Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Síminn segir upp 29 starfsmönnum Alls hefur 29 starfsmönnum Símans verið sagt upp. Forsvarsmenn Símans kynntu fyrr í dag nýtt skipulag fyrirtækisins á fundi með starfsfólki. Deildir eru sameinaðar og stjórnendum og starfsfólki fækkar en áhersla er lögð á að þjónusta við viðskiptavini skerðist ekki við þessar breytingar. 27.10.2010 12:54
Ekkert formlegt tilboð komið í Iceland, margir áhugasamir Erlendur fjárfestingarsjóður sem lýst hafði yfir áhuga á að greiða jafnvirði 249 milljarða króna fyrir Iceland Foods verslanakeðjuna, hefur ekki gert formlegt tilboð ennþá. Það hefði þýtt tæplega 167 milljarða króna fyrir hlut skilanefndar Landsbankans í fyrirtækinu. 27.10.2010 12:16
Segir verðbólguhorfur að mestu óbreyttar Greining Íslandsbanka segir að verðbólgumæling Hagstofunnar í morgun breyti ekki í stórum dráttum sýn greiningarinnar á verðbólguþróun næstu mánuðina. Nokkur hækkun mun verða á vísitölunni fram til áramóta vegna frekari áhrifa af hækkun veitufyrirtækja og verðhækkunum á landbúnaðarhrávörum erlendis. 27.10.2010 12:12
Fjörkippur í sölu atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu Í september 2010 var 47 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 50 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 1.955 milljónir króna en 566 milljónir króna utan þess. Um er að ræða um 50% aukningu frá fyrri mánuði hvað fjölda skjala varðar á höfuðborgarsvæðinu en um 30% hvað fasteignmat varðar. 27.10.2010 11:25
Ársverðbólgan minnkar í 3,3% Ársverðbólgan mælist 3,3% í október og lækkar um 0,4 prósentustig milli mánaða. Verðbólgan mældist 3,7% í september. Lækkunin nú er nokkuð minni en sérfræðingar höfðu spáð fyrir um. 27.10.2010 09:03
Innflutningur á nautakjöti eykst töluvert milli ára Samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum Sláturleyfishafa hefur innflutningur á nautakjöti til og með ágúst á þessu ári numið 95 tonnum, en á sama tíma árið 2009 var innflutningur nautakjöts kominn í 74 tonn. Er þetta aukning um 27% á milli ára. 27.10.2010 08:44
Múrbúðin eykur umsvif sín Múrbúðin hefur að undanförnu stóraukið þjónustu sína við byggingamarkaðinn. Deild fyrir grófvörur hefur verið opnuð í Kópavogi og jafnframt hefur Múrbúðin tekið til starfa í Vestmannaeyjum. 27.10.2010 08:41
Lífeyrissjóðir töpuðu 70 milljörðum króna á gjaldeyrisvörnum Rúmlega 70 milljarða króna tap lífeyrissjóða landsins vegna gjaldeyrisvarna miðast við að sáttatilboð Landssamtaka lífeyrissjóða verði samþykkt af skilanefndum bankanna. Tapið gæti því orðið mun meira. 26.10.2010 18:30
Pálmi Haralds: Markmið Svavars virðist að sverta æru mína Pálmi Haraldsson segir í yfirlýsingu að hann sé stoltur af aðkomu sinni að kaupum bresku verslunarkeðjunnar Iceland 2005. Hann segir framsetningu Svavars Halldórssonar fréttamanns RÚV í frétt sinni í gær virðast ekki hafa annað að markmiði en að sverta æru sína. 26.10.2010 17:41
Lyfjakostnaður ríkisins lækkaði um hátt í þrjá milljarða Breytingar sem gerðar hafa verið á greiðsluþátttöku ríkisins í lyfjakostnaði og fleiri aðgerðir hafa sparað þjóðarbúinu hátt á þriðja milljarð króna á ársgrundvelli. 26.10.2010 15:13
Þrotabú Baugs vill rifta 100 milljón króna gjörningi Héraðsdómur Reykjavíkur þingfesti í dag riftunarmáli þrotabús Baugs gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) þar sem krafist er riftunar á hundrað milljón króna greiðslu til dótturfélags SPRON. 26.10.2010 14:42
Icelandic Group hefur vottunarferli í þorsk- og ýsuveiðum Icelandic Group hefur hafið vottunarferli í öllum þorsk- og ýsuveiðum við Ísland samkvæmt vottunarstaðli Marine Stewardship Council (MSC). Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að MSC - staðallinn sé sá víðtækasti og virtasti í heiminum yfir sjálfbærar fiskveiðar sem byggja á vísindalegri ráðgjöf. 26.10.2010 17:27
Ríkisendurskoðun gagnrýnir verklag Alþingis Ríkisendurskoðun hefur sent frá sér sjálfstæða ábendingu þar sem skrifstofa Alþingis er hvött til að endurskoða verklag sitt við verðfyrirspurnir og útboð. 26.10.2010 14:32
Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni í rúmt ár Íslenskir neytendur hafa nú ekki verið svartsýnni í rúmt ár samkvæmt Væntingavísitölu Gallup í október sem birt var nú í morgun. Þannig hrapaði vísitalan um heil 35,7 stig milli mánaða og mælist nú 32 stig. Aðeins einu sinni áður hefur vísitalan lækkað svona mikið milli mánáða en það var í bankahruninu í nóvember árið 2008. 26.10.2010 12:28
Efast um að gengisvarnir hafi verið eðlileg fjármálastjórnun Hagfræðingur sem starfaði fyrir rannsóknarnefnd Alþingis dregur í efa að gengisvarnir lífeyrissjóðanna fyrir hrun hafi verið eðlileg fjármálastjórnun. 26.10.2010 12:07
IFS greining spáir góðu uppgjöri hjá Marel IFS greining spáir góðum þriðja fjórðungi hjá Marel en uppgjörið verður birt á morgun, miðvikudag. Samkvæmt spánni verður salan á fjórðungnum um 18% meiri en á sama fjórðungi í fyrra. 26.10.2010 12:00
Pólitískur skotgrafarhernaður á Alþingi til umræðu hjá VÍ „Í stað heildarsamstarfs um lausnir á erfiðri stöðu heimila og atvinnulífs hefur pólitískur skotgrafarhernaður því miður í of mörgum tilvikum orðið ofan á. Þá skortir ríkisstjórninni forystu og getu til að koma brýnum verkefnum í framkvæmd hjálparlaust.“ 26.10.2010 11:53
Rúmlega 7% heimila í vanskilum með húsnæðislán 2009 Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili. 26.10.2010 11:14
SA: Fyrirtækjum gert auðveldara að afla verkefna erlendis Samtök atvinnulífsins (SA) vilja að fyrirtækjum í verktakagreininni og starfsmönnum þeirra verði gert auðveldara að afla sér verkefna erlendis. Þetta sé nauðsynlegt til að koma í veg fyrir verkefnaskort og atvinnuleysi meðal verktaka og að greinin leggist ekki af í bókstaflegri merkingu. 26.10.2010 10:31
IBM kynnir öflugasta örgjörvan á ráðstefnu Nýherja IBM mun kynna heimsins öflugasta örgjörva fyrir zEnterprise, nýja gerð af IBM stórtölvum, á ráðstefnu Nýherja á morgun. 26.10.2010 10:15
Íslendingar í viðræðum við Rússa um stórt orkuver Íslendingar og Rússar eiga nú í viðræðum um jarðvarmaorkuver á Kamstjaka í austasta hluta Rússlands. Þetta kom fram í máli Sergei Shmatko orkumálaráðherra Rússlands á ríkisstjórnarfundi þar í landi í gærdag. 26.10.2010 10:02
Starfandi fólki fækkaði um 1.300 á þriðja ársfjórðungi Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2010 var 170.200 manns og fækkaði um 1.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 181.900 manns sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 84,1% og kvenna 78,6%. 26.10.2010 09:05
Atvinnuleysið var 6,4% á þriðja ársfjórðungi Á þriðja ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 11.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6,4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,1% hjá körlum og 6,8% hjá konum. Frá þriðja ársfjórðungi 2009 til þriðja ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 800 manns. 26.10.2010 09:03
Uppgjör Össurar veldur smávægilegum vonbrigðum Viðskiptablaðið Börsen segir að uppgjör Össurar hf. fyrir þriðja ársfjórðung hafi valdið smávægilegum vonbrigðum, eða "skuffer en smule" eins og það er orðað í blaðinu. 26.10.2010 07:58
Eignir innlánsstofnana lækkuðu um 60 milljarða Heildareignir innlánsstofnana námu 2.861 milljörðum kr. í lok september 2010 og lækkuðu um 59,8 milljarða kr. frá fyrri mánuði. Innlendar eignir lækkuðu um 76,8 milljarða kr en erlendar eignir hækkuðu um 17 milljarða kr. 26.10.2010 07:45
Jón Ásgeir hafnar frétt RÚV Fréttastofu barst rétt í þessu athugasemd frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni þar sem hann hafnar framsetningu Svavars Halldórssonar fréttamanns í frétt um bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods fyrr í kvöld. 25.10.2010 21:47
Hagnaður Össurar hf. 444 milljónir á þriðja ársfjórðungi Össur hf. hagnaðist um 444 milljónir kr. á þriðja ársfjórðungi ársins. Þetta er 111 milljón kr. minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra. Stjórn Össurar er samt ánægð með árangurinn. 25.10.2010 19:24
Hrintu ekki áætlun Heiðars Más í framkvæmd Félög Björgólfs Thors Björgólfssonar fóru ekki nema að litlu leyti að ráðum Heiðars Más Guðjónssonar um að byggja upp skortstöður á gjaldeyris- og hlutabréfamarkaði árið 2006. Þetta fullyrðir talsmaður Novators. 25.10.2010 18:32
Seðlabankinn líklega sáttur við núverandi stöðu krónunnar Líklegt er að seðlabankinn sé nokkuð sáttur við núverandi stöðu krónunnar, að hún sveiflist á þröngu bili á gildum sem tryggja góðan afgang af viðskiptum með vörur og þjónustu við útlönd. 25.10.2010 15:38
Spáði að bankahrun yrði 2007 Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Novators spáði fyrir um það árið 2006 að bankarnir gætu ekki fjármagnað sig árið 2007. 25.10.2010 15:11
Heiðar Már: Viðskiptavinirnir grunlausir um áhættu Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Novators, segir í minnisblaði sem hann kynnti fyrir bankaráði Landsbankans og Björgólfi Thor Björgólfssyni í ársbyrjun 2006 að viðskiptavinir bankanna séu almennt grunlausir og hafi lítið hugsað út í áhættuna sem fylgi því að krónan veikist. 25.10.2010 13:52
Fjöldauppsagnir framundan á uppsjávarskipunum Svo kann að fara að nokkur hundruð undirmönnum á svo nefndum uppsjávarskipum verði sagt upp á næstunni, þar sem margt bendir til að þau verði verkefnalaus alveg fram á næsta sumar. 25.10.2010 12:11
Heiðar Már vildi taka skortstöðu í íslenskum hlutabréfum Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Novators, lagði til í minnisblaði í byrjun árs 2006 að fyrirtæki í eigu Björgólfs Thors byggðu upp 20 milljarða króna skortstöðu í íslenskum hlutabréfum til að bregðast við ójafnvægi í hagkerfinu og minnka áhættu. 25.10.2010 12:06
Nýr framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdarstjóri Íslenska dansflokksins. Sigrún Lilja er 42 ára hagfræðingur með Cand. Merc gráðu frá Viðskiptaháskólanum í Árósum. 25.10.2010 11:53
Sævar Pétursson ráðinn verkefnisstjóri hjá Akureyrarbæ Sævar Pétursson hefur verið ráðinn verkefnisstjóri atvinnumála hjá Akureyrarbæ. Starfshópur um atvinnumál mælti með ráðingu hans en umsækjendur voru 48. 25.10.2010 11:50
Eignarýrnun/verðbólga eyðir allri millistéttinni á Íslandi Innlend verðbólga og eignarýrnun mun að öllum líkindum eyða alveg allri millistétt Íslands. Landinu er haldið á floti af Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, tæknilegum gjaldþrotum og gjaldeyrishöftum. 25.10.2010 11:01
Landsbankinn lokaður, nema í Austurstræti Í tilefni kvennafrídagsins hefur Landsbankinn ákveðið að loka öllum útibúum bankans kl. 14 í dag, nema útibúinu við Austurstræti þar sem hefðbundin þjónusta verður veitt. Í tilkynningu frá bankanum segir að þar verði þó einungis karlar við afgreiðslu. 25.10.2010 09:50
Dráttarvextir óbreyttir á meðan aðrir vextir lækka Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að halda dráttarvöxtum óbreyttum á meðan að aðrir vextir lækka hjá bankanum. 25.10.2010 09:30
Smábátasjómenn kanna stofnun eigin lífeyrissjóðs Landssamband smábátasjómanna (LS) hefur falið framkvæmdastjóra sínum að kanna kosti þess og galla að stofna lífeyrissjóð smábátasjómanna. Þetta var samþykkt á aðalfundi LS fyrir helgina en mikil óánægja kom fram gagnvart lífeyrissjóðnum Gildi sem félagsmenn LS hafa hingað til greitt í. 25.10.2010 09:13
Guðbjörg Edda Eggertsdóttir ráðin forstjóri Actavis Guðbjörg Edda Eggertsdóttir verður forstjóri Actavis á Íslandi í kjölfar skipulagsbreytinga hjá félaginu, sem þegar hafa tekið gildi. Hún situr sem fyrr í framkvæmdastjórn Actavis Group og mun jafnframt stýra margvíslegum verkefnum á heimsvísu, m.a. í Japan, Kína, á Indlandi og víðar. 25.10.2010 08:31
Ekki átti að rýra réttindin Höfuðstólslækkun bílalána sem boðið var upp á hjá Íslandsbanka í byrjun árs gekk til baka í nokkrum tilvikum við endurútreikning lána eftir dóm Hæstaréttar í sumar. Búið er að birta endurútreikning í heimabanka fimm til sex þúsund viðskiptavina Íslandsbanka. Nokkrir viðskiptavina bankans hafa kvartað vegna málsins. 25.10.2010 05:00
Vexti settar skorður í sjávarútvegi og orku Fréttaskýring Hvaðan á hagvöxturinn að koma? Hagvöxtur hér á landi þarf nær örugglega að vera sprottinn af aukinni framleiðslu skiptanlegra gæða, en svo nefnist á máli hagfræðinnar varningur og þjónusta sem léttilega má flytja á milli landa. Þetta kemur fram í skýrslu sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í tengslum við þriðju endurskoðun efnahagsáætlunar Íslands. 25.10.2010 02:15
Heiðar hótar málshöfðun gegn DV Heiðar Már Guðjónsson, fyrrverandi starfsmaður Novators, ætlar að stefna DV fyrir meiðyrði verði fréttir, þess efnis að hann hafi skipulagt árás á íslensku krónuna árið 2007 ásamt alþjóðlegum vogunarsjóðum, ekki dregnar til baka. 24.10.2010 16:33
Fulltrúar Bandaríkjanna og Kína á gjaldmiðlafundi Timothy Geithner, fjármálaráðherra Bandaríkjanna, átti fund með fulltrúum kínverskra stjórnvalda vegna ágreinings um jenið, gjaldmiðil Kínverja. 24.10.2010 10:25
Nýir fjárfestar koma í Ölgerðina „Það var mjög gott að klára þetta til að eyða allri óvissu og geta horft fram á við,“ segir Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar, en fjárhagslegri endurskipulagningu fyrirtækisins, sem staðið hefur yfir frá í fyrra, er lokið. Við þetta eignast fagfjárfestingasjóðurinn Auður 1, sem heyrir undir Auði Capital, 36 prósenta hlut ásamt meðfjárfestum og Arion banki 23.10.2010 06:00