Fréttir
KEA vill undirbúa stóriðju Stjórn KEA hvetur til þess að byrjað verði á göngum undir Vaðlaheiði og lýsir vilja til að taka þátt í undirbúningi að uppbyggingu stóriðju á Norðurlandi. Þá áréttar stjórnin mikilvægi þess að samstarf verði á milli byggðarlaga um staðarval. Innlent 13.10.2005 19:14
Landbúnaðarráðherra til Noregs Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra verður í opinberri heimsókn í boði norska landbúnaðarráðherrans, Lars Sponheims, dagana 22.-24. maí í Hörðalandi í Noregi. Í ferðinni verður lögð áhersla á að kynna nýsköpun í landbúnaði en norska ríkisstjórnin hefur nú um nokkurt skeið verið með sérstakt átaksverkefni til að efla atvinnu og byggð í sveitahéruðum. Innlent 13.10.2005 19:14
Kosið um flugvöll á landsfundi Lagt er til við landsfund Samfylkingar að Reykjavíkurflugvöllur hverfi úr Vatnsmýrinni í áföngum og verði farinn þaðan ekki síðar en árið 2010. Jafnframt er lagt til að byggður verði nýr flugvöllur í jaðri höfuðborgarsvæðisins, ekki lengra en tuttugu kílómetra frá Alþingishúsinu í loftlínu. Innlent 13.10.2005 19:14
Grafið undan vopnahléinu Gamalkunnug keðjuverkun ofbeldis virðist hafin fyrir botni Miðjarðarhafs. Í gær skarst í odda á milli ísraelskra hermanna og herskárra Palestínumanna þriðja daginn og beið einn úr röðum þeirra síðarnefndu bana í átökunum. Erlent 13.10.2005 19:14
Óttast árásir á stjórnmálamenn Tifandi tímasprengjur. Þannig lýsir norska lögreglan 40 mönnum sem óttast er að muni gera árásir á stjórnmálamenn í landinu. Yfirmaður öryggisdeildar lögreglunnar segist óttast slíkar árásir meira en hryðjuverk. Erlent 13.10.2005 19:14
Veikt umboð Verkamannaflokksins Umboð breska Verkamannaflokksins til að stýra Bretlandi er eitt hið veikasta á Vesturlöndum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar þarlendrar rannsóknar. Erlent 13.10.2005 19:14
Rannsókn stendur enn yfir Rannsókn stendur enn yfir á máli þriggja ungra kínverskra stúlkna sem voru stöðvaðar við komu til landsins ásamt kínverskum manni og fylgdarmanni frá Singapúr. Að sögn Jóhanns R. Benediktssonar, sýslumannsins á Keflavíkurflugvelli, eru öll skref í málinu tekin í samráði við barnaverndaryfirvöld en í ljós kom við yfirheyrslur að stúlkurnar væru undir lögaldri. Innlent 13.10.2005 19:14
Landsfundurinn hefst í dag Landsfundur Samfylkingarinnar hefst í dag en á fundinum verður kosið til formanns eins og kunnugt er. Formannskjöri verður lýst klukkan tólf á morgun en á dagskránni í dag eru kosningar í ýmis embætti á fundinum og skýrslur ýmissa hópa, þ.á m. framtíðarhóps flokksins sem Ingibjörg Sólrún Gísladóttir stýrði. Innlent 13.10.2005 19:14
Samfylkingin vanbúin síðast Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir að Samfylkingin hafi farið vanbúin í kosningabaráttuna fyrir síðustu kosningar, stefnuvinnu hafi ekki verið gefinn nægur gaumur. Samfylkinguna hafi því skort trúverðugleika. Hún leggur til stofnun skuggaráðuneyta. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:14
Hraðskreiðasti rússíbani heims Það er ekki á hverjum degi sem menn komast á meira en tvö hundruð kílómetra hraða undir berum himni. Jafnvel allra hörðustu adrenalínfíklar ættu ekki að verða fyrir vonbrigðum með nýja rússíbanann sem opnaður var í New Jersey í gær. Hann er sá stærsti og hraðskreiðasti í heiminum, meira en140 metra hár og fer mest á u.þ.b. 206 kílómetra hraða. Erlent 13.10.2005 19:14
Fjórir látnir á tveimur dögum Ekkert lát virðist vera á dauðsföllum bandarískra hermanna í Írak. Frá miðvikudegi hafa fjórir látist í árásum hryðjuverkamanna þar í landi. Frá því Bandaríkjamenn réðust inn í landið í mars árið 2003 hafa að minnsta kosti 1600 hermenn látist af völdum hryðjuverkamanna og er óttast að sú tala eigi eftir að hækka mjög. Erlent 13.10.2005 19:14
Norræni skálinn vinsæll Norræni skálinn á EXPO 2005, heimssýningunni í Japan, hefur verið mjög vinsæll síðan hann var formlega opnaður 25.mars síðastliðinn. Gestur númer 500 þúsund kom í skálann nú fyrir skemmstu, en það voru tvær systur, Ayane Shigemori 9 ára og Yuko Shigemori 7 ára, sem voru verðlaunaðar fyrir það. Þær fengu margvíslegan varning sem var til sölu í skálanum. Erlent 13.10.2005 19:14
Kviknaði tvisvar í á sama stað Útkall barst til slökkviliðsins í Reykjavík klukkan 16:36 vegna bruna á horni Njálsgötu og Rauðarárstígs.Íbúar að Njálsgötu 112 létu vita af eldinum. Skömmu fyrir klukkan tíu í gærkvöldi var svo aftur tilkynnt um eld á sama stað. Innlent 13.10.2005 19:14
Aðeins ákærður fyrir líkamsárás Norskur faðir sem stakk barnaníðing fimmtán sinnum með hnífi sleppur með ákæru fyrir líkamsárás en ekki morðtilraun. Maðurinn ferðaðist tvö þúsund kílómetra frá Ósló til Alta til að hefna sína á karlmanni sem nauðgað hafði syni hans. Erlent 13.10.2005 19:14
Vopnahléið enn við lýði Leiðtogi Hamas-samtakanna segir að vopnahlé á milli Ísraels og Palestínu sé enn við lýði þrátt fyrir ofbeldi og árásir undanfarinna daga. Sem fyrr er ofbeldi á báða bóga réttlætt með því að hinn aðilinn hafi átt fyrsta leikinn. Innlent 13.10.2005 19:14
Fjárdráttarmál hjá söfnuði í Ósló Tveir starfsmenn íslenska safnaðarins í Ósló hafa sagt af sér vegna fjárdráttar sem afleysingastarfsmaður hans varð uppvís að. Maðurinn segir ástæðu fjádráttarins vera spilafíkn, að því er Stöð tvö greindi frá. Innlent 13.10.2005 19:14
Hraðakstur á Suðvesturlandi Lögreglan á Suðvesturlandi hefur orð á því að ökumenn séu farnir að fara fullgeyst nú þegar sumarið er gengið í garð. Lögreglan í Kópavogi stöðvaði 10 ökumenn í gær og í Hafnarfirði stöðvaði lögreglan tvöfalt fleiri í fyrradag Innlent 13.10.2005 19:14
Kosningar gætu eflt Samfylkinguna Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar, sagði í ræðu sinni á landsfundi flokksins í dag að þúsundir hefðu gengið til liðs við Samfylkinguna vegna formannskosninganna. Kosningarnar gætu því markað tímamót og eflt flokkinn til langframa. Innlent 13.10.2005 19:14
Endalok stjórnarskrár ESB? Forseti Evrópusambandsins segir að hafni Frakkar stjórnarskrá Evrópusambandsins þýði það endalok hennar. Tuttugu og fimm háttsettir stjórnmálamenn frá allri Evrópu hafa verið fengnir til Frakklands til þess að hjálpa stjórnvöldum í landinu við að telja almenningi trú um ágæti stjórnarskrárinnar. Erlent 13.10.2005 19:14
Merkum áfanga náð Suðurkóreskum vísindamönnum hefur tekist að rækta stofnfrumur sem passa fullkomlega við erfðaefni nokkurra sjúklinga. Uppgötvunin eykur vonir um að hægt verði að þróa lækningar á grunni stofnfrumuvísinda en henni fylgja þó alvarleg siðferðileg álitamál. Erlent 13.10.2005 19:14
Tveir samningar undirritaðir Sigríður Anna Þórðardóttir, umhverfisráðherra, hefur undirritað tvo samstarfssamninga á sviði umhverfismála við kínversk yfirvöld. Samningarnir eru á sviði jarðskjálftavár og umhverfisverndar og koma í kjölfar tveggja funda sem Sigríður átti í Kína. Innlent 13.10.2005 19:14
Þrýstingur eykst á Karimov Atlantshafsbandalagið og Evrópusambandið bættust í gær í lið með Sameinuðu þjóðunum um að þrýsta á ráðamenn Úsbekistans að heimila alþjóðlega rannsókn á því sem gerðist er mikill fjöldi mótmælenda féll fyrir byssukúlum öryggissveita í bænum Andijan í austurhluta landsins fyrir viku. Ríkisstjórnin hvikaði hins vegar hvergi frá andstöðu sinni. Erlent 13.10.2005 19:14
Eldur í húsi við Rauðarárstíg Allt tiltækt lið slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins hefur verið kallað út vegna elds í húsi á horni Rauðarárstígs og Njálsgötu. Ekki er vitað hvort fólk sé í húsinu. Að sögn varðstjóra hjá slökkviliðinu logar eldur út um þakglugga hússins. Innlent 13.10.2005 19:14
Dró sér fé af kirkjureikningum Fyrrverandi afleysingastarfsmaður íslensku kirkjunnar í Ósló hefur viðurkennt að hafa dregið sér umtalsvert fé af reikningum safnaðarins. Hann segir ástæðuna vera spilafíkn. Tveir starfsmenn safnaðarins hafa sagt af sér vegna málsins. Innlent 13.10.2005 19:14
Afmælis kosningaréttar minnst „Konur viðurkenndar löglegir borgarar þjóðfélagsins.“ Þetta var fyrirsögnin á grein Bríetar Bjarnhéðinsdóttur í <em>Kvennablaðinu</em> um þær gleðifregnir sem bárust frá Kaupmannahöfn sumarið 1915 að konum hefði verið veittur kosningaréttur og kjörgengi til Alþingis. Í ár eru liðin níutíu ár frá þessum tímamótum og því er fagnað með ýmsum hætti. Innlent 13.10.2005 19:14
Mannbjörg á Þistilfirði Mannbjörg varð þegar nítján tonna bátur frá Raufarhöfn, Hildur ÞH, sökk á Þistilfirði um hádegi í dag. Tveir menn voru um borð í bátnum en þeim var bjargað af áhöfn Gunnbjargar, björgunarskipi björgunarsveitarinnar Pólstjörnunnar á Raufarhöfn. Innlent 13.10.2005 19:14
Aldrei fleiri áskrifendur Áskrifendur Stöðvar tvö komust í um 42 þúsund talsins í nýliðinni viku og hafa aldrei verið fleiri í sögu stöðvarinnar. Innlent 13.10.2005 19:14
93 milljónir úr Pokasjóði Níutíu og þremur milljónum króna var úthlutað til einstaklinga og félaga úr Pokasjóði við athöfn á Reykjavíkurflugvelli í dag. Peningunum verður varið til margvíslegra verkefna á sviði umhverfismála, mannúðar- og heilbrigðismála, menningar og lista og íþrótta og útivistar. Innlent 13.10.2005 19:14
Samstarf eflt við Gæsluna Á fimmta landsþingi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem hófst á Akureyri í gær, var undirritaður nýr samstarfssamningur félagsins og Landhelgisgæslunnar. Samninginn undirritaði einnig Björn Bjarnason dómsmálaráðherra, en báðir samningsaðilar heyra undir ráðuneyti hans. Innlent 13.10.2005 19:14
Alcan vísar ásökunum á bug Alcan í Straumsvík vísar á bug ásökunum um að ólöglega hafi verið staðið að uppsögnum fimm starfsmanna. Fyrirtækið segir að ákvæði kjarasamninga hafi ekki verið brotin. Innlent 13.10.2005 19:14