Fleiri fréttir

Leggja ljósleiðara í Þorlákshöfn og Ölfusi

Gagnaveita Reykjavíkur mun byggja upp og reka háhraða ljósleiðarakerfi, í Þorlákshöfn og Ölfusi. Fyrirtækið og Sveitarfélagið Ölfus hafa gert með sér samning þessa efnis og verður tengingum lokið á þessu ári.

Lækkun verðbólgu gefur fögur fyrirheit

Forseti ASÍ segir markmið kjarasamninga alltaf hafa verið að glíma við verðbólgu. Framkvæmdastjóri SA segir nú tækifæri til að ná verðbólgu niður til framtíðar.

Rekstur Stálskips mun taka stakkaskiptum

Fram kemur í fréttatilkynningu frá útgerðarfélaginu Stálskip að félagið hafi ákveðið að selja annan sinn kvóta og að auki hefur Stálskip selt skip út til Rússlands.

Brot Sigurjóns og Elínar stórfelld

Veruleg fjártjónshætta fólst í veitingu ábyrgða sem Sigurjón Árnason og Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi stjórnendur Landsbanka Íslands samþykktu og undirrituðu fyrir hönd bankans að mati Sérstaks saksóknara.

Landflutningar kaupa bíla og tæki fyrir hálfan milljarð

Samskip hafa keypt bíla og margvísleg tæki fyrir um 150 milljónir króna á síðustu mánuðum fyrir Landflutninga. Frekari bíla- og tækjakaup eru framundan og er áætlað að þau kaup nemi um 350 milljónum króna.

Útflutningsverðmæti grásleppuhrogna og kavíars hrynur

Sala á söltuðum grásleppuhrognum og kavíar skilaði 1,3 milljörðum króna á fyrstu ellefu mánuðum 2013 samanborið við 2,2 milljarða á sama tíma 2012. Grásleppuveiðimenn gagnrýna upphafsfjölda veiðidaga.

Frystitogarar víkja fyrir ísfiskskipum

Örar breytingar eiga sér nú stað í sjávarútvegi á Íslandi. Frystitogurum fækkar en þess í stað fjölgar ísfiskskipum sem skila ferskum afla á land.

Borgin skipulagði of margar íbúðir

Reykjavíkurborg fór í nýju aðalskipulagi yfir hámark þess fjölda íbúða, sem svæðisskipulag höfuðborgarsvæðis gerir ráð fyrir í borginni.

Yfirdrátturinn jókst um níu prósent

Yfirdráttarlán íslenskra heimila jukust um sjö milljarða í desember í fyrra, þegar þau hækkuðu úr 83,7 milljörðum króna í 91 milljarð.

Þróunarfyrirtæki á hraðri leið úr landi

Lítil virkni er orðin í íslenskum félögum sem stofnuð voru um útrás á sviði virkjana og jarðvarma. Gjaldeyrishöft hrekja starfsemina úr landi því erlendir fjárfestar stíga ekki fæti inn fyrir höft. Fólk með sérhæfða þekkingu finnur samt vinnu víða.

Sigurjón og Elín ákærð fyrir umboðsvik

Sigurjón Árnason og Elín Sigfúsdóttir, fyrrverandi stjórnendur Landsbanka Íslands, hafa verið ákærð af sérstökum saksóknara fyrir umboðsvik og verður mál þeirra þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 3. febrúar.

Rúmlega 800 eintök af PS4 fóru á fyrsta degi

Hundruð manna biðu í röð við verslun Elko í Kópvogi í gær þegar sala á nýju Play Station 4 leikjatölvunni hófst á Íslandi. Fyrsta sending leikjatölvunnar er uppseld á Íslandi.

WOW Air þarf að hætta við Ameríkuflug

WOW Air er að öllu óbreyttu hætt við áætlunarflug til Norður-Ameríku. Forstjóri félagsins er harðorður í garð rekstaraðila Keflavíkurflugvallar.

Fjölgun á vinnumarkaði á milli ára

Fólki á vinnumarkaði á aldrinum 16 til 74 ára fjölgaði um 4,4 prósent á fjórða ársfjórðungi 2013 miðað við sama tímabil árinu áður.

Fjárfestar sýna Íslandi mikinn áhuga

Fjármálaráðuneytið segir vel fylgst með þróun ríkisfjármála og efnahagsmála og sá árangur sem náðst hefur er eftirtektarverður að mati fjárfesta.

Gjaldþrotum fækkaði um rúm 17 prósent

Á síðasta ári voru 918 fyrirtæki tekin til gjaldþrota sem er fækkun um 17,4 prósent frá árinu 2012 þegar 1.112 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta.

Glötuð tækifæri mælast illa

Hér hefur verið byggð upp óþarflega mikil þolinmæði gagnvart gjaldeyrishöftum, segir Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs. Friðrik Már Baldursson, hagfræðiprófessor við Háskólann í Reykjavík, segir lönd aðlagast höftum merkilega vel. Önnur lögmál kunni þó að eiga við um þróuð ríki en þróunarlönd.

Brenna sig á einföldu atriði í viðtali

Ferilskráin sjálf segir takmarkaða sögu. Segja verður söguna á bak við hana í atvinnuviðtali til að koma sér almennilega á framfæri, segir ráðgjafi hjá Capacent.

Undanþágur kosta fyrirtæki og Seðlabanka 1,5 milljarða

Áætla má beinan kostnað vegna beiðna fyrirækja um undanþágur frá höftum. Frá og með 2009 hafa um 3.700 fyrirtæki sótt um undanþágu. Erfitt er að setja mælistiku á kostnað þjóðfélagsins við viðvarandi gjaldeyrishöft.

Sjá næstu 50 fréttir