Everton sigraði Tottenham á White Hart Lane Everton sigraði Tottenham í kvöld í fyrsta leik 2. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Everton átti sigurinn skilið en aðeins Paul Robinson kom í veg fyrir að sigurinn yrði stærri. Þar með er lið Tottenham búið að tapa báðum leikjum sínum í úrvalsdeildinni en Everton búið að vinna báða. Joleon Lescott, Leon Osman og Alan Stubbs skoruðu fyrir Everton en Ricardo Gardner skoraði mark Tottenham. Enski boltinn 14. ágúst 2007 18:54
Sammy Lee biður um þolinmæði Sammy Lee, knattspyrnustjóri Bolton, biður stuðningsmenn félagsins að sýna sér þolinmæði á meðan hann er að byggja upp liðið. Lee hefur fengið tólf nýja leikmenn til liðsins í sumar og segir hann að nýju leikmennirnir séu enn að aðlagast. Bolton tapaði fyrir Newcastle í fyrstu umferð úrvalsdeildarinnar á laugardaginn. Enski boltinn 14. ágúst 2007 18:04
Spáð í spilin: Tottenham - Everton Tottenham og Everton mætast klukkan 19:00 í kvöld í fyrsta leik annarar umferðar ensku úrvalsdeildarinnar. Leikurinn fer fram á heimavelli Tottenham, White Hart Lane og verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn 2. Everton mæta til leiks með þrjú stig í pokanum eftir 2-1 sigur á Wigan um helgina. Þeir verða hins vegar án nokkurra leikmanna vegna meiðsla. Þeirra á meðal er bakvörðurinn Leighton Baines, sem á enn eftir að þreyta frumraun sína fyrir Everton. Enski boltinn 14. ágúst 2007 15:39
Vísir velur úrvalslið U21 leikmanna Smelltu á myndaalbúmið og sjáðu hvaða leikmenn Vísir valdi í draumalið U21 leikmanna í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 14. ágúst 2007 14:53
Vísir velur úrvalslið U21 leikmanna Vísir hefur valið ellefu af efinlegustu leikmönnum ensku deildarinnar í úrvalslið. Kíktu á liðið okkar og láttu okkur vita hvað þér finnst. Enski boltinn 14. ágúst 2007 14:25
Video: Leikmenn Blackburn takast á á dansgólfinu Þeir David Bentley og David Dunn eru ekki bara góðir knattspyrnumenn. Þeir eru líka hörkudansarar. Þetta sýndu kapparnir nýlega á næturklúbbi í Preston þegar leikmenn Blackburn kíktu saman út á lífið. Plötusnúður staðarins hreifst svo mjög af danshæfileikum félaganna að hann skoraði á þá að mæta hvor öðrum í danskeppni. Enski boltinn 14. ágúst 2007 13:15
Benitez róar reiðan Crouch Rafael Benitez segir að hann hafi þurft að tala við Peter Crouch vegna óánægju hans yfir því að hafa ekki verið valinn í hóp liðsisn sem mætti Aston Villa. Benitez, sem löngum hefur verið þekktur fyrir að stilla sjaldan upp sama liði tvisvar segist eiga úr "of mörgum leikmönnum" að velja. Enski boltinn 14. ágúst 2007 12:37
Southampton selur og selur til að fara ekki á hausinn George Burley, framkvæmdastjóri hins fornfræga félags Southampton, segist hafa verið tilneyddur til að selja alla sína bestu leikmenn til að forða því að klúbburinn yrði tekinn til gjaldþrotaskipta. Enski boltinn 14. ágúst 2007 11:48
Meiðsli Rooney skónum að kenna? Nú á sér stað mikil umræða í Englandi um hvort fjölgun meiðsla á borð við þau sem Wayne Rooney hlaut um helgina megi rekja til nýrrar gerðar af skóm sem íþróttavöruframleiðendur hafa sent frá sér undanfarið. Nýju skórnir eru svo léttir og þunnir að þeir veita ekki lengur þá vernd sem skór gerðu á árum áður. Enski boltinn 14. ágúst 2007 10:34
Gallas: Við sýndum öllum að við getum barist á toppnum í vetur William Gallas, fyrirliði Arsenal, segir að liðið hafi sýnt það í leiknum gegn Fulham um helgina að liðið sé tilbúið til að vera í toppbaráttunni í vetur. Arsenal gátu þó varla byrjað tímabilið verr því að David Healy skoraði strax fyrir Fulham í upphafi leiks eftir slæm mistök hjá markverðinum Jens Lehmann. Mörk frá Robin van Persie og Alexander Hleb seint í leiknum tryggðu Arsenal 2-1 sigur. Enski boltinn 13. ágúst 2007 17:32
Óttast um heilsu Wenger Nánustu samstarfsmenn Arsene Wenger eru farnir að óttast það að hið gríðarlega álag sem þjálfarinn er undir sé farið að taka sinn toll. Álagið mun hafa aukist mikið eftir að nánasti samstarfsmaður hans hjá Arsenal, David Dein, lét af störfum fyrir skömmu. Enski boltinn 13. ágúst 2007 16:04
Bolton kaupir O´Brien Bolton hefur fest kaup á varnarmanninum sterka, Andy O´Brien, frá Portsmouth. Kaupverðið er ekki gefið upp en leikmaðurinn hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Sammy Lee, framkvæmdastjóri Bolton, hefur því fengið tólf leikmenn til liðsins síðan hann tók við stjórnartaumunum undir lok síðasta leiktímabils. Enski boltinn 13. ágúst 2007 15:01
Kevin Davies meiddur næstu sex vikurnar Framherjinn Kevin Davies hjá Bolton verður frá vegna meiðsla í allt að sex vikur eftir að hafa meiðst í leik gegn Newcastle um helgina. Davies þurfti að yfirgefa völlinn á 57. mínútu en Heiðar Helguson kom inn á í hans stað og krækti sér í gult spjald. Meiðsli Davies eru mikið áfall fyrir Bolton en búist er við að þau opni leið fyrir Heiðar inn í byrjunarliðið. Enski boltinn 13. ágúst 2007 14:50
5 nýir sem slógu í gegn Nú þegar fyrsta umferðin í Enska boltanum er að baki er lag að líta við og skoða fimm leikmenn sem stimpluðu sig inn í deildina með stæl. Enski boltinn 13. ágúst 2007 13:50
Rooney frá í tvo mánuði Nýjusu tíðindi af meiðslun Wayne Rooney herma að hann verði frá í tvo mánuði. Rooney brákaði ristarbein í gær eftir samstuð við Michael Duberry, leikmann Reading. Þetta þýðir að Carlos Tevez mun að öllum líkindum byrja um næstu helgi þegar United spilar við erkióvini sína í Manchester City. Enski boltinn 13. ágúst 2007 12:26
Myndaveisla úr Enska boltanum Enski boltinn fór af stað með látum um helgina. Hér eru nokkrar myndir sem klófestu stemninguna í opnunarumferðinni. Enski boltinn 13. ágúst 2007 11:43
Scmeichel ekki í áætlunum Sven Goran Sven Goran Erikson, knattspyrnustjóri Manchester City, segir að liðið verði að kaupa markmann til þess að leysa hinn meidda Andreas Isakson af hólmi. Isakson er fingurbrotinn og Kasper Schmeichel, sonur Peter Schmeichel sem stóð í marki Manchester United í mörg ár, leysti hann af hólmi um helgina. Enski boltinn 13. ágúst 2007 10:36
Gestum Allardyce úthýst á Reebok vellinum Eiginkona og sonur Sam Allardyce voru á meðal nokkurra gesta hans sem var meinaður aðgangur að forstjóraboxi Reebok vallarins þegar Bolton tók á móti Newcastle, hinu nýja liði Allardyce um helgina. Enski boltinn 13. ágúst 2007 09:42
Terry að verða klár í slaginn Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, er vongóður um að fyrirliði sinn John Terry verði fyrr klár í slaginn en reiknað var með en Terry er að jafna sig eftir að hafa tábrotnað í æfingaferð Chelsea í Bandaríkjunum í síðasta mánuði. Mourinho bindur vonir við að Terry verði klár í stórleikinn gegn Liverpool 19. ágúst næstkomandi. Enski boltinn 13. ágúst 2007 00:01
Sjáðu mörkin í ensku úrvalsdeildinni á Vísi Nú gefst lesendum Vísis kost á því að sjá öll mörkin í ensku úrvalsdeildinni hér á vefnum. Þessi þjónusta kostar ekki neitt og verður aðgengileg á hverju sunnudagskvöldi þegar umferð er um helgi og á miðnætti á leikdag þegar leikið er á virkum dögum. Enski boltinn 13. ágúst 2007 00:00
Martins er maður 1. umferðar í Englandi Nígeríski framherjinn Obafemi Martins, sem leikur með Newcastle, er leikmaður 1. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar að mati Vísis. Martins fór á kostum þegar Newcastle bar sigurorð af Bolton, 3-1, og skoraði tvö mörk. Fyrra markið var sérstaklega glæsilegt, bakfallsspyrna úr miðjum teig sem Jussi Jaaskalainen, markvörður Bolton, átti ekki möguleika að verja. Enski boltinn 12. ágúst 2007 23:02
Rooney með sprungu í beini Wayne Rooney, framherji Manchester United og enska landsliðsins, er með sprungu í beini á vinstri fæti og verður væntanlega frá í nokkrar vikur. Hann lenti í samstuði við Michael Duberry, varnarmann Reading, undur lok fyrri hálfleiks í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag og varð að fara af velli fljótlega eftir það. Enski boltinn 12. ágúst 2007 19:04
Markalaust jafntefli á Old Trafford Englandsmeistararnir í Manchester United náðu ekki að innbyrða sigur í fyrsta leik sínum á nýju tímabili. Reading, einum manni færri eftir að Paul Kitson var vísaði af velli á 71. mínútu, pökkuðu í vörn og ætluðu sér aldre annað en jafntefli í leiknum. Íslendingarnir Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson stóðu sig mjög vel í leiknum. Enski boltinn 12. ágúst 2007 14:58
Eggert ekki búinn að gera tilboð í Eið Smára Eggert Magnússon stjórnarformaður West Ham segir rangt að félagið sé búið að gera tilboð í Eið Smára Guðjohnsen. Eggert staðfesti þó í viðtali við Sýn tvö að félagið sé á höttunum eftir Eiði. Arnar Björnsson hitti Eggert á Upton Park í gær. Enski boltinn 12. ágúst 2007 13:21
Arsenal innbyrði sigur á síðustu mínútunum Nú rétt í þessu var að ljúka leik Arsenal og Fulham og Emirates vellinum í Norður-London. Arsenal sigraði 2-1 með tveimur mörkum á síðustu sex mínútum leiksins. Áður hafði David Healy komið Fulham yfir eftir slæm mistök Jen Lehman í marki Arsenal. Mörk Arsenal skoruðu Robin Van Persie úr vítaspyrnu á 83. mínútu og Aleksander Hleb á 89. mínútu Enski boltinn 12. ágúst 2007 12:43
Chelsea vann Birmingham naumlega Chelsea vann nú rétt í þessu nauman sigur á nýliðum Birmingham. Forsell kom Birmingham yfir áður en Malouda og Pizzaro svöruðu fyrir Chelsea. Kapo jafnaði þá fyrir Birmingham áður en Essien tryggði sínum mönnum sigur með góðu marki á 49. mínútu. Lokatölur 3-2 Enski boltinn 12. ágúst 2007 12:06
Stjórarnir um úrslit dagsins: Sjáðu hvað knattspyrnustjórnarnir hafa að segja um leiki dagsins. Jol, Moyes, Redknapp, Sven og Sammy Lee á Vísi. Smelltu á meira hér fyrir neðan og fáðu að vita hvað gekk upp og hvað fór úrskeiðis í leikjum dagsins. Enski boltinn 11. ágúst 2007 18:21
Gerrard tryggði Liverpool sigur Litlu munaði að Liverpool tapaði tveimur stigum á Villa Park í dag eftir að Gareth Barry breytti stöðu leiksins í 1-1 skömmu fyrir leikslok. Það hefðu orðið afar ósanngjörn úrslit þar sem Liverpool stjórnaði leiknum lengst af og var mun betra liðið. Aðdáendur þeirra önduðu þó léttar skömmu síðar þegar Steven Gerrard tryggði sínum mönnum sigur með stórkostlegu skoti beint úr aukaspyrnu. Lokatölur því 2-1. Liverpool leiðir í hálfleik með einu marki gegn engu í leik sinum við Aston Villa sem nú fer fram fer á Villa Park í Birmingham. Það var Daninn Martin Laursen sem var svo óheppinn að koma Liverpool yfir með sjálfsmarki á 31. mínútu. Markið kom eftir fyrirgjöf frá Dirk Kuyt en skömmu áður hafi Fernando Torres látið verja frá sér í dauðafæri. Enski boltinn 11. ágúst 2007 17:04
Úrslit dagsins í Enska Manchester City vann góðan 2-0 sigur á West Ham rétt í þessu. Rolando Bianchi kom Man City yfir eftir 17. mínútna leik. Markið kom eftir frábæran einleik hjá Elano Gomer sem sendi hann svo fyrir markið á Bianchi sem potaði honum inn af stuttu færi. Bæði Gomer og Bianchi eru að leika sinn fyrsta leik fyrir Man City. West Ham reyndu hvað þeir gátu að jafna en City sló smiðshöggið á leikinn þegar Geovanni skoraði gott mark tveim mínútum fyrir leikslok. Enski boltinn 11. ágúst 2007 14:23
Hermann í byrjunarliðinu - Heiðar á bekknum Hermann Hreiðarsson er í byrjunarliði Portsmouth sem nú leikur á móti Derby County. Það blæs ekki byrlega fyrir Hermann og félaga því Matt Oakley kom Derby yfir eftir fimm mínútna leik. Heiðar Helguson situr á bekknum hjá Bolton sem leikur nú gegn Newcastle. Enski boltinn 11. ágúst 2007 14:13