Fleiri
Unaðstækin streyma til landsins Scarlet.is er vefverslun vikunnar á Vísi 28.6.2021 08:45 Að vinna of mikið er í orðsins fyllstu merkingu að drepa okkur Í nýlegri grein BBC er sagt frá niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar sem sýna að sífellt fjölgar í þeim hópi fólks sem deyr of ungt í kjölfar of mikillar vinnu. Greinin ber yfirskriftina „How overwork is literally killing us.“ Ótímabært dauðsfall sem afleiðing af of mikilli vinnu, er algengara hjá körlum en konum. 28.6.2021 07:01 Borgarstjóri segir bagalegt að slökkva þurfi á hleðslustöðvunum Straumur verður tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík á morgun. Óvissa ríkir um hvenær hægt verður að taka stöðvarnar, sem telja meirihluta stöðva sem borgin rekur, aftur í notkun. Borgarstjóri segir málið bagalegt. 27.6.2021 20:30 Fólk þurfi ekki að vera feimið við að vilja skoða skriðuna Ferðaþjónustan á Austurlandi er smám saman að taka við sér og er ljóst að mikil veðurblíða á landshlutanum skemmi ekki fyrir atvinnugreininni. Hálfgerð hitabylgja liggur nú yfir Austurlandinu og má búast við að hitinn verði í kringum tuttugu stig út vikuna. 27.6.2021 14:31 Ísorka minnti kærunefnd á sektarheimildir vegna hleðslustöðva Lögmaður Ísorku sendi kærunefnd útboðsmála bréf með athugasemdum við að rafmagn væri áfram veitt í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Reykjavík þrátt fyrir að nefndin hefði úrskurðað samning um þær óvirkan. Framkvæmdastjóri Ísorku fullyrti í gær að engin samskipti hefðu átt sér stað við kærunefndina. 26.6.2021 18:23 Skeljungur eykur umsvif sín í lyfsölu Fjölorkufélagið Skeljungur verður meirihlutaeigandi í apótekakeðjunni Lyfsalanum og Lyfjavali með viðskiptum sem tilkynnt var um í dag. Kaupin eru sögð liður í að minnka vægi eldsneytissölu í rekstri Skeljungs. 25.6.2021 22:49 Ísorka hafnar ábyrgð á að slökkt verði á hleðlustöðvum Framkvæmdastjóri Ísorku hafnar því að kvörtun fyrirtækisins sé orsök þess að Orka náttúrunnar ætlar að taka straum af á annað hundrað hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík. Hann segir Reykjavíkurborg rót vandans. 25.6.2021 18:01 Áttföld eftirspurn eftir hlutum í Play Um 4.600 áskriftir bárust fyrir um 33,8 milljarða króna í hlutafjárútboði flugfélagsins Play sem lauk nú klukkan 16:00 í dag. Það var áttfalt meiri eftirspurn en framboð var af hlutum í útboðinu. 25.6.2021 17:21 Heildarskuldbinding vegna leigu á húsnæði undir skattinn nemur tæpum tíu milljörðum Ríkissjóður leigði húsnæði undir starfsemi ríkisins fyrir rúma sjö milljarða á síðasta ári. 25.6.2021 16:56 Fjölskylduvæn hótel sem Ferðaeyjan mælir með Ferðaeyjan er ný leitarvél fyrir gistingar á Íslandi þar sem hægt er að leita eftir gistingu á hótelum, í sumarhúsum og íbúðum. 25.6.2021 16:17 Sjóður í Abú Dabí með 1,8 milljarða eignarhlut í Íslandsbanka Hjónin Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir virðast stærstu einkafjárfestarnir í bankanum með 0,2% hlut í gegnum félögin Bóksal ehf. og AKSO ehf, sem heldur utan um rekstur Fagkaupa. 25.6.2021 14:53 Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní. 25.6.2021 14:32 Sjá næstu 50 fréttir
2.700 fjárfestar vildu hluti í Solid Clouds fyrir 2,8 milljarða Um það bil 2.700 fjárfestar tóku þátt í hlutafjárútboði tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds og sendu þeir inn tilboð að andvirði 2,8 milljarða króna. Útboðinu lauk í dag en eftirspurnin var fjórföld. 30.6.2021 19:47
Ronaldo trónir á toppi peningalista Instagram Knattspyrnukappinn Christiano Ronaldo getur rukkað mest allra í heiminum fyrir kostaða Instagram-færslu. Samkvæmt greiningu HopperHQ getur hann krafist allt að 1,6 milljón bandaríkjadala fyrir hverja færslu. 30.6.2021 15:40
Anna Björk formaður stjórnar FKA Framtíðar Anna Björk Árnadóttir er nýr formaður FKA Framtíðar en ný stjórn var kjörin á aðalfundi sem fram fór á dögunum. 30.6.2021 14:48
Nýr raforkusamningur Landsvirkjunar og Verne Global Landsvirkjun og Verne Global hf. tilkynntu í dag undirritun nýs raforkusamnings. Um er að ræða grænan raforkusamning sem gildir til 2030, en í honum er samið um upprunaábyrgðir til staðfestingar á því að öll raforka sem seld er til gagnavers Verne Global á Íslandi er einungis framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum. 30.6.2021 14:35
Nóg hafi verið að þiggja afmælisboð Björgólfs til að komast á svartan lista Halldór Kristmannsson segir að Róbert Wessman hafi beitt undirmenn sína þrýstingi árum saman til að koma höggi á hóp athafnamanna í íslensku viðskiptalífi. Halldór telur upp fjölda fólks sem hann segir Róbert hafa horn í síðu. Meðal annars Björgólfsfeðga, Birgi Bieltvedt og Heiðar Guðjónsson. Þá hafi Róbert haft frumkvæði að málsókn á hendur Björgólfi yngri í nafni hluthafa bankans. 30.6.2021 13:13
United Airlines pantar 270 þotur Bandaríska flugfélagið United Airlines tilkynnti nýlega að það hefði gengið frá stærstu flugvélapöntun í sögu félagsins. 30.6.2021 12:44
Hinn eini sanni b5 opnar í nýju húsnæði Skemmtistaðurinn b5 mun opna aftur í sumar eftir árshlé á starfsemi sinni. Hann verður hins vegar ekki í Bankastræti 5 eins og forðum, en þaðan dregur staðurinn nafn sitt, heldur á horni Hverfisgötu og Smiðjustígs, þar sem Hverfisbarinn var áður til húsa. 30.6.2021 12:30
Verð á bréfum í Íslandsbanka hækka Mikil veisla er í Kauphöllinni. Hlutabréf í bönkunum þremur, Íslandsbanka, Arion og Kviku, hafa hækkað verulega í morgun í fyrstu viðskiptum dagsins. 30.6.2021 11:29
Seldu fyrir 2,9 milljarða í Origo Hvalur hf. og tengt félög seldu í morgun allan hlut sinn í upplýsingatæknifyrirtækinu Origo fyrir tæplega 2,9 milljarða króna. Félögin seldu um sextíu milljónir hluta sem jafngildir 13,8 prósenta hlut í Origo. Hvalur átti 11,57 prósent í Origo. 30.6.2021 11:27
Félag Róberts kaupir 17 prósenta í Alvogen í Bandaríkjunum Aztiq Pharma Partners hefur keypt sautján prósenta hlut í Alvogen í Bandaríkjunum, eftir að hafa lokið fjármögnun upp á 12,4 milljarða króna, um hundrað milljóna Bandaríkjadala. 30.6.2021 07:35
Leita til íslenskra kvenna eftir árangurssögum í samskiptum og velgengni „Ríflega þrjátíu þúsund þátttakendur hafa sótt þessi námskeið og nú væri frábært að einhverjar konur gæfu sig fram og segðu okkur frá árangri sem þær hafa náð í sínu starfi með því að nota reglurnar,“ segir Unnur Magnúsdóttir ráðgjafi hjá Dale Carnegie um endurútgáfu bókarinnar Vinsældir og áhrif, þar sem ætlunin er að segja meðal annars frá árangri íslenskra kvenna sem náð hafa árangri í viðskiptum með því að vera góðar í samskiptum. 30.6.2021 07:00
Hörður svarar fyrir sig: „Ég hef fylgt öllum siðareglum sem eru um hagsmunaárekstra í starfi“ Hörður Ægisson, ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins, segir að ekkert í siðareglum Fréttablaðsins né Blaðamannafélagsins (BÍ) segi til um hlutabréfaeign blaðamanna. Hann segir túlkun formanns BÍ um að engu máli skipti hve stóran hlut blaðamenn eigi í fyrirtækjum undarlega. 29.6.2021 20:11
Huppa sektuð um fimm milljónir fyrir að vakta fataskiptiaðstöðu Huppuís efh. hefur verið sektaður um fimm milljónir króna af Persónuvernd fyrir að hafa haldið út rafrænni vöktun í einni af fimm ísbúðum fyrirtækisins. Vöktunin fór fram í rými þar sem starfsmenn, sem margir eru undir lögaldri, notuðu til fataskipta. 29.6.2021 19:45
Lofa því að mjólkin sé „oft góð lengur“ en segir á fernunni Mjólkurfernur Mjólkursamsölunnar hafa tekið breytingum. Nú er ekki aðeins gefin upp dagsetning sem mjólkin er „best fyrir“ heldur er þess nú sérstaklega getið á sama stað að hún sé „oft góð lengur.“ 29.6.2021 16:50
Arftaki Camillu fær loksins nafn Langþráður draumur aðstandenda Bíó Paradísar um að eignast nýja poppvél rættist á dögunum. En til að nefna gripinn var brugðið til þess ráðs að leita til almennings eftir nafni. Vinningstillagan var hið hljómfagra nafn Maísól Camilludóttir. 29.6.2021 14:19
Hörgull á hvítum Monster vegna mikillar eftirspurnar og skorts á hráefni Unnendur Monster-orkudrykkjanna hafa margir hverjir klórað sér í höfðinu yfir því hvers vegna sá hvíti, Monster Ultra White Zero Energy Drink, sé nánast ófáanlegur á landinu? Hefur algjört æði gripið landann eða hefur framleiðslunni verið hætt? 29.6.2021 14:08
Bætist í hóp eigenda EY Gunnar S. Magnússon hefur bæst í hóp eigenda EY, en hann leiðir sjálfbærniteymi EY sem stofnað var á árinu hjá félaginu. 29.6.2021 12:31
Hækka skilagjaldið um tvær krónur Frá mánaðarmótum hækkar útborgað skilagjald fyrir flöskur og dósir til viðskiptavina Endurvinnslunnar úr sextán krónum í átján á hverja einingu. 29.6.2021 12:23
Ráðin verkefnastjóri Stafræns Suðurlands Margrét Valgerður Helgadóttir, sérfræðingur í upplýsingatækni, hefur verið ráðin verkefnastjóri Stafræns Suðurlands. 29.6.2021 12:17
Bein útsending: Opinn kynningarfundur vegna hlutafjárútboðs Solid Clouds Fyrirtækjaráðgjöf Arion banka stendur fyrir opnum kynningarfundi klukkan 12:30 í dag vegna hlutafjárútboðs íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds. 29.6.2021 11:46
900 milljóna gjaldþrot umdeildrar bílaleigu Skiptum er lokið í þrotabúi Grunda ehf. sem úrskurðað var gjaldþrota í júní í fyrra. Engar eignir fundust í búinu en lýstar kröfur námu 898 milljónum króna. 29.6.2021 11:43
Hafa náð samkomulagi um rekstur nýs veitingastaðar í Hörpu Nýr veitingastaður, „Hnoss“, mun opna á jarðhæð Hörpu í ágúst næstkomandi. Það er veitingafólkið Stefán Viðarsson og Fanney Dóra Sigurjónsdóttir sem munu reka staðinn sem áætlað er að opni skömmu fyrir Menningarnótt. 29.6.2021 11:27
Krónan og Elko flytja í gamla Mylluhúsið í Skeifunni Krónan og Elko munu opna nýjar verslanir í Skeifunni 19 um mitt næsta ár. Um er að ræða gamla Mylluhúsið sem er í gagngerri enduruppbyggingu, en verslunarrýmið verður alls rúmir fjögur þúsund fermetrar. 29.6.2021 10:35
Berglind ráðin hugmynda- og textasmiður Berglind Pétursdóttir hefur verið ráðin hugmynda- og textasmiður á auglýsingastofunni H:N Markaðssamskipti. 29.6.2021 10:26
Svona virkar algrím Instagram Adam Mosseri, framkvæmdarstjóri Instagram, setti inn ellefu mínútna langt myndband á dögunum þar sem hann útskýrir hið flókna algrím sem stýrir því hvað við sjáum á miðlinum. 29.6.2021 10:23
Opna 800 fermetra rafíþróttahöll við Hallveigarstíg Reynsluboltar úr atvinnulífinu hafa sameinað krafta sína í opnun nýs rafíþróttastaðar í miðbæ Reykjavíkur. Boðið verður upp á aðstöðu til æfinga, keppni og skemmtun í rafíþróttum, ásamt bar þar sem hægt verður að fylgjast með stærstu rafíþróttamótum heims. 29.6.2021 10:01
Hafa lagt inn umsókn um virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar Landsvirkjun hefur lagt inn umsókn hjá Orkustofnun um virkjunarleyfi vegna Hvammsvirkjunar, sem yrði þá neðsta aflstöðin á Þjórsársvæðinu. Virkjunarleyfi er forsenda þess að síðar verði hægt að óska eftir framkvæmdaleyfi. 29.6.2021 09:50
Ofnæmiskvef skerðir lífsgæði yfir sumartímann Alvogen býður uppá breytt úrval af lyfjum í lausasölu við ofnæmiskvefi. Einstaklingsbundið getur verið hvaða meðferð hefur bestan ávinning. 29.6.2021 08:45
Virði Facebook fer yfir billjón dali Virði hlutabréfa fyrirtækisins Facebook er orðið meira en billjón dalir (1.000.000.000.000). Það er um 123,8 billjónir króna. Hlutabréfin tóku mikið stökk á mörkuðum vestanhafs undir kvöld eftir að dómari gerði, í bili, útaf við lögsókn Fjármálaeftirlits Bandaríkjanna og hóps ríkissaksóknara gegn Facebook fyrir meint samkeppnisbrot. 28.6.2021 21:43
Aðeins tvö útibú Arion banka eftir á höfuðborgarsvæðinu Aðeins tvö útibú Arion banka eru eftir á höfuðborgarsvæðinu en útibú bankans í Kringlunni lokaði á dögunum. Ekki er langt um liðið frá því að útibú Arion banka að Borgartúni 18 lokaði en þar er starfsendurhæfingarsjóður VIRK nú til húsa. 28.6.2021 17:59
Ritstjóri Markaðar Fréttablaðsins hlutafjáreigandi í 13 félögum í Kauphöllinni Hörður Ægisson, sem er ritstjóri Markaðarins á Fréttablaðinu og einn helsti viðskiptablaðamaður landsins um árabil, er skráður fyrir níu milljóna króna hlutafjáreign í 13 félögum sem skráð eru í Kauphöll Íslands. 28.6.2021 16:42
Skúli í Subway fær 145 milljónir frá Icelandair Félagið Suðurhús ehf. lagði nýverið Icelandair Group í héraðsdómi þegar flugfélagið og dótturfélag þess voru dæmd til þess að greiða félaginu 145 milljónir króna í vangoldna leigu á hótelhúsnæði í miðbænum. 28.6.2021 14:43
Hlutafjárútboð Solid Clouds hafið Klukkan tíu hófst hlutafjárútboð í íslenska tölvuleikjafyrirtækinu Solid Clouds hf. Útboðið hefst örfáum dögum eftir að tilkynnt var um næsta tölvuleik úr smiðju fyrirtækisins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fyrirtækinu. 28.6.2021 10:45
Að vinna of mikið er í orðsins fyllstu merkingu að drepa okkur Í nýlegri grein BBC er sagt frá niðurstöðum alþjóðlegrar rannsóknar sem sýna að sífellt fjölgar í þeim hópi fólks sem deyr of ungt í kjölfar of mikillar vinnu. Greinin ber yfirskriftina „How overwork is literally killing us.“ Ótímabært dauðsfall sem afleiðing af of mikilli vinnu, er algengara hjá körlum en konum. 28.6.2021 07:01
Borgarstjóri segir bagalegt að slökkva þurfi á hleðslustöðvunum Straumur verður tekinn af 156 hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík á morgun. Óvissa ríkir um hvenær hægt verður að taka stöðvarnar, sem telja meirihluta stöðva sem borgin rekur, aftur í notkun. Borgarstjóri segir málið bagalegt. 27.6.2021 20:30
Fólk þurfi ekki að vera feimið við að vilja skoða skriðuna Ferðaþjónustan á Austurlandi er smám saman að taka við sér og er ljóst að mikil veðurblíða á landshlutanum skemmi ekki fyrir atvinnugreininni. Hálfgerð hitabylgja liggur nú yfir Austurlandinu og má búast við að hitinn verði í kringum tuttugu stig út vikuna. 27.6.2021 14:31
Ísorka minnti kærunefnd á sektarheimildir vegna hleðslustöðva Lögmaður Ísorku sendi kærunefnd útboðsmála bréf með athugasemdum við að rafmagn væri áfram veitt í hleðslustöðvum Orku náttúrunnar í Reykjavík þrátt fyrir að nefndin hefði úrskurðað samning um þær óvirkan. Framkvæmdastjóri Ísorku fullyrti í gær að engin samskipti hefðu átt sér stað við kærunefndina. 26.6.2021 18:23
Skeljungur eykur umsvif sín í lyfsölu Fjölorkufélagið Skeljungur verður meirihlutaeigandi í apótekakeðjunni Lyfsalanum og Lyfjavali með viðskiptum sem tilkynnt var um í dag. Kaupin eru sögð liður í að minnka vægi eldsneytissölu í rekstri Skeljungs. 25.6.2021 22:49
Ísorka hafnar ábyrgð á að slökkt verði á hleðlustöðvum Framkvæmdastjóri Ísorku hafnar því að kvörtun fyrirtækisins sé orsök þess að Orka náttúrunnar ætlar að taka straum af á annað hundrað hleðslustöðvum fyrir rafbíla í Reykjavík. Hann segir Reykjavíkurborg rót vandans. 25.6.2021 18:01
Áttföld eftirspurn eftir hlutum í Play Um 4.600 áskriftir bárust fyrir um 33,8 milljarða króna í hlutafjárútboði flugfélagsins Play sem lauk nú klukkan 16:00 í dag. Það var áttfalt meiri eftirspurn en framboð var af hlutum í útboðinu. 25.6.2021 17:21
Heildarskuldbinding vegna leigu á húsnæði undir skattinn nemur tæpum tíu milljörðum Ríkissjóður leigði húsnæði undir starfsemi ríkisins fyrir rúma sjö milljarða á síðasta ári. 25.6.2021 16:56
Fjölskylduvæn hótel sem Ferðaeyjan mælir með Ferðaeyjan er ný leitarvél fyrir gistingar á Íslandi þar sem hægt er að leita eftir gistingu á hótelum, í sumarhúsum og íbúðum. 25.6.2021 16:17
Sjóður í Abú Dabí með 1,8 milljarða eignarhlut í Íslandsbanka Hjónin Bogi Þór Siguroddsson og Linda Björk Ólafsdóttir virðast stærstu einkafjárfestarnir í bankanum með 0,2% hlut í gegnum félögin Bóksal ehf. og AKSO ehf, sem heldur utan um rekstur Fagkaupa. 25.6.2021 14:53
Slökkva á 156 götuhleðslum í borginni og kenna Ísorku um Orka náttúrunnar hyggst taka strauminn af þeim 156 götuhleðslum sem fyrirtækið hefur sett upp um víða borg. Félagið sér sig knúið til þess í kjölfar kvörtunar Ísorku yfir að hleðslurnar væru opnar hverjum sem er og það gjaldfrjálst. Slökkt verður á stöðvunum 28. júní. 25.6.2021 14:32