Viðskipti innlent

Gjaldþrotum fækkaði um rúm 17 prósent

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Stefán
Á síðasta ári voru 918 fyrirtæki tekin til gjaldþrota sem er fækkun um 17,4 prósent frá árinu 2012 þegar 1.112 fyrirtæki voru tekin til gjaldþrotaskipta. Flest gjaldþrot árið 2013 eru í flokknum byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð, samtals 179.

Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands

Fjöldi nýskráninga á síðasta ári voru 1.938 sem er 10,6 prósent aukning frá 2012 þegar 1.752 fyrirtæki voru nýskráð.

Síðastliðinn desember voru 172 einkahlutafélög nýskráð, borið saman við 147 í desember 2012. Nýskráningar voru flestar í fjármála- og vátryggingastarfsemi. Þá voru 54 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í mánuðinum, en þau voru 135 í desember 2012.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×