Fréttir
Bastilludagurinn Þjóðhátíðardagur Frakka, Bastilludagurinn, er haldinn hátíðlegur í París í dag. Mikill öryggisviðbúnaður er þó vegna dagsins nú þegar vika er liðin frá því að hryðjuverkaárásirnar voru gerðar á London. Erlent 13.10.2005 19:30
Kjalvegur tilbúinn 2007-2008 Stofnfundur að félagi um uppbyggingu Kjalvegar verður haldinn í haust og hefst þá undirbúningur að framkvæmdum. Vonir standa til að vegurinn verði tilbúinn eftir tvö til þrjú ár. Innlent 13.10.2005 19:30
Fleiri fæða heima Heimafæðingum hefur fjölgað lítið eitt á síðustu árum. Heimafæðingar á síðasta ári voru 45 talsins og hefur fjölgað um fjórar síðan árið 2003 samkvæmt upplýsingum á vef Tryggingastofnunar ríkisins. Innlent 13.10.2005 19:31
Nýtt leiðakerfi strætó Sameiginlegu og samræmdu leiðarkerfi almenningsvagna fyrir allt höfuðborgarsvæðið verður komið á laugardaginn 23. júlí. Þessar breytingar voru kynntar á fundi Strætó BS í morgun Innlent 13.10.2005 19:30
Skilar sér í hægari akstri Hert umferðareftirlit á þjóðvegum landsins skilar sér í hægari akstri að sögn lögreglu. Innlent 13.10.2005 19:31
Risabor við Kárahnjúka snúið við Verktakar við aðrennslisgöng Kárahnjúka hafa orðið að stöðva einn risaborinn vegna vatnsaga og jarðfræðilegra erfiðleika og verður bornum snúið við. Gangnagerðin ætti þrátt fyrir það og aðra erfiðleika í göngunum að geta staðist áætlun, ef ekkert fer úrskeiðis úr þessu, að sögn Landsvirkjunar. Innlent 13.10.2005 19:30
Atvinnuleysi á Suðurnesjum eykst Atvinnuleysi á Suðurnesjum jókst um 10% á milli mánaða, þrátt fyrir að atvinnuleysi hafi minnkað á landsbyggðinni samkvæmt tölum frá Vinnumálastofnun. Alls voru 166 skráðir atvinnulausir á Suðurnesjum í júní meðan 182 voru skráðir í þessum mánuði. Þar af voru 54 karlmenn atvinnulausir og 128 konur, en frá þessu er greint á vef Víkurfrétta. Innlent 13.10.2005 19:30
Þögn í London Tveggja mínútna þögn var í Bretlandi á hádegi í dag eða 11 að íslenskum tíma til að minnast þeirra sem létust í sprengjuárásunum í London. Stöðvuðust meðal annars strætisvagnar og leigubílar um stund og gangandi vegfarendur stóðu kyrrir. Erlent 13.10.2005 19:30
Banamein var skot í höfuð Krufning leiddi í ljós að Gísli Þorkelsson var skotinn í höfuðið af stuttu færi fyrir um fimm vikum. Fjölmiðlar í Suður Afríku í dag greindu frá því að húseigandinn í Boksburg sem fann lík Gísla Þorkelssonar á sunnudag hafi um páskana farið í útilegu ásamt Gísla og parinu sem myrti hann. Innlent 13.10.2005 19:30
Ipod bjargar Apple Hagnaður Apple tölvufyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi nam um 20 milljörðum króna og er það fimm sinnum meiri hagnaður en á sama tíma í fyrra. Velgengni fyrirtækisins má að stærstum hluta rekja til Ipod spilarans en fyrirtækið seldi rúmlega 6 milljónir spilara á þriðja ársfjórðungi og nam salan um þriðjungi af heildarsölu fyrirtækisins. Erlent 13.10.2005 19:31
Reiddist eftir lokun apóteks Frestað var í tvö ár fullnustu tveggja mánaða fangelsisdóms sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í gær yfir 25 ára gömlum manni sem réðist á starfsmann apóteks. Innlent 13.10.2005 19:31
Íbúðalánasjóður í kringum lögin Af samkomulagi um innheimtu krafna, sem er viðuaki við lánasamning Íbúðalánasjóðs við banka og öðrum gögnum sem Fréttastofa Stöðvar 2 hefur undir höndum, er ekki annað hægt að ráða en að bankarnir leppi í raun lánveitingar Íbúðalánasjóðs til einstaklinga sem eru umfram þær heimildir sem sjóðurinn hefur samkvæmt lögum til að lána eða tæpar sextán milljónir. Innlent 13.10.2005 19:31
Merkel vill ekki Angela Merkel, formaður kristilegra demókrata og kanslaraefni í komandi kosningum í Þýskalandi, sagði í gær að hún stefni að því að sneiða hjá því að mynda svokallaða "stóra samsteypu" með jafnaðarmönnum eftir kosningarnar. Að hennar sögn væri slíkt stjórnarsamstarf "merki um stöðnun". Erlent 13.10.2005 19:31
Ístak lægstbjóðandi í Færeyjum "Þarna er um tveggja ára verkefni að ræða ef við hljótum hnossið en það ætti að koma í ljós næstu daga," segir Loftur Árnason, framkvæmdastjóri Ístak. Innlent 13.10.2005 19:30
Leiðtogaslagur á báðum vígstöðvum Það stefnir í leiðtogaslag í R-listanum ef hann hangir saman fram að næstu kosningum. Bæði Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Stefán Jón Hafstein segjast vilja borgarstjórastólinn. Innlent 13.10.2005 19:31
Emily gerir óskunda Fellibylurinn Emily gekk á land á eynni Grenada í Karabíska hafinu í gær og olli talsverðu tjóni. Erlent 13.10.2005 19:31
Sumarhátíð Vinnuskólans Þrjú þúsund glaðbeittir unglingar gerðu sér dagamun í Laugardalnum í morgun þegar sumarhátíð Vinnuskólans var haldin í sautjánda sinn. Aðstandendur hátíðarinnar völdu svo sannarlega rétta daginn til hófsins, því sólin skein loks sínu skærasta í höfuðborginni í dag, eftir margar heldur gráar vikur. Innlent 13.10.2005 19:31
Sölu hætt á Gerber barnagrautum Sölu og dreifingu á barnagrautum frá bandaríska framleiðandanum Gerber hefur verið hætt hér á landi og skýrir það hvers vegna sú vara fyrirfinnst ekki lengur í hillum verslana. Innlent 13.10.2005 19:30
Engar aðgerðir ræddar Ekki hefur verið rætt um að grípa til sérstakra aðgerða vegna erfiðleika sem ferðaþjónusta sem byggir á bílaútgerð sér fram á í kjölfar verðhækkana á dísilolíu að sögn Bergþórs Ólasonar, aðstoðarmanns samgönguráðherra. Innlent 13.10.2005 19:31
Samdráttur í fiskafla Fiskaflinn í júnímánuði var tæpum 30 þúsund tonnum minni en á sama tíma í fyrra samkvæmt tölum Hagstofu Íslands. Innlent 13.10.2005 19:30
Aflasamdráttur Afli íslenskra skipa dróst saman um rúm 25 þúsund tonn í júnímánuði ef miðað er við sama mánuð í fyrra. Aflaverðmætið dróst einnig saman um 14,7 prósent á sama tímabili. Þegar litið er á botnfiskafla ýmissa tegunda þá dróst þorskaflinn saman um 2.400 tonn ef litið er á júní í ár samanborið við júní 2004. Innlent 13.10.2005 19:30
Stela dósum frá börnum Tveir óprúttnir náungar í Sandgerði hafa undanfarið rænt flöskum og dósum úr söfnunargámi íþróttafélagsins Reynis sem stendur fyrir utan félagsheimili þeirra í Sandgerði. Á vef Víkurfrétta kemur fram að sjónarvottar hafi séð tvo menn innan við tvítugt á hvítum bíl taka flöskur og dósir úr gámnum. Daginn eftir sást til mannanna selja dósirnar í Kefalvík. Innlent 13.10.2005 19:30
Fæðingar í heimahúsum Fæðingar í heimahúsum voru fjörtíu og fimm á síðasta ári, fjórum fæðingum fleiri en árinu áður. Kostnaður Tryggingastofnunar vegna heimafæðinga á síðasta ári nam rúmlega 57 þúsund krónum að meðaltali á hverja fæðingu eða rúmum tveimur og hálfri milljón króna. Innlent 13.10.2005 19:30
Styttra milli ferða á háannatímum Leiðakerfi strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu hefur verið gjörbylt og verður nýja kerfið tekið í notkun laugardaginn 23. júlí. Það miðar að því að koma farþegum á milli hverfa á sem stystum tíma og verða farnar ferðir á tíu mínútna fresti á háannatímum á sex stofnleiðum sem aka með fáum stoppum á milli helstu íbúðar- og atvinnuhverfa. Innlent 13.10.2005 19:31
Forstjóri WorldCom dæmdur Bernard Ebbert, fyrrum forstjóri WorldCom, var í gær dæmdur í 25 ára fangelsi fyrir svæsin fjársvik og samsæri,sem leiddi fyrirtækið í stærsta gjaldþrot í sögu Bandaríkjanna. Hluthafar í WorldCom töpuðu um 12 þúsund milljörðum íslenskra króna og 20 þúsund starfsmenn fyrirtækisins misstu vinnuna. Erlent 13.10.2005 19:30
Risabor snúið við Grípa varð til þess neyðarúrræðis við gangagerð á Kárahnjúkum að snúa einum risaboranna við, þegar hann átti aðeins eftir um kílómetra að Hálslóni. Borinn lenti á óþéttu bergi og vatn tók að streyma inn. Innlent 13.10.2005 19:31
Mannanafnanefnd leyfir og hafnar Mannanafnanefnd hefur leyft nöfnin Þoka, Ljósálfur, Klementína og Betsý, en samkvæmt úrskurði nefndarinnar frá 27. júní má einungis nota nafnið Betsý sem eiginnafn en ekki millinafn. Nöfnunum Annalísa, í einu orði, Maí, Eleonora, Jónorri í einu orði, og Franziska var hafnað. Innlent 13.10.2005 19:30
Bjór með Níkótíni Þýski bjórframleiðandinn Nautilus hefur hafið framleiðslu á bjór með níkótíni sem á að geta komið í stað níkótínsplásturs eða -tyggjós. Bjórinn er 6,3 prósent að styrkleika og ein 25 cl flaska inniheldur einn þriðja af níkótínmagni heils sígarettupakka. Erlent 13.10.2005 19:31
Öryrkjar ósáttir Samkvæmt samþykktum Lífeyrissjóðanna mega samanlagðar bætur frá Tryggingastofnun og Lífeyrissjóði ekki vera hærri en nemur mánaðarlaunum fólks, fyrir örorku. Eins og kom fram í fréttum okkar í gær hefur vegna þessa verið kallað eftir allt að tuttugu til þrjátíu ára gömlum gögnum. Innlent 13.10.2005 19:31
Tekinn af lífi án dóms og laga Ísraelskir hermenn réðust í gær inn á heimili breskrar blaðakonu í bænum Nablus á Vesturbakkanum og skutu þar til bana, Mohammed Alassi, meintan palestínskan uppreisnarmann. Erlent 13.10.2005 19:31