Skuldatryggingaálag Íslands fer lækkandi 3. febrúar 2012 06:46
Skuldatryggingaálag Íslands er 292 punktar og hefur verið samfellt undir 300 punktum síðan 20. janúar síðastliðinn. Um síðustu áramót stóð það í 317 punktum en á sama tíma í fyrra var það 279 punktar. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningar Íslandsbanka. Þar segir að nokkur lækkun hafi orðið á skuldatryggingarálagi á ríki Vestur-Evrópu síðasta mánuðinn. Þannig var skuldatryggingarálagið að meðaltali 260 punktar í lok dags í gær á meðal ríkja Vestur-Evrópu, þá að Grikklandi undanskildu, en hafði verið um 277 punktar um síðustu áramót. Eins og fyrr segir er skuldatryggingarálag Grikklands undanskilið, enda bjagar það þennan samanburð verulega. Má hér nefna að í lok dags í gær stóð það samkvæmt gögnum úr Bloomberg-gagnvarveitunni í 6.121 punktum en um síðustu áramót var það 8.786 punktar. Þrátt fyrir að skuldatryggingarálagið hafa lækkað nokkuð er skuldatryggingarálagið á ríki Vestur Evrópu mun hærra en það var á sama tíma í fyrra, en þá var það rúmir 140 punktar og má augljóslega rekja það til þeirra miklu hræringa sem verið hafa í efnahagsástandi margra ríkja þar, enda mörg þeirra staðið í ströngu á tímabilinu vegna skuldakreppunnar á evrusvæðinu. Skuldatryggingarálagið hefur lækkað á öllum ríkjum Vestur Evrópu frá áramótum talið að Portúgal undanskildu. Þannig stóð álagið á Portúgal í lok dags í gær í 1.358 punktum en hafði verið um 1.082 um síðustu áramót, og er álag þess næsthæst í þessum samanburði, þ.e. á eftir Grikklandi. Þriðja hæsta áhættuálagið er á Írland, sem stóð í lok dags í gær í 590 punktum en það er 134 punktum neðar en það var um síðustu áramót.
Mest lesið Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Viðskipti innlent Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Viðskipti innlent Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Viðskipti innlent Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Viðskipti innlent Greitt við afhendingu hjá nýrri íslenskri netverslun Samstarf Ekkert blabla: „Veikindi eru ekki alltaf orsök veikindaleyfa“ Atvinnulíf Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Viðskipti innlent Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Viðskipti innlent Setja gjald á hraðtískuvörur Viðskipti erlent Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Neytendur Fleiri fréttir Tómas einn vildi halda vöxtum óbreyttum Bláa lónið og Alfreð Gíslason verðlaunuð Skrifstofan á Íslandi lögð niður og óvissa um 75 störf Vísar ásökun um rógsherferð alfarið á bug Heiðar Guðjónsson um málshöfðun Gavia: „Það eru engin svik“ Skipta Citroën og Opel alfarið út fyrir Peugeot Tinna leiðir stefnumótun og viðskiptaþróun hjá Sjóvá Daði nýr framkvæmdastjóri hjá Coripharma Ráðinn framkvæmdastjóri BHM Gunnur Helgadóttir ráðin forstjóri Hrafnistu Eykur hlut sinn í Rafnari fyrir hálfan milljarð Arion hækkar vexti á ný Bensínverð hækkar aftur á morgun Gosdrykkjaframleiðsla Gosfélagsins hafin í Hafnarfirði Hagkerfið kólnar en er ekki í kreppu Ekki eftir neinu að slægjast í þrotabúi Slægingar Sjávarútvegurinn lækkar í kjölfar nei-sins Sýn leggur niður sjónvarpsfréttir Stefnir í fjöldagjaldþrot: Bílaleigur fengu hundruð milljóna rukkun frá Skattinum Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Sjá meira