Reyna að draga skipið lengra út 5. mars 2005 00:01
Björgunarmenn í Noregi reyna í kapp við tímann að draga olíuflutningaskip, sem stendur í björtu báli, lengra út á sjó svo að hægt verði að slökkva eldinn. Óttast er meiri háttar umhverfisslys ef 800 tonn af olíu, sem eru í skipinu, leka í sjóinn. Eldurinn virðist hafa kviknað í vélarrúmi skipsins seint í gærkvöld. Töldu skipverjar að þeir hefðu ráðið niðurlögum hans en nokkrum klukkustundum síðar blossaði hann upp aftur. Snemma í morgun var eldhafið orðið mikið, brúin í björtu báli og skipið rak í átt að landi. Svo virðist það hafa strandað rétt utan við Kristianssand í suðurhluta Noregs. Þeir voru þreyttir og slæptir skipverjarnir sem björgunarþyrlum tókst í nokkrum ferðum að ná úr brennandi skipinu og voru ellefu fluttir á sjúkrahús. Meiðsli þeirra eru minni háttar. Skipið, sem nefnist Fjord Champion, er 30 þúsund tonn og 170 metra langt. Samtals eru rúmlega 800 tonn af olíu um borð. Takist ekki að koma böndum á eldinn er óttast að olían leki út í hafið. Engin merki sjást enn um olíuleka. Mikill viðbúnaður er vegna mengunarvarna og til stendur að reyna að dæla olíunni úr skipinu. Nú er verið að draga skipið á haf út þar sem gerðar verða fleiri tilraunir til að slökkva eldinn. Fyrst þá verður hægt að huga að því að dæla olíunni frá borði.
Erlent Fréttir Mest lesið Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Innlent Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Sjá meira