

Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.
Með nýsamþykktum lögum Alþingis um tekjuskatt og staðgreiðslu opinberra gjalda lækkar tekjuskattur í tveimur áföngum, annars vegar þann 1. janúar 2020 og hins vegar þann 1. janúar 2021.
Óskað hefur verið eftir því að starfslokasamningur Haraldar Johannessen verði tekinn fyrir í fjárlaganefnd Alþingis. Ríkislögreglustjóri fær greiddar 47 milljónir króna eftir starflok.
Alvarlegar athugasemdir voru gerðar við starfslokasamning dómsmálaráðherra við ríkislögreglustjóra í fyrirspurnartíma á Alþingi í dag.
Frumvarp Katrínar Jakobsdóttur forsætisráðherra um heimild til að greiða bætur vegna Guðmundar- og Geirfinnsmála var samþykkt á Alþingi í dag með 41 atkvæði gegn níu.
Miðhálendisþjóðgarður á Íslandi gæti orðið sá stærsti í Evrópu nái fyrirliggjandi tillögur fram að ganga. Umhverfisráðherra lítur svo á að stofnun miðhálendisþjóðgarðs gæti orðið stærsta framlag fyrr og síðar til náttúruverndar á Íslandi.
Páll Magnússon, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og formaður allsherjar- og menntamálanefndar og fyrrverandi útvarpsstjóri, fór hörðum orðum um stjórn RÚV í ræðu sinni á Alþingi í dag.
Alþingi hefur samþykkt lög um breytingar á skattkerfinu sem þýðir að þriggja þrepa skattkerfi tekur gildi um áramótin.
Nafnlausar spillingarsögur, sem Píratar hafa safnað undanfarinn hálfan mánuð, verða kynntar á málfundi flokksins í Iðnó á fimmtudag.
Stór þáttur í jafnréttisbaráttu og kvenfrelsi hefur verið aukið fæðingarorlof og jafn réttur kynjanna til þess að vera með barni sínu þennan dýrmæta tíma í lífi foreldris og barns.
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra, telur að bæði líkhús og bálfarir gætu verið í höndum einkaaðila. Slíkur rekstur þurfi ekki endilega að vera innan kirkjugarðanna sjálfra.
Sjálfstæðisflokkurinn ætlar ekki að standa í vegi fyrir því að fjölmiðlafrumvarp mennta- og menningarmálaráðherra verði tekið til þinglegrar meðferðar. Nokkur fjöldi þingmanna flokksins gerir þó ákveðna fyrirvara við frumvarpið.
Mennta- og menningarmálaráðherra hefur sent stjórn Ríkisútvarpsins bréf þar sem hún óskar eftir skýringum á því hvers vegna listi yfir umsækjendur útvarpsstjóra verður ekki birtur.
Það veltur á þingflokki Sjálfstæðisflokksins hvort fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, nái fram að ganga fyrir jól eða hvort hætt verður við löggjöfina að svo stöddu.
Hverfandi líkur eru á því að Ísland komist af gráum lista FATF í febrúar líkt og vonast hefur verið til að sögn formanns stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar.
Dómsmálaráðherra segist treysta fólki til að velja sér nöfn eða á börn sín og boðar fullt frelsi í þeim málum. Samfélagið eigi ekki að takmarka það frelsi.
Katrín Jakobsdóttir fór yfir brotthvarf Andrésar Inga Jónssonar úr þingflokki VG, Samherjamálið og frumvarp um vernd uppljóstrara í Víglínunni í dag.
Þingmenn mættust í Sprengisandi á Bylgjunni í dag til að ræða Samherjamálið.
Óþarflega strangt en vissulega jákvætt segir fulltrúi Samtaka atvinnulífsins.
Mjög strangar reglur gilda um slíka dreifingu í dag. Verði frumvarpið að lögum yrði að virða óskir hins látna.
Nefndarmaður í mannanafnanefnd segist ekki skilja tilganginn með því að leggja niður mannanafnanefnd þegar áherslur stjórnvalda eru að viðhalda og rækta íslenska tungu. Það skjóti skökku við að nöfn megi vera undanskilin íslenskri stafsetningu en ekki önnur orð í tungumálinu.
Lög um mannanöfn verða rýmkuð „eins og mögulegt er“ með væntanlegu frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á mannanafnalögum.
Félagsmálaráðuneytið mun ekki gera breytingar á frumvarpi um breytta tilhögun fæðingarorlofs.
Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir að jarðgöng á milli Skagafjarðar og Eyjafjarðar myndu stórefla atvinnusvæðið á Norðurlandi. Ráðherra gerir fastlega ráð fyrir að göngin verði einn af þeim möguleikum sem skoðaðir verða.
Innan við helmingur boðaðra þingmála ríkisstjórnarinnar á haustþingi hefur verið lagður fram á Alþingi. Forsætisráðherra segir þingmálaskrána hafa verið metnaðarfulla en ráðherrar verið seinir í gang. Frestur til að leggja fram þingmál rennur út á morgun.
Öldrunarfordómar eru rótgrónir víða í samfélaginu og því þarf að breyta. Þetta segir þingmaður Vinstri grænna sem hyggst leggja fram þingsályktunartillögu að unnin verði aðgerðaáætlun gegn öldrunarfordómum.
Þingflokksformaður Vinstri grænna vill kanna möguleika á að skattleggja jarðir og gæði þeirra í stað fasteigna til að sporna á móti því að auðmenn safni undir sig fjölda jarða þar sem ekki sé stundaður búskapur. Samgönguráðherra segir þetta kalla á miklar breytingar.
Svo virðist sem Ríkisútvarpið vilji fara á svig við lög með pukri sínu um hverjir sækja um stöðu útvarpsstjóra.
Forsætisráðherra telur nauðsynlegt að samkomulag náist á Alþingi um að koma auðlindaákvæði inn í stjórnarskrá og telur að það ákvæði sem nú er í samráðsgátt stjórnvalda sé fullnægjandi. Þingmenn Viðreisnar og Samfylkingar telja ákvæðið hins vegar ekki nógu afgerandi.
Fjölmiðlafrumvarp Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra hefur verið afgreitt úr ríkisstjórn og var kynnt þingflokkum stjórnarflokkanna í gær.
Muna þingmenn Vinstri Grænna þessi orð sem Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins lét falla um íslenska stjórnmálamenn fyrir nokkrum árum?