Erlent

Ók á lögreglumann í hálku

Það var enginn skortur á sönnunargögnum þegar ekið var á lögreglumann við skyldustörf í Minnesota í Bandaríkjunum í gær. Myndbandstökuvél í lögreglubílnum var í gangi og náði myndum af því þegar jeppi varð stjórnlaus í hálku og ók á lögreglumanninn á mikilli ferð. Hann hafði numið staðar til að aðstoða konu sem einnig hafði ekið út af í hálkunni. Þótt ótrúlegt kunni að virðast meiddist lögreglumaðurinn ekki meira en svo að hann var útskrifaður samdægurs af sjúkrahúsi.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×