Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
TM Software semur við norsku sjúkrahúsapótekin Íslenska tæknifyrirtækið TM Software hefur gert stærsta samning íslensks fyrirtækis á sviði heilbrigðiupplýsingatækni. Norsku sjúkrahúsapótekin ANS hafa undirritað samning við fyrirtækið um um þróun hugbúnaðar fyrir rafræna lyfjaumsýslu. 22.5.2007 09:54
Stefna að yfirtöku á finnskum banka Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hefur keypt meirihluta í finnska bankanum eQ Corporation, sem sérhæfir sig í eignastýringu, verðbréfamiðlun og fyrirtækjaráðgjöf. Gert verður yfirtökutilboð í allt hlutafé og kauprétti í bankann. Samanlagt kaupvirði er 260 milljónir evra, jafnvirði um 22 milljarða íslenskra króna. Stjórn eQ mælir með því að hluthafar og rétthafar samþykki yfirtökutilboðið. 22.5.2007 09:20
Risasamruni á Ítalíu Stjórn ítalska bankans Unicredit greindi frá því um helgina að samningar hefðu náðst um kaup á ítalska bankanum Capitalia. Kaupverð, sem greiðist að öllu leyti með hlutafé, nemur 22 milljörðum evra, jafnvirði 1.882 milljörðum íslenskra króna. Hluthafar beggja banka eiga þó eftir að samþykkja viðskiptin. 22.5.2007 05:30
Fjárfesta í neytendageiranum Eignarhaldsfélagið Arev og Icebank hafa stofnað nýjan einkafjármagnssjóð, Arev N1. Sjóðurinn hefur allt að þrjá milljarða króna til fjárfestinga í íslenskum neytendavörufyrirtækjum á sviði heildsölu, smásölu og þjónustu. Þetta mun vera eini sjóðurinn með þessu sniði hérlendis sem fjárfestir í neytendavörufyrirtækjum. 22.5.2007 05:00
Actavis kemur að lyfi í BNA Actavis hefur hafið sölu á þvagfæralyfinu Finasteride í Bandaríkjunum eftir að hafa fengið samþykki bandarísku matvæla- og lyfjastofnunarinnar, FDA. Finasteride er notað við góðkynja stækkun í blöðruhálskirtli. Í tilkynningu Actavis kemur fram að Finasteride sé sjötta samheitalyfið sem félagið markaðssetji í Bandaríkjunum á þessu ári, en ætlunin sé að koma með 18 til 20 lyf á markaðinn í ár. 22.5.2007 02:00
Sól kaupir Emmessís Gengið hefur verið frá samkomulagi milli Auðhumlu svf., móðurfélags Mjólkursamsölunnar og Sólar ehf. um kaup þess síðarnefnda á Emmessís hf. Fram kemur í tilkynningu að samkomulag hafi verið undirritað með fyrirvara um áreiðanleikakönnun. Kaupverð er sagt trúnaðarmál. 22.5.2007 02:00
Spá 4,1 prósents verðbólgu Greiningardeild Landsbankans segir nýjustu hagvísa benda til að töluvert meiri verðbólguþrýstingur sé í hagkerfinu og gerir ráð fyrir 4,1 prósents verðbólgu á árinu öllu. 21.5.2007 16:13
Actavis fær leyfi fyrir þvagfæralyfi í Bandaríkjunum Actavis hefur hafið sölu á þvagfæralyfinu Finasteride í Bandaríkjunum eftir að félagið fékk samþykki bandarísku matvæla- og lyfjastofnunarinnar fyrir því að markaðssetja það. 21.5.2007 14:51
Icebank og Arev stofna nýjan einkafjármagnssjóð Eignarhaldsfélagið Arev og Icebank hafa stofnað nýjan einkafjármagnssjóð, Arev N1. Sjóðurinn hefur allt að þrjá milljarða króna til fjárfestinga í íslenskum neytendavörufyrirtækjum, aðallega á sviði heildsölu, smásölu og þjónustu. Þetta er eini sjóðurinn með þessu sniði hérlendis, sem fjárfestir í neytendavörufyrirtækjum. 21.5.2007 10:19
Peningaskápurinn... Ráðherrar Framsóknar sinna enn störfum sínum samviskusamlega þrátt fyrir að vera sárir út í Sjálfstæðisflokkinn fyrir að stíga í vænginn við Samfylkinguna. 19.5.2007 00:01
Ný stjórn reynist fjármálamörkuðum vel Verði af myndun nýrrar ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar, eins og útlit er fyrir, mun stjórnin að öllum líkindum reynast fjármálamörkuðum nokkuð hagfelld, að sögn greiningardeildar Glitnis. Deildin telur ekki líkur á miklum breytingum og þykir ólíklegt að skattar á fyrirtæki og fjármagnstekjur verði hækkaðir. 18.5.2007 11:56
Verðbólguhorfur ámóta og í mars Verðbólguhjöðnun hefur gengið heldur hægar en Seðlabankinn gerði ráð fyrir, en þó ekki svo að hafi enn áhrif á ákvarðanir bankans um stýrivexti. Davíð Oddsson seðlabankastjóri kynnti í gær ákvörðun bankans um að hafa stýrivexti óbreytta í 14,25 prósentum. Að óbreyttu segir hann að vaxtalækkunarferli bankans gæti hafist í lok þessa árs. 17.5.2007 07:15
Komumst ekki hjá því að taka upp evru Íslendingar komast ekki hjá því að taka upp evru, segir Þórólfur Matthíasson, prófessor við Viðskipta- og hagfræðideild Íslands, í löngu og ítarlegu viðtali í nýjasta tölublaði Samiðnar. 17.5.2007 06:00
Föllum um þrjú sæti Ísland fellur úr fjórða sæti í það sjöunda í samanburði IMD-viðskiptaháskólans í Sviss á samkeppnishæfni þjóða. Viðskiptaráð Íslands og Glitnir kynntu niðurstöður könnunarinnar í gær. Í könnuninni er metin samkeppnishæfni 55 landa út frá yfir 300 hagvísum og svörum frá áhrifamönnum í viðskiptalífi. 17.5.2007 05:15
Nýherji kaupir danskt tæknifyrirtæki Nýherji hefur fest kaup á danska fyrirtækinu Dansupport A/S í Óðinsvéum í Danmörku. Um er að ræða þjónustufyrirtæki sem er sérhæft í uppsetningu á tölvu-, samskipta- og símakerfum fyrir meðalstór fyrirtæki eftir því sem segir í tilkynningu til Kauphallar Íslands. 16.5.2007 14:45
Verðbólguþrýstingur enn of mikill Davíð Oddsson seðlabankastjóri, segir undirliggjandi verðbólgu enn langt yfir verðbólgumarkmiðum bankans og að verðbólga hafi hjaðnað nokkru hægar en spá bankans í mars hafi gert ráð fyrir. 16.5.2007 11:24
Óbreyttir stýrivextir taldir langlíklegastir Greiningardeildir bankanna gera ráð fyrir að stýrivextir verði áfram 14,25 prósent. Verðbólga hefur reynst þrálátari en gert var ráð fyrir og langvarandi hátt vaxtastig ekki útilokað. 16.5.2007 08:15
Víxlverkun Kína og Bandaríkjanna nærir hagkerfi heimsins Dr. Pedro Videla, prófessor við Roosevelt University í Chicago í Bandaríkjunum fjallaði um þróun efnahagsmála heimsins til lengri tíma litið og las í stefnu fjármálamarkaða og gjaldmiðla á ráðstefnu sem Kaupþing og Háskólinn í Reykjavík stóðu fyrir síðasta föstudag. Óli Kristján Ármannsson sat fyrirlesturinn þar sem fram kom að framtíðarstöðugleiki heimshagkerfisins væri mikið til undir Kínverjum kominn. 16.5.2007 07:00
Veislan í Gramercy Sir Philip Green, eigandi Arcadia, blés til mikillar veislu í New York í Bandaríkjunum á þriðjudag í síðustu viku. Tilefnið var upphaf sölu á splunkunýrri fatalínu stjörnufyrirsætunnar Kate Moss, sem hún hannaði fyrir Topshop. 16.5.2007 00:01
Fundað um samkeppnishæfni Viðskiptaráð Íslands og Glitnir efna í dag til fundar í húsakynnum Viðskiptaráðs þar sem niðurstöður könnunar IMD-viðskiptaháskólans í Lausanne í Sviss á samkeppnishæfni hagkerfa verða kynntar ítarlega. 16.5.2007 00:01
Spákaupmaðurinn: Krónuprinsinn Björgólfur Thor Jæja, sennilega getur maður farið í sumarfrí rólegur yfir krónunni. Þökk sé Björgólfi Thor. Yfirtaka á Actavis mun halda krónunni uppi fram á haustið, auk þess sem markaðurinn hér heima mun fá stuðning við þetta. 16.5.2007 00:01
Í góðum félagsskap Og áfram af gleðinni hjá Green því Sunday Times segir viðskiptajöfurinn hafa verið svo ánægðan með dvöl sína í New York að hann geti vel hugsað sér að flytja þangað og fylgjast með uppbyggingu Topshop-búðanna. 16.5.2007 00:01
Sjötíuogfimmföldun markaðsvirðis á átta árum Þegar Pharmaco keypti Balkanpharma árið 1999 var markaðsvirði félagsins um 3,8 milljarðar króna. Síðla árs 2003 fór Actavis yfir hundrað milljarða íslenskra króna, fyrst íslenskra félaga. Nú, tæpum fjórum árum síðar, er markaðsvirði félagsins rúmlega 290 milljarðar íslenskra króna. Það hefur því sjötíuogfimmfaldast á átta árum. 16.5.2007 00:01
Eigendaskipti hjá verktakafyrirtækinu Háfelli Gengið hefur verið frá sölu á öllu hlutafé í verktakafyrirtækinu Háfelli ehf. Eiður H. Haraldsson og fjölskylda, sem rekið hafa félagið frá árinu 1986, hafa selt allt sitt hlutafé til félags í eigu Skarphéðins Ómarssonar og Jóhanns Gunnars Stefánssonar. Fyrirtækjasvið KPMG hafði umsjón með sölu félagsins. 16.5.2007 00:01
Styðja við útrás Lay Low Samskip hafa tilkynnt um stuðning sinn við tónlistarkonuna Lovísu Elísabetu Sigrúnardóttur, eða Lay Low eins og hún kallar sig, næstu tvö árin. Hún hefur notið vaxandi vinsælda bæði heima og erlendis og sigraði meðal annars í þremur flokkum á Íslensku tónlistarverðlaununum fyrr á árinu. 16.5.2007 00:01
HugurAx kaupir veflausnadeild HugurAx hefur keypt veflausnadeild Betri lausna ehf., sem hefur um árabil unnið að gerð veflausna fyrir fyrirtæki og stofnanir og þróað öflugt íslenskt vefumsjónarkerfi. 16.5.2007 00:01
Ekkert frí Spennandi þingkosningar eru að baki, en skömmu fyrir kosningar heyrðust þær raddir að einhverjir íslenskir fjárfestar hefðu í hyggju að taka sér frí til fjögurra ára næði vinstristjórn völdum með hugsanlegum skattahækkunum á fyrirtæki, hagnaði af sölu hlutabréfa og ýmsu öðru sem valdið hefði pirringi þeirra. 16.5.2007 00:01
Framhald Actavissögu á huldu Novator, fjárfestingarfélag Björgólfs Thors Björgólfssonar, lagði í síðustu viku fram yfirtökutilboð í allt hlutafé Actavis Group. Greiningardeildir bankanna eru ekki á einu máli um ágæti tilboðsins. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að raun um að sumir sérfræðingar ráðleggja hluthöfum að halda að sér höndum. Tilboðið verði hækkað eða annað betra berist. Aðrir telja ólíklegt að boðið verði á móti Novator. Til að geta afskráð félagið þarf Novator samþykki 2/3 hluthafa Actavis. 16.5.2007 00:01
Icebank hagnast um tæpa 2 miljarða króna Icebank hagnaðist um tæpa 1,8 milljarð króna á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs samkvæmt ársfjórðungsuppgjöri bankans. Á sama tímabili í fyrra nam hagnaður bankans rétt tæpum 500 milljónum eftir skatta. 15.5.2007 14:36
Símtal af Everest Breskur fjallgöngumaður hyggst hringja úr gsm-síma á toppi veraldar. Rob Baber hefur klifið 47 hæstu tinda Evrópu. Nú ætlar hann sér að hringja fyrstu manna úr GSM -síma af toppi Mount Everest. 15.5.2007 14:00
Úrvalsvísitalan setur nýtt met Úrvalsvísitalan fór yfir 8.000 stiga múrinn stuttu eftir klukkan ellefu í dag og hefur aldrei verið hærri. Vísitalan hefur hækkað jafnt og þétt og hefur slegið hvert metið á fætur öðru síðastliðna tvö viðskiptadaga í Kauphöll Íslands. 15.5.2007 11:11
Úrvalsvísitalan slær nýtt met Úrvalsvísitalan í Kauphöll Íslands náði nýjum methæðum við lokun markaða í dag þegar hún endaði í 7.904 stigum. Næstahæsta gildi hennar var á föstudag þegar hún fór í 7.859 stig. 14.5.2007 17:35
Afskráning Actavis geti haft jákvæð áhrif á krónu og hlutabréf Greiningardeild Kaupþings telur að afskráning Actavis af markaði geti haft jákvæð áhrif á gengi bæði hlutabréf og krónunnar. Í hálffimmfréttum greiningardeildarinnar er fjallað um yfirtökutilboð Novators í Actavis. 14.5.2007 17:18
Fullur aðgangur að tölvupósti í símanum Openhand gerir notendum kleift að ná í tölvupóst í hvaða forritanlega síma sem er. Viðskiptahópurinn stækkar stöðugt. Openhand er hugbúnaðarfyrirtæki sem sérhæfir sig í samskiptalausnum fyrir farsíma. 14.5.2007 16:04
Kaupþing með 20% í Storebrand Kaupþing hefur eignast 20 prósenta hlut í norska fjármála- og tryggingafyrirtækinu Storebrand. Með kaupunum hefur Kaupþings eignast alla þá hluti sem honum er heimilt að eiga í Storebrand, samkvæmt heimild norska yfirvalda. 14.5.2007 15:25
Atlantsskip opna skrifstofu í Rotterdam Atlantsskip hafa opnað skrifstofu í Rotterdam í Hollandi sem forráðamenn félagsins lýsa sem stærsta skrefi sem það hafi stigið til þessa í útrás. Með skrifstofunni mun þungamiðja flutninganets félagsins færast til Rotterdam en þar er stærsta höfn Evrópu. 14.5.2007 14:46
Enn eykst velta á fasteignamarkaði Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu voru 225 talsins frá 4. maí til 10. sama mánaðar. Heildarveltan nam 8.085 milljónum króna en meðalupphæð á samning nam 35,9 milljónum króna, samkvæmt nýjum tölum Fasteignamats ríkisins. Á sama tíma í fyrra var 186 samningum þinglýst. Heildarveltan þá nam 6.220 milljónum króna en meðaupphæð samninganna nam 33,4 milljónum króna. 14.5.2007 09:20
Mylan kaupir samheitalyfjahluta Merck Þýska lyfjafyrirtækið Merck greindi frá því í dag að það hefði ákveðið að selja samheitalyfjahluta fyrirtækisins til bandaríska lyfjafyrirtækisins Mylan Laboratories. Kaupverð nemur 4,9 milljörðum evra, jafnvirði rúmra 426 milljarða íslenskra króna. Actavis var lengi vel á meðal þeirra sem helst komu til greina sem kaupendur á samheitalyfjahlutanum. Fyrirtækið dró sig úr baráttunni í byrjun mánaðar. 13.5.2007 12:39
Verðbólga er yfir spám bankanna Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,86 prósent á milli mánaða og lækkar tólf mánaða verðbólga því úr 5,3 prósentum í 4,7 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Þetta er meiri hækkun en greiningardeildirnar gerðu ráð fyrir en þær spáðu því að verðbólga myndi fara allt niður í 4,3 prósent. 12.5.2007 06:15
Icelandair færir sig til Austur-Evrópu Velta Icelandair eykst um þrjátíu prósent á þessu ári ef kaup á Travel Service og Smart Wings ganga eftir. 12.5.2007 06:00
Lokahnykkur sameiningar Þriðja af þremur skrefum í aðlögun Kauphallar Íslands að OMX kauphallasamstæðunni verður tekið á mánudaginn. Þá hefjast viðskipti á markaði með afleiður á íslensk hlutabréf og vísitölur. Afleiður eru sérstök tegund samninga sem notaðir eru til að draga úr áhættu í viðskiptum. Sama dag verður settur á fót lánamarkaður með hlutabréf í úrvalsvísitölunni. 12.5.2007 06:00
Hvar vinnur Jón Karl? Eins og kemur fram á síðunni hefur Icelandair Group undirritað viljayfirlýsingu um kaup á tékkeska flugfélaginu Travel Servie. Á blaðamannafundi Icelandair Group vegna fyrirhugaðra kaupa varð Jóni Karli Ólafssyni, forstjóra Icelandair, það á í messunni að nefa Icelandic Group þegar hann ætlaði að segja Icelandair Group. 12.5.2007 05:00
Ólíklegt að markmið Seðlabankans náist á árinu Talsverður verðbólguþrýstingur er í hagkerfinu og er allt útlit fyrir að verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands verði ekki náð á árinu. Þetta segir greiningardeild Kaupþings í dag og bendir á að verðbólga hefði mælst 6,5 prósent í stað 4,3 ef ekki hefði komið til skattalækkana í marsmánuði. 11.5.2007 14:42
Kaupþing selur hlut sinn í Danól og Ölgerðinni Kaupþing banki hefur selt liðlega 31 prósents hlut sinn í Danól ehf og Ölgerð Egils Skallagrímssonar til fjögurra stjórnenda fyrirtækjanna. 11.5.2007 13:41
Dótturfélag Eimskips semur við Neslé Innovate Logistics, dótturfélag Eimskips, hefur skrifað undir 10 ára samning við Nestlé UK Ltd, stærsta matvæla- og drykkjarvöruframleiðanda í heimi, um rekstur á 75.000 bretta kæligeymslu í Bardon, Leicestershire í Bretlandi. Heildarvirði samningsins nemur milljörðum króna. 11.5.2007 12:48