Verðið á Adebayor hefur lækkað Arsenal hefur lækkað verðmiðann á sóknarmanninum Emmanuel Adebayor. Þetta segir umboðsmaður sem starfar fyrir AC Milan en hann segir að enska félagið hafi nánast helmingað þá upphæð sem fyrst var sett á leikmanninn. Enski boltinn 12. júlí 2008 13:48
Brad Guzan í markið hjá Villa Aston Villa hefur komist að samkomulagi við bandaríska félagið Chivas USA um kaupverðið á markverðinum Brad Guzan. Upphæðin er talin nema tveimur milljónum punda. Enski boltinn 12. júlí 2008 13:33
Pele segir Ronaldo að standa við samninginn Pele hefur stigið fram og hvetur hann Cristiano Ronaldo til að gleyma Real Madrid og standa við gerðan samning við Manchester United. Enski boltinn 12. júlí 2008 13:26
Roy Keane tæklaður hressilega á æfingum Craig Gordon, markvörður Sunderland, segir að leikmenn liðsins njóti þess að fá tækifæri til að tækla stjóra sinn Roy Keane þegar hann spilar með á æfingum. Enski boltinn 11. júlí 2008 20:32
Erfitt að velja milli United og Real Væntanlega er enginn leikmaður í heiminum betur til þess búinn að meta stöðu Cristiano Ronaldo en David Beckham. Hann segist skilja að Portúgalinn standi frammi fyrir gríðarlega erfiðri ákvörðun. Enski boltinn 11. júlí 2008 20:18
Queiroz tekur við portúgalska landsliðinu Carlos Queiroz, aðstoðarstjóri Manchester United, var í dag ráðinn landsliðsþjálfari Portúgal í knattspyrnu. Queiroz hefur skrifað undir fjögurra ára samning þess efnis, en hann stýrði liðinu til skamms tíma á síðasta áratug. Enski boltinn 11. júlí 2008 17:33
Danny Guthrie til Newcastle Newcastle hefur komist að samkomulagi við Liverpool um kaup á Danny Guthrie. Þessi 21. árs leikmaður var lánaður til Bolton síðasta tímabil og á aðeins eftir að ná samkomulagi við Newcastle um kaup og kjör. Enski boltinn 11. júlí 2008 16:30
Mendy kominn til Hull Hull hefur fengið franska varnarmanninn Bernard Mendy á frjálsri sölu. Mendy er 26 ára og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hull sem er komið upp í ensku úrvalsdeildina. Enski boltinn 11. júlí 2008 16:00
Sunderland á eftir Dorin Goian Sunderland hefur áhuga á varnarmanninum Dorin Goian sem vakti athygli með Rúmeníu á Evrópumótinu í sumar. Goian leikur með Steaua Búkarest en er ofarlega á óskalista Roy Keane. Enski boltinn 11. júlí 2008 13:45
Portsmouth búið að ganga frá kaupum á Crouch Peter Crouch er formlega orðinn leikmaður Portsmouth en hann var kynntur á blaðamannafundi sem nú stendur yfir. Portsmouth er talið hafa borgað Liverpool 11 milljónir punda fyrir leikmanninn. Enski boltinn 11. júlí 2008 12:38
Liverpool fær markvörð Brasilíski markvörðurinn Diego Cavalieri hefur skrifað undir fjögurra ára samning við Liverpool. Þessi 25 ára leikmaður kemur frá Palmeiras en kaupverðið er ekki gefið upp. Enski boltinn 11. júlí 2008 12:07
Nasri búinn að skrifa undir Arsenal hefur gengið frá kaupum á Samir Nasri, miðjumanni Marseille, en kaupverðið var ekki gefið upp. Þessi 21. árs leikmaður hefur skrifað undir langtímasamning við Arsenal. Enski boltinn 11. júlí 2008 10:15
Ronaldo frá í þrjá mánuði Cristiano Ronaldo segist verða frá keppni í allt að þrjá mánuði eftir uppskurð sem framkvæmdur var á ökkla hans. Fyrst var talið að hann yrði aðeins frá í helming þess tíma. Enski boltinn 11. júlí 2008 10:00
Fowler æfir með Blackburn Robbie Fowler ætlar að æfa með Blackburn Rovers á undirbúningstímabilinu en hann hefur hafnað nýjum samningi við Cardiff. Fowler er 33 ára en hann hefur ekkert spilað síðan í desember í fyrra. Enski boltinn 11. júlí 2008 09:37
Lampard vill koma til Inter Yfirmaður knattspyrnumála hjá Inter Milan á Ítalíu segir miðjumanninn Frank Lampard hjá Chelsea hafa áhuga á að fara til Ítalíu og spila undir fyrrum stjóra sínum Jose Mourinho. Enski boltinn 10. júlí 2008 21:41
Barton þarf að dúsa áfram í fangelsi Miðjumaðurinn Joey Barton hjá Newcastle þarf að sitja í fangelsi í allt að einn mánuð í viðbót. Leikmaðurinn, sem situr í fangelsi vegna ofbeldisbrota, hafði gert sér vonir um að fá sig lausan mánuði fyrr en ætlað var gegn því að ganga með eftirlitsbúnað. Enski boltinn 10. júlí 2008 19:59
Liverpool vill Keane en Villa er úr myndinni Rafa Benítez ætlar að reyna að fá sóknarmanninn Robbie Keane til Liverpool í sumar. Hinsvegar hefur hann gefist upp á að fá hinn spænska David Villa. Enski boltinn 10. júlí 2008 15:30
Garcia á leið til Tottenham Samkvæmt enskum fjölmiðlum hefur Tottenham komist að samkomulagi um kaup á Luis Garcia frá Espanyol. Enska liðið hefur unnið samkeppni við Benfica um þennan spænska leikmann. Enski boltinn 10. júlí 2008 10:21
Blatter: Leyfið Ronaldo að fara Sepp Blatter, forseti FIFA, er mótfallinn því að Manchester United haldi Cristiano Ronaldo gegn hans vilja. Spænska stórliðið Real Madrid vill fá Ronaldo sem hefur látið hafa eftir sér að draumur hans sé að leika með liðinu. Enski boltinn 10. júlí 2008 09:55
Boateng hefur náð samkomulagi við Hull Nýliðar Hull City í ensku úrvalsdeildinni eru að ganga frá kaupum á miðjumanninum George Boateng frá Middlesbrough. Þessi 32 ára leikmaður hefur samþykkt tveggja ára samning. Enski boltinn 10. júlí 2008 09:36
Ayesteran að taka við af Queiroz? Breska blaðið Daily Mail greinir frá því í dag að Pako Ayesteran komi til greina sem eftirmaður Carlos Queiroz hjá Manchester United. Blaðið segir Queiroz fyrsta manninn á lista portúgalska knattspyrnusambandsin til að taka við landsliðinu af Phil Scolari. Enski boltinn 9. júlí 2008 21:15
Fulham í viðræðum við Zamora og Pantsil Fulham hefur fengið leyfi hjá West Ham til að ræða við þá Bobby Zamora og John Pantsil með það fyrir augum að fá þá í sínar raðir. West Ham-mennirnir tveir eru sagðir helstu skotmörk Roy Hodgson, stjóra Fulham, á leikmannamarkaðnum í sumar. Enski boltinn 9. júlí 2008 20:10
Sambandið skorti kjark til að ráða mig Luiz Felipe Scolari hefur upplýst að hann hafi verið tilbúinn að taka við enska landsliðinu eftir að hafa átt fund með forráðamönnum enska knattspyrnusambandsins fyrir tveimur árum síðan. Enski boltinn 9. júlí 2008 19:30
Umboðsmaður Rooney dæmdur í bann Umboðsmaður knattspyrnumannsins Wayne Rooney var í dag dæmdur í 18 mánaða bann og gert að greiða 300,000 punda sekt fyrir ólöglegt athæfi. Það var enska knattspyrnusambandið sem kærði umboðsmanninn, en hann ætlar að áfrýja niðurstöðunni. Enski boltinn 9. júlí 2008 17:42
Vilja frekar missa Lampard fyrir ekkert Chelsea er alveg ákveðið í að halda Frank Lampard og vilja frekar missa hann á frjálsri sölu á næsta ári en selja hann til Inter núna. Frá þessu greina enskir fjölmiðlar í dag. Enski boltinn 9. júlí 2008 16:45
Hleb bráðum kynntur sem leikmaður Barcelona Barcelona mun á komandi dögum tilkynna um kaup á miðjumanninum Alexander Hleb frá Arsenal. Frá þessu er greint á vefsíðu Sky. Enski boltinn 9. júlí 2008 14:14
Villa og Chelsea semja um Sidwell Steve Sidwell er á leið til Aston Villa frá Chelsea fyrir fimm milljónir punda. Sidwell á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun svo hægt verði að ganga frá sölunni. Enski boltinn 9. júlí 2008 12:30
Þjálfunin kitlar Arnar og Bjarka Bjarki Gunnlaugsson sagði við Stöð 2 að hann og Arnar bróðir hans hafi sofið á tilboði HK-inga í nótt. Kópavogsliðið reyndi að fá tvíburana til að taka við þjálfun liðsins en þeir ákváðu á endanum að halda áfram að spila með FH. Íslenski boltinn 9. júlí 2008 12:28
Phillips til Birmingham Birmingham hefur fengið sóknarmanninn Kevin Phillips á frjálsri sölu frá West Bromwich Albion. Phillips er 34 ára og fékk boð um nýjan samning hjá WBA sem hann hafnaði. Enski boltinn 9. júlí 2008 10:59
Benítez vill fá David Villa Rafa Benítez viðurkennir að David Villa sé á óskalista sínum nú þegar Peter Crouch er á förum til Portsmouth. Villa skoraði fjögur mörk fyrir spænska landsliðið á Evrópumótinu. Enski boltinn 9. júlí 2008 10:13
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn