Viðskipti innlent

Ungur maður fer nýstárlegar leiðir í atvinnuleit

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Stefán Atli stofnaði fyrirtækið Ice Cold í kringum myndbandagerð.
Stefán Atli stofnaði fyrirtækið Ice Cold í kringum myndbandagerð.
„Mig langaði að gera eitthvað öðruvísi og skemmtilegt, í staðinn fyrir að vera eins og aðrir. Ég vildi standa svolítið út úr,“ segir Stefán Atli Rúnarsson sem fer nýstárlegar leiðir í atvinnuleit. Stefán breytti ferilskrá sinni í myndband, þar sem hann fer yfir menntun sína og starfsferil.

„Ég setti þetta bara inn í gærkvöldi, þannig að það er kannski skiljanlegt að ég hafi ekki enn fengið nein atvinnutilboð, en þetta hefur fengið mikil viðbrögð. Til dæmis eru yfir þúsund manns búnir að horfa á svona „brot af því besta“ myndband sem ég gerði um verkin mín,“ útskýrir Stefán.

Hann hefur lengi unnið að gerð tónlistarmyndbanda. „Ég hef unnið með Kristmundi Axeli, Júlí Heiðari, Alexander Jarli og fleirum.“

Stefán vonast til að finna draumastarfið sem fyrst. „Ég vona að ég geti fengið að starfa við eitthvað tengt þessu áhugamáli mínu. Eitthvað sem tengist sjónvarpi, kvikmyndum eða slíku,“ segir ungi maðurinn í atvinnuleit.“

Hér að neðan má sjá myndband Stefáns.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×