
Höfðar mál gegn meðlimi Backstreet Boys fyrir nauðgun
Nick Carter, einum meðlimi hljómsveitarinnar Backstreet Boys, hefur verið stefnt fyrir nauðgun. Söngkonan Melissa Schuman sakar hann um að hafa beitt sig ofbeldi fyrir tuttugu árum. Hún steig fyrst fram með ásökunina árið 2017. Þá neitaði Carter sök og gerir hann það enn samkvæmt lögmanni hans.