Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Olíufélögin selja Gasfélagið Gengið hefur verið frá sölu á öllu hlutafé Gasfélagsins ehf., sem er helsti innflytjandi á fljótandi gasi og gashylkjum til landsins. Seljendur eru Olíufélagið ehf., Olíuverzlun Íslands og Skeljungur. Gasfélagið ehf. var stofnað í núverandi mynd árið 1995. 11.10.2005 00:01
Bílanaust fjárfestir í Bretlandi Bílanaust hefur keypt hlut í þremur fyrirtækjum í Bretlandi. Samanlögð velta fyrirtækjanna er rúmlega 1,2 milljarðar króna og eru fyrirtækin í dreifingu á iðnaðarvörum af ýmsu tagi, til dæmis öryggisvörum, hreinlætisvörum, efnavörum, festingavörum og verkfærum. 11.10.2005 00:01
Svafa aðstoðarforstjóri Actavis Svafa Grönfeldt hefur tekið við nýju starfi sem aðstoðarforstjóri Actavis Group eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá fyrirtækinu. Svafa hóf störf hjá Actavis árið 2004 sem framkvæmdastjóri stjórnunarsviðs en hún mun í nýju starfi samtvinna stefnu og innra skipulag samstæðunnar ásamt því að stýra verkefnum sem lúta að aukinni skilvirkni í rekstri. 11.10.2005 00:01
Hagnaður hjá SÍF Afkoma SÍF var undir væntingum á nýliðnu rekstrarári. Hagnaður félagsins á fyrstu sex mánuðum ársins nam 2,8 milljónum Evra. Þetta kom fram á aðalfundur SÍF sem var haldinn á Nordica Hotel í gær. 11.10.2005 00:01
Breytt fjárhagsár hjá SÍF Árstíðarbundinn rekstur er ein helsta ástæða þess að fjárhagsári SÍF var breytt að sögn Jakobs Sigurðssonar, forstjóra SÍF. Jakob segir rekstur félagsins vera mjög árstíðarbundinn en langstærsti hluti sölu og afkomu myndist á tímabilinu október til desember. 11.10.2005 00:01
Slippstöðin hefur starfsemi á ný Nýtt hlutafélag verður stofnað um rekstur Slippstöðvarinnar á Akureyri í dag og hefst starfsemi á þriðjudag. Nýr framkvæmdastjóri er bjartsýnn á framhaldið og vonast til að geta endurráðið alla starfsmenn. </font /> 9.10.2005 00:01
Hagnaður eykst um 65% Greiningardeild Landsbankans spáir því að hagnaður fyrirtækja sem skráð eru í Kauphöllinni aukist um 65 prósent á þriðja ársfjórðungi í samanburði við sama tímabil í fyrra. Í krónum talið nemur aukningin ein röskum ellefu milljörðum króna og þar af eiga fjármálafyrirtækin rúma sjö milljarða. 7.10.2005 00:01
Viðræður um Sterling standa yfir FL Group kaupir Sterling af eigendum Iceland Express ef samningar nást en viðræður milli Hannesar Smárasonar, stjórnarformanns FL Group, og Pálma Haraldssonar eru í fullum gangi. Endanleg ákvörðun hefur þó ekki verið tekin. 7.10.2005 00:01
Spáir lækkun íbúðaverðs Greiningardeild KB banka spáir því að íbúðaverð muni lækka ef vextir af húsnæðislánum hækka, eins og allt útlit er fyrir að verði. Vextir af óverðtryggðum og verðtryggðum skuldabréfum héldu áfram að hækka í gær. 6.10.2005 00:01
Friðjón sagði upp hjá Lífiðn Friðjón Rúnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðsins Lífiðnar, sagði upp störfum frá og með síðustu mánaðamótum. Í tilkynningu sjóðsins kemur fram að hann muni fljótlega hverfa frá störfum til að takast á hendur starf framkvæmdastjóra fjárfestingarsviðs hjá Sjóvá hf. 6.10.2005 00:01
Nýherji kaupir danskt fyrirtæki Nýherji hefur undirritað samning um kaup á danska SAP ráðgjafar- og hugbúnaðarfyrirtækinu AppliCon. Fyrirtækið er einn stærsti samstarfsaðili SAP í Danmörku og eitt af öflugri SAP ráðgjafarfyrirtækjum þar í landi, að því er greinir frá í tilkynningu frá Nýherja. 4.10.2005 00:01
Krónan lækkaði um 0,55% Gengi krónunnar lækkaði um 0,55 prósent í morgun eftir mikla hækkun fyrir helgi. Sérfræðingar segja þessa lækkun ekki þýða neitt sérstakt, krónan geti bæði hækkað og lækkað á morgun þótt líkur séu til þess að hún hækki á ný. 3.10.2005 00:01
Kauphöllin áminnir Heklu Kauphöll Íslands hefur áminnt Heklu hf. opinberlega fyrir brot á reglum fyrir útgefendur verðfbréfa í Kauphöllinni. Málavextir eru þeir að Hekla hf. birti þann 31. ágúst á fréttavef Kauphallarinnar árshlutareikning fyrir tímabilið janúar til júní 2005. Skýringar með árshlutareikningnum vantaði og eftir ítrekanir frá Kauphölllinni var árshlutareikningur með skýringum birtur 13. september. 3.10.2005 00:01
Krónan kunni enn að styrkjast Krónan kann að styrkjast mun meira en orðið er og erlendir gjaldmiðlar þannig að lækka í verði á næstunni í kjölfar þess að Seðlabankinn gefur skýrt til kynna að hann ætli að hækka vexti mun meira og halda þeim háum mun lengur en sérfræðingar fjármálamarkaðarins höfðu gert ráð fyrir, segja sérfræðingar KB banka meðal annars um nýjustu aðgerðir Seðlabankans í gær. 30.9.2005 00:01
Afkoma ríkisins batnar milli ára Bráðabirgðatölur fyrir annan ársfjórðung þessa árs benda til þess að afkoma hins opinbera hafi batnað verulega frá því í fyrra að því er fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Útlit er fyrir að heildartekjur ríkissjóðs hafi orðið 87,3 milljarðar króna á rekstrargrunni og tekjur hafi aukist um 30,1 prósent frá sama fjórðungi síðasta árs en gjöld um 16,4 prósent. 30.9.2005 00:01
Actavis kaupir ungverskt félag Actavis undirritaði í dag samning um kaup á ungverska lyfjafyrirtækinu Kéri Pharma. Félagið var stofnað árið 1991 og sérhæfir sig í þróun, sölu og markaðssetningu á samheitalyfjum í Mið- og Austur-Evrópu. 30.9.2005 00:01
SPRON hækkar vexti SPRON hefur ákveðið að hækka vexti óverðtryggðra inn- og útlána um allt að 0,75 prósent í framhaldi af vaxtahækkun Seðlabanka Íslands. Vaxtahækkun þessi tekur gildi í morgun. 30.9.2005 00:01
Húsnæðisvextir kunni að hækka Frekari stýrivaxtahækkanir Seðlabankans og til lengri tíma en fjármálamarkaðurinn hafði reiknað með kunna að leiða til þess að vextir af húsnæðislánum almennings hækki og þar með útgjöld heimilanna. 30.9.2005 00:01
Gengi krónu rauk upp í morgun Gengi krónunnar rauk upp í morgun og hækkaði hún um tæp tvö prósent við opnun markaðar. Nú rétt fyrir hádegi var hækkunin 1,7 prósent, sem eftir sem áður er einhver mesta hækkun til þessa á einum degi. Gengisvísitalan fór niður í rúmlega 104 stig í morgun sem er það lægsta síðan farið var að skrá krónuna með núverandi hætti árið 1993, en eftir því sem vísitalan krónunnar er lægri, er krónan sterkari. 30.9.2005 00:01
Ómar hættir hjá Avion Ómar Benediktsson, forstjóri flugfélagsins Air Atlanta Icelandic, hefur ákveðið að láta af störfum 1. nóvember næstkomandi. Ómar hefur stýrt sameiningu Íslandsflugs og Atlanta en því samrunaferli er nú lokið. Við starfi Ómars tekur Hafþór Hafsteinsson, forstjóri flugflutningasviðs Avion Group, sem kemur tímabundið til með að sinna báðum störfum.> 30.9.2005 00:01
Netbankinn hækkar innlánsvexti Í kjölfar hækkunar stýrivaxta Seðlabankans þá mun Netbankinn hækka vexti um 0,75% frá og með 1.okt. á óverðtryggðum innlánsreikningum, einnig á sér stað hækkun á verðtryggðum innlánsreikningi um 0,20%. 30.9.2005 00:01
Tilboði Landsbankans tekið Ríkisstjórnin hefur tekið tilboði Landsbanka Íslands í eignir og skuldir Lánasjóðs landbúnaðarins. Landsbankinn bauð 2.653 milljónir í sjóðinn og var það jafnframt hæsta tilboðið. 30.9.2005 00:01
Hækka vexti á inn- og útlánum Bæði Landsbankinn og Sparisjóðirnir hafa hækkað vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum í kjölfar stýrivaxtahækkunnar Seðlabankans í gær. Vextir bankanna hækka um sama hlutfall og stýrivextirnir, eða um 0,75 prósent. 30.9.2005 00:01
Útflutningsgreinar í uppnámi Samspil hækkandi stýrivaxta Seðlabankans og gengisþróunar veldur þeim áhyggjum sem byggja afkomu sína á erlendri mynt. Seðlabankinn hækkar á þriðjudaginn stýrvexti í 10,25 prósent til að slá á verðbólgu og gengi krónunnar er þegar farið að styrkjast. 30.9.2005 00:01
Vaxtahækkunin ekki góð tíðindi Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir vaxtahækkun Seðlabankans ekki góð tíðindi. Hann telur vafasamt að hún verði til að slá á þá eftirspurn sem drífi áfram verðbólguna og varar fjölskyldur við of mikilli skuldsetningu. 30.9.2005 00:01
Búist við hækkun stýrivaxta Seðlabankinn mun tilkynna um hækkun stýrivaxta í dag og telja fjármálasérfræðingar almennt að hún verði um hálft prósentustig. Þar með hefði hún hækkað um fjögur og hálft prósentustig frá því snemma í fyrra en þessi hækkun hefur meðal annars stuðlað að styrkingu krónunnar. Þótt sú styrking hafi slæm áhrif á útflutningsgreinarnar er henni aftur á móti ætlað að slá á verðbólguna. 29.9.2005 00:01
Stýrivextir hækkaðir um 0,75% Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að hækka stýrivexti bankans um 0,75% frá og með 4. október n.k. í 10,25%. Seðlabankinn hefur þá hækkað stýrivexti sína um 4,95% síðan í maí 2004. 29.9.2005 00:01
Selja skrifstofur sínar í Evrópu Íslandsferðir, dótturfélag FL Group, hafa selt allar söluskrifstofur sínar á meginlandi Evrópu til svissneska fyrirtækisins IS-Travel. Íslandsferðir skýra söluna með því að verið sé að gera stefnumarkandi breytingu á starfsemi félagsins sem felst í því að fyrirtækið mun hverfa af almennum neytendamarkaði í tilteknum löndum 29.9.2005 00:01
Sigurjón kaupir fasteignafélag Fasteignafélag í eigu Sigurjóns Sighvatssonar mun ef samningar nást þar um kaupa meirihluta í dönsku fasteignafélagi sem á um 150 íbúðir, verslunar- og skrifstofuhúsnæði og byggingarland í Kaupmannahöfn. 29.9.2005 00:01
Vöruskiptahalli eykst enn Vöruskiptahalli við útlönd nam 11,8 milljörðum króna í ágústmánuði og jókst um sex milljarða frá sama tímabiliu í fyrra. Þetta kemur fram í tölum frá Hagstofu Íslands. Fluttar út vörur fyrir 14,2 milljarða króna og inn fyrir 25,9 milljarða króna. Þetta þýðir að halli á vöruviðskiptum við útlönd fyrstu átta mánuði ársins nemur nú 59,2 milljörðum en hann var 24,8 milljarðar á sama tímabili í fyrra. 28.9.2005 00:01
Aukning um 1000 milljarða á ári Á sama tíma og slegið er met í vöruskiptahalla við útlönd hafa heildarútlán í bankakerfinu aukist um nær eitt þúsund milljarða á einu ári. Þar af hafa heildarútlán banka til heimila í landinu aukist um ríflega 240 milljarða á einu ári. 28.9.2005 00:01
Vextir hækkaðir um 50 punkta Seðlabankinn mun hækka vexti um 50 punkta samhliða útgáfu Peningamála á morgun, samkvæmt spá greiningardeildar KB banka. Ef svo fer munu stýrivextir Seðlabankans vera 10%, en þeir hafa hækkað alls um tæp 5% frá því í maí í fyrra þegar vaxtahækkunarferli bankans hófst. 28.9.2005 00:01
SÍF vel undir væntingum Hagnaður SÍF á öðrum ársfjórðungi var aðeins 33 þúsund evrur. Er það talsvert undir spám bankanna sem höfðu að meðaltali gert ráð fyrir tæplega 6,2 milljóna evra hagnaði. Hagnaður á fyrri hluta árs var alls 2,8 milljónir evra. 28.9.2005 00:01
Kaupás á leið frá Búri Kaupás, sem rekur matvöruverslunarkeðjurnar Krónuna, Nóatún og 11-11, hefur fært töluverðan hluta af innkaupum sínum út úr Búri ehf., sem er sameiginlegt innkaupa- og dreifingarfyrirtæki Kaupáss, Samkaupa og Olíufélagsins og er í eigu sömu aðila. Ekki er ólíklegt að frekari breytingar verði á samstarfi Kaupáss og Búrs á næstu misserum. 28.9.2005 00:01
Dregur úr væntingum Íslendinga Heldur dregur úr væntingum Íslendinga í septembermánuði samkvæmt mælingum Gallup á væntingavísitölu sinni. Vísitalan, sem stendur nú í 123,4 stigum, lækkaði um 8,1% frá fyrri mánuði eða um 10 stig. 27.9.2005 00:01
Ofnæmislyf á markað í Rússlandi Actavis hefur sett ofnæmislyfið Cetrizine á markað í Rússlandi. Unnið er að skráningu lyfsins á öðrum mörkuðum fyrirtækisins, svo sem í Úkraínu, Moldavíu og í Hvíta-Rússlandi, og er búist við að það verði markaðssett þar í byrjun næsta árs. Jafnframt verður blóðþrýstingslyfið Fosinopril sett á markað í Rússlandi í lok október. 26.9.2005 00:01
Krónan veiktist um 0,75% Krónan veiktist í dag um 0,75 prósent. Mikil viðskipti voru með krónur á gjaldeyrismarkaði í dag en í síðustu viku náði krónan lokagildinu 104,9 sem er sterkasta lokagildi frá opnun gjaldeyrismarkaðar árið 1993. 26.9.2005 00:01
2 milljarða afgangur á ríkissjóði Ríkissjóður var rekinn með tveggja milljarða króna afgangi á síðasta ári samkvæmt niðurstöðutölum ríkisreiknings fyrir árið 2004 samanborið við 6,1 milljarðs króna halla árið áður. Þegar afkoman er skoðuð án tilfallandi liða eins og eignasölu, lífeyrisskuldbindinga og afskrifta skattkrafna er afgangur um 23 milljarðar á meðan halli ársins á undan nam rúmum einum milljarði króna á sama grunni. 26.9.2005 00:01
Prímus kaupir helmingshlut í Fíton Fjárfestingafélagið Prímus í eigu Hannesar Smárasonar hefur keypt helmingshlut í Grafít sem á auglýsingaskrifstofuna Fíton, Máttinn og Dýrðin auglýsingastofu og Auglýsingamiðlun. Með þessum kaupum hefur Prímus eignast helmingshlut í Fíton. 25.9.2005 00:01
Lægsta gildi krónunnar í 12 ár Krónan styrktist enn í gær og fór lokagildi hennar niður í u.þ.b. 105 sem er hið lægsta síðan gjaldeyrismarkaður var opnaður hér á landi árið 1993. Eftir því sem gildi krónunnar lækkar, styrkist hún og er styrkingin að hluta rakin til erlendrar skuldabréfaútgáfu í íslenskum krónum. 23.9.2005 00:01
Keyptu öll hlutabréf SÍF í ISI Nýir eigendur hafa keypt öll hlutabréf SÍF í Iceland Seafood International (ISI). Benedikt Sveinsson tekur þegar við starfi forstjóra af Kristjáni Davíðssyni sem óskaði eftir lausn frá störfum. 23.9.2005 00:01
50 ára skuldabréf í fyrsta skipti Verðtryggð skuldabréf til 50 ára voru í fyrsta skipti í sögunni gefin út í gær. Það var breska ríkið sem gaf þau út en ávöxtunarkrafan var aðeins 1,11% sem er sú lægsta sem gerð hefur verið á verðtryggðum bréfum frá upphafi, að því greinir frá í Hálffimm fréttum KB banka. 23.9.2005 00:01
Fimmtíu milljarða skuldabréfaútgáf Skuldabréfaútgáfa í íslenskum krónum er nú komin í 53 milljarða frá því að hún hófst samkvæmt hálf-fimm fréttum KB banka. 23.9.2005 00:01
Eyrir gerir stórkaup í Marel Eyrir fjárfestingarfélag keypti í gær yfir tólf prósent hlutafjár í hátæknifyrirtækinu Marel fyrir tæpar 2.200 milljónir króna. Bréfin voru að megninu til keypt af Sjóvá-Almennum, sem áttu um tíu prósent í fyrirtækinu, en talið er líklegt að Landsbankinn hafi einnig selt bréf í sinni eigu. 23.9.2005 00:01
Methagnaður hjá sparisjóðum Methagnaður varð á rekstri sparisjóðanna og Sparisjóðabankans á fyrri hluta ársins 2005, en alls nemur hagnaðurinn 4.582 milljónum króna eftir skatta. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sambandi íslenskra sparisjóða. Hagnaðurinn á fyrstu sex mánuðum ársins er aðeins sex prósentum minni en hann var allt árið 2004 en þá var hann ríflega 4,8 milljarðar króna. 22.9.2005 00:01