Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Stafrænn byggingariðnaður – áskoranir og ávinningur Hvernig getur notkun stafrænnar tækni og upplýsingalíkana í mannvirkjagerð mætt áskorunum í byggingariðnaði? 25.5.2021 11:30
Formaður ÍFF vill hvorki gefa upp nöfn stjórnarmanna né viðsemjenda Play Litlar upplýsingar er að finna um Íslenska flugstéttafélagið á netinu og þá fæst ekki gefið upp hverjir sitja í stjórn né hverjir komu að samningaborðinu þegar gerður var kjarasamningur við flugfélagið Play. 25.5.2021 10:12
Liðsmenn Sigur Rósar sýknaðir í héraði Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í morgun fjóra liðsmenn hljómsveitarinnar Sigur Rósar af ákæru um stórfelld skattsvik. 25.5.2021 10:10
Edda Lára og Birna Íris til Össurar Edda Lára Lúðvígsdóttir og Birna Íris Jónsdóttir hafa verið ráðnar sem nýir forstöðumenn hjá Össuri. 25.5.2021 09:23
Úrskurðar að borginni beri að bjóða út innkaup á raforku Kærunefnd útboðsmála hefur komist að þeirri niðurstöðu að Reykjavíkurborg skuli bjóða út innkaup sín á raforku. 25.5.2021 08:47
Vefverslun vikunnar: Ludus.is - nýjungar á íslenskum markaði Ludus.is er vefverslun vikunnar á Vísi. 25.5.2021 08:45
19 ára með sitt eigið umhverfisvæna framleiðslufyrirtæki Hulda Fanný Pálsdóttir er 19 ára gömul og búsett í Garðabæ. Þrátt fyrir ungan aldur, er hún búin að stofna fyrirtæki sem heitir AKA og selur töskur sem hún hannar og framleiðir sjálf. Það sem gerir AKA töskurnar sérstakar er að þær eru unnar úr sætisbeltum og leðursætum úr bílum. 25.5.2021 07:00
Boða rúmlega hundrað manns á námskeið Á annað hundrað manns, flestir flugfreyjur, hafa verið ráðnir til starfa hjá flugfélaginu Play. Starfsmannanámskeið hefjast á næstu dögum. Forstjóri Play segir engar athugasemdir hafa verið gerðar við kjarasamninga félagsins af hálfu starfsmanna. 24.5.2021 12:13
Hasar á bílavörumarkaðnum: Lénadeilur Poulsen og Orku ehf ná áratug aftur í tímann Deilur Poulsen á Íslandi og Orku ehf um lén á Internetinu eru á engan hátt nýjar af nálinni og hafa þær ítrekað komið til kasta Neytendastofu. 24.5.2021 07:01
Áhugasamir kaupendur grænnar orku knýja dyra hjá Landsvirkjun Landsvirkjun finnur fyrir stórauknum áhuga á raforkukaupum, meðal annars frá fjárfestum sem hyggja á græna eldsneytisframleiðslu. Forstjórinn segir þó enga ákvörðun liggja fyrir um smíði nýrra virkjana til að mæta eftirspurninni en lýsir vonbrigðum með leyfisferli vegna vindorku. 23.5.2021 22:44
Drífa stendur við yfirlýsingar sínar um kjör hjá Play Forseti Alþýðusambands Íslands segir það rangt sem fram kemur í nýlegri yfirlýsingu Íslenska flugstéttarfélagsins, að samkvæmt kjarasamningi félagsins við flugfélagið Play séu grunnlaun flugliða um 350 þúsund krónur. 23.5.2021 20:14
Íslenska flugstéttarfélagið hafnar „dylgjum og rangfærslum“ ASÍ Íslenska flugstéttafélagið eða ÍFF furðar sig á vinnubrögðum ASÍ að reka áróður gegn félaginu og viðsemjanda þess, flugfélagsins Play. Þá harmar félagið og hafnar „öllum þeim dylgjum og rangfærslum sem viðhafðar hafa verið af forystu ASÍ,“ segir í yfirlýsingu sem félagið sendi á fjölmiðla nú fyrir skömmu. 23.5.2021 16:28
Tókust harkalega á um kjaramál í Sprengisandi Forstjóri flugfélagsins Play og forseti ASÍ tókust vægast sagt harkalega á vegna launakjara í Sprengisandi í morgun þegar kjaramál starfsmanna flugfélagsins voru til umræðu. Forstjórinn segir framferði ASÍ óboðlegt og rangt að grunnlaun séu um 260 þúsund. 23.5.2021 13:07
Ekki sama hvar eða hvenær fjölskyldan hyggst dýfa tánum í náttúrubað Mikið hefur verið lagt í uppbyggingu ferðamannastaða hérlendis á síðustu árum og enn bætist í flóru baðstaða sem er ætlað að bjóða upp á eitthvað annað en hina hefðbundnu sundlaugaupplifun. 22.5.2021 11:00
Byrjar daginn á því að leita að fuglum og köttum Það kann að hljóma furðulega að Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, byrji daginn á því að leita að fuglum og köttum. Skýringin er reyndar einföld því morgunrútínu Halldórs er meðal annars stjórnað af yngstu dóttur hans, sem vekur pabba sinn hispurslaust klukkan hálfsjö. Halldór átti sér stóra drauma þegar hann var lítill. Til dæmis að verða tígrisdýr. Í dag eru það hins vegar hjól atvinnulífsins í kjölfar Covid og bólusetninga sem Halldór er með hugann við og í skipulagi heldur hann trygglyndi við Outlook dagatalið. 22.5.2021 10:00
Cook ber vitni í málferlum Epic gegn Apple Tim Cook, forstjóri Apple, mun í dag setjast í vitnastúkuna í máli Apple og Epic Games, framleiðenda hins vinsæla leiks Fortnite. Epic hefur sakað Apple um samkeppnisbrot en málaferlin gætu haft gífurleg áhrif stýrikerfi í tækjum Apple og hvernig notendur sækja snjallforrit. 21.5.2021 14:07
Ósanngjarnt að bera saman launakjör flugfélaganna Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir ósanngjarnt að bera saman launakjör nýstofnaðs lággjaldaflugfélags við önnur rótgróin flugfélög. Hann segir glærur sem birtar voru í morgun með áformum félagsins um lágan launakostnað eldgamlar og að þær eigi ekkert skylt við það sem félagið sé að gera í dag. Kjarasamningar félagsins séu ekkert til að skammast sín fyrir. 21.5.2021 11:59
Sigurlína nýr stjórnarformaður Solid Clouds Sigurlína Ingvarsdóttir hefur tekið við stjórnarformennsku hjá Solid Clouds, framleiðanda fjölspilunartölvuleiksins Starborne. 21.5.2021 10:16
Biobú kaupir meirihluta hlutafjár í ísgerðinni Skúbb Biobú hefur keypt meirihluta hlutafjár í ísgerðinni Skúbb ehf. Seljandi er Jóhann Friðrik Haraldsson, einn af stofnendum félagsins. 21.5.2021 09:35
Lækka leiguna hjá 190 leigutökum um 25 þúsund krónur Bjarg íbúðafélag hyggst lækka leiguna hjá 190 leigutökum sínum um 14 prósent um næstu mánaðamót. Leigan fer þannig úr 180 þúsund krónum í 155 þúsund krónur. 21.5.2021 08:11
Kannski er yfirmaðurinn þinn á breytingaskeiðinu sínu (á líka við karlmenn) Að tala um breytingaskeiðið fer oftast fram í frekar lokuðum hópum. Kannski hjá bestu vinkonum. Hjá hjónum. Hjá lækninum. Sjaldnast meðal karlmanna, en þó: Það kemur fyrir. Hjá báðum kynjum oft í gríni eða sem einhvers konar djók. 21.5.2021 07:00
Play seldi fjárfestum hugmynd um lægri laun en hjá WOW Flugfélagið Play undirbjó á sínum tíma glærukynningu fyrir mögulega fjárfesta þar sem áform voru kynnt um að lækka launakostnað starfsmanna allverulega frá því sem verið hafði hjá WOW air. 21.5.2021 06:27
Uppbygging hjá KR meðal stærri áfanga í sögu félagsins Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Gylfi Dalmann Aðalsteinsson, formaður íþróttafélagsins KR, undirrituðu í hádeginu samning um fyrirhugaða uppbyggingu á KR-svæðinu. Meðal annars á að byggja fjölnota knatthús ásamt því að heildarskipulagi KR-svæðisins á að breyta. 20.5.2021 15:47
Sigríður Hrund nýr formaður FKA Sigríður Hrund Pétursdóttir, fjárfestir og eigandi Vinnupalla, var kosin nýr formaður Félags kvenna í atvinnulífinu (FKA) á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Siguríður Hrund var kosin formaður til tveggja ára og tekur við stöðunni af Huldu Ragnheiði Árnadóttur. 20.5.2021 12:39
Hljóðbækur Storytel aðgengilegar á Spotify Áskrifendum Storytel verður brátt gert kleift að hlýða á hljóðbækur sínar á streymisveitunni Spotify. Sænsku tæknirisarnir hafa undirritað samning þess efnis og er áætlað að hægt verði að samtengja veiturnar síðar á þessu ári. 20.5.2021 12:07
Verðlaunuðu greiningarbúnað fyrir höfuðhögg Seifer, greiningarbúnaður fyrir höfuðhögg íþróttafólks hlaut á dögunum Guðfinnuverðlaunin 2021. Búnaðurinn inniheldur hreyfi- og hröðunarnema sem mæla meðal annars höggkraft, hröðun og horntíðni höfuðhöggs. 20.5.2021 11:33
Tryggvi áfram formaður í nýskipuðu Hugverkaráði SI Tryggvi Hjaltason hjá CCP hefur skipaður formaður í nýju Hugverkaráði Samtaka iðnaðarins. 20.5.2021 11:19
YLFA vinnur alþjóðleg gullverðlaun í flokki áfengislausra bjóra Borg Brugghús státar nú af alþjóðlegum verðlaunum fyrir áfengislausa bjórinn Ylfu. 20.5.2021 10:39
Met slegið í fjölda seldra íbúða Í mars var slegið met í fjölda seldra íbúða í einum mánuði þegar 1.300 kaupsamningar voru útgefnir. Hefur meðalsölutími íbúða aldrei verið styttri á höfuðborgarsvæðinu og seldist tæplega þriðjungur eigna þar yfir ásettu verði. 20.5.2021 10:15
16,9 milljarðar í styrki vegna faraldursins Um 14,5 milljarðar króna hafa verið greiddir í tekjufalls- og viðspyrnustyrki sem ætlað er að aðstoða rekstraraðila, þar með talið einyrkja, sem orðið hafa fyrir tekjufalli vegna heimsfaraldurs kórónuveiru. Um 2,4 milljarðar króna hafa verið greiddir í lokunarstyrki. 20.5.2021 09:54
„Ekki nóg að stilla stólinn rétt og hafa skrifborðið í réttri hæð“ Vinnan getur verið uppspretta andlegrar orku, ekkert ólíkt þeirri upplifun að ganga á fjöll eða sinna öðrum áhugamálum. Vinnustaðir þurfa að hanna sveigjanlegri kerfi sem hver og einn starfmaður getur aðlagað að sér og sínum verkefnum. Og íslensk fyrirtæki eru nú þegar að sjá vísbendingar um að fólk hugi að flutningum á milli landshluta eða jafnvel til annarra landa, nú þegar fjarvinna er orðin að veruleika til framtíðar. Þetta er meðal þess sem fram kemur í svörum mannauðstjóra sem teknir voru tali í dag, í tilefni alþjóðlega mannauðsdagsins sem er í dag. 20.5.2021 07:01
Hóta málsókn og saka ASÍ um „annarlegan áróður“ Nýja flugfélagið Play hefur lýst yfir sárum vonbrigðum með að Alþýðusamband Íslands (ASÍ) hafi í dag hvatt landsmenn til að sniðganga flugfélagið vegna lágra launa sem flugfélagið mun bjóða starfsfólki sínu. Félagið krefst þess að ASÍ dragi fullyrðingar sínar til baka annars verði það að leita réttar síns í málinu. 19.5.2021 20:15
Hundruð skráð sig vegna málsóknar gegn bönkunum Nokkur hundruð manns hafa ákveðið að taka þátt í málarekstri gegn bönkum vegna lána sem Neytendasamtökin telja ólögmæt. Samtök fjármálafyrirtækja telja óvíst hvort fólkið hafi orðið fyrir nokkru tjóni. 19.5.2021 18:45
Hvetja landsmenn til að sniðganga flugfélagið Play Alþýðusamband Íslands hvetur landsmenn til að sniðganga hið nýja flugfélag Play þar til það hefur „sýnt að það ætli að vera hluti af íslenskum vinnumarkaði og bjóða starfsfólki sínu kaup og kjör sem gilda hér á landi,“ eins og segir í tilkynningu. 19.5.2021 17:37
Dönsk skip flytja koltvísýring til förgunar á Íslandi Samið hefur verið um að danska skipafélagið Dan-Unity CO2 sjái um flutning á koltvísýringi til förgunar í fyrirhugaðri miðstöð Carbfix í Straumsvík. Siglingarnar eiga að hefjast árið 2025 en stefnt er að því að farga allt að þremur milljónum tonna af koltvísýringi árlega árið 2030. 19.5.2021 16:20
Valeria til Advania Advania hefur ráðið Valeriu Rivina sem nýjan forstöðumann veflausna. Hún hefur tíu ára stjórnunarreynslu í upplýsingatæknigeiranum og hefur leitt umfangsmikil stafræn umbóta- og þróunarverkefni. 19.5.2021 15:40
Bitcoin og aðrar rafmyntir í frjálsu falli Rafmyntin Bitcoin hefur hrunið í virði í dag. Virði myntarinnar hefur lækkað stöðugt undanfarna fimm daga en botninn virðist taka úr þegar ráðmenn í Kína tilkynntu að herða ætti ólarnar á rafmyntum þar í landi. 19.5.2021 15:31
CCP vann til Webby verðlauna CCP Games vann í gær til hinna virtu Webby netverðlauna fyrir smáleik innan leiksins EVE Online. Nánar tiltekið snúast verðlaunin sem CCP vann um samfélagsþjónustu innan tölvuleikja og heitir verkefnið sem vann Project Discovery. 19.5.2021 12:05
Safna liði í málsókn gegn bönkunum: Stærsta hagsmunamál neytenda Neytendasamtökin segja breytilega vexti á lánum ólögmæta og hyggjast stefna bönkunum. Formaður samtakanna segir einhliða vaxtaákvarðanir byggja á matskenndum og huglægum mælikvörðum bankanna. Þetta sé stærsta hagsmunamál neytenda í dag. 19.5.2021 11:59
Verðbólga yfir markmiði fram á mitt næsta ár Verðbólguhorfur hafa versnað og verðbólga verður ekki komin niður í markmið Seðlabankans fyrr en um mitt næsta ár samkvæmt spá bankans í dag. Meginvextir voru hækkaðir í dag um 0,25 prósentustig. 19.5.2021 11:54
„Charlie bit my finger“ myndbandið til sölu „Charlie bit my finger!“ er líklega einn þeirra frasa sem flestir, sem vöfruðu um internetið árið 2007, kannast við. Frasinn heyrðist fyrst í myndbandi, sem fór eins og eldur um sinu um netið, þar sem sjá má Charlie bíta bróður sinn Harry í fingurinn. 19.5.2021 11:31
Íbúðaverð hækkað um tæp 14 prósent síðasta árið Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 2,7% milli mars og apríl. Hefur hún nú hækkað um 6,7% síðastliðna þrjá mánuði og um 13,7% síðastliðið ár. 19.5.2021 10:33
Bein útsending: Seðlabankinn gerir grein fyrir hækkun stýrivaxta Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skýrir frá ákvörðun sinni um að hækka stýrivexti bankans um 0,25 prósentur á fundi sem hefst klukkan 9:30 í Seðlabankanum. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því eitt prósent. 19.5.2021 09:00
Seðlabankinn hækkar stýrivexti Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að hækka vexti bankans um 0,25 prósentur. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlánum, verða því 1 prósent. 19.5.2021 08:30
Stjörnutorg Kringlunnar mun færa sig um set Til stendur að ráðast í miklar framkvæmdir á þriðju hæð Kringlunnar sem munu meðal annars skila sér í nýrri mathöll, breyttu Ævintýralandi og svokölluðum búbblublómaskála. Kostnaður er áætlaður um milljarður króna og framkvæmdatíminn um eitt og hált til tvö ár. 19.5.2021 07:39