Sakna ekki Robbie Strákarnir í hinni fornfrægu hljómsveit Take That segjast ekkert sakna Robbie Williams. Þeir Gary Barlow, Howard Donald, Mark Owen og Jason Orange ákváðu að sameina sveitina á ný eftir langa pásu en Robbie Williams, sem hefur náð mestri frægð af þeim öllum, ákvað að vera ekki með. Tónlist 14. nóvember 2006 14:30
Reyklaus böll í mörgum skólum Menntaskólar landsins hafa margir hverjir tekið sig saman og gert böllin hjá sér algjörlega reyklaus. Þetta hefur gefið góða raun. Menntaskólinn við Sund er einn af þessum skólum og segir Arnar Ágústsson, ármaður skólafélags MS, að þetta hafi verið ákveðið í vor. Lífið 14. nóvember 2006 14:00
Orrustan um Alsír sýnd Við lát ítalska leikstjórans Gillo Pontecorvo fyrir skemmstu hafa menn víða um lönd dustað rykið af meistaraverki hans frá 1966, Orrustunni um Alsír, eða La Battaglia di Algeri. Í kvöld og á laugardag verður hún sýnd í Bæjarbíói í Hafnarfirði á vegum Kvikmyndasafnsins. Bíó og sjónvarp 14. nóvember 2006 13:30
Opnun lífsstílsbúðar fagnað með stæl Verslunin 3 hæðir á Laugavegi hefur verið opin í smá tíma en á föstudaginn blésu aðstandendur búðarinnar til veislu í tilefni opnunarinnar. Fjölmenni var mætt til berja þessa svokölluðu lífsstílsbúð augum en þar kennir margra grasa og vöruúrvalið er afar fjölbreytt. Lífið 14. nóvember 2006 13:15
Neitar að hreinsa mannorð Mills Nafn Heather Mills bar á góma í viðtali sem hin virta sjónvarpskona Daphne Barak tók við vopnasalann Adnan Khashoggi. Því hefur lengi verið haldið fram að fyrirsætan og fyrrum eiginkona Pauls McCartney hafi gert sig út sem vændiskona á árum áður og Khashoggi hafi verið einn viðskiptavinanna. Lífið 14. nóvember 2006 13:00
Milljarðar boðnir í kynlífsmyndband Kevin Federline, fyrrverandi eiginmaður Britney Spears, býður nú hæstbjóðanda til sölu kynlífsmyndband með sér og Britney til að hefna sín á henni eftir að hún sótti um skilnað. Hafa honum þegar verið boðnir tæpir 3,4 milljarðar króna fyrir myndbandið af kvikmyndafyrirtæki nokkru. Vill það dreifa því á netinu til að allur umheimurinn geti séð hvað fór fram í svefnherberginu hjá þeim. Lífið 14. nóvember 2006 12:45
Mikil upphefð fyrir lítinn veitingastað við höfnina Veitingastaðurinn Sægreifinn, og sérstaklega humarsúpan sem prýðir matseðil hans, hlaut á sunnudag lofsamlega umfjöllun í þeim hluta New York Times sem helgaður er ferðalögum. Þetta ætti ekki að koma þeim sem stundað hafa staðinn á óvart, en hann hefur notið mikilla vinsælda. Lífið 14. nóvember 2006 12:30
Micarelli til Íslands Fiðluleikarinn Lucia Micarelli, sem stal senunni um stund á tónleikum Ian Andersons úr Jethro Tull í Laugardalshöll 23. maí, heldur tónleika á Nasa 9. desember. Tónlist 14. nóvember 2006 12:15
Bannið þessa sjúku bók Allt útlit er fyrir að hagsmunasamtök á Írlandi muni reyna að fá örmyndasögubók Hugleiks Dagssonar, Should You Be Laughing At This?, bannaða þar í landi en bókin þykir senda unglingum vægast sagt varasöm skilaboð. Menning 14. nóvember 2006 12:00
McQueen gerir brúðarkjólinn Ofurfyrirsætan Kate Moss hefur ákveðið hvaða hönnuður fær hann þann heiður að hanna brúðarkjól hennar. Þetta er eftirsóknarvert meðal hönnuða enda Moss mikið tískutákn. Það er góðvinur hennar, Alexander McQueen, sem fær að hanna brúðarkjólinn og segist hann vera alsæll með að Moss treysti honum fyrir að gera kjólinn. Lífið 14. nóvember 2006 11:45
Jack Palance er látinn Bandaríski leikarinn Jack Palance er látinn, 87 ára að aldri. Ferill Palance spannaði sex áratugi. Hann vann Óskarinn árið 1992 fyrir gamanmyndina City Slickers. Vakti hann mikla athygli þegar hann gerði armbeygjur með annarri hendi er hann tók á móti verðlaununum. Lífið 14. nóvember 2006 11:30
Idol-Heiða stjórnar sjónvarpsþætti Aðalheiður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Heiða úr Idolinu, mun stjórna nýjum tónlistarþætti á Skjá einum í vetur þar sem sýnd verða myndbönd með öllu því nýjasta og vinsælasta í tónlist hverju sinni. „Ég mun verða með upprifjun á gömlu og góðu efni inn á milli þannig að þátturinn ætti að geta höfðað til allra,” segir Heiða og bætir því við að þátturinn verði hálftímalangur á hverju föstudagskvöldi. Tónlist 14. nóvember 2006 11:00
Heiðraður af Dönum Leikstjórinn Dagur Kári Pétursson fær enn eina rósina í hnappagatið en tilkynnt hefur verið að leikstjórinn hljóti hin virtu Peter Emil Refn-verðlaun sem afhent verða 22. nóvember næstkomandi. Bíó og sjónvarp 14. nóvember 2006 10:30
Gröndalshús í hættu Undir lok vikunnar síðustu tók hópur manna sig til í Reykjavík og fór í blysför frá Þingholtsstræti að húsi Benedikts Gröndal við Vesturgötu 16b. Förin var gengin til að mótmæla áformum borgaryfirvalda sem nýlega keyptu húsið og hyggjast flytja það í Árbæ. Lífið 14. nóvember 2006 10:00
Gaza-ströndin Félagið Ísland-Palestína stendur fyrir sýningu á kvikmyndinni Gaza Strip á Kaffi Kúltúra í Alþjóðahúsinu, Hverfisgötu 18, í kvöld. Hljómsveitin Retro Stefson mun leika nokkur lög áður en sýningin hefst og Sveinn Rúnar Hauksson læknir heldur stutta tölu um aðskilnaðarmúrinn sem risinn er á herteknu palestínsku landi og ástandið á Gaza. Bíó og sjónvarp 14. nóvember 2006 09:30
Frímann á iTunes Aðdáendum gamanþáttarins Sigtið, sem var nýverið tilnefndur til Eddu-verðlaunanna, gefst nú kostur á að nálgast þáttinn á iTunes. Hægt er að sækja þáttinn á vefslóðinni www.podcast.is og horfa á hann beint í tölvunni eða flytja hann yfir á iPod og horfa á hann hvar sem er. Bíó og sjónvarp 14. nóvember 2006 09:00
Frábær byrjun á nýjasta tónleikastaðnum í borginni Nýja viðbótin á verslunarmarkaðnum, Liborius við Mýrargötu, hefur gefið sig út fyrir að vera ekki bara fataverslun. Það var aldeilis sýnt og sannað á laugardaginn en þá hélt Daníel Ágúst Haraldsson tónleika inni í búðinni með fullskipaða hljómsveit. Tónlist 14. nóvember 2006 09:00
Faðir Mick Jagger er látinn Joe Jagger, faðir Micks Jagger úr The Rolling Stones, er látinn, 93 ára að aldri. Mick, sem var staddur í Bandaríkjunum á A Bigger Bang-tónleikaferðinni, flaug til Bretlands til að hitta pabba sinn eftir að hann hafði fengið lungnabólgu en flaug síðan til Las Vegas þar sem Stones hélt tónleika. Joe Jagger bjó skammt frá heimili sonar síns í suðvesturhluta London. Þar bjó hann ásamt konu sinni Evu þar til hún lést árið 2000, skömmu áður en þau áttu 60 ára brúðkaupsafmæli. Lífið 14. nóvember 2006 08:00
Fleiri gesti – takk Á laugardag var hrint af stað átaki Sinfóníuhljómsveitar Íslands sem vill sjá fleiri gesti á hljómleikum sínum í Háskólabíói. Átakið fór í gang með árlegri bíósýningu þeirra á Melunum, en þar var sýnd Chaplin-dagskrá og lék hljómsveitin undir. Tónlist 14. nóvember 2006 08:00
Engin trúarbrögð Tónlistarmaðurinn Elton John segir að banna eigi trúarbrögð því þau skorti samúð og ýti undir fordóma gagnvart samkynhneigðum. Elton heldur þessi fram í viðtali við tímaritið Music Monthly. Lífið 14. nóvember 2006 07:00
Ásgerður syngur lög Magnúsar Blöndal Ásgerður Júníusdóttir stendur í ströngu þessa dagana. Hún er að frumæfa nýja óperu sem frumsýnd verður í lok vikunnar og jafnframt tekin til við að kynna disk sinn með sönglögum eftir Magnús Blöndal Jóhannsson sem kemur út fljótlega. Nýi diskurinn hefur að geyma öll sönglög Magnúsar Blöndals en fæst þeirra hafa komið út áður. Tónlist 14. nóvember 2006 06:30
Allt búið hjá Jude og Siennu Svo virðist sem allt sé búið milli Siennu Miller og Judes Law, eða hvað? Fjölmiðlar hafa ekki getað treyst einni einustu frétt af parinu sem hefur verið sundur og saman síðastliðið ár og fáum kæmi það á óvart ef skötuhjúin birtust á næstu dögum með þá yfirlýsingu að allt væri í himnalagi. Lífið 14. nóvember 2006 06:00
Dagur Kári verðlaunaður Leikstjórinn Dagur Kári Pétursson hlýtur í næstu viku stærstu kvikmyndaverðlaun Dana Peter Emil Refn verðlaunin. Dagur Kári er fimmti leikstjórinn sem fær verðlaunin en þeim fylgja rúm ein milljón íslenskra króna. Þeir sem hlotið hafa verðlaunin eru Lars von Trier, Lukas Moodysson, Nicolas Winding Refn og Natasha Arthy. Innlent 13. nóvember 2006 14:00
Borgarstjórinn opnar sölu á rauðum nefjum Í dag, mánudaginn 13. nóvember kl. 11:00, mun Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri , ásamt allri borgarstjórn, leggja sitt af mörkum og kaupa rauð trúðanef. Lífið 13. nóvember 2006 10:15
Valnefndarmenn Eddunnar hafa orðið fyrir áreitni "Að menn tilnefni sjálfa sig? Það er auðvitað ekki um það að ræða,“ segir Björn Brynjúlfur Björnsson, stjórnarmaður í kvikmynda- og sjónvarpsakademíunni. Nokkur ólga er meðal kvikmyndagerðarmanna því stjórnin hefur ákveðið að gefa ekki út opinberlega hverjir skipa hverja valnefnd, þeirra sem völdu hverjir hlutu tilnefningu til Edduverðlauna. Bíó og sjónvarp 12. nóvember 2006 06:00
Bara tveir eftir í múm Aðeins tveir meðlimir eru eftir í hljómsveitinni múm, sem hitar upp fyrir Sykurmolana í Laugardalshöll 17. nóvember, eða þeir Örvar Þóreyjarson Smárason og Gunnar Tynes. Tónlist 12. nóvember 2006 06:00
Portus hrósað í Feneyjum Íslenski sýningarskálinn á Feneyja-tvíæringnum um byggingarlist og borgarskipulag hlaut á miðvikudag sérstaka viðurkenningu dómnefndar þegar Gullna ljónið var afhent við hátíðlega athöfn. Menning 11. nóvember 2006 15:00
FLEX music með dansveislu Nú er 6 mánaða bið á enda og súperplötusnúðurinn Desyn Masiello á leið til landsins í fyrsta skiptið og spilar 1.desember á NASA við Austurvöll. Tónlist 11. nóvember 2006 10:09
Hiphop á Barnum Fyrstu tónleikarnir í mánaðarlegu tónleikahaldi Triangle Productions á Barnum verða haldnir í kvöld. Hiphop verður á efnisskránni í kvöld og koma fram Beatmakin Troopa, Steve Samplin, Rain og Agzilla. Tónlist 10. nóvember 2006 17:00
Aldingarðurinn Á mánudaginn, 13. nóvember, kemur út hjá Hjá Vöku Helgafelli Aldingarðurinn eftir Ólaf Jóhann Ólafsson. Aldingarðurinn kemur út samtímis í Bandaríkjunum og á Íslandi. Menning 10. nóvember 2006 16:15