Erlent

Fjórir hermenn drepnir í gær

MYND/AP
Fjórir bandarískir hermenn létust í átökum í Anbar-héraði í vesturhluta Íraks í gær. Í tilkynningu frá yfirmönnum bandaríska heraflans í Írak segir að mennirnir hafi sinnt þar eftirlits- og öryggisstörfum en ráðist hafi verið á þá. Í tilkynningunni kemur ekki fram hvort einhverjir úr röðum árásarmanna hafi látist. Alls hafa 1506 bandarískir hermenn látist í Írak frá því að Bandaríkjamenn réðust inn í landið fyrir um tveimur árum.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×