Bush lofar rannsókn á skotárás 5. mars 2005 00:01
George Bush Bandaríkjaforseti lofaði í morgun, að kröfu Silvios Berlusconis, forsætisráðherra Ítalíu, opinberri rannsókn á því hvernig það gat gerst að bandarískir hermenn í Írak skutu á bíl með ítölskum gísl sem nýbúið var að leysa úr haldi. Einn lést í árásinni. Blaðakonan Giuliana Sgrena hafði verið í haldi mannræningja í Írak í um mánuð. Ítalskur öryggissérfræðingur, Nicola Calipari, hjálpaði við að fá hana lausa. Þegar keyrt var með Sgrena í átt að bækistöðvum Bandaríkjahers í Írak rétt eftir að hún hafði verið látin laus hófu bandarískir hermenn að skjóta á bílinn með þeim afleiðingum að Calipari lést og Sgrena særðist ásamt tveimur ítölskum öryggissérfræðingum sem voru í bílnum. Talsmaður Bandaríkjahers segir að bíllinn hafi nálgast vegatálma hersins á miklum hraða og því verið talinn grunsamlegur. Hermennirnir hafi gefið merki með höndum, blikkað ljósum og skotið viðvörunarskotum en síðan hafi þeir skotið á vél bílsins. Ítalskar fréttastofur greina frá því að Calipari hafi hent sér yfir Sgrena til að vernda hana þegar skotárásin hófst. Sgrena hefur verið útskrifuð af sjúkrahúsi. Hún kom til Ítalíu í morgun og var fagnað ákaft. Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, mætti einnig á flugvöllinn til að taka á móti henni en hann hefur átt erfitt með að fá landa sína til að sætta sig við að í Írak eru 3000 ítalskir hermenn og reglulega eru mótmæli götum úti gegn Íraksstríðinu. Berlusconi kallaði eftir skýringum frá Bush sem hringdi í Berlusconi, harmaði atburðinn og hét ítarlegri opinberri rannsókn á því hvernig þetta hefði getað gerst. Það var lítt þekktur hryðjuverkahópur sem sagðist hafa rænt Sgrena og krafðist þess að Ítalir færu með hermenn sína frá Írak. Sami hópur sagðist í september hafa tekið af lífi tvo ítalska hjálparstarfsmenn en þeim var seinna sleppt.
Erlent Fréttir Mest lesið Bæta ekki fallvarnir við veginn: „Þetta er eilífur slagur“ Innlent „Myndi ekki mæla með þessu við nokkurn mann“ Innlent Gular viðvaranir í kortunum Veður Samningur í höfn: „Búið að skemma ansi mikið fyrir okkur“ Innlent Steypumót féll á starfsmann byggingarfyrirtækis Innlent Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Erlent Sæki um íslenska vegabréfsáritun til að ferðast annað Innlent Óttast að boð og bönn ráðherra muni setja verslanir í þrot Innlent Tékkneski og bandaríski herinn ásamt flugsystrum á Akureyri Innlent Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Erlent Fleiri fréttir Tilnefna Bandaríkjaforseta til friðarverðlauna Nóbels Óvissu erlendra nemenda tímabundið eytt Aðgerðasinninn látinn laus en Hvíta húsið hyggst brottvísa Hátt í sjö hundruð látist í árásum Ísraela Takmarkið „enn sem komið er“ ekki að steypa klerkastjórninni af stóli Árásir halda áfram meðan fundað er í Genf Hyggst eftirláta á annað hundrað börnum sínum Telegram-auðinn Skrefi nær því að leyfa dauðvona fólki að leita sér dánaraðstoðar Sporvagni ekið inn í matarvagn í Gautaborg Danskur ráðherra kann ekki að meta auglýsingar Meta Hafnar tillögu um að verja fimm prósentum í varnamál Utanríkisráðherrar funda um Íran í Genf Frestar aftur TikTok-banni Kynnti sér mögulegar árásir: „Að klára verkið þýðir að rústa Fordo“ Áhlaup ICE og óvissan veldur vandræðum Farið í gegnum „kolefnisþakið“ eftir þrjú ár Sagði Khamenei „nútíma Hitler“ og að markmiðið sé að fella hann Geimskipið sprakk á jörðu niðri Finnar draga sig út úr sáttmála gegn jarðsprengjum Leita „fjandskapar“ á samfélagsmiðlum námsmanna Tala látinna í Kænugarði komin í tuttugu og átta Tugir særðir í Ísrael eftir árás Írana á spítala Vill ekki í stríð en segir klerkastjórnina ekki mega eignast kjarnorkuvopn Staðfesta bann á meðferð trans barna Óttast um líf fjölskyldu sinnar í Íran: „Ég sef ekki á nóttunni“ Fjórtán tonna sprengjan sem Ísraela vantar „Kannski geri ég það, kannski geri ég það ekki“ Færðu barn heiladauðrar konu í heiminn Rekja rafmagnsleysið á Íberíuskaga til mistaka orkufyrirtækja Íranir hóta „óbætanlegu tjóni“ skerist Bandaríkin í leikinn Sjá meira