

Menning
Sviðslistir, bókmenntir, sagnfræði, tónlist, myndlist og aðrar listasýningar.

„Hérna er allt þægilegt og kósí og mjúk teppi“
Hjón búsett í Úkraínu undirbúa nú listasýningu í Reykjavík, sem fjallar um innri ró þrátt fyrir yfirþyrmandi erfiðleika vegna innrásar Rússa. Verkin sem verða til sýnis voru unnin í Kænugarði, oft í niðamyrkri vegna rafmagnsleysis eftir árásir Rússa á borgina.

Tony Bennett látinn
Bandaríski popp- og djasssöngvarinn Tony Bennett er látinn, 96 ára að aldri.

Slagsmál á Kjarval vendipunkturinn: „Ég sá ekkert nema bara drauga“
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason opnaði sig í útvarpsviðtali í gær og segir það hafa verið ömurlegt að vera í neyslu á sínum tíma. Í dag hefur hann sagt skilið við vímuefni og einbeitir sér að tónlistinni. Lagið Skína sem er eftir Patrik og tónlistarmanninn Luigi kom út í dag og markmiðin eru háleit.

Íslendingur ferðast um Bandaríkin með Metallica og Pantera
Hinn 23 ára gamli Anton Kröyer Antonsson, hefur síðustu mánuði ferðast með þungarokkshljómsveitinni Pantera um Evrópu sem ljósamaður, nánar tiltekið ljósaforritari, á tónleikaferðalagi hljómsveitarinnar. Nú liggur leið hópsins til Bandaríkjanna þar sem goðsagnasveitin Metallica verður með í för.

Þegar ég fór með 49 öðrum gaurum í bíó
Það heyrir almennt ekki til tíðinda þegar karlmenn á þrítugsaldri, svokallaðir „gaurar“, hópa sig saman og fara í bíó. Í bíóhúsum borgarinnar má oft sjá þó nokkra gaura sitja saman með popp og kók og njóta þess að horfa saman á misgóðar kvikmyndir. En, miðvikudaginn 19. júlí 2023 fóru 50 gaurar saman í bíó. Þetta er okkar saga.

„Langar að minna þolendur á að þetta er aldrei ykkur að kenna“
„Í rauninni er boðskapurinn með þessu lagi að það skiptir engu máli hverju þú klæðist, hvernig þú hagar þér eða hvað þú ert að gera. Þetta er aldrei þér að kenna,“ segir söngkonan Þórunn Salka. Hún var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Freedom, þar sem hún tjáir sig um kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir í Los Angeles fyrir þremur árum. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá laginu og lífinu.

Lýsir sex klukkutíma bíóferð sem upplifun og hefur ekki fengið nóg
Karlmaður lýsir sex klukkutíma bíóferð sinni í gærkvöldi sem stórkostlegri upplifun. Barbie, kjarnorkusprengjur, popp og kók. Og hann hefur ekki fengið nóg.

Viaplay segir upp 25 prósents starfsfólks
Sænska streymisveitan Viaplay hefur sagt upp 25 prósent af starfsfólki sínu. Er það gert til að bregðast við rekstrarörðugleikum en fyrirtækið sendi frá sér afkomuviðvörun í síðasta mánuði þar sem gert er ráð fyrir því að félagið verði rekið í tapi næstu árin.

Frumsýning á Vísi: Sjóðandi heitt tónlistarmyndband frá IceGuys
Nýjasta strákasveit Íslands, IceGuys, frumsýna í dag á Vísi sitt fyrsta tónlistarmyndband. Sveitina skipa þeir Aron Can, Friðrik Dór, Herra Hnetusmjör, Jón Jónsson og Rúrik Gíslason.

Birnir, GDRN og Sykur á ríkulegri dagskrá Innipúkans
Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer fram í tuttugasta og fyrsta skiptið í Reykjavík um Verslunarmannahelgina. Að vana er hátíðin haldin innandyra og í annað skiptið er hún haldin í Gamla Bíó og á Röntgen.

Undirgefnir aðdáendur og linnulaus markaðsherferð knýi „Barbenheimer“ áfram
Einn stærsti bíóviðburður ársins er nú runninn upp en stórmyndin Barbie verður frumsýnd á Íslandi í dag og frumsýning bíómyndarinnar Oppenheimer var í gær. Álitsgjafi segir bíóviðburðinn „Barbenheimer“ lykta af örvæntingu þar sem bíóbransinn eigi enn í erfiðleikum með að koma sér aftur á réttan kjöl eftir heimsfaraldur.

Creed snúa loksins aftur
Hin rómaða rokkhljómsveit Creed hefur tilkynnt nýja tónleikaröð, hina fyrstu í áratug. En sveitin hefur legið í dvala, fjölmörgum aðdáendum sínum til ama, frá árinu 2012.

Sérfræðingur gáttaður á „Barbenheimer“
Paul Dergarabedian, sérfræðingur á sviði miðlagreiningar, sem sérhæft hefur sig í að greina miðasölutekjur kvikmyndahúsa vestanhafs, segist vera hvumsa yfir eftirvæntingunni sem ríkir fyrir „Barbenheimer,“ sameiginlegum frumsýningardegi stórmyndanna Barbie og Oppenheimer.

Húsleit vegna morðsins á Tupac Shakur
Lögreglan í Las Vegas fór fram á og fékk leitarheimild vegna rannsóknar á morðinu á rapparanum Tupac Shakur. 26 ár eru síðan rapparinn var myrtur þann 7. september árið 1996 í Las Vegas og hefur morðinginn aldrei fundist.

Ætla að trylla lýðinn á Krúttinu
Það verður sannkölluð tónlistarveisla á Blönduósi næstkomandi laugardagskvöld þegar þeir Dagur Sigurðsson og Einar Örn Jónsson verða með tónleika á nýjum tónleikastað í gamla bænum, Krúttinu á Hóteli Blönduósi.

ISSI á toppi Langjökuls: „Þeir segja að það sé kalt á toppnum svo ég klæddi mig vel“
Tónlistarmaðurinn Issi tók upp tónlistarmyndband á toppi Langjökuls á dögunum við lagið Klukkan seint. Lagið er að finna á plötunni Rauð viðvörun sem hann sendi frá sér í apríl síðastliðnum.

Var við það að missa vitið en fann sig svo í tónlistinni
„Ég var í voða fínni inni vinnu og kominn á miðjan aldur en leiður á henni og ýmsu öðru. Ég var eiginlega bara að missa vitið af leiðindum og mig langaði að prófa eitthvað annað áður en af því yrði endanlega. Á svipuðum tíma áttaði ég mig líka á því að ekki bara einn heldur tveir jafnaldrar mínir og fyrrum hljómsveitafélagar höfðu dáið tiltölulega nýlega,“ segir tónlistarmaðurinn Klemens Ólafur Þrastarson, sem notast við listamannsnafnið Klói og var að senda frá sér tveggja laga smáskífu.

Aðdáendur misstu sig yfir leynigestinum
Tónlistarmaðurinn Ed Sheeran kom tónleikagestum sínum í Detroit heldur betur á óvart um helgina með óvæntum gesti. Sheeran tilkynnti áhorfendum að hann ætlaði að taka gítarútgáfu af sögulega smellinum Lose Yourself eftir Eminem en rapparinn gekk stuttu síðar inn á svið og tók við.

Fyrstu Íslendingarnir í virtu söngleikjanámi slógu í gegn
Þeir Ari Ólafsson og Pétur Ernir Svavarsson, sem báðir hafa gert það gott sem söngvarar hér á landi, útskrifuðust á dögunum úr virtu söngleikjanámi Royal Academy of Music í London. Báðir voru þeir í aðalhlutverki í sinni lokasýningu. Ari, sem eignaðist sitt fyrsta barn í apríl, segir námið hafa verið gríðarlega þroskandi og lítur björtum augum til framtíðar.

Jane Birkin fannst látin á heimili sínu
Söng- og leikkonan Jane Birkin er látin, 76 ára að aldri. Hún var best þekkt fyrir að hafa sungið dúetta með tónlistarmanninum Serge Gainsbourg og leikið í kvikmyndum á borð við Evil Under The Sun og Blow-up.

Mælir með laginu fyrir alla sem eru yfir meðallagi „horny“
Tónlistarmaðurinn og fyrrum Idol keppandinn Guðjón Smári var að senda frá sér sitt fyrsta lag, Dansandi í myrkri, og var lagið kynnt inn í fasta liðnum Íslenskt og áhugavert á Íslenska listanum á FM fyrr í dag.

Kúkaði á sig á miðjum tónleikum
Tónlistarmaðurinn Joe Jonas, þriðjungur þríeykisins Jonas Brothers, segist hafa kúkað á sig á miðjum tónleikum. Hann segist verið klæddur í hvít föt þegar það gerðist og þess vegna þurft að drífa sig baksviðs og skipta um föt.

Pussy Riot á LungA sem nær hápunkti um helgina
Listahátíðin LungA stendur nú yfir á Seyðisfirði. Hátíðin sem er haldin í 24. sinn hófst á mánudag og nær hámarki um helgina með uppskeruhátíð þar sem meðal annars rússneska gjörningahljómsveitin Pussy Riot treður upp.

Gísli Þór Guðmundsson er látinn
Gísli Þór Guðmundsson, umboðsmaður fjölda þekktra hljómsveita og tónlistarmanna, er látinn aðeins 62 ára að aldri.

Frumsýning á Vísi: Cell7 og Moses Hightower í eina sæng
Rapparinn og söngkonan Cell7, sem heitir réttu nafni Ragna Kjartansdóttir, og hljómsveitin Moses Hightower gáfu í dag út lagið Thinking Hard. Meðfram laginu gefa þau út tónlistarmyndband sem frumsýnt er hér á Vísi.

„Í dag veit ég hver ég er og hvernig ég vil að fólk komi fram við mig“
„Þetta er lag sem ég samdi þegar ég var að fara í gegnum mjög erfiða tíma og ég sleppti alveg tökunum í textasmíðinni. Þetta er í fyrsta skipti síðan ég byrjaði að semja tónlist þar sem ég er algjörlega að opna mig,“ segir hin nítján ára gamla tónlistarkona Guðlaug Sóley, Gugusar, um lagið Vonin sem hún var að senda frá sér. Blaðamaður hitti hana í kaffi og fékk að heyra nánar frá.

Ástin blómstrar hjá Nönnu og Ragnari í OMAM
Nanna Bryndís Hilmarsdóttir og Ragnar Þórhallsson, söngvarar hljómsveitarinnar Of Monsters and Men, hafa verið par í nokkurn tíma en lítið látið á því bera opinberlega.

Frumsýning á Vísi: „Reiðin er kannski ekki alveg jafnmikil“
Haraldur Þorleifsson gefur í dag út sína aðra smáskífu og tónlistarmyndband undir listamannsnafninu Önnu Jónu Son við lagið Big Boy Boots. Myndbandið er frumsýnt hér að neðan á Vísi.

Súkkulaðierfinginn uppfærði í stærri glæsibifreið
Tónlistarmaðurinn Patrik Atlason, eða Prettyboitjokkó, hefur fest kaup á hvítum Porsche Cayenne E-hybrid sportjeppa. Patrik birti myndskeið af glæsibifreiðinni í sólinni á Instagram í gær.
