Fréttir
Skutu þrjá til bana Egypskir lögreglumenn skutu þrjá bedúína til bana á Sínaí-skaga í gær. Mennirnir lágu undir grun um að hafa átt aðild að hryðjuverkunum í Dahab í síðustu viku þar sem átján manns létu lífið. Erlent 1.5.2006 17:22
Sjónlistamiðstöð opnar í haust Sjónlistamiðstöð tekur til starfa á Korpúlfsstöðum í haust. Fulltrúar Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra myndlistarmanna, Forms Íslands - samtaka hönnuða og Iðntæknistofnunar skrifuðu í dag undir samstarfssamning um rekstur miðstöðvarinnar. Innlent 1.5.2006 16:31
Vilja fiskmarkað á Akranesi Stefnt er að því að opna fiskmarkað á Akranesi. Bæjarráð hefur úthlutað Faxaflóahöfnum lóð við Faxabraut þar sem stefnt er að því að reisa húsnæði undir fiskmarkað. Gert er ráð fyrir að húsið verði á tveimur hæðum, fiskmarkaður á neðri hæðinni en önnur starfsemi á þeirri efri. Innlent 1.5.2006 15:59
Þarf að greiða milljónir í bætur Konan sem lögregla handtók eftir langa eftirför í Reykjavík í fyrrakvöld og fjölda tilrauna til að stöðva hana má eiga von á að greiða fleiri milljónir króna í bætur fyrir það tjón sem hún olli. Innlent 1.5.2006 14:38
Fjölmenni í kröfugöngu Fjöldi fólks tekur þátt í kröfuganga dagsins í Reykjavík sem lagði upp frá Hlemmi fyrir hálftíma sem upphafið að hátíðahöldum á baráttudegi verkalýðsins. Nú er fólk að safnast saman á Ingólfstorgi þar sem útifundur hefst tíu mínútur yfir tvö. Innlent 1.5.2006 13:58
Vinstri-grænir kynna lista sinn Þorgrímur Einar Guðbjartsson á Erpsstöðum leiðir framboðslista Vinstri-grænna í Dalasýslu fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Framboðslistinn var samþykktur einróma á félagsfundi Vinstri-grænna í gær. Innlent 1.5.2006 12:28
Femínistafélagið fær jafnréttisverðlaun Femínistafélag Íslands hlaut Jafnréttisverðlaun Reykjavíkurborgar. Verðlaunin voru veitt í fyrsta skipti í dag og sagði Steinunn Valdís Óskarsdóttir borgarstjóri að það hefði komið á óvart hversu margar tilnefningar bárust. Innlent 1.5.2006 11:52
Kjósa milli þriggja nafna Gljúfrabyggð, Norðausturbyggð eða Norðurþing er nafnið sem sameinað sveitarfélag Húsavíkur, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps fær. Innlent 1.5.2006 10:03
Gjá milli ASÍ og verkalýðsfélaga Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, gagnrýnir forystu Alþýðusambands Íslands harðlega í pistli á heimasíðu verkalýðsfélagsins. Hann segir gjá hafa myndast milli ASÍ og fjölda verkalýðsfélaga. Innlent 1.5.2006 09:49
Haglél á stærð við hafnarbolta Hávaðarok og haglél á stærð við hafnarbolta hafa dunið yfir Texas um helgina. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í veðurofsanum, en miklar skemmdir hafa orðið á fjölmörgum húsum og vegum. Erlent 30.4.2006 16:18
Fráleitt að gera kjarnorkuárás á Íran Það er fráleitt að íhuga að gera kjarnorkuárásir á Íran segir Colin Powell, fyrrverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Í sjónvarpsviðtali í gær sagðist Powell jafnframt hafa ráðlagt George Bush að senda fleiri hermenn til Íraks, en á það hafi ekki verið hlustað. Erlent 30.4.2006 16:22
Vitundarvakning í málefnum geðfatlaðra Vitundarvakning er að verða í málefnum geðfatlaðra. Aukin þjónustu- og búsetuúrræði er meðal þess sem koma skal í málefnum geðfatlaðra á Íslandi. Innlent 30.4.2006 18:26
Vilja framlengja neyðarlög gegn hryðjuverkum Egypska lögreglan skaut mann til bana og handsamaði fjóra aðra snemma í morgun í aðgerðum vegna hryðjuverkanna í Dahab. Ríkisstjórn landsins hefur krafist þess að neyðarlög vegna hryðjuverka verði framlengd. Erlent 30.4.2006 12:02
90.000 manns hafa flúið heimili sín 90.000 manns hafa neyðst til þess að yfirgefa heimili sín í Írak undanfarið vegna átaka á milli Sjía og Súnnía. Bandarískar hersveitir hafa drepið og handsamað nærri eitt hundrað árásarmenn undanfarnar vikur. Erlent 30.4.2006 11:59
Hreinsunarátak við strendur landsins Samtökin Veraldarvinir eru að hefja stórátak til að hreinsa strandlengju landsins. Á fréttavefnum Bæjarins besta er greint frá því að stefnt sé að hreinsa alla strandlengju landsins á árunum 2006 til 2011. Strendur verða hreinsaðar á fjórum stöðum í sumar, við Tálknafjörð, Vík í Mýrdal, Fjarðarbyggð og Siglufjörð. Stefnt er að því að fjarlægja allt rusl, kortleggja stærri svæði og gera áætlanir um hvernig hægt sé að þrífa þau í framtíðinni. Innlent 30.4.2006 11:24
Súkkulaðihátíð í Belgíu Súkkulaðifíklar ættu að reyna að ná næstu vél til Belgíu. Nú stendur yfir hin fullkomna súkkulaðihátíð í hinni sögufrægu borg Brugge. Þar gefur að líta allt það helsta frá frægustu súkkulaðigerðarmönnum og -fyrirtækjum heimsins í dag. Erlent 30.4.2006 10:08
Á 149 km hraða Sautján ára gamall drengur var stöðvaður á Suðurlandsvegi rétt austan við Hvolsvöll í gærkvöld eftir að ökutæki hans var mælt á 149 km hraða. Bíllinn var fullur af farþegum. Innlent 30.4.2006 10:06
Fíkniefnamál í Kópavogi Lögreglan í Kópavogi gerði upptækt lítilsháttar magn af kannabisefni og amfetamíni í nótt. Þrír voru handteknir vegna málsins en þeir voru allir gómaðir við venjubundið eftirlit. Allir voru þeir góðkunningjar lögreglunnar en eftir yfirheyrslur fengu mennirnir að fara til síns heima og telst málið upplýst. Innlent 30.4.2006 10:03
Segir Íransforseta minna á Hitler Forseti Írans er siðblindingi sem minnir á Adolf Hitler. Þetta segir Ehud Olmert forsætisráðherra Ísraels, sem biður til guðs að Íranar komi sér ekki upp kjarnorkuvopnum. Erlent 30.4.2006 10:04
Datt niður úr pálmatré Rokkarinn aldni Keith Richards hefur verið lagður inn á sjúkrahús á Nýja Sjálandi, eftir að hann fékk heilahristing í fríi á Fiji eyjum. Fríið hjá Richards virðist ekki bara hafa einkennst af rólegheitum, því að fyrst hrundi hann niður úr pálmatré og skömmu síðar lenti hann í árekstri á sjóskíðum. Lífið 30.4.2006 10:00
Súkkúlaðihátíð í Belgíu Súkkúlaðifíklar ættu að reyna að ná næstu vél til Belgíu. Nú stendur yfir hin fullkomna súkkúlaðihátíð í hinni sögufrægu borg Brugge. Þar gefur að líta allt það helsta frá frægustu súkkulaðigerðarmönnum og -fyrirtækjum heimsins í dag. Erlent 29.4.2006 16:23
Sex ára í háskólakennslu Sex ára undrabarn frá Mexíkó heldur fyrirlestra um beinþynningu fyrir læknisfræðinema á háskólastigi. Sjálfur neitar drengurinn því að hann sé snillingur og segist bara venjulegur strákur sem hafi gaman af að læra. Erlent 29.4.2006 16:22
Vélsleðamaðurinn fundinn Maðurinn sem leitað var á Langjökli síðan klukkan níu í morgun fannst heill á húfi nú rétt áðan. Hann fannst vestan við Klakk, rakur og kaldur en á annað hundrað björgunarsveitarmenn leituðu hans í dag. Innlent 29.4.2006 18:34
Mældist á um 180 km hraða Lögreglan í Borgarnesi stöðvaði ökumann sem mældist á um 180 kílómetra hraða í gær. Annar ökumaður reyndi að stinga lögreglunna af eftir að hann hafði mælst á um 160 kílómetra hraða. Sá hafnaði utan vegar og á yfir höfði sé háar sektir því hann reyndist einnig vera ölvaður. Innlent 29.4.2006 17:03
Setuverkfalli aflýst á Sunnuhlíð Ófaglært starfsfólk á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Sunnuhlíð í Kópavogi samþykktu nýja kjarasmaninga og aflýsti setuverkfalli á fjórða tímanum í dag. Starfsemin er komin í eðlilegt horf. Samningar hafa því tekist á öllum dvalar- og hjúkrunarheimilunum á höfuðborgarsvæðinu þar sem ófaglærðir hafa verið í kjarabaráttu síðustu vikurnar. Innlent 29.4.2006 16:34
Ætla ekki að hætta auðgun úrans Íranar ætla ekki að hætta auðgun úrans sama hvað tautar og raular. Þeir eru hins vegar tilbúnir að hleypa eftirlitsmönnum Sameinuðu Þjóðanna aftur inn í landið ef öryggisráðið hættir að fjalla um kjarnorkuþróun landsins. Þrjár þjóðir í öryggisráðinu vilja refsa Írönum þegar í stað. Erlent 29.4.2006 16:19
Gagnrýnir ummæli Sveins Andra Hreinn Loftsson hæstarréttarlögfræðingur hefur gert athugasemd við ummæli Sveins Andra Sveinssonar hæstarréttarlögmanns í kvöldfréttum Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi. Hreinn gagnrýnir Svein fyrir að tjá sig um hver hugsanleg niðurstaða yrði í málinu á hendur Jón Ásgeiri Jóhannessyni og fleiri aðilum. Innlent 29.4.2006 16:07
Silvía Nótt gefur út ljóðabók Silvía Nótt áritaði nýútkomna ljóðabók sína, Teardrops of wisdom, eða viskutár, í húsakynnum B&L í dag. Fjöldi manns var samankomin til að bera stórstjörnuna augum og eins og sönn stjarna mætti Silvía Nótt aðeins of seint. Innlent 29.4.2006 15:31
Hvarf úr sumarbústað í Lóni Óskað var eftir aðstoð Björgunarfélags Hornafjarðar og lögreglu við leit á tólf ára gömlum strák sem hvarf frá sumarhúsi í Gjádal í Lóni um klukkan eitt í dag. Liðsmenn björgunarfélagsins voru komnir á staðinn skömmu síðar og hófu strax leit. Drengurinn fannst um klukkan tvö en hann hafði þá farið úr sumarhúsinu í fússi og falið sig í nágrenninu. Innlent 29.4.2006 15:17
Setuverkfall enn á Sunnuhlíð Samningar náðust milli ófaglærðra á Hrafnistu og forstöðumanna dvalar- og hjúkrunarheimilisins síðdegis í gær. Eftir því sem fréttastofa kemst næst, þá eiga aðeins ófaglærðir á Sunnuhlíð í Kópavogi eftir að semja. Innlent 29.4.2006 12:59