Fleiri fréttir

Oddgeir Ágúst Ottesen nýr framkvæmdastjóri KVH
Oddgeir Ágúst Ottesen hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Kjarafélags viðskiptafræðinga og hagfræðinga (KVH). Félagið er stéttarfélag sem sér um að gera kjarasamninga fyrir hönd félagsmanna, bæði á almennum og opinberum vinnumarkaði. Auk þess sinnir félagið annarri hagsmunagæslu fyrir félagsmenn.

Leggur til hækkun hámarksfjölda rafbíla sem geta notið ívilnunar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að hámarksfjöldi rafbíla sem geta notið ívilnunar frá virðisaukaskatti verði tuttugu þúsund bílar, en ekki fimmtán þúsund eins og nú er.

„Þetta er það ótrúlegasta sem ég hef lent í“
Veitingamaður sem ákvað að auglýsa sérstaklega eftir starfsfólki sextíu ára og eldri segir viðbrögð við auglýsingunni það ótrúlegasta sem hann hafi lent í. Hann segir ótal kosti við þennan hóp starfsfólks og telur mikla aldursfordóma ríkja í samfélaginu.

Hyggja á áframhaldandi sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur ákveðið að ráðast í framhald sölumeðferðar á hlutum í Íslandsbanka, í samræmi við tillögu Bankasýslu ríkisins frá því í janúar á þessu ári.

Máli ÁTVR gegn Sante og Bjórlandi vísað frá
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur vísað málum ÁTVR gegn Sante ehf, Santewines SAS og Bjórlandi vegna smásölu á áfengi frá dómi.

2.050 krónur fyrir fjörutíu mínútna verslunarferð í IKEA á nýjum deilibíl
Tíu deilibílar frá rafskútuleigunni Hopp verða teknir í gagnið á höfuðborgarsvæðinu í dag. Framkvæmdastjóri Hopps segir deilibílana frábrugðna öðrum sambærilegum lausnum sem þegar eru í boði og óttast hvorki samkeppni né skort á eftirspurn.

Tekur við stöðu forstjóra SaltPay
Fjártæknifyrirtækið SaltPay hefur ráðið Jónínu Gunnarsdóttur sem forstjóra félagsins hér á landi. Hún tekur við stöðunni af Reyni Finndal Grétarssyni sem gegnt hefur starfi forstjóra síðan í ágúst en hann mun taka við starfi stjórnarformanns SaltPay.

Vísbendingar um að tilfinningin sé á rökum byggð
Bókunarsíða Niceair, nýs flugfélags sem mun gera út frá Akureyrarflugvelli, var opnuð í gær. Viðtökurnar hafa verið framar vonum að sögn framkvæmdastjóra flugfélagsins.

Helgi stýrir sölu- og markaðsstarfi Niceair
Helgi Eysteinsson hefur gengið til liðs við flugfélagsins Niceair og verður honum falið að stýra uppbyggingu á sölu- og markaðsstarfi félagsins.

Óskar nýr stjórnarformaður Eimskips
Óskar Magnússon hefur verið kjörinn nýr formaður stjórnar Eimskips.

Tíu karlar bítast um tvö sæti í stjórn Almenna
Alls hafa tíu karlar boðið sig fram til stjórnarsetu í Almenna lífeyrissjóðnum en kosið verður um tvö sæti.

Árni Alvar til starfa hjá Íslandsstofu
Árni Alvar Arason hefur verið ráðinn nýr forstöðumaður fyrir svið útflutnings og fjárfestinga hjá Íslandsstofu.

Renata frá Krónunni til PayAnalytics
Renata Blöndal hefur verið ráðin framkvæmdastjóri markaðsmála hjá PayAnalytics.

Koma ný inn í stjórn SVÞ
Fjögur voru kjörin í stjórn Samtaka verslunar og þjónustu á aðalfundi samtakanna sem fram fór í Húsi atvinnulífsins í morgun.

Play tekur upp olíugjald á miðaverð vegna hækkana
Flugfélagið Play mun taka upp sérstakt olíugjald á miðaverð eftir helgi til þess að mæta miklum hækkunum á eldsneytisverði. Félagið skilaði nærri þriggja milljarða króna tapi á síðasta ári - sem forstjórinn segir engan veginn til marks um skipsbrot.

Kaupmáttur ráðstöfunartekna jókst um 1,1 prósent í fyrra
Áætlað er að ráðstöfunartekjur heimilanna hafi aukist um 7,5 prósent árið 2021 samanborið við árið á undan. Rástöfunartekjur á mann numu rúmlega 4,4 milljónum króna og jukust um 5,6 prósent frá árinu áður. Þá er áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna heimila hafi aukist um 1,1 prósent á sama tímabili.

Um helmingur íbúða á höfuðborgarsvæðinu seldist yfir ásettu verði í janúar
Rétt tæplega 40 prósent íbúða á landinu öllu seldust yfir ásettu verði í janúarmánuði og um 44,9 prósent íbúða á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallið hefur aldrei mælst hærra.

Bein útsending: Kynning á uppgjöri fjórða ársfjórðungs hjá Play
Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt fyrir fjórða ársfjórðung á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 8:30. Þar mun þau Birgir Jónsson forstjóri og Þóra Eggertsdóttir fjármálastjóri kynna uppgjörið og svara spurningum.

2,9 milljarða tap en gera ráð fyrir hagnaði á síðari hluta ársins
Tekjur flugfélagsins Play námu 16,4 milljónum Bandaríkjadala á árinu 2021 en tap ársins nam 22,5 milljónum dala, eða um 2,9 milljörðum íslenskra króna. Tekjur voru lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir vegna neikvæðra áhrifa Covid-19 en kostnaður var samkvæmt áætlunum.

Edda Falak til liðs við Stundina
Stundin og Edda Falak hafa tekið höndum saman og munu áskrifendur Stundarinnar framvegis hafa aðgang að hlaðvarpsþáttunum Eigin konum sem Edda heldur úti.

Verzlun Haraldar Júlíussonar á Króknum lokað í lok mánaðar
Verzlun Haraldar Júlíussonar á Sauðárkróki verður lokað í lok þessa mánaðar eftir að hafa verið starfrækt í rúma öld. Verslunarmaðurinn Bjarni Haraldsson, betur þekktur sem Bjarni Har, lést fyrr á árinu en rak og stóð vaktina í versluninni um margra áratuga skeið.

Haukur Heiðar yfir til Borgar
Haukur Heiðar Leifsson hefur verið ráðinn til starfa hjá Borg Brugghúsi. Haukur er mikill áfengissérfræðingur, hefur verið áberandi í íslenskri áfengismenningu og haldið úti umfjöllun um áfengi.

Bein útsending: Farið yfir horfur í fjármálakerfinu
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans gaf út yfirlýsingu í morgun um horfur og stöðu fjármálakerfisins hér á landi. Farið verður nánar yfir stöðuna á fundi í Seðlabankanum sem horfa má á í beinni útsendingu hér að neðan. Fundurinn hefst klukkan 9.30

Telja mikilvægt að huga að netöryggi við núverandi aðstæður
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans telur mikilvægt að hugað sé að netöryggi landsins og rekstraröryggi fjarskipta- og fjármálainnviða her á landi. Nefndin metur stöðu fjármálastöðugleika góða.

Hala inn milljónum: Auglýsingin sem smeygir sér fram hjá nýjum lögum
Nýtt frumvarp Willum Þórs Þórssonar heilbrigðisráðherra tekur fyrir auglýsingar á nikótínvörum - en ekki á nikótínverslunum. Og þar sem er vilji er vegur.

Vísitala íbúðaverðs hækkað um 22,5 prósent síðastliðið ár
Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 844,0 stig í febrúar og hækkar um 2,5% á milli mánaða. Þetta er meiri hækkun en í janúar og desember þegar vísitalan hækkaði um 1,7% og 1,8% frá fyrri mánuði.

Gefur út enskt lestrar- og málörvunarapp fyrir börn
Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Mussila gaf í dag út enskt lestrar- og málörvunarapp fyrir alþjóðlegan markað og hefur þar með tvöfaldað vöruframboð sitt.

Tafarlaust þurfi að tryggja raforku og heitt vatn til framtíðar
Samorka kallar eftir tafarlausum aðgerðum í ályktun aðalfundar, sem fram fór í Hörpu í dag. Tryggja þurfi næga raforku og heitt vatn til framtíðar, svo hægt verði að mæta fólksfjölgun, nýjum atvinnutækifærum, aukinni rafvæðingu samfélagsins, vályndu veðri og ekki síst metnaðarfullum markmiðum í loftslagsmálum.

Hrefna og Steinn ný í stjórn Samorku
Þau Hrefna Hallgrímsdóttir, Veitum, og Steinn Leó Sveinsson hjá Skagafjarðarveitum tóku í dag sæti í stjórn Samorku á aðalfundi samtakanna í fyrsta sinn. Þá verður Kristín Linda Árnadóttir áfram fulltrúi Landsvirkjunar í stjórn Samorku næstu tvö árin.

Skrifuðu undir samning um kaup á skemmu í Gufunesi
RVK Studios hafði betur í baráttu við True North um kaup á skemmu Áburðarverksmiðjunnar við Gufunesveg 21 sem staðið hefur ónýtt í lengri tíma. Baltasar Kormákur, leikstjóri og eigandi RVK Studios, og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri skrifuðu undir samning þess efnis í Gufunesi í dag.

Opinn ársfundur Samorku: Græn framtíð – hvað þarf til?
Opinn ársfundur Samorku fer fram í dag þar sem til umræðu verða markmið um kolefnishlutlaust og jarðefnaeldsneytislaust Ísland árið 2040. Fundurinn hefst klukkan 13 og verður hægt að fylgjast með honum í spilara að neðan.

Erfið staða hjá Elkem eftir skerðingu
Forstjóri Elkem á Íslandi segir stöðuna erfiða fyrir alla notendur rafmagns á Íslandi. Slökkt hefur verið á einum af þremur ofnum kísilmálmverksmiðjunnar vegna skerðingar Landsvirkjunar á orku til fyrirtækisins.

Kristín Unnur og Einar Snær til Fossa markaða
Kristín Unnur Mathiesen og Einar Snær Ásbjörnsson hafa verið ráðin til Fossa markaða. Þau munu þar starfa sem miðlarar og mun Kristín Unnur bera ábyrgð á samskiptum við alþjóðlega viðskiptavini (e. Head of Global Sales).

Sekta Hörpu eftir að hafa krafið miðakaupanda um kennitölu
Persónuvernd hefur sektað Hörpu um eina milljón króna í máli þar sem kvartað var yfir söfnun upplýsinga um kennitölu og fæðingardag einstaklings í tengslum við rafræn kaup hans á aðgöngumiða.

Slökkva á stærsta ljósbogaofni Elkem á Grundartanga vegna skerðingar
Slökkt hefur verið á einum ljósbogaofni í kísilmálmverksmiðjunni á Grundartanga, þeim stærsta af þremur slíkum ofnum í verksmiðjunni.

Meirihlutinn telur óþarft að grípa strax til aðgerða vegna verðbólguhækkana
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu ríkisstjórnina harðlega á Alþingi í dag og sökuðu hana um andvararleysi gagnvart verðbólgu og verðhækkunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir brýnt að grípa tafarlaust inn í en þingmaður Vinstri grænna segir óþarft að grípa strax til aðgerða.

Cintamani tekur yfir rekstur hjólabúðarinnar GÁP
Cintamani hefur keypt húsnæði og rekstur hjólabúðarinnar GÁP í Faxafeni 7 í Reykjavík. Í kjölfar kaupanna var gerður samstarfssamningur um rekstur vefverslunarinnar Adidas.is sem rekin hefur verið í Faxafeni af Sportmönnum, umboðsaðila Adidas á Íslandi, undanfarinn áratug.

Framúrskarandi vefir 2021 verðlaunaðir
Íslensku vefverðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í gærkvöldikvöld og voru framúrskarandi vefir ársins 2021 verðlaunaðir.

Bein útsending: Íslensku vefverðlaunin fyrir 2021
Sextíu og fimm verkefni eru tilnefnd til Íslensku vefverðlaunanna fyrir árið 2021 sem verða afhent í beinni útsendingu í kvöld.

Seðlabankinn sýknaður en Þorsteinn Már fær skaðabætur
Seðlabanki Íslands var sýknaður í Landsrétti í dag af skaðabótakröfu sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja en hluta málsins var vísað frá dómi. Seðlabankinn var hins vegar dæmdur til að greiða Þorsteini Má Baldvinssyni, forstjóra Samherja, 2,7 milljónir króna í skaðabætur.

Hafa samið um kaup á Eldum rétt
Hagar hf. og eigendur Eldum rétt ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga á öllu hlutafé Eldum rétt.

Ófriður í álfunni gæti sett ferðasumarið í uppnám
Stríðshörmungar eru það síðasta sem Evrópa þurfti eftir tvö ár af heimsfaraldri. Þetta á ekki síst við um ferðaþjónustuna sem fékk hvert höggið á fætur öðru síðastliðin ár þegar ýmist var hert eða slakað á sóttvarnaaðgerðum sem orkaði á ferðaþjónustuna eins og fjárhagslegur harmónikkuleikur þótt höggin væru milduð með fjárhagslegum úrræðum stjórnvalda.

Norðlenskir verktakar kepptu hart um þjóðveg við Hrafnagil
Fjórir norðlenskir verktakar kepptu hart um að fá að leggja nýjan þjóðveg meðfram Hrafnagilshverfi í Eyjafjarðarsveit. Þegar tilboðin voru opnuð hjá Vegagerðinni í vikunni reyndust þau öll vera undir kostnaðaráætlun, eitt þó sýnu lægst.

Bein útsending: Iðnþing 2022
„Græn iðnbylting á Íslandi“ er yfirskrift Iðnþings Samtaka iðnaðarins sem haldið verður í Silfurbergi í Hörpu milli klukkan 14 og 16 í dag. Hægt verður að fylgjast með þinginu í beinu streymi á Vísi, en í hópi ræðumanna má finna þrjá ráðherra.

Árni hlaut 98 prósent atkvæða
Árni Sigurjónsson, yfirlögfræðingur Marels, var endurkjörinn formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins á aðalfundi í dag. Hann var einn í framboði og hlaut 98 prósent atkvæða.