

Handbolti
Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.

Einar Rafn ekki með næstu mánuði
Einar Rafn Eiðsson, leikmaður FH í Olís-deildinni, er á leið í aðgerð á öxl og verður því frá keppni um nokkurt skeið.

Dagskráin í dag: Íslandsmeistaratitillinn undir á Hlíðarenda
Að venju er nóg um að vera á Stöð 2 Sport og hliðarrásum á þessum laugardegi.

Patrekur: Það er komin stemming í Garðabæinn
Patrekur Jóhannesson tók við Stjörnunni fyrir mót og hann fagnaði að vonum vel fyrsta sigri liðsins í Olísdeild karla í handbolta á þessu tímabili. Stjarnan vann KA 25-24 í hörkuleik.

Aron Kristjánsson: Það vantaði baráttuneistann hjá okkur
Aron Kristjánsson, þjálfari Hauka, var svekktur eftir þriggja marka tap sinna manna gegn Val í Olís deild karla á Ásvöllum í kvöld, lokatölur 25-28. Var þetta fyrsta tap Hauka á leiktíðinni.

Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - FH 25-24 | Selfoss aftur á beinu brautina
Selfoss er komið aftur á beinu brautina í Olís deild karla eftir eins marks sigur á FH í kvöld.

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - Valur 25-28 | Valur fyrsta liðið til að vinna Hauka
Valur varð fyrsta liðið til að landa sigri gegn Haukum er liðin mættust á Ásvöllum í Olís deild karla í kvöld. Lokatölur 28-25 Valsmönnum í vil.

Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - KA 25-24 | Fyrsti sigur Stjörnunnar kom í háspennuleik
Stjarnan gerði sér lítið fyrir og vann sinn fyrsta leik í Olís deildinni í kvöld. Var um fyrsta tap KA að ræða.

Teitur Örn frábær og Kristianstad á toppinn
Teitur Örn Einarsson og Ólafur Andrés Guðmundsson eru á toppi sænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir fjórða sigurinn í röð.

Sigur í fyrsta leik undir stjórn Guðjóns Vals
Guðjón Valur Sigurðsson vann sigur í sínum fyrsta deildarleik sem þjálfari Gummersbach í þýsku B-deildinni í handbolta.

Elvar Örn átti góðan leik | Viktor Gísli ekki enn tapað leik
Elvar Örn átti frábæran leik fyrir Skjern sem vann fimm marka sigur á Arhus í dönsku úrvalsdeildinni í dag. Óðinn Þór og félagar í Holstebro máttu svo þola 35-31 tap á heimavelli gegn GOG en Viktor Gísli ver mark liðsins.

Ari Magnús snýr aftur með FH: Örugglega hættur ef ég væri ekki örvhentur
Örvhenta skyttan Ari Magnús Þorgeirsson hefur tekið fram handboltaskóna og skrifað undir samning við uppeldisfélag sitt FH.

Kemur í ljós um helgina hversu alvarleg meiðsli Hauks eru
Haukur Þrastarson fer í myndatöku á morgun. Þá kemur í ljós hversu alvarleg meiðslin sem hann varð fyrir í leik Kielce og Elverum eru.

ÍBV fær einn af tengdasonum Vestmannaeyja
ÍBV hefur fengið línumanninn Svein José Rivera að láni frá Aftureldingu og gildir samningurinn til loka nýhafins keppnistímabils í Olís-deildinni í handbolta.

Dagskráin í dag: Risa leikir í Olís og Domino´s deildum karla, Körfuboltakvöld og margt fleira
Það er af nægu að taka á Stöð 2 Sport og hliðarrásm í kvöld. Við bjóðum upp á sannkallaða stórleiki í bæði Domino´s og Olís deildum karla. Domino´s Körfuboltakvöld er á dagskrá ásamt leik í ítalska boltanum, þremur golfmótum og rafíþróttum.

Arnar Daði: Þetta er bara það sem er boðið uppá í efstu deild á Íslandi
Arnar Daði var ekki sáttur eftir þriggja marka tap gegn Aftureldingu. Sagði hann að lið sitt hefði átt að spila betur og sendi svo fjölmiðlamönnum og sérfræðingum tóninn.

Aron valinn maður leiksins | Haukur fór meiddur af velli
Gengi Íslendinganna tveggja í Meistaradeild Evrópu í handbolta var ójafnt í kvöld. Aron Pálmarsson var valinn maður leiksins í sigri Barcelona á Nantes. Haukur Þrastarson fór hins vegar meiddur af velli í sigri Kielce.

Bjarki Már heldur áfram þar sem frá var horfið | Arnór Þór hafði betur í Íslendingaslag
Bjarki Már Elísson var markahæstur í liði Lemgo í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá hafði Arnór Þór Gunnarsson betur gegn þeim Gísla Þorgeiri Kristjánssyni og Ómari Inga Magnússyni.

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Afturelding 17-20 | Afturelding tók stigin tvö á Nesinu
Grótta bíður enn eftir sínum fyrsta sigri í Olís-deild karla á meðan Afturelding hefur unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum.

Harmar ofnotkun „Kaíró“ kerfisins sem kallað er „Ísland“ í Þýskalandi
Rúnar Sigtryggsson flutti eldræðu í síðasta þætti Seinni bylgjunnar þar sem hann gagnrýndi íslensk lið fyrir ofnotkun á Kaíró-leikkerfinu, kerfi sem sé kallað „Ísland“ í þýska handboltanum.

Guðjón Valur einn sá metnaðarfyllsti sem ég hef kynnst
Guðjón Valur Sigurðsson veit nákvæmlega hvað hann vill, hugsar enn eins og leikmaður og er með gríðarlega mikinn metnað sem þjálfari.

Segja að Britney fái ekki ósanngjarna meðferð hjá dómurunum
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar voru ekki sammála þjálfara FH að Britney Cots, markahæsti leikmaður liðsins, fengi ósanngjarna meðferð hjá dómurum landsins.

Segir að leikmenn og þjálfarar Gróttu þurfi ekki að hafa áhyggjur
Formaður aðalstjórnar Gróttu segir að deilur um skuld handknattleiksdeildar félagsins séu tilkomnar vegna misskilnings.

Frábær leikur Elvars dugði ekki og Skjern úr leik eftir naumt tap
Skjern er úr leik í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í handbolta eftir tap gegn franska liðinu Montpellier ytra í kvöld. Elvar Örn átti frábæran leik og skoraði fimm mörk ásamt því að leggja upp tvö.

Gott gengi Íslendingaliðanna í Evrópukeppninni
Þrjú Íslendingalið eru komin áfram í 3. umferð undankeppni Evrópudeildarinnar í handbolta eftir leiki kvöldsins. Rhein-Neckar Löwen, Kristianstad og GOG eru öll komin áfram í næstu umferð.

Sunna skein skært gegn Val: „Heldur betur búin að gefa í“
Sérfræðingar Seinni bylgjunnar hrósuðu Sunnu Jónsdóttur í hástert eftir framgöngu hennar í 23-22 sigri ÍBV gegn Val í Olís-deildinni.

Í liði umferðarinnar eftir fyrsta leikinn í Frakklandi
Kristján Örn Kristjánsson fór vel af stað með Pays d'Aix í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta.

„Held að Framarar geti sjálfum sér um kennt“
Rúnar Sigtryggsson segir Rógva Dal Christiansen, færeyska línumanninn í liði Fram, ekki fá ósanngjarna meðferð hjá dómurum Olís-deildarinnar í handbolta. Framarar geti sjálfum sér um kennt.

„Læðan eins og við þekkjum hana best“
„Þetta var „Læðan“ eins og við þekkjum hana best,“ sagði Theodór Ingi Pálmason, sérfræðingur Seinni bylgjunnar, um frábæra frammistöðu Atla Más Bárusonar í sigri Hauka á Stjörnunni.

Valur dregur kvennalið sitt úr keppni
Kvennalið Vals átti að mæta spænska félaginu Málaga í annarrri umferð í Evrópubikarnum í handbolta. Ekkert verður nú af því en Valur hefur ákveðið að draga liðið úr keppni, líkt og var gert með karlalið félagsins.

Ágúst Elí með stórleik í öruggum sigri Kolding
Markvörðurinn Ágúst Elí Björgvinsson fór á kostum er Kolding vann Frederica í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Ekki nóg með að Ágúst Elí hafi lokað markinu þá skoraði hann einnig í 31-22 sigri Kolding.