Fjárfestar sýna Íslandi mikinn áhuga Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 29. janúar 2014 11:12
Fjármálaráðuneytið segir fjárfesta sýna Íslandi mikinn áhuga um þessar mundir og ljóst að markaðir eru opnir ef til nýrrar útgáfu á skuldabréfum ríkissjóðs kæmi. Vel er fylgst með þróun ríkisfjármála og efnahagsmála og sá árangur sem náðst hefur er eftirtektarverður að mati fjárfesta. Í frétt ráðuneytisins segir að vorið 2011 hafi alþjóðalánamarkaðir opnast að nýju fyrir Íslandi, í fyrsta sinn frá hruni. Ríkissjóður gaf þá út skuldabréf að fjárhæð 1 milljarður Bandaríkjadala. Skuldabréfin voru gefin út til 5 ára með gjalddaga árið 2016. Í maí 2012 var staða Íslands á alþjóðamörkuðum styrkt enn frekar með annarri útgáfu einnig að fjárhæð 1 milljarður Bandaríkjadala og var sú útgáfa til 10 ára, með gjalddaga árið 2022. „Lengst af síðan Ísland endurheimti aðgang sinn að alþjóðamörkuðum hafi kjör á lán ríkissjóðs verið að batna. Kjörin hafi fylgt löndum með svipað lánshæfismat en þróunin verið ívið hagstæðari fyrir Ísland. Yfirlýsingar bandaríska seðlabankans um að draga úr peningalegum slaka, sem fram komu í maí 2013, snéru þessari þróun við. Fyrst í stað hafði hún ekki sýnileg áhrif á ávöxtunarkröfu skuldabréfa ríkissjóðs í erlendri mynt en um síðir tók hún að hækka í takt við markaðinn. Ávöxtunarkrafan á 5 ára bréfunum var 2,91% 23. janúar síðastliðinn. Á sama tíma var ávöxtunarkrafa 5 ára bandarískra ríkisskuldabréfa 0,57%. Álagið var því 2,34 prósentustig á kröfu íslensku bréfanna og hefur álagið verið svipað allt síðasta ár með meðalálagi 2,31 prósentustig. Krafan á 10 ára bréfunum var á sama tíma 5,19% en 2,58% á 10 ára bandarískum bréfum. Þar var álagið því 2,61 prósentustig en var að meðaltali 2,53 prósentustig árið 2012,“ segir í fréttinni. Skuldabréf ríkissjóðs sem gefin voru út í Bandaríkjunum 2011 (5 ára) og 2012 (10 ára) voru seld yfir 200 fjárfestum. Yfir 90% þeirra eru fjárfestingarsjóðir sem líta á bréfin sem langtíma fjárfestingu og eru því líklegir til að halda þeim til gjalddaga. „Það veldur því að seljanleiki bréfanna er lítill og verðmyndum óskilvirkari en hjá þeim ríkissjóðum sem virkari eru á fjármagnsmarkaði og gefa út stærri skuldabréfaflokka. Verðmyndunin verður einnig óskilvirkari eftir því sem lengra líður frá síðustu útgáfu. Kjör á þessum bréfum eru því ekki endilega góð vísbending um vexti sem fengust ef ný skuldabréf yrðu gefin út,“ segir ennfremur í frétt ráðuneytisins.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Uggandi yfir afstöðu VR Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Stýrivextir áfram átta prósent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Tæplega þrjátíu sagt upp Ákveða í kvöld hvort kjarasamningum verði sagt upp Ráðinn sviðsstjóri og staðgengill forstjóra Fastus Ganga til sáttaviðræðna við Samkeppniseftirlitið Langþráður draumur að verða að veruleika í Kísildal Breytingar á vetraropnun miðstöðvarinnar í Kerlingarfjöllum kynntar Klíníkin sótti 300 milljónir króna 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Sjá meira