Fleiri fréttir Yfirdráttarlán Íslendinga jafnhá í krónum og árið 2008 1.8.2012 08:32
Sjá næstu 50 fréttir
Danska krónan komin undir 20 krónur Danska krónan kostar nú undir 20 krónum en það hefur ekki gerst síðan á fyrrihluta ársins 2009. 1.8.2012 08:20
Mikil aukning á nauðungarsölum fasteigna í Reykjavík Mikil aukning hefur orðið á nauðungarsölum fasteigna hjá Sýslumanninum í Reykjavík á fyrri helmingi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. Aukningin er um 50%. 1.8.2012 08:53
Mál Roberts Tchenguiz fellt niður Dómstólar hafa ákveðið að mál bresku efnahagsbrotalögreglunnar SFO gegn íranska kaupsýslumanninum Robert Tchenguiz skuli fellt niður. 1.8.2012 05:00
Tekjuskattur hækkar ekki - staða barnafólks verður bætt Tekjuskattur mun ekki hækka á næsta ári, segir Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra í samtali við Vísi. Hún kynnti drög að fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár fyrir ríkisstjórninni í morgun. Aðspurð um það hvort einhverjar skattahækkanir verði í frumvarpinu segist hún ekki geta tjáð sig um frumvarpið í smáatriðum fyrr en 11. september næstkomandi. Þá verður Alþingi tekið til starfa að nýju eftir sumarleyfi. "Hins vegar höfum við gert samkomulag í tengslum við kjarasamninga um að tekjuskattur hækki ekki og við stöndum við alla gerða samninga,“ segir hún máli sínu til stuðnings. 31.7.2012 16:35
Uppbyggingin á Grímsstöðum kosti 16,2 milljarða Félagið Zhongkun Grímsstaðir ehf., sem er í eigu kínverska fjárfestisins Huang Nubo, hefur lýst yfir áhuga á uppbyggingu ferðamennsku á Grímsstöðum á Fjöllum, en samkvæmt umsókn félagsins til nefndar á vegum stjórnvalda er gert ráð fyrir að kostnaður við uppbyggingu á Grímsstöðum verði um 16,2 milljarðar íslenskra króna á næstu fimm árum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem birt hefur verið á vef iðnaðarráðuneytisins. 31.7.2012 14:53
Stoðir selja 60% hlut í TM Stoðir hf. hafa samið um sölu á 60% hlut í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) til hóps lífeyrissjóða og annarra innlendra fjárfesta. Kaupendur eru meðal annars Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Stafir lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður Vestfirðinga, Sjóður 10 á vegum Íslandssjóða, auk fjárfesta á vegum VÍB - Eignastýringar Íslandsbanka, Virðingar og Auðar Capital. 31.7.2012 14:09
Fjárlagafrumvarpið kynnt í ríkisstjórn Oddný Harðardóttir fjármálaráðherra kynnti drög að fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár á ríkisstjórnarfundi í morgun. Vinnan við fjárlagafrumvarpið er langt komin, samkvæmt upplýsingum sem Vísir hefur bæði úr forsætisráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu. Fjárlagafrumvarpið verður lagt fram í upphafi þings, eða annan þriðjudag í september. Það er nokkru fyrr en vanalega, því yfirleitt er frumvarpið kynnt 1. október. 31.7.2012 13:53
Ríkisstjórnin skipar starfshóp til að fara yfir mál Huangs Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í morgun að skipa hóp ráðherra og stafsmanna ráðuneyta til að fara yfir mál Huang Nubos og fyrirhugaða leigu hans á Grímsstöðum á fjöllum. Að sögn Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra mun hópurinn mynda afstöðu ríkisstjórnarinnar til málsins enda hafi engar óafturkræfar ákvarðanir verið teknar um fyrirhugaðar framkvæmdir Nubos á landinu. Hópurinn þarf ekki að skila niðurstöðu innan ákveðins tíma en mun taka til starfa eins fljótt og auðið er. 31.7.2012 12:01
Ingibjörg Ásta ráðin sölu- og markaðsstjóri Keldunnar Ingibjörg Ásta Halldórsdóttir hefur verið ráðin sem sölu- og markaðsstjóri hjá Keldunni. Um nýtt starf er að ræða og mun Ingibjörg m.a. sjá um mótun framtíðarstefnu félagsins í sölu- og markaðsmálum, markaðssetningu á vörum og þjónustu þess sem og umsjón núverandi viðskiptatengsla og öflun nýrra, að því er segir í tilkynningu frá Keldunni. Ingibjörg starfaði síðast sem markaðsstjóri Pennans og Eymundsson og gegndi áður stöðu forstöðumanns markaðssviðs hjá Sparisjóðnum á árunum 2004-2009. 31.7.2012 11:36
Landsbankinn selur hlut sinn í Alur álvinnslu Landsbankinn hf. hefur selt 9,88% eignarhlut bankans í félaginu Alur álvinnsla hf., sem á og rekur endurvinnslu fyrir álgjall í Helguvík á Reykjanesi. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef bankans. 31.7.2012 10:36
Vilja frjálsar handfæraveiðar á ný Í ljósi þess að sjávarútvegsráðherra hefur ákveðið að auka þorskkvóta næsta árs, skorar stjórn Samtaka íslenskra fiskimanna á stjórnvöld að nýta þetta tækifæri til þess að efna kosningaloforð sitt um frjálsar handfæraveiðar. 31.7.2012 12:15
Seðlabankinn tvöfaldar gjaldeyriskaup sín Seðlabankinn hefur ákveðið að nýta sér styrkingu á gengi krónunnar frá því í vor til að tvöfalda gjaldeyriskaup sín á millibankamarkaðinum. 31.7.2012 06:23
88 kaupsamningum þinglýst Alls var 88 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu frá 20. til 26. júlí. Á vef Þjóðskrár segir að 64 samningar hafi verið um eignir í fjölbýli, átján um sérbýli og sex um aðrar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarvelta var 2.542 milljónir króna og meðalupphæð á samning 28,9 milljónir króna. 31.7.2012 04:00
Munu fljúga allt árið til Húsavíkur Flugfélagið Ernir hefur tekið þá ákvörðun að halda flugi til Húsavíkur áfram allt árið um kring og munu bókanir í flugin í vetur hefjast í dag 30. Júlí. Áætlunarflug hófst á Húsavík 15. Apríl síðastliðinn eftir um 14 ára bið heimamanna eftir reglubundnu áætlunarflugi og var um tilraunaverkefni að ræða út september sama ár. Forsvarsmenn Ernis segja að viðtökurnar við fluginu hafi verið það góðar að forsendur séu til að halda því áfram. 30.7.2012 11:49
Gengi krónunnar styrkist áfram, evran undir 150 krónum Ekkert lát er á styrkingu krónunnar þessa dagana og hefur gengið styrkst um hátt í 10% frá því það var hvað lægst á árinu í apríl s.l. 30.7.2012 06:41
Fréttatíminn er til sölu Vikublaðið Fréttatíminn er til sölu. DV greinir frá þessu í dag og þar segir að söluverðið sé á bilinu 65 til 70 milljónir kr. 30.7.2012 10:03
Spáir því að verðbólgan haldist í lægri kantinum Greining Arion banka spáir því að verðbólgan haldist í lægri kantinum næstu þrjá mánuðina eða á bilinu 4,4% til 4,6%. 30.7.2012 09:21
Minnisblaðið var kynning á tilhögun félags Nubo Minnisblað, sem lagt var fyrir ríkisstjórn og Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra telur að hafi falið í sér ívilnun fyrir Huang Nubo, var í raun kynning á ákvörðun sem þegar hafði verið tekin í efnahagsráðuneytinu um tilhögun íslensks félags í eigu Kínverjans. Þetta kemur fram í minnisblaðinu sem fréttastofan hefur undir höndum. 29.7.2012 19:36
Slitastjórn Kaupþings stefnir vátryggingafélögum Slitastjórn Kaupþings hefur stefnt hópi vátryggingafyrirtækja í Bretlandi til að fá framlengda samninga vegna ábyrgðartryggingar stjórnenda bankans. Milljarða króna hagsmunir gætu verið í húfi vegna þessara samninga. 29.7.2012 19:25
Þingmenn krefjast fundar með ÍLS Hópur þingmanna af Suðurlandi hefur óskað eftir fundi með stjórnendum Íbúðalánasjóðs til að krefjast þess að sjóðurinn leigi út tómar íbúðir á svæðinu. Stjórnarþingmaður segir það lögbundið hlutverk sjóðsins að mæta aukinni eftirspurn. 29.7.2012 18:55
Umfjöllun fjölmiðla um tekjur nær marklaus Stefán Ólafsson, prófessor, segir að þær tölur sem birst hafa í fjölmiðlum undanfarið og kynntar sem upplýsingar um tekjur Íslendinga séu vægast sagt villandi. Að jafnaði vanti um og yfir helming heildartekna inn í tölurnar. 29.7.2012 16:14
Sagður launa fallna íslenska viðskipta-víkingnum greiðann "Bjóðum fjölskyldu fallna íslenska viðskipta-víkingsins, Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, velkomna aftur," stendur efst í grein á The Observer þar sem fjallað er um opnun smávöruverslunarinnar Iceland í Kópavogi í gær. Þar stimplaði Jóhannes, áður kenndur við Bónus, sig aftur inn á smásölumarkaðinn. 29.7.2012 14:16
Íbúðirnar ekki leiguhæfar og því tómar Forstjóri Íbúðalánasjóðs segir þær fimmtíu eignir sem standi tómar á Árborgarsvæðinu ekki vera í leiguhæfu ástandi. Þess vegna hafi sjóðurinn ekki brugðist við áskorun sveitarfélagsins um að setja íbúðirnar á leigumarkað. 28.7.2012 13:13
Erfitt að lýsa yfir endalokum kreppunnar Þó Ísland sé í ákveðnu skjóli eins og stendur er erfitt að lýsa því yfir að kreppunni sé lokið. Þetta segir Sigríður Benediktsdóttir, framkvæmdastjóri fjármálastöðugleika Seðlabanka Íslands, í viðtali í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins. 28.7.2012 11:39
Össur gat ekki efnt skuldbindingar vegna haftanna Stoðtækjaframleiðandinn Össur gat ekki efnt kaupréttarsamning við Makhesh Mansukani framkvæmdastjóra fyrirtækisins í Bandaríkjunum vegna gjaldeyrishaftanna. Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, segir í samtali við Morgunblaðið að til þess að leysa málið hafi verið farin Fjallabaksleið. Jón segir þetta varpa ljósi á fáránleika gjaldeyrishaftanna og að ótækt sé fyrir alþjóðlegt fyrirtæki að starfa undir höftunum. Áður en höftum var komið á gerði Össur kaupréttarsamning við Mansukani en vegna haftanna var ekki hægt að uppfylla samninginn og afhenda honum hlutabréfin á erlendri grundu. Því var ákveðið að greiða honum hagnaðinn af samningnum, sem nemur 200 þúsund dollurum, jafnvirði 25 milljóna króna. 28.7.2012 10:17
4 kílómetra lögn að Reykholti Framkvæmdir við nýja vatnsveitu fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki í Borgarfirði verða boðnar út nú um helgina. Eftir ítarlega leit að fullnægjandi vatnsbóli fyrir Reykholt og Kleppjárnsreyki, hefur verið ákveðið að virkja vatnsból við mynni Rauðsgils og leggja 4,4 kílómetra langa aðveitulögn milli Rauðsgils og Reykholts. Þá verður byggð dælu- og stjórnstöð í grennd við vatnstökustaðinn. 27.7.2012 14:58
Íslenskt efnahagslíf er á blússandi siglingu Þær hagstærðir sem birtar voru í morgun benda til þess að íslenska hagkerfið sé á blússandi siglingu. Verðbólgan lækkar mikið, langtímaatvinnulausum fækkar verulega og gjaldþrotum fyrirtækja fækkar töluvert. 27.7.2012 10:25
Hafnarfjörður fellur frá forkaupsrétti í HS Veitum Bæjarráð Hafnarfjarðar hefur ákveðið að nýta ekki forkaupsrétt í HS Veitum. Ákvörðunin var tekin á fundi bæjarráðs í gær eftir að erindi frá fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka, með ósk um að bæjarráð félli frá forkaupsréttinum, var lagt fram. 27.7.2012 10:13
Langtímaatvinnulausum fækkar um 1.100 manns Langtímaatvinnulausum fækkaði um 1.100 manns á öðrum ársfjórðungi ársins miðað við sama tímabil í fyrra. 27.7.2012 09:38
Verulega dregur úr verðbólgu. mælist 4,6% í júlí Ársverðbólgan mældist 4,6% í júlí og lækkar umtalsvert frá júní þegar hún mældist 5,4%. Lækkun verðbólgunnar er í takt við spár sérfræðinga. 27.7.2012 09:20
Ísland meðal þjóða í mestri hættu vegna evrusvæðisins Ísland er í hópi þeirra tíu þjóða sem eru í mestri efnahagslegri áhættu vegna vandamálanna á evrusvæðinu. 27.7.2012 08:54
Atvinnuleysið mældist í 5,2% í júní Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í júní s.l. að jafnaði 192.500 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 182.400 starfandi og 10.100 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 85,8%, hlutfall starfandi 81,3% og atvinnuleysi var 5,2%. 27.7.2012 09:32
Gjaldþrotum fyrirtækja fækkaði um 86 milli ára í júní Alls voru 51 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta í júnímánuði. Þetta er verulega fækkun gjaldþrota frá því í júní í fyrra þegar þau voru 137 talsins. 27.7.2012 09:26
Moody´s viðheldur neikvæðum horfum fyrir Ísland Matsfyrirtækið Moody´s viðheldur neikvæðum horfum sínum á Baa3 lánshæfiseinkunn Íslands. 27.7.2012 06:49
Íslendingar högnuðust örlítið á Liborvaxtasvindlinu Allar líkur eru á að Íslendingar hafi frekar hagnast örlítið en tapað á Libor vaxtasvindlinu sem nú er til rannsóknar í Bretlandi og víðar. 27.7.2012 06:19
Framleiðsluverð lækkaði Vísitala framleiðsluverðs fyrir vörur sem framleiddar voru og seldar innanlands lækkaði um 0,1% í síðasta mánuði og vísitala fyrir útfluttar afurðir lækkaði um 1,5%. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar. 27.7.2012 09:41
Tíu prósentum minna í vexti Íslensk heimili greiddu rúmlega tíu prósentum minna í vexti af íbúðalánum árið 2011 en árið á undan. Þetta kemur fram í úttekt fjármálaráðuneytisins. 27.7.2012 04:00
Baldur og Karítas eiga 861 milljón Baldur Guðlaugsson, fyrrverandi ráðuneytisstjóri, og Karítas Kvaran, eiginkona hans, eiga 861 milljón króna. Þetta kemur fram í úttekt Viðskiptablaðsins á eignum 170 Íslendinga. Viðskiptablaðið reiknaði eignir þeirra út frá skattskrám sem birtar voru í gær. 26.7.2012 16:37
Sex buðu í Plastprent Sex aðilar sendu inn tilboð í fyrirtækið Plastprent sem selt var Kvos, móðurfélagi Odda, á dögunum. Fyrirtækið var áður í eigu Framtakssjóðsins. 26.7.2012 14:30
Ríkisskattstjóri athugaði rútubílstjóra Starfsmenn ríkisskattstjóra voru í lögreglufylgd við Þingvallavatn í morgun að taka út hvort rútubifreiðastjórar hefðu tilskilin leyfi til aksturs. Úttektin var þáttur í átakinu Leggur þú þitt af mörkum sem ríkisskattstjóri vinnur í samvinnu við SA og ASÍ. 26.7.2012 14:05
Skúli Mogensen er ríkasti Íslendingurinn Skúli Mogensen og eiginkona hans, Margrét Ásgeirsdóttir, eru ríkustu Íslendingarnir samkvæmt úttekt Viðskiptablaðsins. Blaðið lagðist yfir álagningaskrár ríkisskattstjóra sem birtar voru í gær. Hrein eign þeirra hjóna, það eru eignir umfram skuldir, nemur um 7,5 milljörðum króna samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra sem birtar voru í gær. 26.7.2012 12:25
Sigurður Sigurjónsson tekjuhæsti listamaðurinn Sigurður Sigurjónsson leikari er tekjuhæsti listamaðurinn á síðasta ári, samkvæmt tölum Frjálsrar verslunar. Hann var með 1253 þúsund krónur í mánaðalaun samkvæmt blaðinu. Sverrir Þór Sverrisson, Sveppi, var í öðru sæti með tæpar 1100 þúsund krónur. Magnús 26.7.2012 11:03
Útilokar ekki að fleiri verslanir verði opnaðar Jóhannes Jónsson kaupmaður útilokar ekki að hann muni opna fleiri en eina matvöruverslun. Fyrsta Iceland verslunin opnar á laugardaginn og verður hún staðsett í Engihjalla í Kópavogi. Þá stendur til að opna Netverslun. 26.7.2012 10:17
Björn tekjuhæsti forstjóri í ríkisfyrirtæki Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans, er hæstur á lista Frjálsrar verslunar yfir launahæstu embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja. Hann er með 1590 þúsund krónur á mánuði samkvæmt blaðinu. Gnnar Andersen, fyrrverandi forstjóri Fjármálaeftirlitsins, er með 1517 þúsund krónur. Guðgeir Eyjólfsson, sýslumaður í Hafnarfirði, er síðan þriðji á listanum með 1468 þúsund krónur og Guðný Aðalsteinsdóttir deildarstjóri skipulagssviðs Reykjavíkur er fjórða með 1461 þúsund krónur. Páll Magnússon útvarpsstjóri er fimmti á listanum með 1449 þúsund krónur. 26.7.2012 09:35
Svört skýrsla um Metro: Mygluvöxtur í kælinum, hættulegt leiksvæði og húsnæðið „verulega vanþrifið“ Neytendur