Ráðamenn þjóðarinnar hafi hægt um sig „Þetta hefur gengið frábærlega, smá snurfus eftir en stærstu tökunum er lokið," segir Reynir Lyngdal, leikstjóri Áramótaskaupsins, en tökum á því lauk á þriðjudagskvöld. Tökuliðið barðist við vind og kulda upp á Kleifarvatni en Reynir segir að þetta hafi passað fullkomlega við atriðið. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 15:45
Óvenjulegir útgáfutónleikar hjá Todmobile Hljómsveitin Todmobile sendi frá sér plötuna ÓPUS 6 sl. föstudag og fagnar útgáfunni nk. föstudag, þann 1. desember með harla óvenjulegum útgáfutónleikum. Tónleikarnir hefjast stundvíslega kl. 20.35 en þeir fara fram í Sjónvarpssal Ríkissjónvarpsins og í beinni útsendingu til allra landsmanna. Tónlist 30. nóvember 2006 15:34
“EKKI LAND” - STEINI - Þorsteinn Gíslason Föstudaginn 1. desember kl. 20:00 opnar Þorsteinn Gíslason sýningu í Populus tremula. Einnig opið sunnudaginn 2. desember og Sunnudaginn 3. desember kl. 14:00 - 17:00 aðeins opið þessa einu helgi Menning 30. nóvember 2006 15:26
Rappstjarna framtíðarinnar Hinn 15 ára gamli Daníel Alvin sigraði í rímnaflæðikeppni Miðbergs um síðustu helgi. Hann þótti skrefi á undan jafnöldrum sínum í textagerð og flutningi. Tónlist 30. nóvember 2006 15:15
Loksins komin nútímaleg ensk-íslensk orðabók Hér er komin verulega aukin og endurbætt útgáfa Ensk-íslenskrar skólaorðabókar sem kom fyrst út árið 1986. Við endurskoðunina var sérstök áhersla lögð á orðaforða á þeim sviðum þar sem mestar breytingar hafa orðið, svo sem í upplýsingatækni og viðskiptum, auk þess sem reynt var að gera daglegu máli sem best skil. Menning 30. nóvember 2006 15:13
Rak stílistann fyrir að ýta undir átröskun Nicole Richie hefur nú rekið góðvinkonu sína og stjörnustílistann Rachel Zoe og hefur ásakað hana um að ýta undir átröskun hjá viðskiptavinum sínum. Richie gefur þetta út á heimasíðu sinni þar sem hún talar um að Zoe sé svo illa haldin af átröskun sjálf að hún reyni eftir bestu getu að hafa áhrif á alla í kringum sig. Lífið 30. nóvember 2006 15:00
Óvinir ríkisins - Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi Hjá Máli og menningu er komin út bókin Óvinir ríkisins - Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi eftir Guðna Th. Jóhannesson. Til skamms tíma var talið að leynilegt eftirlit hins opinbera með þegnum landsins væri harla lítið hér á landi. Með árunum hefur þó fjölmargt komið fram sem bendir til hins gagnstæða og eftir því sem leynd hefur verið aflétt af ýmsum skjalasöfnum hér heima og erlendis hefur myndin skýrst smám saman. Menning 30. nóvember 2006 14:59
Óvíst hvort Jónas verji titilinn Spurningaþátturinn Meistarinn sem sló eftirminnilega í gegn fyrr á árinu verður aftur á dagskrá þegar nýtt ár er runnið upp. Þetta staðfesti spyrillinn Logi Bergman Eiðsson í samtali við Fréttablaðið. „Við höfum verið að ákveða nákvæma dagsetningu en ég reikna með að allt fari á fullt í janúar," segir Logi og því geta spurningakeppnisóðir Íslendingar farið að undirbúa sig af krafti enda til mikils að vinna, fimm milljónir. Lífið 30. nóvember 2006 14:30
Ómþýður kærleikur Hljómsveitin Sálin hans Jóns míns hefur verið dugleg við að prófa nýja hluti á undanförnum árum. Hún samdi lög við söngleikinn Sól og Mána sem var fluttur í Borgarleikhúsinu, spilaði með Sinfóníuhljómsveit Íslands og næst var röðin komin að tónleikum með Gospelkór Reykjavíkur. Tónlist 30. nóvember 2006 14:15
Nótt úlfanna fer á hvíta tjaldið Norski krimmahöfundurinn Tom Egelands á íslenska þýðingu á markaði þessa hausts. Spennusöguna Nótt úlfanna sem hann sendi frá sér í fyrra þar sem lýst er hertöku og gíslatöku flugumanna frá Tjetsíu. Tilkynnt var á miðvikudag að nú yrði ráðsit í að kvikmynda þessa sögu og væri veittur til þess verks stórstyrkur úr Norska kvikmyndasjóðnum, næ hundrað miljónir íslenskra króna. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 14:00
Músík Monks í Múlanum Sjöttu tónleikar í tónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans fara fram á DOMO-bar, Þingholtsstræti 5, í kvöld en þar leikur A.S.A., tríó Andrésar Þórs Gunnlaugssonar djassgítarleikara. Tónlist 30. nóvember 2006 13:45
Matreiðslubók á netinu Mataráhugi Íslendinga virðist ekki fara dvínandi, ef marka má vefsíðuna matseld.is. Hún hefur verið í loftinu í um þrjá mánuði, og er þegar komin með yfir 800 notendur og 500 uppskriftir. Matur 30. nóvember 2006 13:30
Lestin brunar Á þessum árstíma er til siðs að rithöfundar kveðji sér hljóðs á ýmsum vettvangi og kynni verk sín enda er nú árleg vertíð hjá bókafólki. Vitað er af höfundum sem þeysast nú um fjallvegi landsins með skottin stútfull af jólabókum og bíða lesendur á landsbyggðinni án efa spenntir eftir nýjungunum. Nýlega fréttist af líflegum upplestri í Edinborgarhúsinu á Ísafirði þar sem úrval höfunda messaði bókmenntaboðskapnum yfir Vestfirðinga sem gerðu að honum góðan róm. Menning 30. nóvember 2006 13:15
Kynna plötu með draugaveiðum Breska stúlknasveitin Girls Aloud einbeitir sér nú að því að fylgja nýju plötunni sinni úr hlaði. Í því skyni ákváðu stúlkurnar að fara með upptökulið upp á arminn í tvö hús sem bæði eru víðfræg fyrir reimleika, og fara þar í andaglas. Ein þeirra, Nadine Coyle, þverneitaði þó að taka þátt í ævintýrinu og kvaðst vera allt of hrædd við slíka hluti. Tónlist 30. nóvember 2006 13:00
Jón Óskar sýnir í 101 Það er stutt fyrir Jón Óskar að fara að heiman í galleríið sem hann sýnir jafnan í, Gallerí 101, á bak við Alþjóðahúsið á Hverfisgötu. Það er lengri vegur úr vinnustofum hans, í Vestmannaeyjum, Kína, South Beach í Flórída, Skúlatúninu í Reykjavík og Höfðahverfinu þar sem hann hefur unnið. Menning 30. nóvember 2006 12:45
Jólaguðspjallið á svið á Grand Rokk „Jósef frá Nasaret er sennilegra með kokkálaðri mönnum fyrr og síðar," segir Lísa Pálsdóttir, útvarpskona og forkólfur leikfélagsins Peðið, sem frumsýnir söngleikinn Jólapera - eða helgileikurinn um Jósef frá Nasaret, á Grand Rokk á sunnudag. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 12:30
Jesúbarnið og jólastríð Jólamyndirnar eru byrjaðar að gera vart við sig í bíó og tvær slíkar verða frumsýndar á morgun. Önnur fjallar um jólameting nágranna sem endar með ósköpum en hin getur ekki orðið jólalegri enda byggir hún á frásögn Lúkasarguðspjallsins um meyfæðinguna. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 12:15
Barist gegn nauðgunum KK, Pétur Ben, Reykjavík! og Orig-inal Melody koma fram á tónleikum í kvöld sem er lokahnykkur átaksins „Nóvember gegn nauðgunum“ sem Jafningjafræðsla Hins hússins hefur staðið fyrir. Tónlist 30. nóvember 2006 12:00
Jólastjarnan Jólastjarnan er skemmtilegur og fræðandi mynddiskur (DVD) fyrir alla fjölskylduna. Þar er að finna 80 mínútur af fjölbreyttu efni sem byggir á boðskap jólanna. Að útgáfunni koma ýmsir lista- og fræðimenn í leikstjórn Gunnars I. Gunnsteinssonar en framleiðandi mynddisksins er Anna María Sigurðardóttir. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 11:41
Handtekinn með eiturlyf Rapparinn Snoop Dogg var handtekinn fyrir að hafa í fórum sínum byssu og eiturlyf er hann yfirgaf upptökuver NBC-sjónvarpsstöðvarinnar þar sem hann hafði komið fram í kvöldþætti Jay Leno. Lífið 30. nóvember 2006 11:30
Frumsýning á Ráðskonu Bakkabræðra Laugardaginn 2. desember frumsýnir Leikfélag Hafnarfjarðar gamanleikinn Ráðskona Bakkabræðra eftir norska leikskáldið Oskar Braaten. Leikstjóri er Lárus Vilhjálmsson og taka 12 manns þátt í sýningunni. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 11:26
Baggalútsæðið er hafið! Þau stórkostlega merkilegu tíðindi urðu í vikunni að hin elskaða og dáða hljómlistardeild Baggalúts náði með tvær hljómskífur sínar inn á Tónlistann, auk þess að eiga lag á þeirri þriðju. Tónlist 30. nóvember 2006 11:19
Falleg útgáfugleði hjá Fabúlu í Tjarnarbíói Tónlistarkonan Fabúla hélt útgáfutónleika í Tjarnarbíói á dögunum ásamt hljómsveit sinni. Fluttu þau efni af nýútkominni plötu, Dusk, við góðar undirtektir. Tónlist 30. nóvember 2006 11:15
Fagmennska er ekki nóg! Þegar ég fékk plötu Bríetar Sunnu í hendurnar hugsaði ég með mér að hér væri komin enn ein Ædol-platan, hrikalega ófrumleg um-slagsmynd sagði allt sem segja þurfti. Ég leit aftan á plötuna og skoðaði lagalistann. Tónlist 30. nóvember 2006 11:00
Barokk í Neskirkju Rinascente hópurinn heldur tónleika annað kvöld á vegum tónlistarhátíðarinnar „Tónað inn í aðventu.“ Hópinn skipa þau Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona, Hrólfur Sæmundsson barítón og Steingrímur Þórhallsson organisti og listrænn stjórnandi hópsins. Tónlist 30. nóvember 2006 10:45
Enn leitað að jólunum Leikritið Leitin að jólunum eftir Þorvald Þorsteinsson við tónlist Árna Egilssonar naut mikilla vinsælda á fjölum Þjóðleikhússins í fyrra en verkið hefur nú verið tekið til sýninga á ný. Sýningin hlaut Grímuverðlaunin sem besta barnaleiksýning ársins í fyrra. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 10:30
Heimildamynd um Slavoj Zizek Í kvöld verður tekin til sýninga í ReykjavíkurAkademíunni heimildamyndin ZIZEK! En hún fjallar um heimspekinginn Slavoj Zizek sem er af mörgum talinn eins konar poppstjarna í heimi pólitískrar sálgreiningar. Bíó og sjónvarp 30. nóvember 2006 10:23
Bókarbrot í Borgarleikhúsi Rithöfundarnir Auður Jónsdóttir, Linda Vilhjálmsdóttir, Árni Þórarinsson, Bragi Ólafsson, Einar Már Guðmundsson og Sigurjón Magnússon munu lesa úr verkum sínum á upplestrarkvöldinu „Brot af því besta“ í anddyri Borgarleikhússins í kvöld. Menning 30. nóvember 2006 10:00
Borat ástæða skilnaðarins Nú hafa Pamela Anderson og Kid Rock ákveðið að fara hvort í sína áttina eftir aðeins fjögurra mánaða hjónaband. Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra í Hollywood að ástæða skilnaðarins hafi verið hlutverk Pamelu í kvikmyndinni um sjónvarpsmanninn Borat sem nýtur mikilla vinsælda meðal áhorfenda. Lífið 30. nóvember 2006 09:30
Allt í öllu á BBC 6 Söngkonan Courtney Love ætlar að taka yfir útvarpsstöðina BBC 6 í einn dag, hinn 11. desember næstkomandi. Lífið 30. nóvember 2006 09:00