Fréttir
Barnungar stúlkur seldar mansali Grunur leikur á skipulögðu mansali í máli kínverskra ungmenna sem stöðvuð voru á Keflavíkurflugvelli í vikunni. Ungmennin komu hingað með vegabréf frá Singapúr á leið til Bandaríkjanna. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Almenningur ekki einn um sérkjör Hópurinn sem Almenningur ehf. gerði samning við vegna kaupa á Símanum er ekki sá eini sem mun bjóða íslenskum almenningi sérkjör. Fleiri ætla að bjóða almenningi að minnsta kosti sömu kjör þótt Agnes Bragadóttir og Orri Vigfússon hafi ekki gert samkomulag við þá. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:14
Hættir að niðurgreiða umskurð Norska ríkið hefur hætt þáttöku í kostnaði við umskurð á múslímadrengjum. Umboðsmaður sjúklinga þar í landi óttast að það kunni að leiða til óvandaðra vinnubragða. Fram til þessa hafa múslímar aðeins þurft að greiða sem svarar 750 krónum fyrir að láta umskera syni sína. Nú þegar ríkið hefur hætt þátttöku í kostnaðinum þurfa þeir að greiða 100 þúsund krónur. Erlent 13.10.2005 19:14
Neitar aðild að blóðbaði Nur-Pashi Kulayev, 24 ára gamall tsjetsjenskur smiður, neitaði í dag að eiga sök á blóðbaðinu í barnaskólanum í Beslan í Suður-Rússlandi í fyrra. Kulayev er sá eini árásarmannanna 30 sem hertóku barnaskólann sem náðist á lífi, en 330 manns dóu í skólanum, flestir í sprengingum árásarmannanna. Þar af var helmingurinn skólabörn. Erlent 13.10.2005 19:14
Hjálparstarfsmenn myrtir við Kabúl Sex afganskir hjálparstarfsmenn létust í árás uppreisnarmanna nærri höfuðborginni Kabúl. Uppreisnarmennirnir hófu skothríð á bifreið hjálparstarfsmannana, sem var merkt Sameinuðu þjóðunum, en það hefur ekki fengist staðfest að mennirnir hafi starfað á þeirra vegum. Erlent 13.10.2005 19:13
Flugskeytum skotið á landnemabyggð Palestínskir uppreisnarmenn skutu í morgun þremur flugskeytum að íbúabyggð Ísraelsmanna við Gaza-ströndina. Ekki er vitað til þess að neinn hafi slasast í árásunum. Í gær var einn Palestínumaður drepinn við Gaza og í kjölfarið skutu palestínskir uppreisnarmenn nokkrum sprengjum að byggðum gyðinga. Erlent 13.10.2005 19:13
Dómur styttur vegna ónógra sannana Hæstiréttur stytti í dag fangelsisdóm yfir Rúnari Ben Maitsland og tvíburabróður hans, Davíð Ben Maitsland, vegna ónógra sönnunargagna. Þeim er gefið að sök að hafa smyglað til landsins um 30 kílóum af hassi, sem aldrei var lagt hald á. Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttardómari vildi sýkna þá bræður. Innlent 13.10.2005 19:14
Nefnd áminnir fjárfesta í Símanum Fjárfestar sem bjóða í Símann voru í gær áminntir bréflega um að virða trúnaðarsamning. Brot á honum geti "leitt til þess að hugsanlegir fjárfestar verði útilokaðir frá þátttöku í söluferlinu". </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
27% þreyttu öll samræmd próf Aðeins 27 prósent tíundu bekkinga þreyttu öll sex samræmdu prófin en rúm 40 prósent þreyttu fimm próf. Aðeins tæp tvö prósent tóku ekkert samræmt próf. Yfir 90 prósent nemenda þreyttu próf í íslensku, ensku og stærðfræði en mun færri ákváðu að takast á við náttúrufræði, samfélagsgreinar og dönsku. Um þrjú hundruð nemar í níunda bekk tóku að minnsta kosti eitt samræmt próf. Erlent 13.10.2005 19:14
Biður nágrannana um hjálp Ibrahim al-Jaafari, forsætisráðherra Íraks, skoraði á ríkisstjórnir nágrannalandanna að herða landamæragæslu svo að hryðjuverkamönnum tækist ekki að komast inn í landið. Í það minnsta þrettán manns féllu í árásum í Írak í gær. Erlent 13.10.2005 19:14
Eurovision draumurinn úti Íslendingar komust ekki áfram í undankeppni söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Undanúrslitin fóru fram í Kænugarði í Úkraínu í kvöld og komst Selma Björnsdóttir vel frá flutningi sínum. Allt kom fyrir ekki, evrópskum sjónvarpsáhorfendum þótti önnur lög betri og veittu Selmu og félögum því ekki brautargengi. Innlent 13.10.2005 19:14
Helmingsþátttaka í formannskjöri Kosningu í formannskjöri Samfylkingarinnar lauk klukkan sex í gærkvöldi en þá höfðu rúmlega 11.000 atkvæði borist kjörstjórn flokksins. Innlent 13.10.2005 19:14
Viðvörunarkerfi á Súmötru 2007 Yfirvöld í Indónesíu vonast til að viðvörunarkerfi sem myndi vara við yfirvofandi flóðbylgjum á Súmötru innan fimm mínútna frá jarðskjálfta á hafsbotni verði komið í gagnið í lok næsta árs og kerfi fyrir allt landið ætti að vera orðið virkt eftir fimm ár. Allt að 160 þúsund manns létust í Aceh-héraði á norðanverðri Súmötru í flóðbylgjunni á annan í jólum. Erlent 13.10.2005 19:13
Ákærður fyrir Omagh-tilræði Saksóknari á Norður-Írlandi hefur birt Sean Hoey sem talinn er vera félagi í hinum svonefnda Sanna írska lýðveldisher 61 ákæru fyrir margvísleg afbrot, þar á meðal sprengjutilræði í bænum Omagh árið 1998 sem kostaði 29 mannslíf. Erlent 13.10.2005 19:14
Reyni að svæla fjölmiðla burt Lögfræðingar rússneska auðjöfursins Míkhaíls Khodorkovskís segja að dómararnir séu að reyna að svæla af sér fjölmiðla með því að draga dómsuppkvaðninguna á langinn. Erlent 13.10.2005 19:14
Ók á lögreglumann í hálku Það var enginn skortur á sönnunargögnum þegar ekið var á lögreglumann við skyldustörf í Minnesota í Bandaríkjunum í gær. Myndbandstökuvél í lögreglubílnum var í gangi og náði myndum af því þegar jeppi varð stjórnlaus í hálku og ók á lögreglumanninn á mikilli ferð. Hann hafði numið staðar til að aðstoða konu sem einnig hafði ekið út af í hálkunni. Erlent 13.10.2005 19:14
Reynt að myrða súnnítaleiðtoga Árásum á stjórnmála- og embættismenn í Írak linnir ekki, en í dag réðust uppreisnarmenn á heimili stjórnmálaleiðtoga súnníta í Mósúl í norðurhluta landsins og skutu bílstjóra hans og þrjá öryggisverði. Maðurinn, Fawaz al-Jarba, slapp hins vegar lifandi og náði að kalla til bandarískar hersveitir sem hröktu árásarmennina á brott, en alls létust sjö manns í þessum átökum. Erlent 13.10.2005 19:14
Aðeins eitt álver vegna mengunar Aðeins er svigrúm fyrir eitt stórt álver í viðbót á Íslandi til ársins 2012 samkvæmt íslenska sérákvæðinu í Kyoto-bókuninni. Þetta er talið ýta undir álverskapphlaupið sem nú er hafið. Valdið til að úthluta mengunarkvótanum er í höndum iðnaðarráðherra. Innlent 13.10.2005 19:14
Heimsfaraldur tímaspursmál Alþjóðaheilbrigðisstofnunin segir að aðeins sé tímaspursmál hvenær fuglaflensan breiðist út um allan heim. Veiran er talin geta smitast á milli manna en þó er hún ekki talin bráðsmitandi ennþá. Erlent 13.10.2005 19:14
Nötraði eins og kirkjuklukka Jarðskjálftinn mikli á annað dag jóla er sá stærsti sem mælst hefur í rúm fjörutíu ár, allt að 9,3 stig. Jarðvísindamenn segja nýjar mælingar sýna að jarðskorpan hafi hrist eins og hún lagði sig og vikum síðar hafi hún enn nötrað, ekki ósvipað og kirkjuklukka. Erlent 13.10.2005 19:14
Stúlkur líklega ekki kærðar Þrjár kínverskar stúlkur sem voru stöðvaðar ásamt ungum kínverskum manni og fylgdarmanni á fimmtugsaldri frá Singapúr eru 15 til 17 ára. Fylgarmaðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald. Innlent 13.10.2005 19:14
Samstarfssamningur í Kína Viðskiptaháskólinn á Bifröst og Háskólinn í Shanghai undirrituðu í gær samstarfssamning að viðstöddum forseta Íslands og borgarstjóra Shanghai. Í máli borgarstjórans kom meðal annars fram að efnahagur Shanghai hefði áttfaldast á síðustu 11 árum. Innlent 13.10.2005 19:14
Íslensk rannsókn vekur athygli Íslensk rannsókn synir að hófdrykkja dregur úr líkum á skýmyndun á auga en reykingar auka þær og sömuleiðis vinna úti undir beru lofti. Niðurstöður rannsóknarinnar hafa vakið mikla athygli og meðal annars verið kynntar í virtum læknatímaritum austan hafs og vestan. Innlent 17.10.2005 23:41
Þrjú af fjórum undir lögaldri Stúlkurnar sem stöðvaðar voru í Leifsstöð í gær voru allar undir lögaldri. Karlmaður sem stýrði för þeirra og ungs drengs var í dag úrskurðaður í viku gæsluvarðhald. Hann er frá Singapúr en ungmennin frá Kína. Talstöðin greindi frá þessu. Innlent 13.10.2005 19:14
Hafnar fullyrðingum um umframmjólk Forsvarsmenn Mjólku, sem ætlar að framleiða osta utan styrkjakerfis landbúnaðarins, segja að fullyrðing Bændasamtakanna um að Mjólka megi ekki kaupa mjólk sem sé framleidd umfram greiðslumark fáist ekki staðist. Í yfirlýsingu sem lögmaður fyrirtækisins, Hróbjartur Jónatansson, sendi frá sér í dag fyrir hönd Mjólku, segir að engin rök séu fyrir því að takmarka framleiðslu og sölu mjólkurafurða enda sé ekki um að ræða takmarkaða auðlind sem þurfi að vernda og stjórna af hinu opinbera. Innlent 13.10.2005 19:14
Kaupa saman útvarpsstöðvar Ár og dagur, útgáfufélag <em>Blaðsins</em>, og Íslenska sjónvarpsfélagið sem rekur Skjá einn hafa keypt 97 prósent hlutafjár í Pyrit fjölmiðlun ehf. sem rekur útvarpsstöðvarnar KissFM og X-FM. Í tilkynningu frá Skjá einum segir að nýir eigendur ætli sér að vinna með öflugum hópi núverandi starfsfólks með það markmið að auka bæði markaðshlutdeild og hlustunarsvæði stöðvanna. Kaupverð er sagt trúnaðarmál. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:13
Styðja baráttu fyrir stjórnarskrá Þrjátíu og fimm háttsettir stjórnmálamenn víða að úr Evrópu eru komnir til Parísar til þess að styðja franska sósíalista í baráttunni fyrir samþykki stjórnarskrá Evrópusambandsins. Nú eru aðeins tíu dagar þar til kosið verður um stjórnarskrána í Frakklandi og sem stendur virðast ívið fleiri ætla að hafna henni en samþykkja. Erlent 13.10.2005 19:13
Lögregla skaut mann á götu úti Lögreglumaður í bænum Larvik í Noregi skaut víetnamskan mann til bana í gær. Atburðurinn gerðist á aðalgötu bæjarins. Erlent 13.10.2005 19:14
Viðgerð á ljósleiðara lokið um miðnætti Gert er ráð fyrir að búið verði að tryggja net og símasamband viðskiptavina Og Vodafone í Mosfellsbæ upp úr miðnætti. Um svipað leyti verður búið að koma á DSL sambandi að nýju á Akranesi. Ljósleiðari var grafinn í sundur við tengivirki nærri Iðntæknistofnun um klukkan 20 sem hafði áhrif á net- og símasamband í Mosfellsbæ og DSL samband á Akranesi. Viðgerð hefur staðið yfir í kvöld og miðar vel áfram. Innlent 13.10.2005 19:14
Ákæra gefin út vegna banaslyss Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru vegna banaslyss sem varð við Kárahnjúkastíflu í mars á síðasta ári. Ekki fæst gefið upp hverjir eða hve margir hafa verið ákærðir. Maðurinn sem lést í slysinu var 25 ára. Hann var við störf ofan í Hafrahvammagljúfri um hánótt þegar gríðarstór grjóthnullungur féll á hann. Innlent 13.10.2005 19:14