Aron og Heimir færast nær botninum í Katar Fjölmargir íslenskir knattspyrnumenn voru í eldlínunni með sínum liðum víða um heim í dag. Fótbolti 13. desember 2020 19:38
Ronaldo hetja Juventus í Genoa Juventus gerði vel í að innbyrða útisigur þegar liðið heimsótti Genoa í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 13. desember 2020 18:55
Meistararnir sóttu stig gegn nýliðum Fulham Englandsmeistarar Liverpool komust í hann krappan þegar þeir heimsóttu nýliða Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 13. desember 2020 18:27
Hörður spilaði í svekkjandi jafntefli Hörður Björgvin Magnússon og félagar í CSKA Moskvu fóru illa að ráði sínu þegar liðið fékk Ural í heimsókn í rússnesku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 13. desember 2020 18:07
Ingibjörg tvöfaldur meistari eftir framlengdan bikarúrslitaleik Ingibjörg Sigurðardóttir og stöllur hennar í Vålerenga eru tvöfaldir meistarar eftir 2-0 sigur á Lilleström í úrslitum norska bikarsins í dag. Liðið tryggði sér nýverið norksa meistaratitilinn og draumatímabilið því fullkomnað í dag. Fótbolti 13. desember 2020 17:00
Weir tryggði Man City sigur gegn Arsenal með marki í uppbótartíma Manchester City vann 2-1 sigur á Arsenal í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Sigurmarkið gerði Caroline Weir í uppbótartíma leiksins með frábæru vinstri fótar skoti. Fótbolti 13. desember 2020 16:45
Ingibjörg leikmaður ársins í Noregi Landsliðsmiðvörðurinn Ingibjörg Sigurðardóttir hefur verið valin besti leikmaður norsku úrvalsdeildarinnar. Þetta fékk hún að vita á síðustu æfingu Vålerenga fyrir bikarúrslitaleikinn gegn Lilleström. Fótbolti 13. desember 2020 16:20
Guaita hetja Palace er liðið náði í stig gegn Tottenham Crystal Palace og Tottenham Hotspur gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í dag. Vicente Guaita, markvörður Palace, reyndist hetja leiksins. Enski boltinn 13. desember 2020 16:15
Andri Fannar kom af bekknum í töpuðum leik gegn Roma Andri Fannar Baldursson kom inn af varamannabekk Bologna er liðið var lent 5-1 undir gegn Roma í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Reyndust það lokatölur leiksins. Fótbolti 13. desember 2020 16:05
Berglind Björg og Anna Björk með kórónuveiruna Landsliðskonurnar Berglind Björg Þorvaldsdóttir og Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmenn franska úrvalsdeildarliðsins Le Havre, eru ekki með liðinu í dag sökum þess að þær greindust nýverið með kórónuveiruna. Fótbolti 13. desember 2020 15:16
Sociedad að fatast flugið Gott gengi Real Sociedad í spænsku úrvalsdeildinni virðist á enda en liðið gerði 1-1 jafntefli við Eibar í dag. Fótbolti 13. desember 2020 15:10
Þrjú mörk undir lok leiks björguðu Inter frá slæmum úrslitum annan leikinn í röð Þrjú mörk undir lok leiks tryggðu Inter Milan sigur í dag gegn Cagliari en það virtist sem leikmenn liðsins séu ekki enn búnir að jafna sig á að detta út úr Meistaradeild Evrópu fyrr í vikunni. Lokatölur leiksins 3-1 Inter í vil. Fótbolti 13. desember 2020 13:40
Þjálfari Dortmund rekinn Borussia Dortmund hefur rekið Lucien Favre, þjálfara liðsins. Svo virðist sem 1-5 tap á heimavelli gegn Stuttgart í gær hafi verið kornið sem fyllti mælinn. Fótbolti 13. desember 2020 13:35
Hollenskur landsliðsmaður handtekinn fyrir að stinga fjölskyldumeðlim Hollenski landsliðsmaðurinn Quincy Promes hefur verið handtekinn fyrir að stinga fjölskyldumeðlim með hníf. Fótbolti 13. desember 2020 12:15
Gylfi Þór skapaði nær öll færi Everton og skoraði sigurmarkið Gylfi Þór Sigurðsson átti heldur betur góðan leik í gær er Everton vann Chelsea 1-0 á heimavelli sínum, Goodison Park. Íslenski landsliðsmaðurinn bjó til nær öll færi Everton ásamt því að skora sigurmarkið úr vítaspyrnu. Enski boltinn 13. desember 2020 10:30
Keane og Neville: Solskjær verður að láta liðið spila Man Utd leikstílinn og vinna titla Roy Keane og Gary Neville, fyrrum leikmenn Manchester United, segja að Ole Gunnar Solskjær verði að vinna titla og reyna að stýra stórleikjum. Enski boltinn 13. desember 2020 09:30
Láta sárir Inter-menn reiði sína bitna á Sardiníustrákunum? Eftir vonbrigðin í Meistaradeild Evrópu fer Inter til Sardiníu og mætir Cagliari í ítölsku úrvalsdeildinni í hádeginu í dag. Fótbolti 13. desember 2020 09:01
Kennir leikskipulaginu um niðurlægjandi tap Óvænt úrslit urðu í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær þegar stórlið Borussia Dortmund steinlág fyrir gamla stórveldinu Stuttgart, sem eru nú nýliðar í Bundesligunni. Fótbolti 13. desember 2020 08:02
Pogba svarar fyrir ummæli umboðsmanns síns Paul Pogba hefur spilað vel fyrir Manchester United síðan umboðsmaður hans, Mino Raiola lét hafa eftir sér að skjólstæðingur sinn ætti ekki samleið með félaginu. Enski boltinn 12. desember 2020 23:00
Gylfi í skýjunum í leikslok: Frábært að fá áhorfendur aftur á völlinn Gylfi Þór Sigurðsson reyndist hetja Everton þegar liðið vann góðan sigur á Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Enski boltinn 12. desember 2020 22:35
Fyrsta tap Atlético kom gegn erkifjendunum Spænska meistaraliðið Real Madrid vann mikilvægan sigur á nágrönnum sínum í stórleik helgarinnar í spænsku úrvalsdeildinni. Fótbolti 12. desember 2020 21:57
Gylfi tryggði Everton sigur á Chelsea Gylfi Þór Sigurðsson og félagar hans í Everton sáu til þess að Chelsea tókst ekki að tylla sér á topp ensku úrvalsdeildarinnar. Enski boltinn 12. desember 2020 21:52
Lazio tapaði á heimavelli Lazio og Hellas Verona mættust í síðasta leik dagsins í ítalska boltanum en liðin voru á svipuðum slóðum rétt fyrir aftan efstu lið þegar kom að leik kvöldsins. Fótbolti 12. desember 2020 21:28
Solskjær: Besta frammistaða sem ég hef séð hjá okkur gegn Man City Ole Gunnar Solskjær, stjóri Man Utd, var hæstánægður með markalaust jafntefli gegn erkifjendunum í ensku úrvalsdeildinni í dag. Enski boltinn 12. desember 2020 20:00
Ari Freyr spilaði allan leikinn í sigri Ari Freyr Skúlason var í byrjunarliði Oostende þegar liðið heimsótti Cercle Brugge í belgísku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Fótbolti 12. desember 2020 19:52
Meistararnir misstigu sig í Berlín Óvænt úrslit í þýsku höfuðborginni í kvöld þegar Union Berlin og Bayern Munchen áttust við í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Fótbolti 12. desember 2020 19:32
Markalaust í Manchester slagnum Ekkert mark var skorað þegar Manchester liðin í ensku úrvalsdeildinni leiddu saman hesta sína á Old Trafford í dag. Enski boltinn 12. desember 2020 19:21
Jón Daði kom snemma inná í vonlausri stöðu - Allt í lás hjá Blackpool Tveir íslenskir knattspyrnumenn voru í eldlínunni í neðri deildum enska fótboltans í dag og gekk liðum þeirra misvel. Enski boltinn 12. desember 2020 17:05
Leipzig tímabundið á toppinn á meðan Dortmund steinlá á heimavelli Tveimur áhugaverðum leikjum í toppbaráttu þýska boltans er nú lokið. Borussia Dortmund tapaði 1-5 á heimavelli á meðan RB Leipzig tyllti sér tímabundið á toppinn með 2-0 sigri á Werder Bremen. Fótbolti 12. desember 2020 16:45
Sara Björk spilaði allan leikinn er Lyon skoraði níu Sara Björk Gunnarsdóttir spilaði allan leikinn á miðri miðju Lyon er liðið vann þægilegan 9-0 sigur í frönsku úrvalsdeildinni í dag. Fótbolti 12. desember 2020 15:46