Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnur Líf framkvæmdastjóri á nýju sviði hjá Samkaupum Gunnur Líf Gunnarsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri verslunar- og mannauðssviðs Samkaupa. Hún tekur við stöðunni um næstu mánaðamót og um jafnframt gegna hlutverki staðgengils forstjóra. 17.3.2023 12:00
Gina Tricot opnar á Íslandi í dag Sænska tískufatakeðjan Gina Tricot opnar í dag nýja netverslun á Íslandi, ginatricot.is. 17.3.2023 11:33
Lindarhvoll og ríkið sýknað af kröfum Frigusar Héraðsdómur Reyjavíkur hefur sýknað Lindarhvol og ríkið af kröfum Frigusar II ehf. Dómur féll í málinu nú fyrir stundu. Málskostnaður fellur niður. 17.3.2023 11:04
Sena og Concept Events sameinast Fyrirtækin Sena og Concept Events hafa gengið frá samkomulagi um kaup þess fyrrnefnda á því síðarnefnda. Við þetta munu fyrirtækin sameinast og bætast núverandi eigendur Concept Events í hluthafa- og stjórnendahóp Senu. 16.3.2023 15:59
Jón Ólafur hafði betur gegn Auði í formannskjöri hjá SVÞ Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Marga, var endurkjörinn formaður Samtaka verslunar og þjónustu til tveggja ára í morgun þegar aðalfundur samtakanna fór fram. Jón Ólafur hafði þar betur gegn Auði Daníelsdóttur, forstjóra Orkunnar, sem einnig bauð sig fram. Jón Ólafur hlaut 35.495 atkvæði eða tæplega 56 prósent atkvæða og Auður 27.696 atkvæði eða rúmlega 43 prósent atkvæða. 16.3.2023 12:55
Gera sömuleiðis ráð fyrir 75 punkta hækkun stýrivaxta Hagfræðideild Landsbankans gerir ráð fyrir að peningastefnunefnd Seðlabankans muni hækka stýrivexti um 75 punkta á miðvikudaginn þegar tilkynnt verður um næstu ákvörðun. Spáin rímar við spá Greiningar Íslandsbanka sem birt var í gær. 16.3.2023 12:41
Spá því að verðbólga hjaðni á milli mánaða Greiningardeildir Íslandsbanka og Landsbankans spá því að ársverðbólga hjaðni lítillega þegar næstu verðbólgutölur verða gefnar út. Sérfræðingar beggja deilda sjá fyrir sér að verðbólga lækki hægt næstu mánuði. 16.3.2023 12:39
Kaupmáttur rýrnaði um 1,7 prósent í fyrra Hagstofa Íslands áætlar að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila á mann hafi dregist saman um 1,7 prósent í fyrra borið saman við árið áður. Kaupmáttarrýrnunin var enn meiri á síðasta fjórðungi ársins. 16.3.2023 11:04
„Ef þú ætlar að nálgast þetta þannig, þá lendirðu örugglega í vandræðum“ Daði Kristjánsson hreifst af rafmyntum fyrir nokkrum árum, hætti svo í hefðbundna bankageiranum og rekur nú fyrsta íslenska rafmyntafjárfestingasjóðinn, Viska Digital, ásamt meðstofnendum og viðskiptafélögum. Hann segir rafmyntir langtímaverkefni, nýtt áhugavert hliðarkerfi, en ekki leið til skjótfengins gróða: „Þá lendirðu örugglega í vandræðum,“ segir hann. 16.3.2023 09:00
Bein útsending: Aðgerðir á vinnumarkaði í heimsfaraldri Norræn ráðstefna stendur nú yfir á Grand Hótel um það hvað Norðurlöndin geta lært af þeim aðgerðum sem þau gripu til á vinnumarkaði vegna heimsfaraldursins. Ráðstefnan hefst klukkan 9 og stendur til klukkan 16 og er haldin í tilefni af formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni. Hægt er að fylgjast með beinu streymi í spilara að neðan. 16.3.2023 08:55
Steindi, Auddi og Egill stofna hlutafélag Félagið Celsius dreifing ehf. var skráð á hlutafélagaskrá ríkisskattstjóra í gærdag en á meðal stofnenda eru fjölmiðlamennirnir góðkunnu Auðunn Blöndal, Egill Einarson og Steinþór Hróar Steindórsson, einnig þekktur sem Steindi Jr. 15.3.2023 15:42
Rúna Dögg nýr framkvæmdastjóri Kolofon Rúna Dögg Cortez er nýr framkvæmdastjóri hönnunarstofunnar Kolofon. Hún hefur starfað hjá stofunni síðan um sumarið 2021. Á þeim tíma hefur hún haldið utan um verkferla og umsjón viðskiptavina sem hönnunarstjóri stofunnar. Síðan í fyrra hefur hún einnig setið í framkvæmdastjórn stofunnar. 15.3.2023 15:06
Margir hafi efni á að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir Löggiltur fasteignasali segir að markaðurinn fyrir lúxus íbúðir sé tiltölulega nýr af nálinni hér á landi. Ofsalega margir hafi efni á því að kaupa dýrar og vandaðar íbúðir. 15.3.2023 14:18
Kristín Linda nýr stjórnarformaður Samorku Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunnar, var kjörin stjórnarformaður Samorku, samtaka orku- og veitufyrirtækja á aðalfundi samtakanna í dag. Hún tekur við starfinu af Berglindi Rán Ólafsdóttur, framkvæmdastýru Orku náttúrunnar. 15.3.2023 12:08
Heiða Kristín ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans Heiða Kristín Helgadóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Íslenska sjávarklasans. Hún hefur við starfinu í sumar en hún hefur undanfarin ár starfað sem framkvæmdastjóri Niceland Seafood auk þess að hafa komið að stofnun og rekstri hugbúnaðarfyrirtækja hérlendis og í Bandaríkjunum. 15.3.2023 11:58
Tvíburar ráðnir til BPO innheimtu BPO innheimta hefur ráðið til sín tvo nýja starfsmenn, tvíburabræðurna Guðmar og Hreim Guðlaugssyni. 15.3.2023 10:32
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu nefndarinnar Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna yfirlýsingu sína á fréttamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan. 15.3.2023 09:00
Lánar Landsneti um níu milljarða fyrir nýrri kynslóð byggðalína Evrópski fjárfestingarbankinn hefur lánað Landsneti 63,7 milljónir dollara, jafnvirði níu milljarða króna, fyrir nýrri kynslóð byggðalínu. 15.3.2023 08:57
Spá 75 punkta stýrivaxtahækkun Seðlabankans Greining Íslandsbanka spáir því að Seðlabankinn muni hækka stýrivexti um 75 punkta í næstu viku þannig að þeir fari úr 6,5 prósentum í 7,25 prósent. 15.3.2023 08:45
Telja fjármálakerfið hér standa traustum fótum Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur að innlent fjármálakerfi standi traustum fótum. Þó hafa fjármálaskilyrði heimila og fyrirtækja farið versnandi vegna mikillar verðbólgu og hærri vaxta. Útlit er fyrir að verðbólga verði þrálát. 15.3.2023 08:43
Íslenskt máltæknifyrirtæki í samstarfi við OpenAI um GPT-4 Íslenska máltæknifyrirtækið Miðeind hefur síðustu mánuði aðstoðað bandaríska gervigreindarfyrirtækið OpenAI við að þjálfa nýjustu kynslóð GPT líkansins. Þetta er í fyrsta sinn sem OpenAI gerir tilraunir með sérstaka þjálfun risamállíkans síns á öðru tungumáli en ensku, og þar varð íslenska fyrir valinu. 14.3.2023 18:05
Kröfur upp á 735 milljónir í þrotabú Hótel Sögu Skiptum er lokið í þrotabú Hótel Sögu ehf., rekstrarfélagsins sem Íslands rak Hótel Sögu í Bændahöllinni við Hagatorg um áratugaskeið. Lýstar kröfur voru tæpar 735 milljónir króna. 14.3.2023 16:45
Sveinbjörn nýr framkvæmdastjóri hjá Fossum Sveinbjörn Sveinbjörnsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri eignastýringar Fossa fjárfestingarbanka. 14.3.2023 14:18
Lokadagurinn til að skila skattframtali Einstaklingar hafa frest til miðnættis til að skila inn skattframtali sínu til Skattsins. Ekki verður hægt að sækja um frest til að skila framtali. 14.3.2023 13:50
Angeline ráðin yfirmaður markaðsmála hjá ECA Angeline Stuma hefur verið ráðin sem yfirmaður markaðsmála hjá sprotafyrirtækinu sports Coaching Academy (ECA). Félaginu er ætlað að styðja grasrótarstarf rafíþróttafélaga með hugbúnaði og lausnum sem auðveldi félögunum að halda uppi öflugu barnastarfi í rafíþróttum. 14.3.2023 09:57
Anna nýr framkvæmdastjóri Marel í Norður-Ameríku Anna Kristín Pálsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Marels í Norður-Ameríku. Hún er einnig framkvæmdastjóri nýsköpunar og þróunar hjá fyrirtækinu og mun gegna báðum störfum samhliða. 13.3.2023 19:58
Árni Jón og Þorvaldur Jón til Advania Árni Jón Eggertsson hefur verið ráðinn nýr tækni- og þjónustustjóri á rekstrarlausnasviði Advania og Þorvaldur Jón Henningsson deildarstjóri mun leiða einingu innan rekstrarlausna sem fer meðal annars fyrir vöruþróun, sjálfvirknivæðingu, þjónustuvöktun og ferlum. 13.3.2023 12:42
OK kaupir netöryggislausnir Cyren og stofnar Varist Upplýsingatæknifyrirtækið OK hefur fest kaup á vírusvarnarhugbúnaði alþjóðlega netöryggisfyrirtækisins Cyren Ltd. en félagið sótti nýverið um gjaldþrotaskipti í Ísrael. Kaupin eru gerð í gegnum nýtt félag, Varist ehf. 13.3.2023 11:06
Tæplega 98 þúsund bækur seldust 97.827 bækur seldust á Bókamarkaði Félags íslenskra bókaútgefenda á Laugardalsvelli í ár sem jafngildir því að um 26 prósent allra íbúa landsins hafi náð sér í bók eða ríflega fjórðungur landsmanna. 13.3.2023 08:10
„Árangur okkar þarf ekki að vera á kostnað Icelandair“ „Ég lít á þetta eins og verslun. Ég er ekki að fara að bjóða upp á gosdrykkjamerki sem enginn vill kaupa. Ég er ekki af hrifinn af hugmyndinni að þú „þurfir að gefa þessu eitt til tvö ár,“ eða eitthvað þvíumlíkt. Þetta er eins og að hafa tilfinningu fyrir einhverju. Annaðhvort bregst markaðurinn við eða ekki,“ segir Birgir Jónsson forstjóri flugfélagsins Play. 11.3.2023 17:18
Vörður tapaði 737 milljónum króna Tryggingafélagið Vörður tapaði 737 milljónum króna árið 2022. Neikvæð afkoma skýrist samkvæmt fyrirtækinu einkum af óhagstæðum aðstæðum á verðbréfamarkaði. Forstjóri Varðar segir rekstrarniðurstöðuna vera vonbrigði. 10.3.2023 14:14
Laufey nýr mannauðsstjóri Icewear Laufey Guðmundsdóttir, verslunarstjóri hjá Icewear, hefur verið ráðin mannauðsstjóri fyrirtækisins. 10.3.2023 13:36
Valgerður og Jóhannes til Terra Valgerður Sigrúnar Vigfúsardóttir og Jóhannes Karl Kárason hafa tekið við stjórnunarstöðum hjá Terra umhverfisþjónustu. 10.3.2023 11:22
Árni ráðinn framkvæmdastjóri Olíudreifingar Árni Gunnarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Olíudreifingar. Hann tekur við starfinu af Herði Gunnarssyni sem hefur gegnt því undanfarin tuttugu og tvö ár. 10.3.2023 11:19
Tveir af hverjum fimm frá Bretlandi og Bandaríkjunum Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll voru um 137 þúsund í nýliðnum febrúar samkvæmt talningu Ferðamálastofu. Um er að ræða álíka margar brottfarir og í febrúar árið 2020 og um 86 prósent af því sem þær voru í febrúar 2018 eða þegar mest var. 10.3.2023 07:37
Flotinn mokveiddi hrognafulla loðnu undan Reykjanesi í dag Loðnuvertíðin stendur nú sem hæst. Loðnan er komin að hrygningu og þar með í sitt verðmætasta form og er hver dagur að skila eins til tveggja milljarða króna gjaldeyristekjum. 9.3.2023 22:44
Naustið selt Húsið sem áður hýsti veitingastaðinn Naustið við Vesturgötu í Reykjavík hefur verið selt. Seljandinn segist hafa þurft að bíða í nokkur ár eftir rétta kaupandanum. 9.3.2023 16:59
Jón Garðar ráðinn sviðsstjóri viðskiptasviðs Faxaflóahafna Jón Garðar Jörundsson hefur verið ráðinn í stöðu sviðsstjóra viðskiptasviðs Faxaflóahafna og tekur við stöðunni af Gunnari Tryggvasyni sem ráðinn var í stöðu hafnarstjóra félagsins í lok seinasta árs. 9.3.2023 14:54
Bein útsending: Iðnþing 2023 Stóru vaxtartækifærin á Íslandi verða til umræðu á Iðnþingi 2023 sem fram fer í Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 14 og 16 í dag. 9.3.2023 13:31
Vilhjálmur Theodór nýr forstöðumaður sölu hjá Vodafone Vilhjálmur Theodór Jónsson hefur verið ráðinn sem forstöðumaður sölu hjá Vodafone. 9.3.2023 11:46
Heildin hafi það býsna gott Gunnar Jakobsson, varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika, segir að gögn Seðlabankans sýni að meirihluti lánþega á fasteignamarkaði hafi það býsna gott, þrátt fyrir núverandi efnahagsárferði. Áhyggjur stjórnmálamanna ættu að snúa að þeim sem ekki hafa keypt sér húsnæði og eru á leigumarkaði. 9.3.2023 11:42
Elísabet til Haga Elísabet Austmann hefur verið ráðin forstöðumaður nýsköpunar- og markaðsmála hjá Högum hf. Til viðbótar við störf tengdum nýsköpunar- og markaðsmálum mun Elísabet einnig bera ábyrgð á vörumerkja- og samskiptamálum Haga á breiðum grunni. 9.3.2023 11:41
Grettir frá Aton.JL til Spor Grettir Gautason hefur verið ráðinn til samskipta- og ráðgjafastofunnar Spor þar sem hann mun veita viðskiptavinum stofunnar ráðgjöf í almannatengslum og samskiptum ásamt því að hafa umsjón með greiningar- og skýrsluvinnu fyrirtækisins. 9.3.2023 11:09
Vill ekki að líf sitt snúist um deiluna við Musk Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno og fyrrverandi starfsmaður Twitter, segir að von sé á tilkynningu frá sér í dag. Hann segir að tilkynningin tengist ekki ritdeilunni við Elon Musk, eiganda Twitter. 9.3.2023 10:02
Athugasemd gerð við tíst Haraldar Athugasemd hefur verið bætt við tíst Haraldar Þorleifssonar þar sem hann svarar Elon Musk, eiganda Twitter. Þar segir að Musk hafi, eftir að hafa tístað um vangetu Haraldar til að vinna og fötlun, talað við Harald og beðist afsökunar. 8.3.2023 19:24
Ráðuneytið ræður fjögur íslensk fjármálafyrirtæki vegna sölunnar á Íslandsbanka Viðskipti innlent