Fréttir
Vill skima alifugla og vatnafugla Embætti yfirdýralæknis hefur sótt um fjárveitingu til stjórnvalda til að láta fara fram svokallaða skimun á alifuglum og vatnafuglum hér á landi. Innlent 13.10.2005 19:15
Fannst á lífi í ruslagámi Átta ára stúlka í Flórída, sem hafði verið beitt kynferðislegu ofbeldi og grafin undir grjóti í ruslagámi, fannst á lífi í dag. Lögregluþjónn sá glitta í hönd stúlkunnar og fótlegg undir grjóthrúgu í gámnum en þá voru sjö klukkustundir liðnar frá því að tilkynnt var um hvarf hennar. Ofbeldismaðurinn, sem hefur viðurkennt glæp sinn, er sautján ára unglingur sem amma stúlkunnar hafði skotið skjólshúsi yfir. Erlent 13.10.2005 19:15
Gömul íbúð páfa til sölu á eBay Íbúð sem nýkjörinn páfi, Benedikt sextándi, leigði fyrir um 40 árum nærri borginni Bonn í Þýskalandi er nú boðin til sölu á uppboðsvefnum eBay. Joseph Ratzinger, sem tók sér nafnið Benedikt sextándi eftir páfakjör, bjó í íbúðinni á árunum 1959-1963 þegar hann kenndi guðfræði við háskóla þar í borg. Erlent 13.10.2005 19:15
Sturla frá vegna uppskurðar Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra, gekkst undir aðgerð á Landsspítala-Háskólasjúkrahúsi á föstudaginn var vegna brjóskloss í baki. Innlent 13.10.2005 19:15
Ekki launaskrið Ekki er um launaskrið að ræða, þótt laun hafi hækkað um 6,7 prósent síðastliðna tólf mánuði og kaupmáttur vaxið um 2,3 prósent, segir Alþýðusamband Íslands. Innlent 13.10.2005 19:15
Eldur í kjallara fjölbýlishúss Slökkvilið höfuðborgasvæðisins var kallað út eftir að mikils reyks var vart í kjallara í fjölbýlishúsi að Háaleitisbraut um klukkan hálf fimm í gær. Eldur hafði komið upp í þvottavél og þurfti reykkafara til að komast að honum. Innlent 13.10.2005 19:15
Skildu síamstvíburasystur að Læknar í Singapúr skildu í morgun að indónesískar tvíburasystur sem voru samvaxnar á mjöðm. Þeir segja ástand þeirra stöðugt. Systurnar voru með ýmis sameiginleg líffæri og voru með samtals þrjá fætur. Þær eru tæplega eins og hálfs árs en aðgerðin tók tíu klukkustundir. Erlent 13.10.2005 19:15
Tjónþolar fá hlut sinn bættan Tryggingafélögin eru bótaskyld ef byggingarstjórar vanrækja skyldur sínar og gerast sekir um brot í starfi. Íbúar í fjölbýlishúsi í Grafarholti segjast hafa orðið fyrir tjóni sem þeir rekja til vanefnda verktakanna sem byggðu húsið og byggingarstjóri gerði ekki athugasemdir við. Innlent 13.10.2005 19:15
Fækkar í sænskum framhaldsskólum Svíar hafa vaxandi áhyggjur af því að ungmennum sem ekki ljúka framhaldsskólanámi fer stöðugt fjölgandi. Erlent 13.10.2005 19:15
Á fimmta tug beið bana í gær Flugumenn al-Kaída í Írak réðu hátt settan embættismann af dögum í Bagdad í gær. Auk þess beið á fimmta tug Íraka bana í árásum víðsvegar um landið. Í Rúmeníu fögnuðu menn hins vegar frelsun þarlendra blaðamanna sem haldið hafði verið í gíslingu í tæpa tvo mánuði. Erlent 13.10.2005 19:15
Frusu í hel Leit stendur enn yfir í hlíðum Andesfjalla af nítján hermönnum sem talið er að hafi orðið úti í mikilli stórhríð í fjöllunum í síðustu viku. 26 lík félaga þeirra hafa þegar fundist. Erlent 13.10.2005 19:15
Vilja afnema stimpilgjöld Tæplega 95 prósent þáttakenda í vefkönnun sem fram hefur farið á vef Neytendasamtakanna telja að afnemi eigi stimpilgjöld og lýsa samtökin undrun yfir að tillaga um slíkt hafi ekki hlotið brautargengi á Alþingi í vetur. Innlent 13.10.2005 19:15
Sprengjuárás á bæjarskrifstofu Að minnsta kosti fimm létust og 18 særðust þegar sprengja sprakk fyrir utan skrifstofu bæjarstjóra í bænum Tuz Khurmatu í Írak í morgun. Sprengjunni hafði verið komið fyrir í bíl sem lagt hafði verið fyrir framan bæjarstjórnarskrifstofurnar en bæjarstjórann sjálfan sakaði þó ekki. Erlent 13.10.2005 19:15
Alífuglar bólusettir í Kína Kínversk stjórnvöld hafa ákveðið að bólusetja þrjár milljónir alífugla í Quinghai-héraði í vesturhluta landsins eftir að næstum 200 gæsir fundust þar dauðar líklega að völdum fuglaflensu. Enn hefur þó enginn maður látist vegna fuglaflensu í Kína. Erlent 13.10.2005 19:15
Föt 50% dýrari en í nágrannaríkjum Fatnaður og skór eru tæplega fimmtíu prósentum dýrari hér á landi en í öðrum Evrópuríkjum. Þetta kemur fram í tölum sem hagstofa Evrópusambandsins birti nýverið. Viðskipti innlent 13.10.2005 19:15
Fuglaflensa dregur einn til dauða Yfirvöld í Víetnam tilkynntu í morgun um að 46 ára gamall maður hefði látist af völdum fuglaflensu þar í landi. Alls hafa nú alls 54 manns látist af völdum veikinnar í Víetnam. Maðurinn veiktist mjög skyndilega og var lagður inn á sjúkrahús og þremur þremur dögum síðar lést hann. Erlent 13.10.2005 19:15
Ný stjórn Samkeppniseftirlitsins Valgerður Sverrisdóttir viðskiptaráðherra hefur skipað nýja stjórn Samkeppniseftirlitsins sem tekur til starfa samkvæmt nýjum lögum þann 1. júlí. Innlent 13.10.2005 19:15
N-Kóreumenn við samningaborðið Norður-Kórea hefur staðfest að hafa átt í viðræðum við Bandaríkin um kjarnorkuvopnaframleiðslu. Vonast til að viðræðurnar geti leitt til þess að Norður-Kórea hætti við áform sín um að hefja framleiðslu á slíkum vopnum. Lönd í kringum Norður-Kóreu hafa verið áhyggjufull að undanförnu yfir því að Norður-Kóreumenn hefji prófanir á kjarnorkuvopnum en yfirvöld í Pyongyang hafa lýst því yfir vilja til þess. Erlent 13.10.2005 19:15
Hart sótt að Schröder Jafnaðarmannaflokkur Gerhards Schröders, kanslara, beið afhroð í fylkiskosningum í Nordrhein-Westfalen á sunnudaginn en flokkurinn hefur haldið þar um stjórnartaumana síðan 1966. Erlent 13.10.2005 19:15
Elgir valda vandræðum í Þrándheimi Tveir elgir ollu nokkrum usla í morgunumferðinni í Þrándheimi í dag en svo virðist sem dýrin hafi villst inn í borgina. Samkvæmt <em>Aftenposten</em> fékk lögreglan í Þrándheimi fjölmargar tilkynningar frá fólki snemma í morgun um ferðir elganna tveggja á vegum sunnan miðbæjarins og munaði minnstu nokkrum sinnum að ekið yrði á þá. Erlent 13.10.2005 19:15
Þrír handteknir á Selfossi Þrír menn voru handteknir á Selfossi á fimmtudaginn eftir að nokkurt magn af amfetamíni, kannabisefnum og -plöntum fannst við húsleit lögreglunnar. Innlent 13.10.2005 19:15
Hreyfing og hollmeti lykillinn Hundruðum milljóna króna er varið á hverju ári í að finna út hvert leyndarmálið að háum aldri sé. Það kemur eflaust ekki á óvart að hollur matur og nægileg hreyfing sé rétta svarið en í þorpinu Bama í Kína, þar sem þessi tvö atriði eru í hávegum höfð, eru yfir 70 manns yfir eitt hundrað ára gamlir. Erlent 13.10.2005 19:15
Rífa hús við Borgartún 17 Þessa dagana er unnið við að rífa niður hús sem stendur við Borgartún 17 en til stendur að tvöfalda höfuðstöðvar Kaupþings banka. Í húsinu voru verkfræði- og arkitektaskrifstofur og í fyrstu stóð til að gera brú á milli hússins og núverandi höfuðstöðva. Húsið sem er 27 ára þykir hins vegar barn síns tíma en lofthæðin þykir ekki næg fyrir tilhlýðilegt loftræstikerfi. Innlent 13.10.2005 19:15
Laura Bush lofar gjörðir Mubaraks Laura Bush, forsetafrú Bandaríkjanna, hrósaði í dag Hosni Mubarak, forseta Egyptalands, fyrir að breyta lögum um forsetakjör í landinu. Frú Bush er nú á ferðalagi um Miðausturlönd og heimsótti Egyptaland í dag. Þar lauk hún lofsorði á stjórnarskrárbreytingu sem Egyptar kjósa um á miðvikudaginn og kveður á um að fleiri en einn geti boðið sig fram til forseta. Erlent 13.10.2005 19:15
Golfvellir flestir þokkalegir "Korpan hefur aldrei komið jafn illa undan vetri og núna auk þess sem veðráttan í maí hefur verið afar slæm," segir Margeir Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur. Innlent 13.10.2005 19:15
Byggingarstjóri er ekki skrautblóm "Byggingarstjóri ber mikla ábyrgð og ef fram koma gallar á húsnæði þá þarf hann að svara fyrir sig. Við höfum ekki mörg dómafordæmi en það eru að koma upp mörg mál núna," segir Sigurður Helgi Guðjónsson, hæstaréttarlögmaður og formaður Húseigendafélagsins. Innlent 13.10.2005 19:15
Flúðaskóli hreppti verðlaunin Fjórði bekkur Flúðaskóla hreppti 100 þúsund krónur í verðlaun í teiknimyndsamkeppni meðal fjórðu bekkinga í grunnskólum landsins. Innlent 13.10.2005 19:15
Ryðja þurfti snjó á fjallvegum Vinnuvélar Vegagerðarinnar eru ekki komnar í sumarfrí en ryðja þurfti Þorskafjarðarheiði og hreinsa snjó af fjallvegum á Austurlandi í morgun. Innlent 13.10.2005 19:15
Betra að reykja en vera of þungur Dómsmálaráðuneytið óskar eftir sérstökum heilsufarsupplýsingum séu umsækjendur um ættleiðingu yfir ákveðnum þyngdarstuðli. Er það sagt vegna hættu á æða- og hjartasjúkdómum. Einskis er spurt þótt umsækjandi reyki að sögn kjörföður. </font /></b /> Innlent 13.10.2005 19:15
Engin gleðistund Breskir bjórsvelgir eiga ekki von á góðu núna. Hópur sem kemur fram fyrir hönd um helmings breskra kráa hefur lýst því yfir að nú eigi að hætta að vera með svokallaðan "Happy-Hour" eða gleðistundir. Þetta er gert í kjölfarið á miklum þrýsingi frá stjórnvöldum sem vilja ekki að almenningur drekki jafn mikið og gert er. Erlent 13.10.2005 19:15