Áhorfandi hrækti á dómara í Garðabæ Þróttur Vogum hefur hlotið 200.000 króna sekt vegna vítaverðrar framkomu áhorfanda á leik liðsins við KFG í Garðabæ í lok síðasta mánaðar. Íslenski boltinn 20.8.2025 12:51
Eldri borgarar í Vogum leiddu knattspyrnumenn inn á völlinn Eldri borgurum í Vogum á Vatnsleysuströnd þótti það mikill heiður þegar þeim var boðið að leiða leikmenn knattspyrnudeildar Þróttar inn á völlinn á móti Víði í Garði í gærkvöldi. Venjan er að börn leiði leikmenn inn á völlinn. Tveir af eldri borgurum mættu með göngugrindurnar sínar á völlinn og þótti það ekki til töku mál. Innlent 25.7.2025 20:06
Auðun tekur við Þrótti Vogum Landsliðsmaðurinn fyrrverandi, Auðun Helgason, hefur verið ráðinn þjálfari Þróttar Vogum sem leikur í 2. deild karla. Íslenski boltinn 1.3.2025 12:02
Fyrsti sigur Þróttar Vogum í næstefstu deild Þróttur Vogum hafði betur í fyrsta skipti í sögu félagsins í leik í næstefstu deild í fótbotla karla þegar liðið lagði nágranna sína, Grindavík, að velli með tveimur mörkum gegn engu í kvöld. Fjórir leikir fóru fram í 12. umferð deildarinnar í kvöld. Fótbolti 14. júlí 2022 22:30
Rekinn eftir aðeins fjórar umferðir Eiði Ben Eiríkssyni hefur verið sagt upp störfum sem þjálfara Lengjudeildarliðs Þróttar Vogum. Íslenski boltinn 2. júní 2022 15:29
HK og Selfoss með sigra og Kórdrengir björguðu stigi Þrír leikir fóru fram í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. HK vann 2-0 sigur gegn Aftureldingu, Selfyssingar eru enn taplausir eftir 4-0 sigur gegn Þrótti Vogum og Kórdrengir björguðu stigi er liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Fjölni. Fótbolti 27. maí 2022 21:09
Grindavík og HK unnu örugga sigra Grindavík og HK unnu örugga sigra í leikjum sínum í Lengjudeild karla í fótbolta í kvöld. Grindvíkingar unnu 3-0 sigur gegn Þrótti Vogum og HK-ingar fóru á Auto-völlinn og unnu 3-1 sigur gegn KV. Fótbolti 12. maí 2022 21:32
Íslandsmeistararnir keyrðu yfir Þróttara í síðari hálfleik Íslands- og bikarmeistarar Víkings R. unnu afar öruggan 4-0 sigur gegn Þrótti Vogum er liðin mættust í Lengjubikar karla í fótbolta í kvöld. Íslenski boltinn 15. febrúar 2022 21:13
Leiknismenn komu til baka og Valsarar unnu stórsigur Lengjubikar karla í fótbolta fór af stað í kvöld með tveimur leikjum. Leiknismenn unnu 3-2 endurkomusigur gegn Keflvíkingum og Valsmenn unnu 5-0 stórsigur gegn Þrótti Vogum. Fótbolti 9. febrúar 2022 21:19
„Leyfiskerfi KSÍ er ekkert nema sýndarmennska“ Breytingar á leyfiskerfi KSÍ, sem mæta þörfum félaga á borð við Kórdrengi, Þrótt Vogum og KV, bitna á grasrótarstarfinu í íslenskum fótbolta. Þær stuðla að því að fjármagn fari enn frekar í starf meistaraflokka í stað þess að byggja upp íslenskan fótbolta með skýrum kröfum um öflugt yngri flokka starf. Íslenski boltinn 18. nóvember 2021 11:00
Hermann hættur hjá Þrótti: „Verðum honum ævinlega þakklát“ Hermann Hreiðarsson er hættur sem þjálfari Þróttar Vogum eftir eins og hálfs árs starf þar. Íslenski boltinn 1. október 2021 11:49
Þróttur Vogum tryggði sér sæti í Lengjudeildinni án þess að spila Þróttur Vogum mun leika í Lengjudeild karla á næsta tímabili, en þetta varð ljóst þegar að Magni hafði betur gegn Völsungi í dag, 2-1. Fótbolti 4. september 2021 22:00