Fréttir

Fréttamynd

Töldu sig úr hættu

"Við töldum hættuna að baki eftir að búið var að bjarga mér. Þess í stað lentum við allt í einu í skothríð," sagði Giuliana Sgrena blaðamaður sem haldið var í gíslingu í mánuð í Írak.

Erlent
Fréttamynd

Bílaapótek opnað í Kópavogi

Fyrsta bílaapótekið á Norðurlöndum var opnað í Kópavogi í morgun. Það er Lyfjaval sem á nýja bílaapótekið sem er við Hæðasmára. Afgreitt er um lúgu og hægt er að láta símsenda lyfseðla í apótekið, panta afgreiðslu á fjölnota lyfseðlum sem geymdir eru í bílaapótekinu eða með því að leggja þá inn að morgni og sækja lyfin síðar.

Innlent
Fréttamynd

Breyttu gamalli hlöðu í reiðskemmu

Það er allt hægt með viljann að vopni. Þetta vita félagar í hestamannafélaginu á Álftanesi sem höfðu enga fjárhagslega burði til að byggja reiðhöll. Í staðinn unnu tugir sjálfboðaliða nótt sem nýtan dag við að breyta gamalli hlöðu í reiðskemmu, svo hægt yrði að kenna yngstu kynslóðinni reiðlistina í skjóli fyrir veðri og vindum.

Innlent
Fréttamynd

SFR og ríkið gera nýjan samning

SFR, stéttarfélag í almannaþjónustu, samdi í morgun við fjármálaráðuneytið um nýjan kjarasamning eftir næturlangan fund. Hann mun gilda frá 1. febrúar síðastliðnum til 30. apríl 2008 og nema launahækkanir á samningstímanum samtals um átján prósentum.

Innlent
Fréttamynd

Lágmarkslaunin fara í 113 þúsund

Laun félaga í SFR - stéttarfélagi í almannaþágu hækka um átján prósent samkvæmt nýgerðum samningi við fjármálaráðuneytið. Samningurinn verður undirritaður næsta miðvikudag og mun gilda afturvirkt frá 1. febrúar síðastliðnum til 30. apríl 2008.

Innlent
Fréttamynd

Heitavatnslaust víða í Vesturbænum

Heitavatnslaust er víða á heimilum í Vesturbæ Reykjavíkur vegna bilunar sem varð í stofnæð á horni Tjarnargötu og Hringbrautar. Samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitu Reykjavíkur stendur viðgerð yfir. Gert er ráð fyrir að heita vatnið taki að streyma eðlilega úr krönum á ný síðdegis.

Innlent
Fréttamynd

Þingið á suðupunkti á tímabili

Magnús Þór Hafsteinsson var endurkjörinn varaformaður Frjálslynda flokksins með tæplega 70 prósentum atkvæða á landsþingi flokksins í dag. Landsþingið var á suðupunkti síðdegis áður en niðurstaðan fékkst en svo féll allt í ljúfa löð.

Innlent
Fréttamynd

Segja ökumann hafa óhlýðnast

Talsmaður Bandaríkjahers segir að ökumaður bíls með ítölskum gísl, sem nýbúið var að leysa úr haldi í Írak, hafi ekki sinnt viðvörunarskotum. Því hafi verið skotið á bílinn með þeim afleiðingum að gíslinn særðist og björgunarmaður hans lést. Bandaríkjaforseti hefur fyrirskipað opinbera rannsókn á málinu.

Erlent
Fréttamynd

Bush lofar rannsókn á skotárás

George Bush Bandaríkjaforseti lofaði í morgun, að kröfu Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, opinberri rannsókn á því hvernig það gat gerst að bandarískir hermenn í Írak skutu á bíl með ítölskum gísl sem nýbúið var að leysa úr haldi. Einn lést í árásinni.

Erlent
Fréttamynd

Grunur um skattsvik á stöðunum

Skattrannsóknarstjóri gerði fyrirvaralausa húsleit hjá hátt í tuttugu vínveitingastöðum í gær og í fyrradag vegna rökstudds gruns um stórfelld skattsvik og aðra glæpi. Þetta er umfangsmesta aðgerð embættisins síðan húsleit var gerð hjá olíufélögunum.

Innlent
Fréttamynd

Margrét hafnaði tilnefningu

Margrét Sverrisdóttir, framkvæmdastjóri Frjálslynda flokksins, hafnaði því að gefa kost á sér í framboð til varaformanns flokksins fyrir skemmstu. Fjölmargir þingfulltrúar stungu upp á henni þegar óskað var eftir tilnefningum utan úr sal en Margrét sagðist ekki taka tilnefningunni þar sem hún vildi ekki efna til ófriðar í flokknum.

Innlent
Fréttamynd

Eiga enn meira í Smáralind

Með kaupum á 34 prósenta hlut í Fasteignafélagi Íslands, sem á meðal annars Smáralind, hafa Byggingarfélag Gylfa og Gunnars, Saxhóll og Baugur eignast 98 prósent af öllu hlutafé í félaginu. Seljendur að þessum 34 prósentum eru Norvik, Vesturgarður og Sveinn Valfells.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Fischer sakaður um skattalagabrot

Bandarísk stjórnvöld saka nú Fischer um skattalagabrot og hyggjast ákæra hann 5. apríl. Stuðningsmenn skáksnillingsins telja að brögð séu í tafli og hvetja íslensk stjórnvöld til að afhenda Fischer vegabréf til Íslands áður en Japönum takist að framselja hann til Bandaríkjanna.

Innlent
Fréttamynd

Leituðu sannana fyrir skattsvikum

Starfsmenn Skattrannsóknastjóra lögðu hald á mikið magn bókhaldsgagna og tölvubúnað þegar þeir gerðu húsleit á fjölda vínveitingahúsa í Reykjavík á föstudags- og fimmtudagskvöld. Flest vínveitingahúsanna, en þó ekki öll, eru í miðbænum.

Innlent
Fréttamynd

Sýrlenski herinn fer frá Líbanon

Bashar al-Assad, forseti Sýrlands, tilkynnti fyrir stundu að sýrlenskar hersveitir yrðu kallaðar heim frá Líbanon. Búist hafði verið við yfirlýsingu þessa efnis frá forsetanum í dag, en í ávarpi á sýrlenska þinginu sagði hann að allur herafli Sýrlands í Líbanon, um 14 þúsund hermenn, skyldi fyrst fluttur til Bekaa-dalsins og þaðan til landamæra Líbanons og Sýrlands.

Erlent
Fréttamynd

Margrét hvött til framboðs

Kosið verður á milli að minnsta kosti tveggja manna sem bjóða sig fram til varaformanns í Frjálslynda flokknum á landsþingi flokksins sem nú stendur yfir á Kaffi Reykjavík. Gunnar Örn Örlyggson og Magnús Þór Hafsteinsson, núverandi varaformaður, hafa þegar tilkynnt um framboð en nú gengur á milli manna undirskriftarlisti þar sem Margrét Sverrisdóttir er hvött til að blanda sér í baráttuna.

Innlent
Fréttamynd

Assad lofar brotthvarfi

Bashar Assad, forseti Sýrlands, hét því í gær að draga hersveitir Sýrlendinga í Líbanon til líbansk-sýrlensku landamæranna.

Erlent
Fréttamynd

Skyndihúsleit á veitingastöðum

Fíkniefnalögreglan og fulltrúar skattrannsóknarstjóra gerðu fyrirvaralausa húsleit á vel á annan tug vínveitingastaða á höfuðborgarsvæðinu í gær og fyrradag. Almennir lögregluþjónar tóku þátt í aðgerðunum og voru embættismönnum skattrannsóknarstjóra til halds og trausts, bæði til að koma í veg fyrir hugsanlega mótspyrnu og til að tryggja að haldlagning gagna gæti farið fram.

Innlent
Fréttamynd

Fimmfalt fleiri reyna sjálfsvíg

Ætla má að fjöldi sjálfsvígstilrauna hér á landi hafi nær fimmfaldast síðustu ár samkvæmt tölum sem Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri hefur tekið saman.

Innlent
Fréttamynd

1. maí ekki haldinn 1. maí?

Fyrsta maí kröfugangan gæti heyrt sögunni til. Hún er barn síns tíma og stendur ekki undir væntingum að mati miðstjórnar Rafiðnaðarsambands Íslands. Verði stjórninni að vilja sínum gæti það einnig þýtt að framvegis verði haldið upp á 1. maí þann 3. eða jafnvel 7. maí.

Innlent
Fréttamynd

Fjórir hermenn drepnir í gær

Fjórir bandarískir hermenn létust í átökum í Anbar-héraði í vesturhluta Íraks í gær. Í tilkynningu frá yfirmönnum bandaríska heraflans í Írak segir að mennirnir hafi sinnt þar eftirlits- og öryggisstörfum en ráðist hafi verið á þá. Í tilkynningunni kemur ekki fram hvort einhverjir úr röðum árásarmanna hafi látist.

Erlent
Fréttamynd

Með ólæti við skemmtistað

Drukkinn karlmaður var handtekinn vegna óláta við skemmtistað á Hafnargötunni í Keflavík í nótt. Lögreglumenn handtóku manninn og létu hann sofa úr sér vímuna og æsinginn í fangaklefa á lögreglustöðinni. Lögreglan í Reykjavík segir nóttina hafa verið rólega í miðborginni. Þrír ökumenn voru þó teknir grunaður um ölvun við akstur nú í morgunsárið.

Innlent
Fréttamynd

VG ítrekar afstöðu um Landsvirkjun

Félagsmenn í Vinstrihreyfingunni - grænu framboði í Reykjavík samþykktu á fundi í dag að ítreka stefnu sína í málefnum Landsvirkjunar, en fyrir tæpum hálfum mánuði var samþykkt yfirlýsing um að félagið legði áherslu á að eitt af meginstefnumálum flokksins væri að grunnþjónusta samfélagsins væri rekin á félagslegum forsendum væri í almannaeigu.

Innlent
Fréttamynd

Reyna að draga skipið lengra út

Björgunarmenn í Noregi reyna í kapp við tímann að draga olíuflutningaskip, sem stendur í björtu báli, lengra út á sjó svo að hægt verði að slökkva eldinn. Óttast er meiri háttar umhverfisslys ef 800 tonn af olíu, sem eru í skipinu, leka í sjóinn.

Erlent
Fréttamynd

Yfirmanni miðstöðvar vikið frá

Djóni Weihe, yfirmanni Björgunarmiðstöðvarinnar í Færeyjum, hefur verið vikið tímabundið úr starfi á meðan rannsakað verður hvað gerðist þegar Jökulfellið fórst skammt frá Færeyjum fyrir um mánuði. Frá þessu var greint í færeyska útvarpinu, en Björn Karlsöe þingmaður tók ákvörðunina í samráði við Djóni.

Erlent
Fréttamynd

deCode tapar 3,5 milljörðum

Rúmlega 3,5 milljarða króna tap varð af rekstri deCode Genetics, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, á síðasta ári. Árið 2003 nam tapið af rekstrinum rúmlega tveimur milljörðum króna. Tekjur félagsins árið 2004 námu tveimur og hálfum milljarði íslenskra króna.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Segir Sri hafa hótað sér

Hákon Eydal segir Sri Rahmawati og fjölskyldu hennar hafa hótað sér og kúgað sig mánuðum saman áður en hann sturlaðist af bræði og banaði henni í fyrrasumar með kúbeini. Réttarhöld í málinu fara fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.

Innlent