Viðskipti innlent

Hver banki fyrir sig ákveði gjald fyrir millibankaþjónustu

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Gjald vegna millibankaþjónustu hefur verið óbreytt frá árinu 1997.
Gjald vegna millibankaþjónustu hefur verið óbreytt frá árinu 1997. vísir/valli
Nýr samningur um millibankaþjónustu tekur gildi á morgun á milli banka og sparisjóða. Það telst vera þjónusta sem veitt er þegar bankar og sparisjóðir afgreiða viðskiptavini annarra banka og sparisjóða. Viðskiptablaðið greinir frá.

Gjald vegna millibankaþjónustu hefur verið óbreytt frá árinu 1997 en breytingin er gerð til að koma til móts við athugasemdir Samkeppniseftirlitsins við fyrirkomulag gjaldtöku vegna þjónustunnar. Þar til nú hefur gjald vegna millibankaþjónustu verið samræmt milli banka og sparisjóða og innheimt af banka eða sparisjóði viðskiptavinar.

Nýji samningurinn felur í sér að hver og einn banki eða sparisjóður ákveði einhliða gjöld vegna millibankaþjónustu. Þegar viðskiptavinur sækir sér þjónustu í öðrum banka eða sparisjóði en sínum eigin er gjaldið samkvæmt verðskrá þess sem veitir þjónustuna. Bönkum og sparisjóðum er þó heimilt að taka þátt í að greiða fyrir millibankaþjónustu fyrir hönd sinna viðskiptavina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×