Fréttir
Æðra stjórnvald stjórni ekki Yfirvöld eiga ekki að skipta sér af ættleiðingarferli ef barnaverndarnefnd hefur skorið úr um hvort einhver sé hæfur til að ættleiða eða ekki. Þetta segir Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, um mál Lilju Sæmundsdóttur sem hefur verið hafnað um að fá að ættleiða vegna þess að hún þykir of feit. Innlent 13.10.2005 19:14
Vill ekki rannsókn á atburðunum Islam Karimov, forseti Úsbekistan, er mótfallinn því að alþjóðastofnanir fari ofan í kjölinn á atburðum í borginni Andijan undanfarna daga. Að sögn talsmanna Sameinuðu þjóðanna telur Karimov nóg að fjölmiðlafólk og starfsmenn alþjóðastofnana hafi fengið að heimsækja borgina á miðvikudaginn. Innlent 13.10.2005 19:14
Sögð hafa verið myrt Óvissa ríkir um hvort ítalski hjálparstarfsmaðurinn Clementina Cantoni sé lífs eða liðinn. Erlent 13.10.2005 19:14
Enginn sagður í húsinu Allt tiltækt lið slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu var kallað út fyrir stundu eftir að tilkynnt var um eld í þakíbúð skammt frá gatnamótum Rauðarárstígs og Njálsgötu. Að sögn slökkviliðsins logar töluverður eldur út um glugga íbúðarinnar. Enginn er sagður vera í húsinu. Innlent 13.10.2005 19:14
Búist við sigri Ingibjargar Búist er við því að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir beri sigurorð af sitjandi formanni, Össuri Skarphéðinssyni, í formannskosningu Samfylkingarinnar. Úrslit verða kynnt á hádegi í dag á landsfundi flokksins. Talið er að þrír muni gefa kost á sér í varaformanninn, Ágúst Ólafur Ágústsson, Lúðvík Bergvinsson og Björgvin G. Sigurðsson. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Gætu unnið náið saman Baldur Þórhallsson stjórnmálafræðingur segir að pólitísk framtíð þess sem verður undir í formannskjöri Samfylkingarinnar ráðist meðal annars af því hversu afgerandi úrslitin verða. Ef það verður mjótt á mununum gæti orðið um nánari samvinnu að ræða. Hann segir litla þátttöku í kosningunum skýrast af því að fleiri séu skráðir í stjórnmálaflokka en kæri sig um. Innlent 13.10.2005 19:14
Leggjum niður allar deilur Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, talaði fyrir sáttum fylkinga innan flokksins að loknum formannsslagnum. Tímabilið fram að næstu kosningum verði hið mikilvægasta í sögu flokksins. Flokkurinn ætli sér að verða stærsti flokkurinn í næstu kosningum. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Vélarvana við Garðskaga Vélarvana snekkja var dregin til hafnar í Sandgerði í gærkvöldi. Báturinn er hollenskur, um 250 og nefnist Daphne, en hann var að sögn tilkynningaskyldunnar á leið til Grænlands og þaðan til Bandaríkjanna. Innlent 13.10.2005 19:14
Ekki kosið aftur um stjórnarskrána Hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins verður hún ekki lögð í dóm kjósenda á nýjan leik með breyttu sniði. Þetta segir Jean Claude Junker, forsætisráðherra Lúxemborgar og núverandi forseti Evrópusambandsins. Innlent 13.10.2005 19:14
Spurning um reynslu og bakgrunn "Ég tel mig hafa þá reynslu, þekkingu og getu sem þarf til að takast á við þetta verkefni. Ég tel að hún muni nýtast mjög vel," segir Lúðvík Bergvinsson þingmaður, sem hefur gefið kost á sér í embætti varaformanns Samfylkingar. Innlent 13.10.2005 19:14
Tveimur mönnum bjargað Mannbjörg varð þegar Hildur ÞH-38 sökk á Þistilfirði um 7 sjómílur austsuðaustur af Raufarhöfn. Tveir skipverjar höfðu komist í björgunarbát og var síðan bjargað um borð í björgunarskip Slysavarnarfélagsins Landsbjargar, Gunnbjörgu frá Raufarhöfn. Vaktstöð Landhelgisgæslunnar barst tilkynning frá flugstjórn um að flugvél hefði tilkynnt um neyðarsendingar kl: 12:43. Innlent 13.10.2005 19:14
Klæðskerasaumuð líffæri Tekist hefur að búa til einstaklingsmiðaðar stofnfrumur. Það getur orðið til þess að innan skamms geti sjúklingar fengið líffærahluta sniðna að sínum þörfum. Erlent 13.10.2005 19:14
Tekinn í sturtu og rekinn heim Ríkisstjórnir Þýskalands og Tékklands eru æfar eftir að tveimur þingmönnum frá þessum löndum var vísað frá Kúbu í fyrradag fyrirvaralaust. Andstæðingar Kúbustjórnar stilltu saman strengi sína í gær, í fyrsta sinn í 46 ár. Erlent 13.10.2005 19:14
Segjast hafa drepið gíslinn Mannræningjarnir sem rændu ítölskum hjálparstarfsmanni í Afganistan vikunni segjast hafa drepið hann. Talsmaður ítölsku ríkisstjórnarinnar segir það hins vegar ekki rétt. Erlent 13.10.2005 19:14
Ákærður fyrir árás á lögreglumenn Ríkissaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur tæplega fertugum manni fyrir eignaspjöll, hótanir, brot gegn valdstjórninni og sérstaklega hættulega líkamsárás á heimili sínu 6. júní í fyrra. Þegar lögregla hafði afskipti af hinum ákærða í kjölfar atvika þann dag lagði hann einu sinni með hnífi til eins lögreglumanns og tvívegis til annars lögreglumanns. Innlent 13.10.2005 19:14
Gáfu báta til hamfarasvæðanna Rótarýklúbburinn Reykjavík-Austurbær hefur gefið fjóra báta ásamt veiðarfærum til fiskimannafjölskyldna í Andra Pradesh héraði á Indlandi. Á þeim slóðum misstu þúsundir aleigu sína í flóðbylgjunni sem reið yfir Indlandshaf annan dag jóla. Innlent 13.10.2005 19:14
Fíkniefnalöggjöfin hert í Hollandi Hollensk yfirvöld hafa löngum verið þekkt fyrir umburðarlyndi sitt gagnvart neyslu kannabisefna en breyting virðist ætla að verða þar á. Hingað til hafa lög landsins leyft fólki að neyta og hafa á sér allt upp í fimm grömm af kannabisefnum og veitingastaðir hafa mátt eiga hálft kíló af efninu til sölu. Erlent 13.10.2005 19:14
Lítið lyktarskyn vísar á elliglöp Rannsóknir sænskra lækna við Karólínska sjúkrahúsið benda til þess að hægt verði að uppgötva ýmsa sjúkdóma tengda elliglöpum með því að kanna lyktarskyn fólks. Með elliglöpum er til dæmis átt við sjúkdóma á borð við Alzheimers. Erlent 13.10.2005 19:14
Lög um stofnfrumurannsóknir vantar Tekist hefur að búa til einstaklingsmiðaðar stofnfrumur sem þýðir að í framtíðinni gætu sjúklingar pantað sérsniða líffærahluta. Hér á landi hefur ekki farið fram stefnumótun um rannsóknir á stofnfrumum og sem stendur væri ólöglegt að fylgja rannsókn sem þessari eftir. Innlent 13.10.2005 19:14
Skjálftinn skók alla jörðina Jarðskjálftinn í Indlandshafi á annan í jólum skók skorpu allrar jarðarinnar. Titringur vegna skjálftans mældist víða um heim mörgum vikum eftir hann. Þetta kemur fram í nýjasta hefti tímaritsins <em>Science</em> sem kemur út í dag. Þar kemur ýmislegt fleira fram um skjálftann sem ekki hefur áður verið greint frá. Erlent 13.10.2005 19:14
Færeyskur kútter til Norðfjarðar Færeyski kútterinn Jóhanna TG 326 er væntanlegur til Norðfjarðar á sjómannadaginn að sögn færeyska blaðsins Norðlýsið. Jóhanna TG er einn þeirra færeysku kúttera sem sigldu á stríðsárunum með fisk milli Íslands og Skotlands. Innlent 13.10.2005 19:14
Sótt að tígrisdýrunum Efnahagsundrið í Kína hefur gert það að verkum að tígrisdýrum á Indlandi hefur fækkað umtalsvert á síðustu árum, en tígrisfeldur þykir til marks um ríkidæmi og völd. Klær og tennur dýranna eru eftir sem áður vinsælar í náttúrulyf. Erlent 13.10.2005 19:14
Dómstólar eiga síðasta orðið Ráðuneytisstjóri dómsmálaráðuneytisins segir að dómstólar eigi síðasta orðið í ættleiðingarmáli Lilju Sæmundsdóttur. Hann segir réttindi barnsins, öryggi og hamingju í fyrirrúmi í ákvarðanatöku ráðuneytisins hverju sinni. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Veittu 93 milljóna króna styrki Rauði kross Íslands fékk hæsta styrkinn þegar Pokasjóður úthlutaði styrkjum til 109 samtaka. Samtals námu styrkirnir 93 milljónum króna og fékk Rauði krossinn fimm milljónir vegna hamfaranna í Asíu í desember. Innlent 13.10.2005 19:14
Karlar fá margfalt fleiri punkta Karlar fá fleiri refsipunkta og valda fleiri alvarlegum slysum en konur. Þó telja þeir sig mun betri ökumenn.Nýleg rannsókn segir þó engan mun á kynjunum þegar kemur að ökuleikni. Innlent 13.10.2005 19:14
Þjóðin vill nýja stjórn Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði við setningu landsfundar flokksins í Egilshöll í dag að á skömmum tíma hefði Samfylkingin náð þeim trúnaði fólksins í landinu að verða annað stóra aflið í íslenskum stjórnmálum. Þjóðin vildi nýjar hugmyndir, nýjar lausnir og nýja landsstjórn. Innlent 13.10.2005 19:14
Afsögn verði stjórnarskrá felld Forseti Evrópusambandsins segir að hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins þýði það endalok hennar. Andstæðingar ríkisstjórnarinnar í Frakklandi krefjast þess að hún segi af sér ef almenningur hafnar stjórnarskránni. Erlent 13.10.2005 19:14
Myndir af Saddam valda fjaðrafoki Bresk og bandarísk dagblöð birtu í gær ljósmyndir af Saddam Hussein í nærfötunum einum klæða, en birting myndanna olli strax miklu fjaðrafoki. Myndirnar kváðu vera teknar fyrir um ári og sýna Íraksleiðtogann fyrrverandi vera að setja plögg af sér í þvottavél þar sem honum er haldið í fangelsi. Erlent 13.10.2005 19:14
Lögregla leitar innbrotsþjófa Lögreglan leitar nú þess eða þeirra sem brutust inn í apótekið á Hellu í nótt. Rúða var brotin í apótekinu og skemmdir unnar þar. Ekki er ljóst hvort einhverju var stolið en þó er víst að það hafi ekki verið mikið. Innlent 13.10.2005 19:14
Stemma stigu við pýramídastarfsemi Norska ríkisstjórnin hefur lagt fram frumvarp gegn allri pýramídastarfsemi sem fær meira en fimmtíu prósent af tekjum sínum með því lokka hópa fólks til starfseminnar, en ekki af vörum og eða þjónustu. Samkvæmt nýju lögunum getur þátttaka í slíku varðað sektum og allt að þriggja ára fangelsi. Erlent 13.10.2005 19:14