ESB fær upplýsingar um íslenska PIP púða Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins hefur verið gert viðvart um háá lekatíðni falsaðra PIP brjóstafyllinga hér á landi. Í tilkynningu frá velferðarráðuneyti segir að Lyfjastofnun hafi sent upplýsingarnar utan en búið er að ómskoða 105 konur hér á landi með slíkar fyllingar og hefur leki greinst í púðum hjá 71 konu eða um 68% þeirra sem hafa verið skoðaðar. Innlent 14. febrúar 2012 10:42
„Hrikalega óábyrgt og jafnvel hættulegt“ að senda börnin sín vísvitandi veik á leikskóla Innlent