Fréttir

Fréttamynd

Ráðist á mosku sjía í Írak

Að minnsta kosti 20 féllu og 30 særðust þegar bílsprengja sprakk nálægt mosku sjía-múslima norð-austur af Bagdad, höfuðborg Íraks, síðdegis í dag. Sprengja sprakk á fjölfarinni götu. Fjölmargir hafa fallið í átökum sjía og súnní múslima í Írak síðustu vikur.

Erlent
Fréttamynd

Mikil umferð um Holtavörðuheiði

Mikil umferð er norður yfir Holtavörðuheiði og ljóst að margir eru á leið í páskafrí. Nokkur hálka er á þessum slóðum og því ágætt að fara varlega að sögn lögreglu en þó hefur ekkert óhapp verið tilkynnt til lögreglunnar.

Innlent
Fréttamynd

Demantspáskaegg til sölu

Súkkulaðiegg og páskahérar seljast vanalega eins og heitar lummur þegar dregur að páskum en óvíst er hvort nýtt 60 cm hátt páskagóðgæti seljist í skyndi. Um er að ræða súkkulaðiegg sem er þakið 100 demöntum en hver þeirra er um hálft karat. Eggið er metið á tæplega 7 milljónir íslenskra króna.

Erlent
Fréttamynd

Fjölbreyttar ferðið fyrir borgarbúa á Sumardaginn fyrsta

Ferðalangur á heimaslóð er samheiti fjölbreyttra skemmtiferða sem fólki á öllum aldri gefst færi á að fara í á Sumardaginn fyrsta. Hestaferðir, hvalaskoðun, rútuferðir út fyrir borgarmörkin og útsýnisflug er meðal þess sem í boði er.

Innlent
Fréttamynd

Öryggisráðið þarf að bregðast við af hörku

Íranar hafa færst skrefi nær atómsprengjunni eftir að þeir tilkynntu í gær að þeim hefði tekist að auðga úran. Rússar skoruðu á Írana í morgun að láta af kjarnorkuvinnslu sinni. Kínverjar segja yfirlýsingar Írana ekki samræmast kröfum Sameinuðu þjóðanna.

Erlent
Fréttamynd

Þrjú sjóræningjaskip á Reykjaneshrygg

Þrjú svokölluð sjóræningjaskip sem skráð eru í Georgíu sáust á svæði Norðaustur-Atlantshafsfiskveiðinefndarinnar á Reykjaneshrygg í gær. Það var áhöfn TF-SYN, Fokkerflugvélar Landhelgisgæslunnar, sem kom auga á skipin í eftirlitsflugi.

Innlent
Fréttamynd

Standa við skýrsluna

Þrátt fyrir að lánshæfismat íslensku bankanna sé nánast óbreytt segist fulltrúi Danske Bank standa við skýrslu sína um íslenskt efnahagslíf. Hann vísar því á bug að bankinn hafi hagnast á að mála ástandið hér dökkum litum.

Erlent
Fréttamynd

Linsuvökvi veldur blindu

Mest seldi linsuvökvi á Íslandi getur, við ákveðnar aðstæður, valdið augnsjúkdómum sem leiða til blindu. Þessar aðstæður eru meðal annars hiti og raki. Landlæknir kannar málið.

Innlent
Fréttamynd

Sex ára fangelsi fyrir sveðjuárás

Átján ára gamall piltur, Tindur Jónsson, var dæmdur í sex ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir tilraun til manndráps þegar hann réðist að öðrum pilti með stórum hnífi eða sveðju og hjó ítrekað í höfuð hans og líkama.

Innlent
Fréttamynd

Fimm bílar í árekstri

Fimm bílar lentu í árekstri á Hringbraut í Reykjavík, skammt frá Stakkahlíð, um klukkan hálf sex. Ekki urðu þó nein meiðsl að ráði á fólki. Að sögn lögreglu hefur umferðin þrátt fyrir þetta almennt gengið vel fyrir sig en hún er mjög mikil á þessum síðasta virka degi fyrir páskahelgi.

Innlent
Fréttamynd

Horfir fram á sumarþing eða frestun mála fram á haust

Magrét Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, segir að halda verði sumarþing eða fresta málum fram á haustþing því ekki náist að klára öll þau mál sem lögð hafi verið fyrir þingið að undanförnu. Hún sakar ríkisstjórnina um hroðvirkni við vinnslu frumvarpa.

Innlent
Fréttamynd

Myndun ríkisstjórnar hefst á næstu dögum

Romano Prodi, leiðtogi Ólívubandalags mið- og vinstri flokka á Ítalíu, segir viðræður um myndun nýrrar ríkisstjórnar hefjast á næstu dögum. Silvio Berlusconi forsætisráðherra krefst þess að atkvæði í þingkosningunum verði talin á ný.

Erlent
Fréttamynd

Aðhefst ekkert vegna kaupa Fons á Skeljungi

Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til að aðhafast vegna kaupa eignarhaldsfélagsins Fons á olíufélaginu Skeljungi af Högum. Gengið var frá kaupunum í lok febrúar og verður Skeljungur dótturfélag Fons.

Innlent
Fréttamynd

Setuverkfallinu frestað

Búið er að fresta viku setuverkfalli ófaglærðs starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilum, sem hefjast átti hinn 21. apríl næstkomandi. Að sögn Álfheiðar Bjarnadóttur, talsmanns starfsfólksins, eru viðræður hafnar við forstöðumenn hjúkrunarheimilanna.

Innlent
Fréttamynd

Harry prins orðinn herforingi

Harry prins, sonur Karls Bretaprins, útskrifaðist í dag úr Sandhurst-herskólanum með mikilli viðhöfn. Harry, sem er 21 árs, hóf þjálfun í maí í fyrra og útskrifast sem herforingi. Hann hefur lýst yfir áhuga á að berjast í fremstu víglínu í Írak og Afganistan þar sem fjöldi breskra hermanna er nú.

Erlent
Fréttamynd

Adidas og NBA ná samningum

Samningar hafa náðst á milli þýska íþróttavöruframleiðandans Adidas og bandarísku körfuboltadeildarinnar NBA um notkun Adidas búninga í karla- og kvennadeildum næstu 11 árin. Gengi bréfa í Adidas hækkað um 3 prósent í kjölfarið.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Nasdaq íhugar aukin kaup í LSE

Stjórn Nasdaq-markaðarins útiloka ekki að fleiri hlutir verði keyptir í kauphöllinni í Lundúnum (LSE) í Bretlandi. Markaðurinn keypti tæp 15 prósent af tveimur stórum hluthöfum í kauphöllinni í gær og er nú stærsti einstaki hluthafinn í LSE. Gengi bréfa LSE hækkuðu um 13 prósent í kjölfar kaupanna.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Sprengjuhótun í flugvél Ryanair

Prestwick-flugvelli, rétt fyrir utan Glasgow í Skotlandi, var lokað í dag en farþegaflugvél var beint þangað vegna sprengjuhótunar. Áhöfn vélarinnar barst miði sem á stóð að búið væri að koma sprengju fyrir í vélinni.

Erlent
Fréttamynd

Akureyrarbær flytur viðskipti sín til Glitnis

Akureyrarbær hefur ákveðið að flytja öll bankaviðskipti sín til Glitnis og tekur samningurinn til allra bankaviðskipta Akureyrarbæjar að undanskildum langtímalánum bæjarins. Þetta er í fyrsta skipti sem Akureyrarbær flytur bankaviðskipti sín milli viðskiptabanka frá árinu 1904.

Innlent
Fréttamynd

TF-LÍF í tilraunaflugi yfir höfuðborgarsvæðinu

Önnur þyrla Landhelgisgæslunnar, TF-LÍF, er nú á flugi yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni þess til að athuga hvernig hún hefur komið út úr svo kallaðri þrjú þúsund tíma skoðun. Þyrlan hefur verið í slíkri skoðun frá því í febrúar en hún er framkvæmd á þrjú þúsund flugtíma fresti. Vonast er til að skoðuninni ljúki í dag.

Innlent
Fréttamynd

Fjöldi kjörseðla finnst í ruslatunnu

Fimm kassar troðnir kjörseðlum fyrir þingkosningarnar á Ítalíu fundust í ruslatunnu í Róm í dag. Kassarnir voru allir merktir innanríkisráðuneyti landsins.

Erlent
Fréttamynd

FL Group og fleiri kaupa Refresco

FL Group hf. hefur í samstarfi við aðra fjárfesta keypt hollenska drykkjarvöruframleiðandann Refresco Holding B.V. (Refresco) af fjárfestingasjóðnum 3i Plc. Heildarkaupverð, ásamt skuldum, er um 461 milljón evra, 42 milljarðar íslenskra króna. FL Group verður stærsti hluthafi félagsins ásamt m.a. Vífilfelli og helstu stjórnendum Refresco.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hámarkslán Íbúðalánasjóðs hækka

Félagsmálaráðherra hefur ákveðið hækkun á hámarkslánum Íbúðalánasjóðs úr 15,9 milljónum í 18 milljónir króna og hefur undirritað reglugerð þar af lútandi. Þá hefur hann jafnframt undirritað reglugerð um breytingu á reglugerð um ILS-veðbréf en samkvæmt þeim verður ekki lengur krafist þess af byggingaraðilum að þeir leggi fram bankaábyrgð vegna láns til nýbygginga. Þá verður ekki einungis miðað við brunabótamat við ákvörðun hámarkslán.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Hundruð kílómetra í þjónustu fyrir atvinnulausa

Atvinnulausir á Hornafirði og víðar gætu þurft að sækja þjónustu til svæðisvinnumiðlana í mörg hundruð kílómetra fjarlægð ef frumvarp félagsmálaráðherra um atvinnleysistryggingar nær fram að ganga. Þá er ekki auðvelt að átta sig á því hvert skráningarferlið á að vera að sögn Hjördísar Þóru Sigurþórsdóttur, formanns stéttafélagsins Vökuls á Austurlandi.

Innlent
Fréttamynd

Fékk aðsvif og lést undir stýri

Ökumaður á stórum sendibíl lést undir stýri þegar hann var á leið eftir Reykjanesbraut á móts við Kaplakrika í Hafnarfirði um sjöleytið í morgun. Maðurinn mun hafa fengið aðsvif með þeim afleiðingum að bíllinn hafnaði utan vegar.

Innlent
Fréttamynd

Opið í Bláfjöllum í dag

Skíðasvæðið í Bláfjöllum er opið í dag frá kl. 14 til 21. Opið er í Kóngsgili, Kóngurinn sjálfur og kaðallyftan Patti broddgöltur og byrjendalyftan Amma mús við Bláfjallaskála eru opnar, segir í tilkynningu frá rekstarstjóra svæðanna.

Innlent
Fréttamynd

Nærri fimmtíu tilboð í þrjár lóðir í Norðlingaholti

Alls bárust 47 tilboð frá 20 aðilum í byggingarrétt í Norðlingaholti, en tilboðin voru opnuð hjá Framkvæmdasviði í gær. Boðinn var út byggingarréttur á tveimur lóðum fyrir atvinnuhúsnæði og á einni lóð fyrir 27 - 30 íbúða fjölbýlishús.

Innlent