aðgerða sem heilbrigðisráðherra kynnti í dag sem ætlaðar eru til að bæta geðheilbrigðisþjónustu við aldraða hér á landi. Innlent 4.4.2006 16:51
Málið fer til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg Gestur Jónsson, lögmaður Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Baugsmálinu, segir að farið verði með málið til Mannréttindadómstóls Evrópu í Strassborg þegar búið verði að útkljá alla anga þess fyrir íslenskum dómstólum. Innlent 4.4.2006 16:39
Óbreytt lánshæfismat Glitnis banka Lánshæfismatsfyrirtækið Moody´s staðfesti lánshæfiseinkunnir þriggja stærstu banka landsins í dag. Langtímaeinkunn Glitnis banka er A1 en skammtímaeinkunn er P1. Þá segir Moody´s horfur Glitnis banka stöðugar. Viðskipti innlent 4.4.2006 16:18
Lánshæfiseinkunnir KB banka staðfestar Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's staðfesti lánshæfiseinkunnir KB banka í dag og gefur langtímaeinkunnina A1 og skammtímaeinkunnina P-1. Einkunn fyrir fjárhagslegan styrkleika C+ verður tekin til endurskoðunar til hugsanlegrar lækkunar. Viðskipti innlent 4.4.2006 16:11
Lánshæfiseinkunn Landsbankans staðfest Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið Moody’s staðfesti í dag A-2 og P-1 lánshæfismatseinkunnir Landsbankans. Samhliða þessu hefur Moody’s breytt horfum á lánshæfismatseinkunn á fjárhagslegum styrkleika, sem í dag er C, úr stöðugum í neikvæðar. Viðskipti innlent 4.4.2006 16:01
FL Group kaupir í Finnair FL Group hefur bætt við hlut sinn í finnska flugfélaginu Finnair og á eftir kaupin 10,025 prósent í félaginu. Að sögn Alberts Jónssonar, framkvæmdastjóra FL Group, hefur Finnair skilað góðri afkomu og er það góður fjárfestingakostur. Viðskipti innlent 4.4.2006 13:57