Viðskipti innlent

IKEA hagnaðist um 518 milljarða króna

Haraldur Guðmundsson skrifar
IKEA verslanirnar eru 303 talsins.
IKEA verslanirnar eru 303 talsins. Vísir/AP
Rekstur sænska húsgagnarisans IKEA skilaði 3,3 milljarða evra hagnaði á síðasta ári, eða um 518 milljörðum króna, að því er fram kemur á vef BBC.

Góð afkoma fyrirtækisins er að miklu leyti tilkomin vegna aukinnar sölu á vörum IKEA í Kína, Rússlandi og Bandaríkjunum.

Peter Agnefjall, forstjóri IKEA, sagði í samtali við BBC að fyrirtækið hefði ekki séð sömu söluaukningu í Suður-Evrópu, þar sem neytendur hafa ekki enn jafnað sig á áhrifum alþjóðlegu efnahagskreppunnar.

„Evrópa er hins vegar heilt yfir farin að jafna sig,“ sagði Agnefjall.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×