Viðskipti innlent

Yfirdrátturinn jókst um níu prósent

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Aukningin nam 9 prósentum sem er helmingi meira en fyrir jólin árið áður.
Aukningin nam 9 prósentum sem er helmingi meira en fyrir jólin árið áður. vísir/vilhelm
Yfirdráttarlán íslenskra heimila jukust um sjö milljarða í desember í fyrra, þegar þau hækkuðu úr 83,7 milljörðum króna í 91 milljarð. Mbl greinir frá.

Aukningin nam 9 prósentum sem er helmingi meira en fyrir jólin árið áður, en þar til í desember höfðu heimilin verið að greiða yfirdráttarlán sín niður.

Arnar Ingi Jónsson, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir í samtali við Morgunblaðið að ástæðurnar fyrir meiri ásókn í yfirdráttarlán séu margar. Ein þeirra gæti tengst tillögum stjórnvalda um lækkun verðtryggðra húsnæðisskulda sem kynntar voru 30. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×