Menning

Menning

Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

Fréttamynd

Vildu hætta á toppnum

Hljómsveitin Í svörtum fötum ætlar að hætta störfum eftir þrenna tónleika sem hún heldur á milli jóla og nýárs.

Tónlist
Fréttamynd

Charles er góður húmoristi

Karl bretaprins hefur unnið mál gegn slúðurblaðinu Mail on Sunday, sem birti kafla úr einka-dagbók prinsins. Í kaflanum sem blaðið birti skrifaði prinsinn um yfirtöku Kínverja á Hong Kong árið 1997, sem hann fór um háðuglegum orðum.

Lífið
Fréttamynd

Úr munngælum í viðskipti

Monica Lewinsky, hin margfræga vinkona Clintons forseta Bandaríkjanna, hefur lokið prófi frá London School of Economics, samkvæmt tilkynningu frá fjölmiðlafulltrúa hennar. Lewinsky var tuttugu og eins árs gömul og lærlingur í Hvíta húsinu, þegar samband þeirra Clintons hófst.

Lífið
Fréttamynd

Mel Gibson: Það var ekki ég

Góðvinur Gyðinga, Mel Gibson harðneitar að eiga nokkuð í Carmel Sloane, tuttugu og níu ára gamalli konu sem heldur því fram að hann sé faðir hennar. Carmel segir að móðir hennar hafi verið á puttaferðalagi árið 1976 og Mel tekið hana upp í bíl sinn. Svo hafi þau...ehemm, og Carmel fæðst níu mánuðum síðar.

Lífið
Fréttamynd

Einn með gítarinn

Tónlistarmaðurinn Birgir Örn Steinarsson, eða Biggi, heldur tónleika á Kaffi Hljómalind í kvöld. Þar mun hann spila einn með kassagítarinn lög af fyrstu sólóplötu sinni, Id, og gömul lög með Maus.

Tónlist
Fréttamynd

Lay Low fær afhenta gullplötu í dag

Tónlistarkonan Lovísa Elísabet Sigrúnardóttir, betur þekkt sem Lay Low, fær afhenta gullplötu til marks um sölu á 5.000 eintökum af frumburði hennar "Please Don´t Hate Me". Afhending gullplötunnar fer fram á vinnustað hennar í Skífunni á Laugavegi kl. 17:00 í dag.

Tónlist
Fréttamynd

Fyrstur með Platínupötu

Vinsældir tónleika Björgvins og Sinfóníuhljómsveitar Íslands virðast engan endi ætla að taka. Aðsóknarmet var slegið þegar 9.000 manns keyptu miða á tónleikana í september og nú er Björgvin á góðri leið með að stinga samferðarmenn sína af í plötusölunni fyrir jólin og slá fleiri met.

Tónlist
Fréttamynd

Biggi einn með kassagítarinn

Á fimmtudaginn 21. desember ætlar tónlistamaðurinn Biggi að koma fram einn með kassagítarinn sinn á Kaffi Hljómalind. Þar mun hann leika lög af nýju plötunni "id" auk nokkurra laga Maus. Tónleikarnir hefjast klukkan 21:00 og aðgangur er ókeypis.

Tónlist
Fréttamynd

Ekki þetta, strákar

Karlmenn lenda stundum í vandræðum með hvað þeir eiga að segja, ef þeir sjá konu sem þá langar til að kynnast nánar, á veitingastað. Þá er náttúrlega gríðarlega mikilvægt að komast vel að orði. Hér eru nokkrar línur sem karlmönnum væri best að forðast.

Lífið
Fréttamynd

ROMM TOMM TOMM

Sjö manna latínsveit Tómasar R. Einarssonar heldur tónleika á Café Rósenberg í Lækjargötu fimmtudagskvöldið 21. desember og hefjast þeir kl. 22.

Tónlist
Fréttamynd

Yoko Ono verst fjárkúgun

Einkabílstjóri listakonunnar Yoko Ono kom fyrir rétt í New York í dag, sakaður um að hafa reynt að kúga fé út úr vinnuveitanda sínum.

Lífið
Fréttamynd

Hvernig verða menn ríkir ?

Hafið þið einhverntíma velt því fyrir ykkur hvernig hinir ríku verða ríkir ? Eitt svarið er að þeir eru útsjónarsamir. Eins og bandaríski verðbréfamiðlarinn John Huntington, sem var að fara í hálfsmánaðar ferð til Evrópu. Hann ók á Rolls Royce bifreið sinni að banka í Manhattan, og bað um fimmþúsund dollara lán.

Lífið
Fréttamynd

Árita bækur sínar

Eiríkur Guðmundsson og Steinar Bragi árita bækur sínar í Bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, klukkan sex miðvikudaginn 20. desember.

Menning
Fréttamynd

Heilög Jóhanna af mjá ?

Aska sem talin er vera jarðneskar leifar heilagrar Jóhönnu af Örk, kann að vera af ketti. Askan fannst árið 1867 og hefur verið geymd á safni í Chinon í vesturhluta Frakklands. Jóhanna af Örk er ein helsta þjóðhetja Frakka, eftir að hafa hrundið innrás Englendinga árið 1431.

Lífið
Fréttamynd

Victoria Beckham geimvera

Kryddpían Victoria Beckham er sögð munu leika stórt hlutverk í nýrri kvikmynd sem Tom Cruise er að gera, um Vísindakirkjuna svonefndu, sem hann tilheyrir. Beckham mun eiga að leika brúði utan úr geimnum.

Lífið
Fréttamynd

Tíu þúsund eintök seld

Safnplatan „100 íslensk jólalög fyrir alla fjölskylduna á 5 geislaplötum“ hefur selst í tíu þúsund eintökum hjá útgefandanum Senu. Platan hefur setið á toppi Tónlistans sem er sölulisti yfir söluhæstu plötur landsins síðustu þrjár vikurnar.

Tónlist
Fréttamynd

Nostrað við hlustir

Hljóðlistamaðurinn Þóranna Dögg Björnsdóttir býður gestum til sætis í Gel galleríi við Hverfisgötu þar sem hún flytur persónulegt lifandi tónverk fyrir hvern og einn. Hún vill þannig beina athygli fólks á nýstárlegan máta að hljóðheiminum umhverfis okkur.

Menning
Fréttamynd

Morricone fær Óskar

Einn merkasti höfundur kvikmyndatónlistar undanfarna áratugi, hinn 78 ára gamli Ítali Ennio Morricone, mun hljóta heiðursverðlaun við afhendingu Óskarsverðlaunanna 25. febrúar.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Kviðslitinn á kaldri slóð

„Þetta gerðist reyndar bara undir lokin á tökunum og kom því ekki að sök,“ segir Þröstur Leó Gunnarsson sem leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni Köld slóð en hann kviðslitnaði og tábrotnaði á síðustu tökudögunum. „Ég var látinn hanga eitthvað undir lokin og þá kom þetta í ljós,“ bætir hann við.

Bíó og sjónvarp
Fréttamynd

Bræðralag blúsaranna

Undanfarinn mánuð hafa verið í gangi blúskvöld á mánudagskvöldum á Classic Rock. Bubbi Morthens ætlar að blúsa þar á næsta ári auk þess sem blúsarar frá Bandaríkjunum og Kanada eru væntanlegir.

Tónlist
Fréttamynd

Djúpstæð áhrif Íslands

Petter Winnberg, fyrrverandi bassaleikari Hjálma, gefur í dag út plötuna Easily Tricked með hljómsveit sinni The Pix. Freyr Bjarnason hringdi í hann til Svíþjóðar og spurði hann úti í gerð plötunnar.

Tónlist
Fréttamynd

Brynjólfsmessa í kvöld

Messa Gunnars Þórðarsonar sem helguð er minningu Brynjólfs biskups Sveinssonar verður flutt í kvöld í Grafarvogskirkju undir stjórn Hákons Leifssonar. Verkið er nýkomið út á geisladisk.

Tónlist
Fréttamynd

Óvæntasti glaðningur ársins

Platan Þar sem malbikið svífur mun ég dansa (án efa besta plötuheiti sem heyrst hefur lengi) með Jónasi Sigurðssyni hefur svo sannarlega komið inn bakdyramegin í jólaplötuflóðinu. Skemmtilega naívt plötuumslag heillaði mig í fyrstu en nafnið kannaðist ég ekki við.

Tónlist
Fréttamynd

Ómþýðir tónar Amiinu

Hljómsveitin Amiina hélt á dögunum útgáfutónleika í Tjarnarbíói í tilefni af útkomu smáskífunnar Seoul. Fjöldi tónlistaráhugamanna mætti á staðinn til að hlýða á ómþýða tóna þessarar elskulegu sveitar.

Tónlist
Fréttamynd

Listamaður í hverri ætt

Fjallað var ítarlega um íslensku tónlistarútrásina í breska dagblaðinu The Independent á dögunum. Greinarhöfundur var viðstaddur afmælistónleika Sykurmolanna í Laugardalshöll og furðar sig á hversu mikið af hæfileikafólki geti komið frá þessari litlu eyju.

Tónlist
Fréttamynd

Kántrýskotnir félagar

Hljómsveitin Sviðin jörð hélt á dögunum útgáfu tónleika á Grandrokk í tilefni af útkomu plötunnar Lög til að skjóta sig við. Sveitin er skipuð þeim Frey Eyjólfssyni og Magnúsi R. Einarssyni en um textagerð á plötunni sá Davíð Þór Jónsson.

Tónlist
Fréttamynd

Dansvæn nostalgía

DJ Curver og DJ Kiki-Ow halda 90’s partí á gamlárskvöld á skemmtistaðnum Nasa. 90’s kvöldin þeirra á Bar 11 hafa notið mikilla vinsælda þar sem hin ýmsu lög frá tíunda áratugnum hafa verið spiluð. Á meðal þeirra eru No Limits með 2Unlimited, It"d My Life með Dr. Alban, Out of Space með Prodigy og Informer með Snow.

Tónlist