Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Utanríkisráðherra setur saman málflutningsteymi í Icesave-málinu Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra hefur komið á fót málflutningsteymi til að starfa með Tim Ward QC að undirbúningi varnar í Icesave-málinu. 31.1.2012 13:11
Íslendingar ekki bjartsýnni síðan fyrir hrun Nýtt ár leggst greinilega vel í landsmenn, en samkvæmt væntingavísitölu Gallup sem birt var nú í morgun hafa væntingar íslenskra neytenda nú ekki verið hærri frá því fyrir hrun. 31.1.2012 11:04
Landsbankinn setur Sólningu í sölu Hömlur ehf., dótturfélag Landsbankans hf., hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í Sólningu í Kópavogi sem rekur hjólbarðaverkstæði og annast innflutning á dekkjum. 31.1.2012 09:41
Vöruskiptin hagstæð um 104,5 milljarða í fyrra Samkvæmt bráðabirgðatölum voru fyrir allt árið 2011 fluttar út vörur fyrir 626,4 milljarða króna en inn fyrir 521,9 milljarð króna. Afgangur var á vöruskiptunum við útlönd sem nam 104,5 milljörðum en árið áður voru þau hagstæð um 119,9 milljarða á sama gengi. Vöruskiptajöfnuðurinn var því 15,4 milljörðum króna óhagstæðari en árið áður. 31.1.2012 09:03
Hækkanir á laxveiðileyfum framundan Samtímis því að verð á laxveiðileyfum í Rússlandi og víðar fara lækkandi, stefnir í að verðið fari hækkandi hér á landi. 31.1.2012 07:24
Fremur dauft yfir fasteignamarkaðinum Enn er fremur dauft yfir fasteignamarkaðinum á höfuðborgarsvæðinu. Þannig var 86 kaupsamningum um fasteignir þinglýst í síðustu viku en að meðaltali hefur 94 samningum verið þinglýst á viku undanfarnar 12 vikur. 31.1.2012 07:06
Ísland í 9. sæti yfir vinsamlegt viðskipaumhverfi þjóða Ísland er í níunda sæti þjóða heimsins yfir vinsamlegt viðskiptaumhverfi, það er hve auðvelt er að stofna og reka fyrirtæki. 31.1.2012 07:03
Gengi krónunnar heldur áfram að lækka Gengi krónunnar hefur lækkað um tæp 2% frá áramótum. Gengið hefur veikst jafnt og þétt frá því í byrjun nóvember á síðasta ári að því er segir í Markaðspunktum Íslenskra verðbréfa. 31.1.2012 06:57
Líklegt að olíufélögin hækki bensínverðið í dag Búast má við að olíufélögin hækki almennt bensínverðið í dag eftir að N-1 hækkaði verðið um fjórar krónur í gær og er verð á lítra þar komið upp í tæpar 247 krónur. 31.1.2012 06:56
Kallar enn eftir upplýsingum um uppgjör bankanna "Ég hef núna fengið upplýsingar um það að það er búið að fjölga um níu þúsund á vanskilaskrá frá árinu 2008,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Hann sagði í samtali við Reykjavík síðdegis í dag að vegna þessa mála vanti upplýsingar frá stjórnvöldum um staðreyndir mála sem tengjast lánum. 30.1.2012 22:43
Helgi ætlar að færa landsmönnum Sinalco á ný Helgi Vilhjálmsson, oftast kenndur við sælgætisgerðina Góu, er að hefja innflutning á Sinalco, gosdrykk sem naut feykilegra vinsælda fyrir einungis fáeinum árum. Hann er búinn að flytja fyrsta gáminn inn en stefnir að því að framleiða drykkinn sjálfur með tíð og tíma. 30.1.2012 20:12
Allt að 90% taka óverðtryggð lán Allt að níutíu prósent þeirra sem taka fasteignalán hjá bönkunum um þessar mundir kjósa að taka óverðtryggð lán. Lífeyrissjóðirnir eru ekki farnir að bjóða upp á óverðtryggð lán. 30.1.2012 18:35
Þrotabú Samson krefst 518 milljóna vegna Árvakursviðskipta Tekist var á um þá kröfu þrotabús Samson, fjárfestingafélags Björgólfs Guðmundssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar, að rifta kaupum á 16,7 prósenta hlut í Árvakri, útgáfufélagi Morgunblaðsins, á þeim grundvelli að um gjafagjörning hafi verið að ræða, í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 30.1.2012 17:41
Actavis gerir samning um insúlín Actavis og pólska fyrirtækið Bioton tilkynntu í dag að þau hefðu stofnað til formlegs samstarfs um þróun og skráningu á insúlíni, einnig svo kölluðum insúlínvirkum lyfjum (e.analogue insulins). Í tilkynningu frá Actavis segir að samkvæmt samningnum beri Bioton ábyrgð á þróun og framleiðslu á insúlíni en Actavis fær einkarétt til að markaðssetja það undir eigin vörumerki í Bandaríkjunum, Japan og Evrópu, einnig á Íslandi. "Bæði fyrirtækin munu bjóða insúlín undir eigin nafni í Póllandi, sem er heimamarkaður Bioton,“ segir ennfremur. 30.1.2012 14:43
Tilnefningar til Íslensku vefverðlaunanna kynntar Samtök vefiðnaðarins tilkynntu í dag um hvaða vefir eru í úrslitum til Íslensku vefverðlaunanna 2011. Sjálf verðlaunaafhendingin fer fram í Tjarnarbíói klukkan 17 næstkomandi föstudag. 30.1.2012 14:15
Þrefalt fleiri fyrirtæki til sölu Félögum í óskyldum rekstri í eigu viðskiptabanka, sparisjóða og lánafyrirtækja hefur fækkað um sjö frá 1. nóvember síðastliðnum. Þau voru þá 132 talsins en eru nú 125. Félögum sem eru komin í formlegt söluferli hefur þó fjölgað mikið á síðustu þremur mánuðum. Þau voru 14 í nóvember en eru nú 45. Þetta kemur fram í nýjum tölum Fjármálaeftirlitsins (FME) um tímabundna starfsemi lánastofnana sem Fréttablaðið hefur undir höndum. 30.1.2012 11:00
Vísitala framleiðsluverðs hækkaði lítillega Vísitala framleiðsluverðs í desember síðastliðnum var 211,4 stig og hækkaði um 0,1% frá nóvember. 30.1.2012 09:08
Spáir yfir 6% verðbólgu fram á vor Greining Arion banka segir að útlit sé fyrir umtalsverða verðbólgu, eða yfir 6%, á næstu mánuðum. 30.1.2012 06:46
OR ver sig fyrir sveiflum í álverði og vöxtum Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) hefur samþykkt áhættustefnu fyrir rekstur fyrirtækisins. Þá hefur fyrirtækið lokið samningum við hollenska bankann ING um áhættuvarnir gagnvart sveiflum í álverði og vaxtabreytingum. 30.1.2012 06:00
Sérstakur saksóknari: Höfum tvö ár til stefnu Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, segir að þunginn í rannsóknum á stórum málum hafi verið á árinu 2010 og 2011. Embættið hafi enn tvö ár til stefnu til að ná markmiðum sínum. Þá hafi tafir á afhendingu gagna frá útlöndum seinkað rannsóknum embættisins. 29.1.2012 21:08
Eignir bankans sem vill kaupa Íslandsbanka metnar á 46 þúsund milljarða Bankinn sem sýnt hefur áhuga á að kaupa Íslandsbanka er almennt álitinn einn stöndugasti banki Norðurlanda. Heildareignir hans eru metnar á liðlega 46 þúsund milljarða íslenskra króna. 29.1.2012 18:45
Sérstakur saksóknari ekki náð markmiðum sínum Sérstakur saksóknari stefndi að því að ljúka 27 málum á ári samkvæmt áætlun sem send var stjórnvöldum. Þetta hefur ekki gengið eftir en á síðasta ári var ákært í 7 málum. Þá átti að ákæra í 10 málum í flokknum "stór mál" á árunum 2010-2013 en engin ákæra hefur verið gefin út sem fellur þar undir. Kostnaður embættisins er áætlaður rúmlega fimm milljarðar króna á fimm árum. 29.1.2012 18:37
Segja stjórnendur bankanna hafa veikt krónuna með óforsvaranlegum hætti Tugir milljarða króna gætu verið í húfi fyrir Lífeyrissjóð verzlunarmanna, einn stærsta lífeyrissjóð landsins, vegna deilu um gjaldeyrissamninga við slitastjórn Glitnis og Kaupþings. Stjórn lífeyrissjóðsins telur að stjórnendur bankanna hafi skaðað hagsmuni lífeyrissjóðsins ólöglega og veikt krónuna með óforsvaranlegum hætti. 28.1.2012 19:18
Endurgreiddu 2,5 milljarða til skilvísra viðskiptavina Arion Banki endurgreiddi í gær samtals 2,5 milljarða króna til skilvísra viðskiptavina bankans. Landbankinn réðst í svipaðar aðgerðir í október en aðrar lánastofnanir hafa ekki tekið ákvörðun um að gera slíkt hið sama. 28.1.2012 18:45
Tekjurnar af Contraband stefna í 7,5 milljarða Heildartekjurnar af Contraband, mynd Baltasar Kormáks, stefna í 60,8 milljónir dollara eða um 7,5 milljarða króna. Vefsíðan boxoffice.com áætlar að tekjurnar, verði 7,2 milljónir dollara um helgina en áður hafa selst miðar á hana fyrir 53,6 milljónir dollara. 28.1.2012 09:09
Verðbólgan aftur á skrið Tólf mánaða verðbólga er nú 6,5 prósent og hefur ekki mælst hærri síðan í maí 2010. Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í þessum mánuði hækkaði um 0,28 prósentustig í mánuðinum sem er nokkuð umfram væntingar. 28.1.2012 06:00
Ágreiningur blasir við vegna tillagna stjórnlagaráðs Það blasir við ágreiningur fyrir dómstólum verði tillögur stjórnlagaráðs samþykktar óbreyttar. Þetta segir Hafsteinn Þór Hauksson, lektor við lagadeild HÍ. 27.1.2012 18:55
Ferðaþjónustan malar gull og er ein af grunnstoðum hagkerfisins Árið 2011 var besta ár í íslenskri ferðaþjónustu frá upphafi á flesta mælikvarða. Met var slegið í komu erlendra ferðamanna til landsins og fjölda gistinátta. Á fjórum dögum í október eyddu ferðamenn hálfum milljarði hér á landi. 27.1.2012 19:00
Gift til rannsóknar hjá Sérstökum saksóknara Embætti sérstaks saksóknara rannsakar nú hvort Gift fjárfestingafélag hafi fengið óeðlilega fyrirgreiðslu hjá Kaupþingi fyrir hrun, en félagið var meðal stærstu hluthafa bankans. Rannsókn starfsmanna endurskoðunarfyrirtækisins PWC er meðal þeirra gagna sem liggja til grundvallar í málinu. 27.1.2012 18:33
Hæstiréttur vísar máli Hauks aftur í hérað Hæstiréttur Íslands ómerkti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir Hauki Þór Haraldssyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Er málinu vísað til héraðsdóms til löglegrar meðferðar. Haukur var ákærður fyrir fjárdrátt á 118 milljónum króna. 27.1.2012 18:05
Jón Ólafsson átti að greiða skatt á Íslandi Héraðsdómur Reykjavíkur hefur staðfest úrskurð ríkisskattstjóra frá desember 2003 um að Jón Ólafsson athafnamaður hafi skattalega heimilisfesti og beri fulla og ótakmarkaða skattskyldu hér á landi í skilningi laga um tekjuskatt. Jón Ólafsson stefndi íslenska ríkinu fyrir héraðsdómi eftir úrskurð ríkisskattstjóra og birti Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurð sinn í dag. 27.1.2012 15:37
Hagar hagnast um 1,9 milljarða Smásölurisinn Hagar, sem rekur m.a. Bónus og Hagkaup, hagnaðist um tæplega 1,9 milljarða króna frá 1. mars í fyrra fram til 30. nóvember sama, það er til og með þriðja ársfjórðungi reikningsárs félagsins, sem lýkur í lok febrúar nk. 27.1.2012 13:54
Valdimar Halldórsson nýr aðstoðarmaður Steingríms Valdimar Halldórsson viðskiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar efnahags- og viðskiptaráðherra. 27.1.2012 19:39
Nýherji tapaði 72 milljónum Nýherji tapaði 72 milljónum króna á síðasta ári samkvæmt ársreikningi félagsins. Rekstrarhagnaður Nýherja fyrir afskriftir nam 532 mkr á árinu 2011. 27.1.2012 18:07
Felur lögmönnum hagsmunagæslu í uppgjöri gjaldmiðlavarnarsamninga Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna hefur falið lögmönnum hagsmunagæslu vegna ágreinings við slitastjórnir Glitnis banka hf. annars vegar og Kaupþings banka hf. hins vegar vegna uppgjörs gjaldmiðlavarnarsamninga. Í frétt á heimasíðu sjóðsins segir að þrátt fyrir að í rúm þrjú ár hafi verið leitað samkomulags um lausn þessa ágreinings hafi ekki tekist að ná niðurstöðu. "Allra leiða verður leitað, með eða án atbeina dómstóla, til að tryggja best hagsmuni sjóðfélaga,“ segir ennfremur. 27.1.2012 15:48
Bein útsending frá Nexpo-vefverðlaununum Bein útsending frá Nexpo-vefverðlaununum á efri hæð Sólon við Bankastræti hefst hér á Vísi klukkan 20. Mikil eftirvænting ríkir fyrir afhendingunni en síðustu vikur hefur farið fram kosning meðal almennings hér á Vísi þar sem bárust ríflega 16 þúsund atkvæði. 27.1.2012 14:58
Sekt á Símann lækkuð um 20 milljónir Héraðsdómur Reykjavíkur staðfesti í morgun að Síminn skuli greiða sekt vegna brota sem voru framin þegar Síminn keypti Íslenska sjónvarpsfélagið, móðurfélag Skjás eins, árið 2004. 27.1.2012 12:28
H&M draumur Íslendinga rætist ekki í bráð Svo virðist sem H&M draumur Íslendinga rætist ekki í bráð. Eins og Vísir greindi frá í nótt var búið að birta auglýsingaskilti á glugga á Laugavegi, þar sem verslunin Sautján stóð áður, en á rúðunni stóð að til stæði að opna H&M verslun á Íslandi. "Þetta eru gjörningamenn sem eru búnir að festa McDonalds merki á einum stað og H&M á öðrum,“ segir Jakob Frímann Magnússon miðborgarstjóri. Upplýsingadeild H&M í Svíþjóð staðfestir líka í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis að engar fyrirætlanir séu um að opna verslun á Íslandi. Búið var að fjarlægja merkið úr glugganum þegar fréttastofu bar þar að garði í morgun. 27.1.2012 10:15
Verðbólgan komin í 6,5% Ársverðbólgan mælist nú 6,5% og hefur hækkað verulega frá því í desember þegar hún mældist 5,3%. Þessi hækkun er umfram spár sérfræðinga sem gerðu yfirleitt ráð fyrir að hún yrði 6,3%. Aukin verðbólga er einkum keyrð áfram af hækkunum á opinberum gjöldum. 27.1.2012 09:04
Loðnukvótinn eykur landsframleiðsluna um eitt prósent Mikill hugur er nú í loðnusjómönnum eftir ljóst varð í gær að endanlegur loðnukvóti íslenskra skipa fyrir vertíðina, sem hófst í haust og stendur nú sem hæst, verður tæp 600 þúsund tonn og hefur ekki verið meiri í áratug. 27.1.2012 06:55
Boða opnun H&M á Íslandi Svo virðist vera sem búið sé að ákveða að opna H&M verslanir á Íslandi. Í það minnsta hafði sjónarvottur samband við fréttamann á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis þegar að hann sá nú í kvöld að á Laugavegi, þar sem verslunin 17 var áður, er búið að hengja upp skilti þar sem opnun verslunarinnar er boðuð. 27.1.2012 01:31
Taldi sig enga heimild hafa til að grípa inn í starfsemi bankanna Geir H. Haarde fyrrverandi forsætisráðherra telur sig enga heimild hafa haft til að grípa inn í starfsemi bankanna í aðdraganda hrunsins. Þá hafi aðgerðir til að flytja bankanna úr landi verið óraunhæfar. Þetta er á meðal þess sem Geir ætlar að nota í vörn sinni þegar málið verður tekið fyrir. 26.1.2012 18:57
Byggðamál að heimila sölu á áfengi í matvöruverslunum Ef sala á áfengi yrði heimiluð í matvöruverslunum myndi það styrkja rekstur slíkra verslana á fámennum stöðum. Þetta segir Finnur Árnason, forstjóri Haga sem á og rekur verslanir á borð við Hagkaup og Bónus. 26.1.2012 21:37
Hæstiréttur staðfesti kyrrsetningu á eignir Steingríms Hæstiréttur staðfesti í dag kyrrsetningargerð sýslumannsins í Reykjavík gegn Steingrími P. Kárasyni, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi. 26.1.2012 18:11
Breytist í takt við breytt heilsufar þjóðarinnar Stoðtækjafyrirtækið Stoð hf. heldur upp á þrjátíu ára afmæli á þessu ári. Til að halda upp á tímamótin stendur fyrirtækið fyrir opnum fræðslufundum allt árið og fer sá fyrsti fram í dag. 26.1.2012 17:30