Komodoeyju lokað á næsta ári Nota á næsta ár til að reyna að auka fjölda eðla og vernda kjörlendi þeirra. 1.4.2019 11:43
Segja árás á sendiráð ríkisins í Madríd vera hryðjuverkaárás Yfirvöld Norður-Kóreu krefjast þess að málið verði rannsakað til hlítar og segjast hafa orðróma um aðkomu Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) að árásinni í huga. 1.4.2019 10:58
Dimm él á Suður- og Vesturlandi Dimm él er á Suður-og Vesturlandi og einnig snjóar á norðausturhorni landsins nú í morgunsárið. Lögreglan beinir því til vegfarenda að fara sérstaklega varlega í umferðinni. 1.4.2019 08:38
Rapparinn Nipsey Hussle skotinn til bana Lögreglan í Los Angeles segir að rapparinn Nipsey Hussle, sem tilnefndur var til Grammy verðlauna á árinu, hafi verið skotinn til bana í suðurhluta borgarinnar. 1.4.2019 08:16
Gamanleikari og forseti berjast um æðsta embætti Úkraínu Gamanleikari með enga pólitíska reynslu leiðir í forsetakosningunum í Úkraínu en fyrri umferð þeirra fór fram um helgina. 1.4.2019 07:40
Konu sem sökuð er um að hafa myrt Kim sleppt á næstunni Doan Thi Huong, sem sökuð er að hafa myrt Kim Jong-nam, hálfbróður Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, á flugvellinum í Kúala Lumpur árið 2017 hefur játað vægara brot en hún var upprunalega ákærð fyrir. 1.4.2019 07:18
Leitar að ungri frænku sinni meðal fjölskyldna ISIS-liða Mustafa Tarbouni leitar að ungri stúlku meðal tuga þúsunda fjölskyldumeðlima ISIS-liða sem eru í haldi sýrlenskra Kúrda. Hann er að leita að frænku sinni sem rænt var frá Frakklandi fyrir fjórum og hálfu ári síðan. 29.3.2019 16:30
Björguðu sex fílsungum úr leðju Starfsmenn Thap Lan þjóðgarðsins í Taílandi björguðu í gær sex fílsungum sem sátu fastir í stórum leðjupolli. 29.3.2019 15:29
Fóru til að hitta börn sín en hafa verið í haldi í mánuð Fyrr í þessum mánuði ferðuðust foreldrar barna frá Mið-Ameríku til Bandaríkjanna. Þar ætluðu þau sér að hitta börn sín, sem tekin voru af þeim við landamæri Bandaríkjanna í fyrra, og báðu um að fá að halda hælisumsóknum sínum áfram. 29.3.2019 14:46
Ragir við að fylgja Trump í annan slag um heilbrigðiskerfið Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa þó lítinn áhuga á að fylgja forsetanum í aðra lotu bardaga þar sem fyrsta lotan er sögð hafa spilað stóra rullu í því að flokkurinn missti meirihluta sinn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. 29.3.2019 12:30