
Berdreymi verðlaunuð á Berlinale og verður sýnd í 44 löndum
Samtök evrópska kvikmyndahúsa, Europa Cinemas, hafa valið íslensku kvikmyndina Berdreymi sem bestu evrópsku kvikmyndina í Panorama flokki kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.
Samtök evrópska kvikmyndahúsa, Europa Cinemas, hafa valið íslensku kvikmyndina Berdreymi sem bestu evrópsku kvikmyndina í Panorama flokki kvikmyndahátíðarinnar í Berlín.
Ráðherrarnir Bjarni Benediktsson, Svandís Svavarsdóttir og Willum Þór Þórsson eru sammála um að Verbúðin hafi verið góð skemmtun og að frjálst framsal aflaheimilda hafi verið skiljanlegt og jafnvel farsælt skref á sínum tíma.
Söngkonan og aktivistinn Sólborg Guðbrandsdóttir er með mörg járn í eldinum þessa dagana. Ásamt því að taka þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í ár er Sólborg að fara af stað með þættina Fávitar á Stöð 2+ efnisveitunni í dag.
Ísland er skráð sem tökustaður í níu af tíu þáttum House of the Dragon-þáttanna sem gerast í söguheimi Game of Thrones. Það er samkvæmt vef IMDB en mikil leynd hvílir yfir tökum þáttanna.
Áttundi og síðasti þáttur Verbúðarinnar var sýndur á RÚV í gær eins og fór eflaust ekki framhjá neinum. Leikarar og aðstandendur hittust á Ölveri í gærkvöldi.
Amazon Studios birtu í gær fyrstu stiklu nýrra þátta sem gerast í söguheimi Hringadróttinssögu. Þættirnir Rings of Power gerast þúsundum ára á undan sögunni um Frodo, Sam, Aragorn og félaga.
Áttundi og jafnframt síðasti þáttur Verbúðarinnar var sýndur á RÚV í kvöld en þættirnir hafa notið gríðarlegra vinsælda. Netverjar kepptust við að koma sínum vangaveltum á framfæri eftir þáttinn en allir virðast hafa verið límdir við skjáinn.
Leikarar í Svörtu söndum, þáttum sem sýndir eru á Stöð 2, segja það mikinn heiður að hafa fengið inngöngu á hina virtu kvikmyndahátíð Berlinale í Þýskalandi sem fer fram í kvöld. Sjónvarpsþættirnir verða þá heimsfrumsýndir en í umsögn dómnefndar er þáttunum hrósað í hástert, meðal annars fyrir karaktersköpun, myndatöku og einstakt umhverfi á Íslandi.
Messuvínið var á árum áður torkennilegur ruddi, samansull misgóðra vína en nú er öldin önnur. Nú er það Roter Traubensaft sem er hið vígða vín sem notuð er við sakramenti.
Íslenski leikstjórinn Davíð Óskar Ólafsson er annar tveggja leikstjóra dönsk-færeysku glæpaseríunnar TROM. Þættirnir voru teknir upp í Færeyjum og fóru tökur fram á síðasta ári.
Lífið frumsýnir í dag stikluna fyrir kvikmyndina Berdreymi eftir leikstjórann Guðmund Arnar Guðmundsson.
Fyrsta stikla Amazon-þáttanna Lord of the Rings: The Rings of Power verður sýnd í hálfleik á Super-bowl um helgina en upphitunin fyrir það er þegar hafin. Vanity Fair birti í dag myndir af nokkrum af aðalpersónum þáttanna og sagði frá hluta þess sem þættirnir eiga að fjalla um.
Tökur eru hafnar á nýrri mynd leikstjórans Hafsteins Gunnars Sigurðssonar sem er að gera sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd á ensku. Hafsteinn er meðal annars þekktur fyrir myndirnar Undir trénu og París norðursins.
Tíu ár eru síðan hugmyndin að þáttaröðinni Verbúðinni kviknaði. Hjónin Nína Dögg Filippusdóttir og Gísli Örn Garðarsson segjast ánægð með útkomuna þrátt fyrir að handritið hafi tekið umskiptum nokkrum sinnum í ferlinu og áskoranirnar hafi verið nokkrar.
Íslenska kvikmyndin Dýrið í leikstjórn Valdimars Jóhannssonar hlaut ekki Óskarstilnefningu í flokki erlendra mynda.
Í dag verða tilnefningar til Óskarsins árið 2022 kynntar í beinni útsendingu á YouTube-síðu Óskarsverðlaunanna. Í ár eru það Tracee Ellis Ross og Leslie Jordan sem afhjúpa hverjir eiga möguleika á því að vinna verðlaunin þetta árið.
Fyrrverandi stjórnandi hjá BBC, ITV og Channel 4 í Bretlandi hefur ekki trú á því að framtíð áströlsku sápuóperunnar Nágranna sé í hættu.
Í gær var tilkynnt hvaða myndir eru tilnefndar til Razzie-verðlaunanna í ár. Á hátíðinni er kastljósinu beint að því versta í kvikmyndum. Verðlaunin eru afhent degi á undan Óskarnum, þar sem það besta fær alla athyglina.
Óvíst er hvort að framleiðslu áströlsku sápuóperunnar vinsælu Nágranna verði haldið áfram. Sjónvarpsstöðin sem borgar brúsann fyrir framleiðslu þáttanna hefur ákveðið að skrúfa fyrir kranann.
Kvikmyndin Allra síðasta veiðiferðin verður frumsýnd þann 18. mars næstkomandi. Myndin er sjálfstætt framhald Síðustu veiðiferðarinnar en við frumsýnum hér fyrsta sýnishornið úr myndinni.
Könnun Maskínu leiðir í ljós að Áramótaskaup Ríkisútvarpsins að þessu sinni þótti ekki sérstaklega gott.
„Manni finnst eins og það sé svolítið fullorðins að vinna þessi verðlaun.“
Sjónvarpsþættirnir Verbúðin hlutu rétt í þessu Norrænu sjónvarpshandritaverðlaunin á Kvikmyndahátíðinni í Gautaborg í Svíþjóð, Göteborg Film Festival. Rakel Garðarsdóttir deilir þessum gleðifréttum á samfélagsmiðlum.
Sprettfiskur er stuttmyndasamkeppni Stockfish kvikmyndahátíðarinnar þar sem markmiðið er að vekja athygli á upprennandi íslensku kvikmyndagerðarfólki.
Leikaranum Peter Dinklage finnst það taktlaust af Disney að vera að búa til mynd um sjö dverga sem búa í helli og opnaði hann sig um málið. Umræðan átti sér stað í viðtali hjá Marc Maron´s WTF hlaðvarpinu.
Forsvarsmenn leikjaútgefandans Electronic Arts tilkynnti í dag að leikjaframleiðendur á þeirra vegum ynnu að gerð þriggja nýrra tölvuleikja úr söguheimi Star Wars. Einn þeirra er framhald hins vinsæla Star Wars Jedi: Fallen Order.
Fight Club, kvikmyndin víðfræga frá 1999, hefur tekið breytingum í Kína. Hin klassíska mynd David Fincher með þeim Edward Norton og Brad Pitt í aðalhlutverkum, birtist nýlega á streymisveitunni Tencent Video í Kína með mikið breyttum endi.
Bubbi Morthens kveðst muna eftir nánast öllum þeim skiptum sem hann kom fram í þáttum Hemma Gunn. „Það er ástæða fyrir því að ég var alltaf með kolsvört Ray-Ban gleraugu í öllum Hemma Gumm þáttunum, það var bara vegna þess að ég var út úr stónd,“ segir hann.
Eins og þjóðin komst að í gærkvöldi sprakk allt í loft upp í Verbúðinni. Handalögmál milli tveggja aðalpersóna í þætti sjálfs Hemma Gunn – hið persónulega drama þáttanna er að nálgast hápunkt sinn í 5. þætti af átta. Eins og vera ber ef horft er til byggingar í leikverkum Grikkjanna; ris, hvörf og kennsl – Kaþarsis.
Aníta Briem, sem hingað til hefur verið þekkt fyrir leik sinn, hefur lokið skrifum á sjónvarpsþáttaröðinni Svo lengi við lifum. Þáttaröðin er framleidd af Glassriver í samstarfi við Stöð 2. Hún segir þáttaröðina vera óð sinn til ástarinnar.