Myglulaust, einangrandi og hagkvæmt byggingarefni Límtré Vírnet 12. maí 2025 08:57 Helstu viðskiptavinir Límtrés Vírnets þegar kemur að steinullareiningum eru verktakar af öllum stærðum og gerðum og svo rekstraraðilar í landbúnaði. Gísli Símonarson er forstöðumaður byggingasviðs Límtré Vírnets. Steinullareiningarnar frá Límtré Vírnet henta í flestar gerðir bygginga, frá smáhúsum og einbýlishúsum til stærri bygginga á borð við íþróttahús, landbúnaðarbyggingar og ýmsar gerðir atvinnuhúsnæðis.
Steinullareiningar eru framleiddar með því að líma saman pressaða steinull á milli tveggja 0,6 mm GreenCoat stálklæðninga. Þessi samsetning gerir einingarnar tilvaldar sem endanlegt yfirborð þaks, útveggja og innveggja. Hægt er að fá einingar með mismunandi völsunum sem henta hverju verkefni og í tíu mismunandi litum. Í steinullareiningarverksmiðjunni á Flúðum eru einingarnar framleiddar og sniðnar niður í lengdir eftir þörfum hvers verkefnis. Íslensk framleiðsla fyrir íslenskar aðstæður „Við byrjuðum á framleiðslu steinullareininga á Flúðum árið 2016 þegar við byggðum nýja verksmiðju sem fór í gang sama ár,“ segir Gísli Símonarson, nýr forstöðumaður byggingardeildar hjá Límtré Vírneti. Gísli Símonarson segir helstu viðskiptavini Límtrés Vírnets vera verktaka af öllum stærðum og gerðum og svo rekstraraðilar í landbúnaði. „Áður höfðum við framleitt steinullareiningar í Reykholti í frumstæðari vél en í nýju verksmiðjunni höfum við 100 metra langa framleiðslulínu þar sem stálplötur eru límdar utan á harðpressaða steinull til að mynda steinullareiningar í réttri þykkt og lengd eftir þörfum hvers verkefnis. Viðtökurnar hafa verið góðar frá fyrsta degi og einingarnar haf staðist allar væntingar og meira til.“ Hann segir einingarnar m.a. henta vel í klæðningar á útveggi og þök. „Það á bæði við um byggingar byggðar úr límtré eða stálgrind. Eðli eininganna gerir þær að tilvöldu byggingarefni í t.d. þök sem erfitt er að lofta en einingarnar mynda samloku sem er í senn rakavörn, einangrun og veðurkápa. Varmatap er mjög lítið gegnum einingarnar enda lítið um kuldabrýr þegar hús eru klædd með steinullareiningum utan á límtrésgrind.” Steinullareiningar og límtré eru heildstæð lausn í burðarvirki, einangrun og klæðningu í einföldum pakka. Frábær lausn í þak, veggi og milliveggi Þegar búið er að klæða bygginguna með þessum hætti er búið að loka því alveg og engin þörf á frekari klæðningum. Steinullareiningarnar má líka nota í milliveggi og loft og þar með er komin brunaþéttingu á milli rýma. „Í milliveggjum náum við allt að 90 mínútna brunaþoli í steinullareiningum , hvort sem notast er við standandi eða liggjandi einingar en það fer bara eftir því hver lofthæðin er og lögun rýmisins, hvort hentar betur. Þessar einingar eru líka myglulausar og endingargóðar og einstaklega hagkvæmar miðað við annað byggingarefni.“ Stál, steinull, stál. Einföld lausn sem einangrar byggingar fyrir veðri og vindum, hita og hljóði. Fjölbreyttur hópur viðskiptavina Helstu viðskiptavinir Límtrés Vírnets þegar kemur að steinullareiningum eru verktakar af öllum stærðum og gerðum og svo rekstraraðilar í landbúnaði. „Þannig eru steinullareiningarnar nýttar m.a. í fjós, hesthús, fjárhús, reiðhallir, kjúklingahús, geymslur, ýmis iðnaðarhús og í laxeldi svo fátt eitt sé nefnt. Steinullareiningarnar hafa líka verið notaðar í íbúðarhúsnæði, t.d. í bæði þök og veggi á íbúðarhús og blokkir hérlendis. Steinullareiningar nýtast í margar tegundir bygginga og væri hægt að nýta þær mun víðar en gert er í dag og geta m.a. leyst leka- og mygluvandamál víða.”
Byggingariðnaður Hús og heimili Mest lesið Vikan sem vex og vex: „Magatilfinningin er jafnvel mikilvægust“ Atvinnulíf Mannauðsmál lögreglunnar: Ljótu málin taka á Atvinnulíf Bankastjóri Íslandsbanka: Syngur hástöfum fjölskyldunni til hryllings Atvinnulíf Markaðurinn 13. sept Atvinnulíf Könnun: Er leyst úr erfiðum starfsmannamálum á þínum vinnustað? Atvinnulíf „Já veistu Gummi, þetta gæti verið eitthvað“ Atvinnulíf Eldsneytisverð lækkaði hressilega á miðnætti Neytendur Markaðurinn 17. sept Atvinnulíf Að segja upp án þess að brenna brýr Atvinnulíf Costco lækkaði í morgun og bætti svo í Neytendur Fleiri fréttir Sýn tilnefnt sem Besta íslenska vörumerkið 2025 Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Ný þjónustu- og aðkomubygging við Varmá boðin út Skipta dekkin máli? Einn áhrifamestu markaðsfræðimanna heims með erindi á ÍMARk Sjá meira