

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Chicharito fékk sæta kveðju frá Sir Alex
Mexíkóinn Javier Hernandez er búinn að loka hringnum á löngum ferli sínum.

Klopp hættir með Liverpool í vor
Jürgen Klopp hættir sem knattspyrnustjóri Liverpool en félagið staðfesti þetta á heimasíðu sinni í dag.

Guardiola kaldhæðinn: „Kannski heldur United að allt breytist með Berrada“
Omar Berrada, sem hefur verið ráðinn forstjóri Manchester United, mun ekki laga vandamál félagsins einn og sér. Þetta segir Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, félagsins sem Berrada hefur starfað fyrir undanfarin ár.

Verður reiður á að horfa á Antony og vill að hann verði seldur
Dimitar Berbatov, fyrrverandi leikmaður Manchester United, er ekkert sérstaklega hrifinn af brasilíska kantmanninum Antony og segir að félagið gæti þurft að selja hann ef hann tekur sig ekki taki.

Salah rýfur þögnina: „Ég elska Egyptaland og fólkið þar“
Mohamed Salah, leikmaður Liverpool, ætlar að gera allt til að spila aftur með egypska landsliðinu á Afríkumótinu í fótbolta.

Mætast að nýju tuttugu árum eftir hetjudáð Árna Gauts
Tuttugu ár eru síðan Manchester City vann Tottenham Hotspur 4-3 eftir að vera 3-0 undir í hálfleik. Um er að ræða einn frægasta leik FA Cup, ensku bikarkeppninnar í knattspyrnu.

Rólegur janúar í rauða hluta Manchester-borgar
Þó svo að Jim Ratcliffe sé byrjaður að taka til utan vallar hjá enska knattspyrnufélaginu Manchester United þá virðist sem Erik ten Hag, þjálfari liðsins, fái engar viðbætur þó svo að janúarglugginn sé opinn í nokkra daga til viðbótar.

Fyrirliði enska landsliðsins sneri aftur eftir níu mánaða fjarveru
Leah Williamson, fyrirliði enska fótboltalandsliðsins, sneri aftur á völlinn eftir níu mánaða fjarveru þegar Arsenal vann Reading í enska deildabikarnum í gær.

Enska sambandið mun rannsaka dauða knattspyrnukonunnar
Enska knattspyrnusambandið hefur sett að stað rannsókn vegna dauðsfalls knattspyrnukonunnar Maddy Cusack síðasta haust.

Biðin eftir Haaland lengist enn
Erling Braut Haaland spilar ekki með Manchester City á móti Tottenham í ensku bikarkeppninni annað kvöld.

Real Madrid ýtti Man. City úr toppsætinu
Real Madrid var það félag sem bjó til mestan pening í fótboltaheiminum á keppnistímabilinu 2022-23.

Reiður Klopp kom Salah til varnar
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kom Mohamed Salah til varnar þegar fréttamaður efaðist um heilindi Egyptans.

Liverpool og Chelsea mætast í úrslitum deildarbikarsins
Liverpool er komið í úrslitaleik enska deildarbikarsins eftir 1-1 jafntefli gegn Fulham í kvöld. Fyrri leikur liðanna endaði 2-1 og Liverpool vinnur einvígið því samanlagt 3-2.

Fyrrum eigandi Tottenham játaði innherjaviðskipti og fjársvik
Joe Lewis játaði fyrir dómstólum í New York dag að hann væri sekur um innherjaviðskipti og fjársvik við verðbréfaviðskipti. Fjölskylda hans á meirihluta í enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham Hotspur í gegnum fyrirtækið ENIC. Brotin áttu sér stað áður en Joe Lewis seldi sinn hlut í félaginu árið 2022.

Hákon verður dýrasti markvörður í sögu sænsku deildarinnar
Brentford greiðir Elfsborg rúmlega fimm hundruð milljónir íslenskra króna fyrir landsliðsmarkvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson.

Hákon á leið til Brentford
Elfsborg hefur samþykkt kauptilboð enska úrvalsdeildarliðsins Brentford í íslenska landsliðsmarkvörðinn Hákon Rafn Valdimarsson.

Chelsea í úrslit eftir stórsigur
Chelsea tryggði sér í kvöld sæti í úrslitum enska deildarbikarsins er liðið vann sannkallaðan stórsigur gegn B-deildarliði Middlesbrough í kvöld, 6-1.

West Ham nær samkomulagi við Englandsmeistarana um Phillips
Ensku úrvalsdeildarfélögin West Ham og Manchester City hafa komist að samkomulagi um að West Ham fái miðjumanninn Kalvin Phillips á láni út tímabilið.

Meiðsli Salah alvarlegri en áður var talið
Mohamed Salah, framherji Liverpool og egypska landsliðsins í knattspyrnu, missir að öllum líkindum af því sem eftir er af Afríkumótinu eftir að hafa orðið fyrir vöðvameiðslum í leik gegn Gana á dögunum.

Carragher: Betri að klára færin en Torres, Suarez og Salah
Jamie Carragher var heldur betur ánægður með Portúgalann Diogo Jota eftir 4-0 sigur Liverpool á Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Salah mun snúa aftur til Liverpool til að fá meðhöndlun við meiðslunum
Jürgen Klopp, þjálfari enska knattspyrnufélagsins Liverpool, ræddi stöðuna á Mohamed Salah eftir 4-0 sigur liðsins á Bournemouth í gær, sunnudag.

Dagnýjarlaust West Ham tapaði enn einum leiknum
Það gengur hvorki né rekur hjá West Ham United í ensku úrvalsdeild kvenna í knattspyrnu. Í kvöld tapaði liðið á dramatískan hátt gegn Tottenham Hotspur sem þýðir að Hamrarnir hafa tapað fimm af síðustu sex leikjum.

Toppliðið jók forskot sitt á toppi deildarinnar
Eftir markalausan fyrri hálfleik á Vitality-vellinum þá skoraði topplið ensku úrvalsdeildarinnar, Liverpool, fjórum sinnum og vann gríðarlega sannfærandi útisigur á Bournemouth.

McBurnie tryggði Sheffield stig í ótrúlegum leik
Oliver McBurnie tryggði Sheffield United eitt stig með marki af vítapunktinum er liðið tók á móti West Ham í ensku úrvalsdeildinni í ótrúlegum leik í dag.

James hlóð í þrennu er Chelsea lagði Manchester United
Lauren James var potturinn og pannan í liði Chelsea er liðið vann öruggan 3-1 sigur gegn Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Elísabet önnur tveggja sem þykja líklegastar til að taka við Chelsea
Elísabet Gunnarsdóttir er nú önnur tveggja kvenna sem þykja líklegastar til að taka við enska stórliðinu Chelsea þegar Emma Hayes lætur af störfum að yfirstandandi tímabili loknu.

Nýr forstjóri Man United kemur frá nágrönnum þeirra í City
Greint hefur verið frá því að Omar Berrada verði forstjóri enska knattspyrnufélagsins Manchester United. Hann hefur undanfarin ár starfað fyrir Manchester City.

Toney skoraði í endurkomunni
Framherjinn Ivan Toney sneri aftur í lið Brentford í ensku úrvalsdeildinni eftir margra mánaða fjarveru en hann var dæmdur í leikbann af ensku úrvalsdeildinni þar sem hann hafði veðjað á leiki deildarinnar. Hann fagnaði endurkomunni með marki í 3-2 sigri á Nottingham Forest.

Skytturnar aftur á sigurbraut og nálgast toppinn á ný
Eftir þrjá deildarleiki í röð án sigurs vann Arsenal mikilvægan 5-0 sigur gegn Crystal Palace í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Toney snýr aftur til keppni sem fyrirliði
Ivan Toney stígur aftur inn á keppnisvöllinn þegar Brentford tekur á móti Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni í dag eftir langt bann vegna brota á veðmálareglum. Hann mun bera fyrirliðabandið í leiknum.