Williams vann fyrsta og 100 sigurinn á Silverstone Williams liðið er á heimavelli á Silverstone brautinni eins og önnur Formúlu 1 lið, sem eru staðsett í Bretlandi. Níunda umferðin í Formúlu 1 verður á brautinni um helgina. Williams liðið vann sinn fyrsta sigur á brautinni árið 1979 og þann 100 í röðinni árið 1997. Formúla 1 5. júlí 2011 13:59
Williams liðið samdi við Renault um samstarf 2012 og 2013 Formúlu 1 lið Williams hefur samið við Renault um að útvega liðinu vélar frá og með næsta keppnistímabili, en meistaralið Red Bull notar Renault vélar, rétt eins og Renault liðið sjálft og Lotus. Williams vann marga titla með Renault á árum áður og keppir í breska kappakstrinum um næstu helgi á Silverstone. Formúla 1 4. júlí 2011 17:27
Button dreymir um að sigra á Silverstone brautinni Jenson Button hjá McLaren er í öðru sæti í stigakeppni ökumanna á eftir Sebastian Vettel á Red Bull. Button, sem er breskur verður á heimavelli á Silverstone brautinni um næstu helgi, rétt eins og liðsfélagi hans Lewis Hamilton. Formúla 1 4. júlí 2011 16:38
Vettel stefnir á toppárangur á Silverstone Formúlu 1 heimsmeistarinn Sebastian Vettel varð 24 ára í gær, en hann er með forystu í stigamóti ökumanna og keppir á Silverstone brautinni i Englandi um næstu helgi með Red Bull liðinu ásamt Mark Webber. Formúla 1 4. júlí 2011 15:36
Mercedes mætir með nýjungar á Silverstone Formúlu 1 lið keppa á Silverstone um næstu helgi í níundu umferð heimsmeistaramótsins í Formúlu 1. Mercedes liðið er meðal þeirra liða sem verða á heimavelli. Bæði bílar og vélar liðsins eru framleiddar í Englandi, þó Mercedes merkið sé þýskt. Höfuðstöðvar Formúlu 1 liðs Mercedes eru í Brackley og vélarnar settar seman í Brixworth. Formúla 1 4. júlí 2011 14:32
Vettel og Red Bull í sterkri stöðu í stigamóti ökumanna og bílasmiða Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúlu 1 liðsins telur að Sebastian Vettel muni halda áfram að stefna á sigur í einstökum mótum, fremur en spá í stöðuna í titilslagnum. Jafnvel þó hann sé kominn með 77 stiga forskot á næstu tvo menn í stigamóti ökumanna, eftir sex sigra á árinu. Vettel vann sjötta sigurinn Í Valencia í gær. Formúla 1 27. júní 2011 13:23
Vettel naut sín vel Í Valencia Sebastian Vettel vann sjötta sigur sinn í Formúlu 1 á árinu í Valencia á Spáni í dag á Red Bull keppnisbíl. Vettel var meira og minna í forystu í mótinu og er kominn með 77 stiga forskot á næsta ökumann í stigakeppni ökumanna. Formúla 1 26. júní 2011 18:13
Vettel kom fyrstur í mark Þjóðverjinn Sebastian Vettel hjá Red Bull hefur tekið afgerandi forystu í stigakeppni ökuþóra í Formúlu 1 eftir sigur í evrópska kappakstrinum sem fór fram í Valencia á Spáni. Formúla 1 26. júní 2011 13:59
Vettel: Góður dagur fyrir liðið Sebastian Vettel tryggði sér fremsta stað á ráslínu fyrir Formúlu 1 mótið í Valencia á morgun í dag í tímatökum. Þetta er í sjöunda skipti sem Vettel verður fremstur á ráslínu á þessu ári, en hann er efstur í stigamóti ökumanna eftir sjö mót. Formúla 1 25. júní 2011 17:46
Vettel fremstur á ráslínu í sjöunda skipti á árinu Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökum á Valencia brautinni á Spáni í dag. Hann varð 0.188 úr sekúndu á undan liðsfélaga sínum Mark Webber, en Lewis Hamilton varð þriðji á McLaren. Formúla 1 25. júní 2011 13:54
Vettel fremstur í flokki á lokaæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Valencia götubrautinni á Spáni í dag. Fernando Alonso á Ferrari, sem er á heimavelli varð annar og liðfsfélagi hans Felipe Massa þriðji. Formúla 1 25. júní 2011 10:18
Alonso fljótastur á Ferrari Fernando Alonso á Ferrari náði besta aksturstíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Valencia götubrautinni á Spáni í dag. Hann varð á undan Lewis Hamilton á McLaren, Sebastian Vettel á Red Bull varð þriðji og Michael Schumacher á Mercedes fjórði samkvæmt frétt á autosport.com. Formúla 1 24. júní 2011 13:43
Webber fljótastur á Spáni Mark Webber á Red Bull var fljótastur á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Valencia götubrautinni á Spáni í dag. Hann varð 0.824 úr sekúndu á undan Vitaly Petrov á Renault samkvæmt frétt á autosport.com. Formúla 1 24. júní 2011 09:52
Alonso: Mikilvægt að komast á verðlaunapallinn Tveir Formúlu 1 ökumenn verða á heimavelli á Valencia brautinni á Spáni um helgina. Fernando Alonso hjá Ferrari og Jamie Alguersuari hjá Torro Rosso. Alonso er meðal þeirra fimm efstu í stigamóti ökumanna í ár. Formúla 1 23. júní 2011 17:03
Button telur sigur skerpa einbeitingu og sannfæringu liðsmanna McLaren Jenson Button hjá McLaren vann síðustu Formúlu 1 keppni sem var í Kanada og segist hafa fengið frí vikuna eftir mótið sem hafi gefið honum tækifæri að rifja upp jákvæðar minningar frá brjálaðri helgi eins og hann orðaði það í fréttatilkynningu frá McLaren fyrir næstu keppni. Formúla 1 23. júní 2011 15:51
Vettel telur vandasamt að aka í Valencia Formúlu 1 ökumennirnir Sebastain Vettel og Mark Webber keppa fyrir hönd Red Bull í Valencia á Spáni á sunnudaginn. Vettel líkir brautarstæðinu við Mónakó, en ekið er um hafnarsvæði á brautinni. Mótið er það annað sem fer fram á Spáni í árinu, en fyrr á árinu var keppt á Katalóníu brautinni í grennd við Barcelona. Formúla 1 23. júní 2011 11:13
Schumacher telur mótið í Valencia áhugavert fyrir ökumenn og áhorfendur Formúlu 1 ökumaðurinn Michel Schumacher hjá Mercedes keppir ásamt liðsfélaga sínum Nico Rosberg á götubrautinni í Valencia á Spáni á sunnudaginn. Fyrstu æfingar Formúlu 1 keppnisliða eru á brautinni á föstudag og lokaæfingin og tímatakan á laugardag. Formúla 1 22. júní 2011 16:04
Engin uppgjöf hjá Alonso Fernando Alonso hjá Ferrari hefur ekki gefist upp á titilbaráttunni í Formúlu 1 þó hann sé orðinn 92 stigum á eftir Sebastian Vettel hjá Red Bull í stigakeppni ökumenna. Alonso féll úr leik í kanadíska kappakstrinum í Montreal á sunnudaginn, eftir samstuð við Jenson Button hjá McLaren sem vann mótið. Formúla 1 15. júní 2011 14:33
Button: Besti sigurinn á ferlinum Jenson Button telur að sigur hans á Gilles Villeneuve Formúlu 1 brautinni í Montreal í Kanada á sunnudag hafi verið sá besti sem hann hefur náð að landa á ferlinum. Hann komst framúr Sebastian Vettel í síðasta hring, eftir að hafa verið síðastur í mótinu um tíma. Formúla 1 13. júní 2011 00:58
Button vann dramatíska keppni í Kanada Bretinn Jenson Button hjá McLaren vann tilþrifamikla keppni í Formúlu 1 mótinu í Montreal í dag, en hann komst framúr Sebastian Vettel hjá Red Bull í síðasta hring. Miklar tafir urðu á mótinu vegna rigningar og fóru ökumenn úr bílum sínum um tíma vegna þessa. Formúla 1 13. júní 2011 00:04
Vettel: Við erum tilbúnir að berjast Sebastian Vettel hjá Red Bull verður fremstur á ráslínu í kanadíska kappakstrinum í Montreal á morgun. Fyrirfram var ekki talið að bíll hans yrði sá öflugasti á Gilles Villeneuve brautinni, en það reyndist staðreynd í sjöttu tímatökunni af sjö á þessu ári. Formúla 1 11. júní 2011 21:20
Vettel fremstur á ráslínu í sjötta skipti á árinu Sebastian Vettel hjá Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökum í sjötta skipti á árinu, þegar hann náði besta tíma á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Vettel verður því fremstur á ráslínu í kanadíska kappakstrinum sem fer fram á morgun. Formúla 1 11. júní 2011 19:11
Vettel fljótastur á lokaæfingunni Sebastian Vettel á Red Bull var fljótastur Formúlu 1 ökumanna í Montreal á síðustu æfingu fyrir tímatökuna sem er í dag, en tímatakan verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og er útsending á dagskrá kl. 16.45. Formúla 1 11. júní 2011 15:27
Alonso náði besta tíma dagsins Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Hann varð 0.369 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Felipe Massa á Ferrari varð þriðji, 0.494 á eftir Alonso. Alonso náði besta tíma dagsins, en Nico Rosberg var fljótastur á fyrri æfingunni i dag. Formúla 1 10. júní 2011 22:20
Rosberg á Mercedes fljótastur í Montreal, en Vettel ók á vegg Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu Formúlu 1 liða á Gilles Villeneuve brautinni í Montreal í Kanada í dag. Fernando Alonso á Ferrari varð annar, en hann var rúmlega hálfri sekúndu á eftir Rosberg og Michael Schumacher á Mercedes náði þriðja besta tíma. Önnur æfing verður síðar í dag. Formúla 1 10. júní 2011 15:40
Hætt við mótshald í Barein Mótshaldarar í Barein hafa hætt við að halda Formúlu 1 mót, en FIA tilkynnti í síðustu viku á mót yrði í Barein 30. október. En í frétt á autosport.com í dag segir að mótið muni ekki fara fram samkvæmt tilkynningu frá skipuleggjendum mótins. Upphaflega átti mótið að fara fram 13. mars, en var frestað vegna pólitísks ástands í landinu. Formúla 1 10. júní 2011 13:47
Perez fær að keppa í Kanada Sergio Perez hjá Sauber liðinu hefur fengið leyfi frá FIA til að keppa í Formúlu 1 mótinu í Kanada um helgina, en hann fékk heilahristing í óhappi í tímatökunni í Mónakó á dögunum og tók ekki þátt í kappakstrinum. Formúla 1 9. júní 2011 17:37
Paul di Resta stefnir á stigasæti Paul di Resta hjá Force India liðinu er nýliði sem keppnisökumaður í Formúlu 1 í ár og hefur ekki ekið Gilles Villeneuve brautina, sem er notuð í Formúlu 1 mótinu í Montreal í Kanada um næstu helgi. Adrian Sutil ekur með di Resta hjá Force India og segir mótið í Montreal eitt af sínum uppáhaldsmótum. Formúla 1 8. júní 2011 15:30
Góðar minningar Glock frá Montreal Timo Glock hjá Virgin Formúlu 1 liðinu kveðst eiga góðar minningar frá mótssvæðinu í Kanada, sem verður notað um helgina, en þá mætir hann ásamt Jerome d´Ambrosio fyrir hönd liðs síns. Liðið er að hluta til í eigu Marussia sportbílaframleiðandans rússneska. Formúla 1 8. júní 2011 14:55
Petrov búinn að jafna sig eftir óhapp í mótinu í Mónakó Vitaly Petrov hjá Renault liðinu er búinn að jafna sig eftir óhapp sem hann varð fyrir í keppninni í Mónakó á dögunum. Stöðva þurfti keppnina á meðan hugað var að Petrov, sem varð fyrir hnjaski og bíll hans stöðvaðist í brautinni, auk fleiri bíla. Petrov segir að hann hafi verið í slag um fjórða sætið í Mónakó, áður en að óhappinu kom. Formúla 1 7. júní 2011 17:50