Yfirlýsingin sé týpískt útspil hjá FH: „Þurfa að líta í eigin barm“ Baldur Sigurðsson, fyrrum leikmaður Bestu deildar liðs FH og núverandi sérfræðingur Stúkunnar á Stöð 2 Sport, segir það alls ekki hafa komið sér á óvart að FH hafi sent frá sér yfirlýsingu á borð við þá sem félagið sendi frá sér á dögunum. Hann hvetur FH, sem og Kjartan Henry leikmann félagsins, til þess að líta í eigin barm. Íslenski boltinn 23. maí 2023 09:30
Sjáðu axlar- og bakmark í Eyjum, „eldrauða spjaldið“ og neglur Atla og Gísla Það var nóg um að vera í áttundu umferð Bestu deildar karla í fótbolta sem lauk í gær. KR vann langþráðan sigur gegn Fram, Víkingur jók forskot sitt á toppnum og Keflavík fór á botninn þrátt fyrir markalaust jafntefli við Val. Íslenski boltinn 23. maí 2023 09:07
„Get ekki lifað eðlilegu lífi lengur“ Norska knattspyrnustjarnan Erling Haaland segir að úr því sem komið er geti hann ekki lifað eðlilegu lífi. Hann hefur vakið athygli um allan heim með framgöngu sinni hjá Manchester City í vetur. Enski boltinn 23. maí 2023 08:31
Myrkur yfir Jesústyttunni til stuðnings við Vinicius Slökkt var á ljósunum við hina frægu Jesústyttu í Ríó de Janeiro í Brasilíu í gærkvöld, í eina klukkustund, til að sýna stuðning við Vinicius Junior vegna kynþáttaníðsins sem hann hefur orðið fyrir á Spáni. Fótbolti 23. maí 2023 07:59
Þakka ótrúlegan stuðning eftir að kveikt var í velli félagsins Skoska neðri deildarliðið Dunipace FC hefur þakkað stuðningsfólki sínu fyrir ótrúlegan stuðning og fjárhagslega aðstoð eftir að kveikt var í gervigrasvelli liðsins fyrir ekki svo löngu. Fótbolti 23. maí 2023 07:00
Dæmdi úrslitaleik HM og nú úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu Pólverjinn Szymon Marciniak mun dæma úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu á milli Inter og Manchester City sem fram fer á Atatürk-vellinum í Istanbúl í Tyrklandi þann 10. júní. Fótbolti 22. maí 2023 23:30
Arsenal stórhuga í sumar Enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal er stórhuga í sumar eftir að hafa misst enska meistaratitilinn í knattspyrnu úr greipum sér. Liðið stefnir á að bæta við sig nokkrum þekktum stærðum til að það gerist ekki aftur. Enski boltinn 22. maí 2023 23:00
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Þróttur - Þór/KA 2-1 | Dramatík í Dalnum Þróttur fékk topplið Þórs/KA í heimsókn í stórleik 5. umferðar Bestu deildar kvenna þar sem Þróttur vann afar dramatískan sigur. Sigurmarkið kom á lokamínútu leiksins og lokatölur í Laugardalnum 2-1 fyrir Þrótt sem með sigrinum fara upp fyrir Þór/KA. Íslenski boltinn 22. maí 2023 22:45
Liverpool búið að finna manninn sem á að sjá um endurnýjunina Liverpool er búið að finna manninn sem á að sjá um endurnýjun leikmannahóps liðsins í sumar. Enski boltinn 22. maí 2023 22:40
Rúnar Páll: Þetta er ekki búið fyrr en þetta er búið Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í Garðabænum í kvöld. Eftir að Fylkir hafði komist í 1-2 jöfnuðu Stjörnumenn með marki undir lokin. Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Fylkis, var súr í leikslok. Íslenski boltinn 22. maí 2023 22:10
Var mjög dramatískur og mjög spennandi leikur Nik Chamberlain, þjálfari Þróttar, var að vonum ánægður með dramatískan sigur á Þór/KA í Bestu-deild kvenna í fótbolta. Dramatískt mark Freyju Karínar Þorvarðsdóttur á loka mínútu leiksins var það sem skildi liðin að í lokin. Íslenski boltinn 22. maí 2023 22:01
Rúnar Kristinsson: Leikmennirnir sýna að þeir hafi trú á verkefninu Þjálfari KR, Rúnar Kristinsson, var feginn þegar flautað var til leiksloka á Fram vellinum fyrr í kvöld. Hans menn náðu í langþráðan 1-2 sigur á Fram og hysjuðu sig upp úr fall sætunum. Rúnar var þó á því að mikil vinna sé framundan og þeir séu alls ekki hólpnir. Fótbolti 22. maí 2023 21:43
Newcastle í Meistaradeildina á næstu leiktíð Newcastle United mun spila í Meistaradeild Evrópu á næstu leiktíð. Þetta varð staðfest þegar Newcastle gerði markalaust jafntefli við Leicester City í ensku úrvalsdeild karla í knattspyrnu í kvöld. Enski boltinn 22. maí 2023 21:16
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Fylkir 2-2 | Jafnt í endurkomu Rúnars Páls í Garðabæ Stjarnan og Fylkir gerðu 2-2 jafntefli í 8. umferð Bestu deildar karla í knattspyrnu. Emil Atlason jafnaði metin fyrir Stjörnuna í blálokin. Hans fyrsta mark í sumar eftir erfið meiðsli. Íslenski boltinn 22. maí 2023 21:15
Umfjöllun: Keflavík - Selfoss 1-0 | Keflavík hífir sig upp töfluna með sigri gegn Selfossi Keflavík lagði Selfoss að velli með einu marki gegn engu þegar liðin mættust í 5. umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta suður með sjó í kvöld. Íslenski boltinn 22. maí 2023 21:08
Umfjöllun, viðtöl og myndir: Fram - KR 1-2 | KR upp úr kjallaranum eftir sigur á Fram KR náði að knýja fram sigur en tæpt var það. KR hafði mjög góð tök á leiknum í 85 mínútur en Fram velgdi þeim undir uggum. KR náði þó að sigla sigrinum í höfn og um leið hoppuðu þeir upp úr fallsætunum. Íslenski boltinn 22. maí 2023 21:05
Umfjöllun: ÍBV-FH 2-3 | Hádramatískur sigur gestanna FH vann sterkan sigur á ÍBV í 8. umferð Bestu deildar karla á gráu sumarkvöldi í Vestmannaeyjum á mánudagskvöldið. Lokatölur 2-3 í Eyjum. Íslenski boltinn 22. maí 2023 21:00
Tíu stig dregin af Juventus sem tapaði gegn Empoli | Rómverjar í basli Rétt áður en leikur Empoli og Juventus í Serie A, ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, hófst kom í ljós að 10 stig höfðu verið dæmd af félaginu. Fótbolti 22. maí 2023 20:47
Umfjöllun og viðtöl: Valur - ÍBV 2-0 | Engin vandræði á Íslandsmeisturunum Valur tók þrjú stig á heimvelli eftir sannfærandi sigur á ÍBV í 5. umferð Bestu deild kvenna í fótbolta í kvöld. Valskonur höfðu ekki unnið í síðustu tveimur leikjum sínum. Íslenski boltinn 22. maí 2023 19:55
Sjálfsmark Arnórs Ingva gaf Elfsborg sigur gegn Norrköping Arnór Sigurðsson kom Norrköping yfir í Íslendingslag gegn Elfsborg í sænsku úrvalsdeild karla í knattspyrnu. Það dugði hins vegar ekki þar sem Elfsborg kom til baka og vann 2-1 sigur þar sem Arnór Ingvi Traustason setti boltann í eigið net. Þá vann Kalmar 1-0 útisigur. Fótbolti 22. maí 2023 19:15
„Bað strákana afsökunar“ Alfreð Finnbogason gæti hafa spilað sinn síðasta leik fyrir Lyngby í gær þegar hann fékk að líta rauða spjaldið í 4-0 tapi gegn OB í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 22. maí 2023 16:30
Besta upphitunin: „Þetta var djöfulsins puð“ Sandra Sigurðardóttir, fyrrverandi landsliðsmarkvörður, var gestur Helenu Ólafsdóttur í upphitun fyrir 5. umferð Bestu deildar kvenna. Íslenski boltinn 22. maí 2023 16:00
Forseti La Liga drullar yfir Vinícius Junior Javier Tebas, forseti La Liga, hefur brugðist við ummælum Vinícius Junior, leikmanns Real Madrid, um að spænska úrvalsdeildin tilheyri núna rasistum. Fótbolti 22. maí 2023 14:31
Nikolaj jafnaði markamet Heimis Karls Nikolaj Hansen jafnaði markamet Víkings í efstu deild þegar hann skoraði í sigri liðsins á HK í gær. Íslenski boltinn 22. maí 2023 12:31
Mæta til leiks með ellefu stiga refsingu hangandi yfir sér Ítalska knattspyrnusambandið fer fram á að ellefu stig verði dregin af Juventus fyrir að falsa bókhald félagsins á árunum 2019-2021, varðandi kaup og sölur á leikmönnum. Fótbolti 22. maí 2023 12:02
Spurs fyllir í Slot(t)ið Margt bendir til þess að Arne Slot, knattspyrnustjóri Hollandsmeistara Feyenoord, taki við Tottenham. Enski boltinn 22. maí 2023 11:01
Titillinn rann úr greipum PSG og Berglind fékk bara korter á allri leiktíðinni Landsliðskonan Berglind Björg Þorvaldsdóttir var líkt og jafnan áður í vetur ekki í leikmannahópi PSG í stórleiknum við Lyon í gær, þar sem úrslitin réðust í frönsku 1. deildinni í fótbolta. Fótbolti 22. maí 2023 10:30
Haaland mætti í náttfötum í meistarafögnuð City-manna Erling Haaland og kærasta hans mætti í heldur betur óvenjulegum fatnaði í meistarafögnuð Manchester City í gær. Enski boltinn 22. maí 2023 10:01
„Spænska úrvalsdeildin tilheyrir rasistum“ Vinícius Júnior, leikmaður Real Madrid, segir að spænska úrvalsdeildin tilheyri rasistum eftir að hann varð fyrir kynþáttaníði í tapinu fyrir Valencia, 1-0, í gær. Fótbolti 22. maí 2023 09:30
Baðst afsökunar á blóti Haalands í fögnuðinum Erling Haaland stalst til að trufla sigurviðtal á Sky Sports í meistarafögnuði Manchester City á Etihad-leikvanginum í gær, til að lýsa yfir aðdáun á liðsfélaga sínum Jack Grealish. Enski boltinn 22. maí 2023 08:30