Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segir skrifin ekki svaraverð: „Ástarbréf Árna til Róberts Wessman“ Halldór Kristmannsson segir skrif Árna Harðarsonar, aðstoðarforstjóra Alvogen, á Vísi í dag ekki vera svaraverð. Hann segir pistilinn frekar líkjast ástarbréfi til Róberts Wessman og að þetta sé ekki í fyrsta sinn sem slíkur „reiðipóstur“ komi frá Árna. 19.4.2021 22:20
Ný mathöll opnar í Borgartúni á morgun „Upphaflega stóð til að opna fyrir páska en í ljósi aðstæðna ákváðum við að fresta opnuninni um stundarsakir. Í svona ástandi er enginn tími fullkominn en við ætlum að ríða á vaðið núna,“ segir Björn Bragi Arnarsson í viðtali við Vísi. 19.4.2021 17:16
Halla Hrund skipuð orkumálastjóri til næstu fimm ára Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra, hefur skipað Höllu Hrund Logadóttur í embætti orkumálastjóra til næstu fimm ára. 19.4.2021 17:09
Árni blandar sér í deilur Halldórs og Róberts Wessman „Mikið óskaplega er ég orðinn þreyttur á að lesa ósannindi Halldórs í fjölmiðlum, hvort sem það er satt eða logið að hann sé með öryggisverði fyrir utan 1000 fermetra húsið sitt. “ 19.4.2021 16:46
SaltPay segir upp starfsfólki Greiðslufyrirtækið SaltPay, áður Borgun, hefur ráðist í uppsagnir og hyggst fækka starfsfólki sínu umtalsvert hér á landi. Samkvæmt upplýsingum frá félaginu hafa breytingarnar alls áhrif á um fjórðung starfsliðsins en verður sumum boðið að þiggja önnur störf hjá fyrirtækinu. 19.4.2021 14:15
United Airlines hyggst fljúga til Keflavíkur í sumar Bandaríska flugfélagið United Airlines hefur tilkynnt að það hyggist hefja aftur flug til Íslands nú í sumar. Flogið verður frá Keflavík til New York og Chicago. 19.4.2021 12:59
Ekki hægt að keppa við ríkisstyrkt námskeið á þrjú þúsund krónur Annað árið í röð munu stjórnvöld veita hundruð milljóna króna til háskóla og framhaldsskóla til að efla framboð á sumarnámi. Einkarekin fræðslufyrirtæki gagnrýna harðlega að stjórnvöld ætli að endurtaka leikinn á meðan málið er til skoðunar hjá Samkeppniseftirlitinu og Eftirlitsstofnun EFTA (ESA). Félag atvinnurekenda (FA) segir stuðninginn jafngilda samkeppnishamlandi ríkisstyrkjum. 18.4.2021 15:30
Forstjóri Play: „Þetta verður erfitt, flókið og hratt“ Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segist aldrei hafa verið „eins spenntur fyrir neinu á ævinni og tækifærinu sem Play hefur til að ná árangri.“ Félagið býr sig nú undir að hefja starfsemi og er um þessar mundir meðal annars auglýst eftir framkvæmdastjórum fjármálasviðs og sölu- og markaðssviðs. 17.4.2021 10:54
Segir frábært hvað ræst hefur úr fisksölu í faraldri Aflabrögð á vetrarvertíð í Grindavík hafa verið mjög góð frá áramótum. Hjá stærstu útgerðinni, Þorbirni, hefur sala sjávarafurða á erlenda markaði gengið vonum framar og verðlækkanir vegna covid-faraldursins reynst minni en óttast var. 16.4.2021 21:21
Brandenburg hlaut flesta Lúðra Auglýsingastofan Brandenburg var hlutskörpust þegar Lúðurinn var afhentur í kvöld í 35. skipti. Athöfnin fór fram með rafrænum hætti í ár þar sem verðlaun voru veitt fyrir markaðsefni sem þótti skara fram úr á síðasta ári, en Brandenburg hlaut alls sex Lúðra fyrir sín störf. 16.4.2021 20:50
Innkalla fleiri vörur hérlendis í kjölfar dauðsfallanna í Danmörku Lyfjaver hefur í samvinnu við Matvælastofnun og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og hafið innköllun á öllum HUSK fæðubótarefnum vegna hugsanlegrar hættu á salmonellusmiti. 16.4.2021 15:23
Domino's tekur við reiðufé á ný eftir atvikið í Skúlagötu Skyndibitakeðjan Domino's er byrjuð að taka við reiðufé á ný en viðskiptavinum var lengi gert ókleift að greiða fyrir pantanir með peningum með vísan til sóttvarna. 16.4.2021 12:58
Aukning í heildarkortaveltu í fyrsta skipti frá upphafi faraldursins Neysla Íslendinga jókst verulega milli ára í mars, en 24% aukning var í kortaveltu innanlands tengd verslun og þjónustu miðað við fast verðlag. Samanlagt jókst kortavelta um 20% milli ára miðað við fast gengi og fast verðlag en 2% samdráttur var í kortaveltu Íslendinga erlendis. 16.4.2021 11:14
Stefndi í metár hjá Hörpu en töpuðu í staðinn 200 milljónum Tónlistarhúsið Harpa tapaði tæplega 200 milljónum á árinu, jafnvel þótt stefnt hafi í metár á sviði alþjóðlegs ráðstefnuhalds. Eins og gefur að skilja hurfu þær væntingar eins og dögg fyrir sólu þegar kórónuveirufaraldurinn skall á í febrúar á síðasta ári. 16.4.2021 10:36
Raquelita Rós og Þórhildur Rún nýir forstöðumenn hjá Isavia Raquelita Rós Aguilar og Þórhildur Rún Guðjónsdóttir hafa verið ráðnar sem nýir forstöðumenn hjá Isavia. 16.4.2021 08:57
Landsvirkjun greiðir sex milljarða króna arð til ríkisins Landsvirkjun mun greiða 6,34 milljarða króna arðgreiðslu til íslenska ríkisins fyrir árið 2020. Eigendur samþykktu tillögu stjórnar þess efnis á aðalfundi Landsvirkjunar sem haldinn var í dag. Arðurinn er ákvarðaður í Bandaríkjadölum og nemur hann 50 milljónum dala í ár. 15.4.2021 17:25
Álverð rýkur upp og búið að hækka um 59 prósent Heimsmarkaðsverð á áli hefur hækkað hratt á undanförnum vikum og fór í dag í 2.330 dollara tonnið. Það er 59 prósenta hækkun á ellefu mánuðum en um miðjan maí í fyrra fór verðið niður undir 1.460 dollara. Hækkunin frá því í byrjun febrúar nemur átján prósentum. 15.4.2021 16:33
Handsöluðu samning um aukið starfsnám Háskóli Íslands, menntamálaráðuneytið, Samband íslenskra sveitarfélaga og Samtök atvinnulífsins hafa tekið höndum saman því skyni að efla tækifæri til starfsþjálfunar hér á landi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá HÍ sem segir að um stóreflingu sé að ræða. 15.4.2021 12:50
Elísabet, Melkorka og Sæunn til Dohop Elísabet Rós Valsdóttir, Melkorka Mjöll Jóhönnudóttir Sæunn Sif Heiðarsdóttir hafa allar verið ráðnar sem forritarar hjá Dohop. 15.4.2021 11:03
Ráðin fjármálastjóri Sorpu Sigríður Katrín Kristbjörnsdóttir hefur verið ráðin fjármálastjóri SORPU. 15.4.2021 09:00
Hætt að trúa því að allt muni fara til fjandans ,,Það er ekkert sem hefur þroskað mig meira og kennt mér að standa með sjálfri mér heldur en þetta ferli. Ef þú ætlar að lifa þetta af þá þarftu að hafa trú á þér því það er engin annar að fara að peppa þig upp. Þú þarft að vita innst inni, sem ég geri, að þetta er rétt. Þú veist það einhvern veginn að þú getur ekki gert neitt annað þrátt fyrir að þetta sé stundum erfitt og kannski ekki rökrétt.“ 15.4.2021 08:01
Ekkert sem bannar fyrirtækjum að taka ekki við reiðufé Ekkert bannar seljanda vöru og þjónustu að neita því að taka við reiðufé og krefjast þess að greiðsla sé innt af hendi með rafrænum hætti að sögn Seðlabanka Íslands. 14.4.2021 18:00
Samgöngustofa veitti röng og misvísandi svör þegar WOW air var í basli Samgöngustofa er gagnrýnd harðlega í nýrri úttekt Ríkisendurskoðunar á falli WOW air. Viðskiptalegir hagsmunir flugfélagsins virðist í einhverjum tilvikum hafa verið hafðir að leiðarljósi. 14.4.2021 15:08
Kaupa hús Arion banka og stefna á flutning ráðhússins Borgarbyggð hefur fest kaup á húsnæði Arion banka við Digranesgötu í Borgarnesi og er stefnt að því að ráðhús sveitarfélagsins flytjist þangað. 14.4.2021 13:57
Bein útsending: Hvað gerir 100 ára frumkvöðull næst? Ársfundur Orkuveitu Reykjavíkur fer fram í dag og verður sendur út í beinni útsendingu frá Jarðhitasýningunni á Hellisheiði klukkan 14. 14.4.2021 13:31
Seðlabankinn varar við vaxtahækkunum lækki verðbólgan ekki Seðlabankinn varar við að lágir vextir vari ekki að eilífu og því gæti greiðslubyrði óverðtrygðra lána með breytilegum vöxtum breyst töluvert. Ef verðbólga haldist lengi yfir markmiði bankans sé eitt af úrræðum hans að grípa til vaxtahækkana. 14.4.2021 12:04
Borgarfulltrúi stýrir Icelandic Startups Kristín Soffía Jónsdóttir hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Icelandic Startups. Hún tekur við starfinu af Salóme Guðmundsdóttur sem lætur af störfum í júní. 14.4.2021 11:50
Stjórnvöld höfðu samband við AGS sem uppfærði mat á aðgerðum Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur leiðrétt upplýsingar sem sjóðurinn birti á dögunum um samanburð á umfangi stuðningsaðgerða ríkja vegna Covid-19 og sett Ísland í hóp „grænna“ ríkja. Ísland var áður flokkað „rautt“. 14.4.2021 11:44
Bein útsending: Léttum lífið Rætt verður um opinberar umbætur og framtíðarsýn á opnum viðburði á vegum Fjármála- og efhahagsráðuneytisins en yfirskrift hans er Léttum lífið: Spörum sporin og aukum hagkvæmni með umbótum í opinberri þjónustu. 14.4.2021 09:01
Fiskisund og Birta í hópi stærstu hlutahafa Play Fjárfestingafélagið Fiskisund, sem Einar Örn Ólafsson fjárfestir fer fyrir, og lífeyrissjóðurinn Birta verða í hópi þriggja stærstu hluthafa Play í kjölfar nýafstaðins hlutafjárútboðs hins verðandi flugfélags. 14.4.2021 07:10
Bein útsending: Nýsköpun í rótgrónum rekstri Þekkingardagurinn 2021 fer fram þann 13 apríl en dagurinn hefur verið haldinn árlega síðan árið 2000. Deginum verður streymt beint á Vísi en útsending hefst klukkan 14:15 og líkur 16:00. Þema Þekkingardagsins 2021 er Nýsköpun í rótgrónum rekstri. 13.4.2021 13:31
Grænt ljós á samruna Kjarnafæðis og Norðlenska Samkeppniseftirlitið hefur lagt blessun sína á samruna Kjarnafæðis á Svalbarðseyri og Norðlenska á Akureyri. Þetta staðfestir Ágúst Torfi Hauksson, framkvæmdastjóri Norðlenska, í samtali við fréttastofu. 13.4.2021 11:39
Ráðin í starf mannauðsstjóra Valitors Erla Sylvía Guðjónsdóttir hefur verið ráðin í starf mannauðsstjóra Valitor. Hún mun bera ábyrgð á mannauðsmálum félagsins á alþjóðavísu. 13.4.2021 10:28
Sviðum fækkað og nýir starfsmenn ráðnir Nýtt svið iðnaðar og hugverka hefur verið sett á laggirnar hjá Samtökum iðnaðarins en með skipulagsbreytingunum hefur sviðum verið fækkað úr þremur í tvö.Nýtt svið iðnaðar og hugverka hefur verið sett á laggirnar hjá Samtökum iðnaðarins en með skipulagsbreytingunum hefur sviðum verið fækkað úr þremur í tvö. 13.4.2021 10:10
Sakar Ingó og félaga um að hafa bolað sér út úr X-mist með bellibrögðum Jónas Eiríkur Nordquist heldur því fram að Ingólfur Þórarinsson, tónlistar- og athafnamaður, hafi ásamt þeim Davíð Þór Rúnarssyni og Sævari Eyvinds Helgasyni haft af sér fyrirtækið X-Mist með bolabrögðum. Ingólfur segir málið allt sorgarsögu. 13.4.2021 08:30
Norðfirðingar vilja stækka hlut sinn í Síldarvinnslunni Áhugi er meðal heimamanna á Norðfirði að auka hlut sinn á ný í Síldarvinnslunni, stærsta sjávarútvegsfyrirtæki Austfjarða, nú þegar stefnt er að skráningu fyrirtækisins á hlutabréfamarkað. 12.4.2021 22:10
Birgir Jónsson nýr forstjóri Play Birgir Jónsson hefur verið kynntur til sögunnar sem forstjóri flugfélagsins Play. Hann staðfestir ráðninguna við fréttastofu. Túristi og Fréttablaðið greindu fyrst frá. 12.4.2021 13:35
John Cleese rifjar upp auglýsingu Kaupþings Enski gamanleikarinn John Cleese tók upp á því um helgina að rifja upp eina af nokkrum auglýsingum Kaupþings frá góðæristímanum í aðdraganda bankahrunsins. 12.4.2021 12:17
Fyrsta skóflustungan tekin að nýju húsi Ölgerðarinnar Forsvarsmenn Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar hf. tóku í morgun fyrstu skóflustunguna að nýju 1.700 fermetra húsnæði fyrirtækisins. Fjárfesting í húsnæðinu er vel á annan milljarð króna og vill Ölgerðin sýna skýran vilja til að halda framleiðslu sinni áfram hér á landi um ókomna framtíð, samkvæmt tilkynningu. 12.4.2021 12:00
Sylvía Kristín nýr stjórnarformaður Íslandssjóða Sylvía Kristín Ólafsdóttir, framkvæmadstjóri viðskiptaþróunar og markaðsmála hjá Origo, hefur tekið við stjórnarformennsku í Íslandssjóðum, elsta sjóðstýringarfyrirtæki Íslands. Félagið er í eigu Íslandsbanka. Hún tekur við stöðunni af Tönyu Zharov, aðstoðarforstjóra Alvotech. 12.4.2021 11:03
Fyrrverandi pítsusendill verður forstjóri Magnús Hafliðason hefur verið ráðinn sem forstjóri Domino's Pizza á Íslandi. Tekur hann við af Birgi Erni Birgissyni, sem hefur verið forstjóri frá árinu 2011. Magnús hefur sinnt flestum störfum innan Domino's í gegnum árin en hann hóf fyrst störf þar árið 1999 sem pítsusendill. 12.4.2021 10:39
Nær fjörutíu starfsmönnum sagt upp á Hrafnistu Á fjórða tug starfsmanna hjá hjúkrunarheimilinu Hrafnistu hefur verið sagt upp störfum. Bæði er um að ræða stjórnendur, hjúkrunarfræðinga, ræstitækna og aðra starfsmenn. Tuttugu þessara starfsmanna störfuðu hjá Hrafnistu á Sléttuvegi en hinir hjá öðrum heimilum Hrafnistu. Mbl.is greinir frá. 11.4.2021 20:04
Bestu íslensku auglýsingarnar 2020 Tilnefningar til íslensku auglýsingaverðlaunanna, Lúðursins, voru opinberaðar á fimmtudag. 11.4.2021 16:00
Kallar eftir afléttingaráætlun eftir því sem bólusetningum miðar áfram Formaður Viðskiptaráðs kallar eftir því að stjórnvöld setji fram áætlun um afléttingu samfélagslegra takmarkana samhliða bólusetningu landsmanna. Hann segir að slík áætlun myndi auðvelda rekstraraðilum og einstaklingum að skipuleggja sig og starfsemi sína, og skapa traust í samfélaginu. 11.4.2021 13:09
Kaupa verslanir Krónunnar á Hellu og í Nóatúni Kaupsamningur hefur verið undirritaður um kaup Samkaupa á tveimur verslunum Krónunnar, annars vegar Kjarval á Hellu en hins vegar Krónunni Nóatúni 17, Reykjavík. 9.4.2021 14:01